Morgunblaðið - 23.04.1981, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1981
33
Breiðholtsleikhúsið sýnir nýtt barnaleikrit:
Segðu Pang! - leikrit um
„fullorðna“ fyrir börn
Breiðholtsleikhúsid sýnir i
dag. sumardaginn fyrsta. nýtt
íslenzkt barnaleikrit sem nefnist
„Segðu PANG“. Sýningar verða í
Fellaskóla þar sem Breiðholts-
leikhúsið hefur fengið inni með
starfsemi sina en i athugun er að
ferðast með sýninguna siðar
meir. jafnt um höfuðborgina sem
út um land.
Leikritið „Segðu PANG“ hefur
að verulegu leyti orðið til í leik-
smiðju með höfundi, leikstjóra og
leikurum. Höfundurinn sem hefur
áður skrifað verk fyrir börn kýs að
halda nafni sínu leyndu. Leikarar
eru tveir, þau Þórunn Pálsdóttir
og Þröstur Guðbjartsson. Fara
þau með 12 ólík hlutverk en auk
þess koma fyrir í leikverkinu
raddir af segulbandi. Leikstjóri er
Jakob S. Jónsson.
Leikritið „Segðu PANG“ fjallar
um tvö börn, sem með því að
bregða sér í ýmis leikgervi upp-
götva ýmislegt nýtt — t.d. um efni
það er sjónvarpið hefur daglega á
boðstólum, og er reynt að bregða
upp mynd af því hvers konar sess
ofbeldi í skemmtimyndum skipar í
barnshuganum. Er það von þeirra,
sem að sýningunni standa, að hún
megi verða áhorfendum sínum til
gagns ekki síður en skemmtunar
og verði hvati að umræðu — ekki
einvörðungu meðal fullorðinna
heldur einnig meðal barnanna
sjálfra.
Leikritið „Segðu PANG“ verður
sem fyrr segir frumsýnt í dag, en
næstu sýningar verða laugardag
og sunnudag.
Þröstur Guðbjartsson og Þórunn Pálsdóttir í hlutverkum mafíufor-
ingja og bófa. Don Karlos mafiuforingi tekur við dollarabúnti úr
höndum bófans flirulegur á svip — en dollari er alltaf dollari.
Ljósm. Krlstján
/■
Islenzk tónverk
frumflutt í
Norræna húsinu
ÞÓRA Johanscn, scmbal, og Wim
Hoogewerf. gítar, halda tvenna
tónleika i Norræna húsinu, hina
fyrri fimmtudaginn 23. april nk.
og hina siðari miðvikudaginn 29.
apríl. Hefjast báðir tónleikarnir
kl. 20.30.
Á efnisskrá fyrri tónleikanna,
23. apríl, eru verk eftir Vivaldi,
Jónas Tómasson, Manuel Ponce,
Goffredo Petrassi, Villa-Lobos,
Gerard van Wolferen og Atla
Heimi Sveinsson.
Verk Jónasar Tómassonar, Atla
Heimis Sveinssonar og Gerard
van Wolferen eru sérstaklega
samin fyrir Þóru og Wim, og er
þetta frumflutningur verkanna á
Islandi.
Síðari tónleikarnir 29. apríl eru
einleikstónleikar Wim Hoogewerf.
Flytur hann verk eftir J.S. Bach,
Turina, Albéniz, Villa-Lobos og
tvö ný verk eftir Walter Hekster
og Chiel Meijering.
Þóra Johansen, fædd 1949 í
Reykjavík, hóf nám í píanóleik í
tónlistarskólanum í Reykjavík hjá
Hermínu S. Kristjánsson 1958, og
lauk þaðan prófi hjá Jóni Nordal
árið 1970. Hún hélt síðan til
framhaldsnáms 1971 og innritað-
ist í Sweelinck Konservatorium í
Amsterdam. Þar stundaði hún
nám í píanóleik hjá Jan Dereksen
í 2 ár. 1973 hófst sembalnám hjá
Anneke Uittenbosch og síðar hjá
Jacques Ogg. Lokapróf tók hún
vorið 1979. Þóra kennir semballeik
við tónlistardeild háskólans í
Amsterdam og einnig kennir hún
við tónlistarskólana í Utrecht og
Bevrerwijk.
Gítarleikarinn Wim Hoogewerf
er Hollendingur. Hann hóf nám í
klas'sískum gítarleik 1971 og inn-
ritaðist þrem árum síðar í Swee-
linck Konservatorium, en þaðan
lauk hann einleikaraprófi vorið
1980. Hann hefir haldið fjölda
tónleika, bæði í heimalandi sínu
og í Frakklandi, komið fram í
útvarpi og sjónvarpi og hlotið
mikið lof fyrir leik sinn, einkum
flutning á nútimatónlist.
Líkan af nýju kirkjunni. LjiKm. Kristján.
Hefja byggingu nýrrar
kirkju í Hafnarfirði
Fyrsta skóflustungan tekin í dag
FYRSTA skóílustungan að
nýrri kirkjubyggingu i Hafnar-
firði verður tekin kl. 14. i dag,
sumardaginn fyrsta, 23. aprií.
Gamall maður sem fyrstur var
til að gefa fé til byggingarinnar
mun væntanlega taka skóflu-
stunguna ef heilsan leyfir.
Að lokinni þeirri athöfn verð-
ur sýning á teikningum af
kirkjunni og likani af henni i
Viðistaðaskóla og jafnframt
verður þar kaffisala á vegum
systrafélags Viðistaðasóknar.
Nýja kirkjan mun standa á
hæð fyrir ofan Víðistaðatúnið
skammt frá Víðistaðaskóla. Hún
verður 862 fermetrar að flatar-
máli og sjálft kirkjuskipið kem-
ur til með að taka 250—300
manns í sæti. í safnaðarsal við
hlið kirkjuskipsins munu rúmast
um 100 manns og í kennslustofu
í tengslum við skrifstofu prests-
ins 40—50 manns. Auk þess
verður rými fyrir 90 manns á
svölum kirkjuskipsins. Óli G.H.
Þórðarson arkitekt og Lovísa
Christiansen innanhúsarkitekt,
starfsmenn hjá Litlu teiknistof-
unni, hafa hannað útlit kirkj-
unnar.
„Kirkjan verður að grunnfleti
eins og engill með útbreidda
vængi," sagði sr. Sigurður H.
Guðmundsson sóknarprestur í
Víðistaðasókn í samtali við Mbl.
„Lögun hennar gerir það að
verkum að hún nýtist mjög vel,
áfast við kirkjuskipið verður
m.a. safnaðarheimili og aðstaða
til annarrar kirkjulegrar starf-
semi.
Inngangurinn er nokkuð sér-
stakur. Söfnuðurinn gengur á
brú yfir tjörn gegnum turn og
inn í kirkjuskipið. Þetta á að
minna á skírnina. Fyrirhugun
skírnarinnar er ferð Israels-
manna gegnum Dauðahafið. I
upphafi notuðu kristnir menn
oft þá líkingu að eins og Drottin
bjargaði ísraelsmönnum gegn-
um Dauðahafið bjargi hann
okkur gegnum skírnina til sam-
félags við sig.“
Fyrsta kirkjan í 67 ár
Sigurður sagði að áætlað væri
að koma grunni kirkjunnar upp
strax en framhald byggingarinn-
ar yrði að sníða eftir fjárhagn-
verð fljótt fullbúin. Hún er mjög
einföld í byggingu og við reikn-
um ekki með að hún verði dýr.“
Víðistaðasókn hefur aðstöðu
fyrir guðsþjónustu í kapellu
Hrafnistu og hefur fengið þar
inni einnig með æskulýðsstarf og
starf fyrir þroskahefta.
„Við erum löngu búnir að
sprengja það húsnæði utan af
okkur. Það er því mikil þörf fyrir
þessa kirkju en hún er sú fyrsta
sem rís í Hafnarfirði í 67 ár ef
frá er talin klausturbygging
camlítusystra.“
— Eru Hafnfirðingar kirkju-
ræknir?
„Ég er ánægður með þátttöku
þeirra í safnaðarlífi. Um 500
manns sækja reglulega samkom-
ur í kirkjunni í hverri viku nema
á stórhátíðum eru þeir mun
fleiri,“ sagði Sigurður að lokum.
Óli G.H. Þórðarson (t.v.) og sr. Sigurður H. Guðmundsson
sóknarprestur með kirkjulíkanið.
Kór Langholtskirkju með aukatónleika
KÓR Langholtskirkju heldur
aukatónleika i Fossvogskirkju á
föstudagskvöld klukkan 20, en á
efnisskránni er óratórían Messí-
as eftir Ilándel, sem kórinn flutti
á tónleikum 11.. 13. og 14. apríl
sl.
Einsöngvarar með kórnum
verða þau Elín Sigurvinsdóttir,
Rut L. Magnússon, Garðar Cortes
og Halldór Vilhelmsson, auk
br'KRja félaga úr kórnum, þeirra
Ragnheiðar Fjeldsted, Signýjar
Sæmundsdóttur og Viðars Gunn-
arssonar.
Undirleik annast 25 félagar úr
Sinfóníuhljómsveit íslands, en
Martin Hunger Friðriksson leikur
á orgel og Helga Ingólfsdóttir á
sembal.
Stjórnandi Kórs Langholts-
kirkju er Jón Stefánsson.