Morgunblaðið - 23.04.1981, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1981
t
Eiginmaður minn,
HARALDUR HERMANNSSON,
Faxabraut 2,
Keflavík,
andaöist á Landspítalanum 21. apríl.
Fjóla Bjarnadóttir.
Faöir okkar,
INGOLFUR MAGNUSSON,
bifreiöaatjóri,
Aöalgötu 23, Keflavík,
lést í Borgarspítalanum 16. apríl sl.
Jaröarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, laugardaginn 25. apríl kl.
14 00. Fyrir hönd vandamanna Qré,a Erna lnfl6lf,d6tlirj
Ingólfur M. Ingólfsson.
t Eiginmaður minn, faðir og tengdafaöir,
INGOLFUR GISLASON,
Skúlagötu 58,
lést þann 20. apríl í Borgarspítalanum.
Ellen Sigurðardóttir,
Margrét J. Thorarensen, Oddur C. Thorarensen,
Theódór Ingólfsson, Anna Valgarósdóttir,
Steinunn Ingólfsdóttir, Karl ísleifsson.
Gísli Ingólfsson, Sigríöur Siguröardóttir.
t
Maðurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
VILHJÁLMUR ADALSTEINSSON,
Skaftahlíö 8,
sem andaöist á Landspítalanum 16. þ.m. veröur jarösunginn frá
Fossvogskirkju á morgun, föstudaginn 24. apríl kl. 16.30.
Þorbjörg Guöjónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Móöir mín,
SIGURJÓNA JÚLÍUSDÓTTIR
Skipasundi 10,
veröur jarösungin í Fossvogskirkju, föstudaginn 24. þessa
mánaöar kl. 1.30.
Fyrir hönd ættingja og vina. Gunnar Þórisson.
t
Útför móöur minnar, tengdamóöur og systur,
MARGRETAR FINNBOGADOTTUR,
Bírkimel 6,
er lézt 16. apríl, fer fram frá Dómkirkjunni, föstudaginn 24. aprtl kl.
15. Blóm vinsamlegast afbeöin.
Þeim, sem vilja minnast hennar er bent á Styrktarfélag lamaöra og
fatlaöra. Jóhanna Jensdóttir, Georg Brown,
Helga Finnbogadóttir.
t
Útför móöur okkar og tengdamóöur,
ÖNNU MARÍU GÍSLADÓTTUR,
Lönguhlíö 25,
fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 24. apríl kl.
13.30.
Karitas Guömundsdóttir,
Guöjón A. Guómundsson, Þóra Hannesdóttir,
Borghíldur Guömundsdóttir, Gunnar Magnússon,
Kristín G. Fenger, Geir U. Fenger.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og
jaröarför
VALDIMARS PALSSONAR,
Hjallalundi 17 K,
Akureyri.
Helga Jónatansdóttir, Ragnheiöur Valdimarsdóttir,
Ragnheiöur Valdimarsdóttir, Páll Vigfússon,
Örn Pálsson, Baldur Pálsson.
t
Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns
míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
HARALDAR BACHMANN,
Selfossi.
Margrét Jónsdóttir,
Iris Bachmann, Skarphéóinn Sveinsson,
Elín Bachmann, Höröur Bergsteinsson,
Ólafur Bachmann, Hrafnhildur Jóhannsdóttir
og barnabörn.
Anna María Gísla
dóttir — Minning
Fædd 18. marz 1893.
Dáin 10. apríl 1981.
„IIvaA cr llcl-?
ollum likn. scm lifa vel-
cnKÍll. scm til Ijóssins lcirtir.
Ijósmoóir. scm hvílu brcióir.
sf'flarhrtts cr hirta cl.
hcitir llcl.**
(Matth. Jochumsson)
Gengin er gagnmerk og góð
kona og fer útför hennar fram frá
Dómkirkjunni á morgun, föstu-
daginn 24. apríl. Ég vil minnast
hennar nokkrum orðum að leiðar-
lokum. Tengdamóðir mín var dug-
mikil og viljasterk kona, það sýndi
hún bezt í lífsbaráttunni á árun-
um fyrir síðari heimsstyrjöldina,
eins og eldri kynslóðin þekkir bezt,
en sú yngri aðeins af afspurn.
Skarð er nú fyrir skildi, þegar
einn af þjóðfélagsþegnunum, sem
fæddur er fyrir síðustu aldamót,
hverfur á vit feðra sinna til vistar
og trú á framhaldslíf að handan.
Anna María var fædd 18. marz
1893 að Nýjabæ hér í Reykjavík.
Var hún því 88 ára að aldri, er hún
lézt.
Foreldrar Önnu voru hjónin
Vilborg Frímannsdóttir, fædd að
Kirkjuvogi í Höfnum 25.12. 1859,
dáin 1895, Gíslasonar á Steina-
stöðum í Skagafjarðarsýslu
(1828—1859) og Gísli Jónsson sjó-
maður, fæddur 5.4. 1859 að Star-
dal, Mosfellssveit, Jónssonar á
írafelli í Kjós, síðar Stardal,
Jónssonar á Hrafnabjörgum í
Svínadal og víðar, Sveinssonar í
Koti í Vatnsdal. Gísli fluttist til
Vesturheims um aldamótin síð-
ustu og dó þar af slysförum árið
1908.
Stóöu góðar og merkar ættir að
baki henni í báða ættleggi, sem
hér verða ekki raktar nánar. Sjálf
var Anna mjög ættfróð og marg-
vís í þeirri fræðigrein, gat rakið og
átti ættartölu sína ritaða allt til
forna.
Móðir Önnu, Vilborg, andaðist
er hún var tveggja ára að aldri.
Var henni þá komið í fóstur til
sæmdarhjónanna Karitasar Tóm-
asdóttur og Gunnars Hafliðasonar
í Nýjabæ (áður nefnt Nikulásar-
kot), þar sem afi hans, Nikulás
Erlendsson, bjó fyrstur (langafi
Bjarna vígslubiskups Jónssonar).
Reyndust þau henni sem beztu
foreldrar og bjó Anna alla tíð að
uppeldisáhrifum þessara merku
hjóna.
Jón Helgason biskup segir í bók
sinni: „Þeir sem settu svip á
bæinn“ m.a.: Gunnar Hafliðason
var orðlagt prúðmenni og still-
ingarmaður, sem í engu mátti
vamm sitt vita. Hann stundaði
fram eftir æfi sjó á grunnmiðum,
en aðalstarf hans á ehjri árum var
að stoppa út fuglshami fyrir
náttúrugripasafn, eftir að það
komst á laggirnar og gerði hann
það af mikilli list.
Gunnar Hafliðason var fæddur
10. ágúst 1837 og andaðist 23. apríl
1907, en Karitas kona hans var
fædd 16. febrúar 1844, en dó 3.
apríl 1917.
Þau Gísli og Vilborg eignuðust
sjö börn, en til fullorðinsára
komust aðeins systurnar tvær,
Jónasína Björg, f. 1.3. 1889, er
fluttist síðar með föður sínum til
Kanada, og Anna María, f. 18.3.
1893. Einn hálfbróður áttu þær
systur, Jónas að nafni, er lézt af
slysförum í Kanada.
t Móöir og tengdamóöir okkar.
KRISTJANA FENGER,
veröur jarösungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 24. apríl kl. 10.30.
Ida Gotfredsen, Jens W. Gotfredsen,
Hilmar Fenger, Borghildur Fenger,
Garöar Fenger, Kristin F. Fenger,
Geir Fenger, Kristín G. Fenger,
Ebba Hvannberg, Gunnar Hvannberg,
Unnur Fenger, Ingólfur Viktorsson.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
TORFA ÞORBJÖRNSSONAR,
Nökkvavogi 12.
Sérstakar þakkir tii starfsfólks Elli- og hjúkrunarheimilisins
Grundar fyrir mjög góöa umönnun.
Margrét Olatsdóttir,
Helga Torfadóttir,
Olafur Torfason,
Margrét Sæmundsdóttir,
Sesselja Benediktsdóttir,
Gunnar Haraldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum samúö og hlýhug við andlát og jarðarför dóttur minnar,
systur, mágkonu og frænku okkar,
MARGRÉTAR K ARLSDÓTTUR
Granaskjóli 27.
Kristjana Baldvinsdóttir,
Sigríöur Karlsdóttir, Júlí Sæberg
Kristjana Sæberg, Karl Sæberg
Grétar Karlsson, Elísabet Björnsdóttir,
Haraldur Karlsson, Ingibjörg Árnadóttir,
Hreiöar Karlsson, Elín Gestsdóttir.
Lokað á morgun,
föstudaginn 24. apríl kl. 8.30 til 14.00, vegna
jaröarfarar.
Nathan & Olsen H.F.
Fóstursystkini tvö átti Anna,
þau Karl O.J. Björnsson bakara-
meistara, sem nú er látinn, og
Elínu B. Jensen, ekkju Markúsar
Jensen kaupmanns á Eskifirði.
Eitt mesta gæfuspor Önnu á
lífsleiðinni var, er hún gekk að
eiga Guðmund Guðjónsson kaup-
mann hér í borg, er verzlaði að
Skólavörðustíg 21. Var hann vel
þekktur og virtur meðal allra, sem
honum kynntust, m.a. formaður
Félags matvörukaupmanna í yfir
20 ár. Hann var fæddur að Efra-
Seli í Stokkseyrarhreppi 19. júní
1894, sonur Guðjóns Björnssonar
sjómanns og síðar verzlunar-
manns frá Rauðarfelli undir Eyja-
fjöllum, Björnssonar, Stefánsson-
ar, en þeir nafnar, afi og langafi
Guðmundar voru nafnkenndir í
sinni tíð fyrir lækningahæfileika
og hagleik. Amma Guðmundar var
Guðrún Jónsdóttir, systir Þor-
steins næturvarðar og lögreglu-
þjóns í Stöðlakoti hér í borg,
Jónssonar bónda Guðnasonar að
Strandarhöfða í Landeyjum. Móð-
ir Guðmundar var Steinunn M.
Þorsteinsdóttir, ■ Þorsteinssonar
frá Uthlíð í Biskupstungum, síðar
að Breiðumýri í Stokkseyrar-
hreppi, og konu hans, Guðlaugar
Stefánsdóttur frá Brekku í Bisk-
upstungum, Gunnarssonar frá
Hvammi í Landi, af hinni eldri
Hvammsætt.
Þau Anna og Guðmundur gengu
í hjónaband 17. maí 1917. Var
hjónaband þeirra mjög farsælt og
heimili þeirra til fyrirmyndar.
Anna var mikil hannyrðakona og
sat aldrei auðum höndum, ef tími
gafst frá skyldustörfum heimilis-
ins. Hún las mikið góðar bók-
menntir, var margfróð og víðlesin
í þeim efnum og stálminnug.
Hagmælt var hún vel, en flíkaði
lítt. Innan vébanda Oddfellowregl-
unnar starfaði hún í fjölda ára.
Heimili þeirra hjóna var ávallt
viðbrugðið fyrir rausn og mynd-
arskap. Eftir að heilsa Guðmund-
ar bilaði, en hann andaðist 3.
september 1961, annaðist Anna
hann af stakri alúð og hlýju, þar
til yfir lauk.
Anna og Guðmundur eignuðust
5 börn og eru 4 þeirra á lífi:
Karitas, ekkja Sigurðar Ingi-
mundarsonar fyrrverandi alþing-
ismanns og síðar forstjóra Trygg-
ingastofnunar ríkisins, Guðjón
Aðalsteinn kaupmaður í Kópa-
vogi, kvæntur Þóru Hannesdóttur,
Borghildi, gifta Gunnari Magn-
ússyni framkv.stjóra og Kristínu,
gifta Geir U. Fenger verzlunar-
manni. Hildigunnur dóttir þeirra
dó á fyrsta ári 1936. Eru barna-
börn og barnabarnabörn hennar
orðin 24 að tölu.
Á heimili Önnu og Guðmundar
dvaldi uppeldissystir hans og
náfrænka, Lilja Jónsdóttir, og
eftir lát Guðmundar héldu þær
heimili saman.
Efst er mér í huga á þessari
kveðjustund að minnast þriggja
þátta í fari hennar, er mér eru
minnisstæðastir sem tengdasyni í
35 ár, en þeir eru: kærleikur,
vinátta og tryggð. Hún var ávallt
reiðubúin að vefja börnin, tengda-
börnin, ég tala nú ekki um barna-
börnin og barnabarnabörnin, ást-
ríkum höndum. Til hennar var
gott að leita, er erfiðleikar steðj-
uðu að. Hún var ráðholl og
úrræðagóð að ráða fram úr öllurr.
vandamálum.