Morgunblaðið - 23.04.1981, Síða 35

Morgunblaðið - 23.04.1981, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRIL 1981 35 Kristjana Fenger Minningarorð Fædd 17. mars 1895. Dáin 14. april 1981. Hún var dóttir hins merka athafnamanns Geirs Zoega og síðari konu hans, Helgu Jónsdótt- ur frá Stóra Ármóti í Flóa. Var hún því komin af sterkum stofn- um í báðar ættir. Enda sýndi hún það alla tíð hvað hún hafði hlotið að erfðum, svo sterkur persónu- leiki sem hún var. Þar sem hún var mjög fyrir alla ræktun vil ég helst líkja henni við sterkt tré, sem stendur af sér alla storma, þar til í bylnum stóra seinast. Þau börn Geirs Zoéga voru fjögur sem upp komust, þrjár dætur og einn sonur. Gamli Geir, eins og hann var jafnan nefndur, mun hafa verið talinn ríkur maður á sínum tíma, en enginn rétti honum þau auðæfi upp í hendur. Þeirra aflaði hann sjálfur með þrotlausri vinnu, hagsýni og fyrir- hygRju. Börn hans ólust því ekki upp í leti og ómennsku, heldur voru þau fljótt vanin á að vinna og voru þau alla tíð iðjusamt fólk. Þessar þrjár systur urðu mág- konur mínar, þar sem ég giftist bróður þeirra, Geir. Oft er talað um að köld sé mágaástin, en hér átti það ekki við því betri mágkon- ur hefir engin ung kona eignast, er mér alveg óhætt að fullyrða. Ég var töluvert yngri en þær, mér fannst stundum eins og þær stæðu vörð um mig og aldrei heyrði ég illt orð talað til mín og má það makalaust teljast eftir hálfrar aldar samvistir. Nánasta sambandið hafði ég þó við Kristjönu mágkonu, bæði var að hún bjó svo að segja í næsta húsi við okkur nú yfir 30 ár og auk þess voru þau samrýnd systkin, hún og Geir. Kristjana var gift John Fenger, stórkaupmanni og eignuðust þau sex börn, þrjá syni og þrjár dætur, en tiltölulega ung kona, rúmlega fertug, missti hún mann sinn, sem var þá um fimmtugt, sem ég tel vera að standa á hátindi lífs síns. Þetta varð henni hræðilegt áfall sem ég held að hún hafi aldrei yfirunnið, því að ástríkara hjóna- band en þeirra hefi ég aldrei séð. Nú stóð hún eftir með fallega barnahópinn sinn og þá voru kreppuár, en hún átti hauk í horni þar sem var mágur hennar, Geir Zoéga vegamálastjóri, giftur elstu systurinni, Hólmfríði. Ég veit að hann studdi hana með ráðum og dáð. Elstu börn hennar voru enn óharðnaðir unglingar, en öll voru þau óþreytandi í að vera móður sinni til hjálpar og yndis. Sýndi sig þá hvers virði gott uppeldi er. Faðir þeirra var með afbrigðum fágaður maður og þau hjón sam- hent um uppeldi barna sinna, enda andaði móti manni hlýju og ást- ríki þegar maður kom á heimili þeirra. Kristjana var mjög iðjusöm kona sem aldrei féll verk úr hendi, meðal annars var hún sú niesta hannyrðakona sem ég hef kynnst um æfina og var hún bæði fljót- virk og velvirk. Hún hafði ung verið í Danmörku og meðal annars lært hjá þeirri frægu hannyrða- konu Clara Wæver og kunni hún því bókstaflega allar hannyrðir og afköst hennar voru með ólíkind- um. Stundum var ég að nöldra við hana um að ég vildi halda sýningu á allri hennar handavinnu, en slíkt var gjörsamlega ómögulegt, þar sem hún hafði gefið þetta allt jafnóðum og það til annarra landa. Hún hló að svona tali og Séð yfir Skálholtsstað. — Lýðháskólinn og kirkjan i efra horni til hægri. Ljósm: Mats Wibe Lund jr. Lýðháskólinn í Skálholti: Nemendamót og aðalfund- ur nemendasambandsins NEMENDAMÓT Nemendasam- bands Skálholtsskóla var haldið i Skálholti helgina 4.-5. april sið- astliðna. Nemendamótið er árlegur viðburður í starfsemi nemendasam- handsins. Það hefur þann tilgang. öðru fremur, að viðhalda samskipt- um „Skálhyltinga“ og varðveita tengsl þeirra við skólann. Allmargir Skálhyltingar sóttu Skálholt heim þessa helgi. Á laugar- dagskvöldið var skemmtun, þar sem bæði núverandi og fyrrverandi nem- endur skólans tróðu upp. Af skemmtiatriðum má nefna tvo leik- þætti, upplestur, söng, spurningar o.fl. Á eftir skemmtun var stiginn dans fram eftir nóttu. Einn helsti dagskrárliður nem- endamótsins var frumsýning kvik- myndar, sem tekin var af helstu þáttum í félagslífi og skólahaldi í Skálholtsskóla veturinn 1979—1980. Kvikmyndina tók Guðmundur Yngvi Yngvason, en hann var nemandi í skólanum þann vetur. í tengslum við nemendamót var haldinn aðalfundur NSS. Á dagskrá fundarins voru venjuleg aðalfund- arstörf. Kosin var stjórn nemenda- sambandsins og kosningu hlutu: Formaður: Steinarr Þór Þórðarson Egilsstöðum. Aðrir í stjórn: Margrét Jónsdóttir, Gry Ek, Óskar Bjart- marz og Guðmundur Yngvi Yngva- son, öll úr Reykjavík. Aðalfundur NSS ályktaði: „Aðal- fundur Nemendasambands Skál- holtsskóla lýsir ánægju sinni með það æskulýðsleiðtoganám, sem hafið var í Skálholtsskóla í vetur, og lætur í ljósi þá von, að framhald megi verða á því. Komist umrætt nám á fastan grundvöll sem deild innan skólans mun sambandið fagna aðild leiðtoganema í samtök Skálhylt- inga." Nemendamóti sleit síðan formað- ur sambandsins, eftir húslestur í Skálholtsskóla, sunnudaginn 5. apríl. Bandalag kvenna lýsir samstöðu með fötluðum AÐALFUNDUR Bandalags kvenna samþykkti nýlega eftir- farandi tillögur frá trygginga- málanefnd samtakanna: 1. Aðalfundur Bandalags kvenna í Reykjavík lýsir samstöðu sinni með fötluðum í baráttu þeirra fyrir bættum lífskjörum og betri aðbúnaði og bendir í því sambandi sérstaklega á nauðsyn aukinnar heimilis- hjálpar og aðstoðar við fatlaða og sjúka í heimahúsum. 2. Aðalfundur BKR skorar á Tryggingastofnun ríkisins að auka upplýsingastreymi sitt til almennings, og hvetja ábyrga starfsmenn sjúkrahúsa til að veita upplýsingar um réttar- stöðu sjúklinga að lokinni sjúkrahúsvist. 3. Aðalfundur BKR í Reykjavík skorar á heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra að láta fara fram athugun á því hvort hægt sé að setja löggjöf sem hafi að geyma fyrirbyggjandi aðgerðir, svo sem hert viðurlög við um- ferðarlagabrotum, bætta heil- brigðisþjónustu og aukið öryggi á vinnustöðum til þess að koma í veg fyrir fötlun af völdum slysa. Ormalyfstilraunir sagðist ekki vera nein listakona, enda var hún ekki fyrir að vekja á sér athygli, hjá henni var ekki nein spurning um að vera eða vera ekki. Hún var. Hún var ekki mikið fyrir að flíka tilfinningum, en trygg og vinföst var hún, allt sem hún sagði og lofaði stóð eins og stafur á bók. Hún bjó yfir þessum gullfögru kostum, heiðarleika, orðheldni og fórnfýsi, sem mér finnst stundum því miður vera á undanhaldi með þjóð okkar. Ég veit að hún mundi nú kunna mér litlar þakkir fyrir að vera að skrifa þetta um sig, en við sem erum orðin öldruð horfum eftir þeim sem hverfa frá okkur af þessum heimi, fyllumst söknuði og finnst að hluti af okkur hverfi með þeim. Ég kveð mína elskulegu mág- konu með djúpri þökk fyrir allt sem hún gaf mér. Ég kveð hana með því nafni sem öll þessi stóra fjölskylda gaf mér í upphafi vega, jafnt öldungar sem smábörn og ég var stolt af að vera kölluð og það er Ilalldóra mágkona. Krykhólum. 11. aprll. ÞEGAR tilraunin hóíst var íónu skipt í 4 hópa. ormalyfshóparnir voru 3 auk samanburðarhópsins og sagðist Inga Garðari Sigurðs- syni. tilraunastjóra svo frá: „í hverjum hópi eru 12 lömb og 12 veturgamlar ær, eða atls 96 kindur. Tilraunin hófst 20. nóvember síð- astliðinn og stóð til 2. apríl. Þessi tilraun er samstarfsverk Tilrauna- stöðvarinnar á Reykhólum (RALA), héraðsdýralæknisins Rögnvaldar Ingólfssonar og Sigurðar Richter dýralæknis, á tilraunastöðinni á Keldum. Uppbygging tilraunarinn- ar er þessi: Sýni eru tekin á mánaðar fresti og ormar taldir og fóður og tilraunaféð viktað reglu- lega. Ormalyfin, sem reynd voru eru Thigezole, Panacure, Levamisol, samanburðarhópur fékk ekki ormalyf. Meðalþyngdaraukning ormalyfsflokksins á tilraunatíman- um var 9,7 kg en samanburðar- flokksins 7,1 kg. Nokkur munur virðist vera á ormalyfstegundum hvað þyngdaraukningu snertir, en of snemmt er að gefa ákveðnu ormalyfi meðmæli, þar sem orma- talningu er ekki lokið. Svo kemur líka afurðasemi fjárins inn í dæm- ið, er ekki kemur í ljós fyrr en í haust og má því segja að tilraun- inni sé ekki lokið fyrr en þá. Æskilegt væri að geta endurtekið tilraunina til þess að fá traustari niðurstöður." Nú fyrir skömmu er búið að taka af fé tiiraunastöðvarinnar og reyndist meðalþungi ullarinnar vera 3,3 kg af kind, meðal ullar- þungi af veturgömlu fé var 4,3 kg en meðal ullarþunginn á lömbunum var 2,7 kg. Hins vegar kom fram munur á ullarþunga hjá þeim flokkum lamba, sem fengu ormalyf og samanburðarflokki. Ormalyfs- flokkur vár mð 2,8 kg að meðaltali, en samanburðarflokkur 2,4. Telja má þessa tilraun mjög athyglis- verða vegna þess að allt of margir bændur hugsa ekki út í það að nauðsynlegt er að halda ormamagni í lágmarki. Sveinn Frábær tóngæöi. ★ Samtals upptaka ★ Tónstillir ★ Hraöabreytir \mnai Sfygtittóon Lf Suðurlandsbraut 16, sími 35200. Verd aöeins kr. 1.795.00. ® 99 SANYO Vasa- disco<á sem fer eins og eldur í sinu um Evrópu. Japan og Ameríku. Njótiö tónlistar viö vinnu og leik, í ein- rúmi, hvar sem er og hvenær sem er.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.