Morgunblaðið - 23.04.1981, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1981
HÖGNI HREKKVÍSI
ást er.
U \ \ ' /j
, AÝl
Uo ■
... aö taka eftir
nýju háryreidslunni
hennar.
TM Reg. Li.S. Pat Ofl -all rights resarvad
e 1981 Los Angetes Times Syndicate
COSPER
GeturAu ekki ílýtt þér. — É« vil fara að sufa.
Um leiksýningu í Keflavík,
skólamál og mistök lækna
Skúli Magnússon. Keflavík,
skrifar 12. apríl:
„Föstudaginn 3. apríl sl. frum-
sýndi Leikfélag Fjölbrautaskóla
Suðurnesja fyrsta stóra leikverk
sitt, í kvenfélagshúsinu í Grinda-
vík. Leikritið heitir Gildran og er
eftir Robert Thomas. Það fjallar
um baktjaldamakk og spillingu í
frönsku lögreglunni. Leikendur
voru átta: Þorlákur Guðmundsson
(Daníel Corban), Kristján Loga-
son (lögregluforingi), Ragnar
Ragnarsson (faðir Maxinin), Sóley
Birgisdóttir (Florens), Guðrún
Ágústsdóttir (Brissard Poul eða
Steinbíturinn), Lilja Möller (frök-
en Berton), lögreglumenn léku
Viðar Magnússon og Sigurður
Hauksson.
Einungis 32 gestir komu
í stuttu máli var sýningin mjög
vel heppnuð, og frammistaða leik-
enda ágæt miðað við það, að þeir
hafa fæstir stigið á fjalirnar fyrr,
nema ef vera kynni í leikþáttum á
skólaskemmtunum. Leikstjóran-
um Höskuldi Skagfjörð, tókst því
vonum framar, að ná fram góðum
samstilltum leik og leikur ein-
stakra leikenda var líka ágætur,
sérstaklega leikur Guðrunar
Ágústsdóttur, sem lék steinbítinn,
ölkæran listamann, sem ekki átti
alltaf sjö dagana sæla. Og varð á
endanum fórnarlamb miður góðra
afla í kerfinu.
Laugardagskvöldið 4. apríl var
leikurinn sýndur í Félagsbíói í
Keflavík. En ekki virtust bæjarbú-
ar vera sérlega áhugasamir um
sýninguna, því einungis komu 32
gestir til að horfa á leikinn, þar af
fjórir eða fimm, sem ekki töldust
til skólans.
Til þess er sinnuleysið
Ef til vill hafa sumir yppt
öxlum er þeir sáu auglýsingar um
leikinn á búðargluggum, og hugs-
að með sér: „Æ, skólakrakkar,
hvað skyldu þeir hafa fram að
færa? Einhverja bölvaða vitleysu?
Er nokkur alvara á bak við þetta
hjá þeim?
Frá Keflavík.
En nemendum var full alvara
með uppfærslu verksins, annars
hefðu þeir ekki lagt á sig erfiðið
við æfingar, sem hófust í janúar,
og smíði leikmyndar (sem var
ágætlega unnin), auk þess að fá
aðkominn leikstjóra, sem þurfti
kaup fyrir vinnu sína eins og
aðrir. Greiðslu til nemenda var
ekki að tala um, enda hefði orðið
harla Iítið til skiptanna ef svo
hefði verið.
Tvær seinustu sýningar Gildr-
unnar voru í Kvenfélagshúsinu í
Grindavík 5. og 6. apríl. Naut
leikfélagið þar góðs af, þar sem
kvenfélagið lánaði húsið endur-
gjaldslaust.
Ef undirtektir Keflvíkinga við
leiksýningum nemenda verða eins
slæmar framvegis, er tæplega við
að búast að nemendur hafi hug á
mikilli vinnu til að setja upp
leikverk. Það er ekki vandalaust,
að af rúmlega sex þúsund íbúum,
komu aðeins örfáir til að sjá
sýninguna. Sinnuleysi um leiklist
er því ekki ný bóla hér. Slíkt má
þó tæplega drepa starfið, og þrátt
fyrir undirtektir eiga nemendur
hiklaust, að sækja á brattann því
til þess er sinnuleysið: Að á því sé
sigrast!
Sport fram á viö
Ekki er úr vegi að minnast
örlítið á skólamál, fyrst verið er
að ræða leiksýningu Fjölbraut-
arskólans. Þau mál hafa verið
töluvert til umræðu og hafa ýmsir
fundið núverandi skipan mála
flest til foráttu. Hefur þetta jafn-
vel gengið svo langt, að einn
ágætur maður hélt því fram í
útvarpserindi um daginn og veg-
inn í mars sl., að taka bæri upp
svipaða kennsluhætti og tíðkuðust
um sl. aldamót! Skildist mér á
honum, að nýskipunin, og þá
væntanlega fjölbrautakerfið, væri
orðin of dýr tilraunastarfsemi,
sem gæfi vafasaman arð. Það er
alrangt að ekki finnist þar góðir
námsmenn eins og í hinu gamla.
Þessir hringdu . . .
Hæpin laga-
setning
Víðíörull hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Nú er
talað um að lögleiða bílbelti. Eg
er fylgjandi notkun þeirra og
mér finnst sjálfsagt að reka
sterkan áróður til þess að þau
verði almennt tekin í notkun, en
lagasetning í því skyni er að
mínum dómi afar hæpin, þó
ekki sé af annarri ástæðu en
þeirri hversu erfitt yrði að
framfylgja slíkum lögum. Ekki
væru löggæslumenn öfunds-
verðir af því starfi. Lög um
notkun bílbelta yrðu sérstæð að
því leyti að þau miðuðu að því
að vernda einstaklinginn sjálf-
an, en ekki aðra fyrir honum,
eins og oftast er. Merkilegt
finnst mér að ekkert skuli hafa
komið fram um það hvernig
gengið hefur að framfylgja
sambærilegum lögum í öðrum
löndum. Alþingismenn og aðrir
ákvörðunaraðilar ættu þó sann-
arlega að kynna sér það, því að
það er gersamlega út í hött að
setja lög, nema vitað sé með
vissu, að þau geti náð tilgangi
sínum í framkvæmdinni. Eg
legg til að byrjað verði á því að
banna ökumönnum að reykja
við akstur. Ef skýrslur um
óhöpp í umferðinni eru skoðað-
ar kemur ýmislegt ljótt í ljós
um þátt reykinga ökumanna.
MÖrg slys og margt tjón hefur
hlotist af þeirra völdum. Væri
nær að leggja áherslu á að
útrýma þessari meinsemd held-
ur en að fara út í hæpna
lagasetningu um notkun bíl-
belta.
2 1 fernurnar
voru líka súrar
B.H. hringdi og sagði: —
Oddur Magnússon hjá Mjólkur-
samsölunni segir í viðtali við
Morgunblaðið, að tveggja lítra
fernurnar virðist hafa verið í
lagi. Þetta er ekki rétt hjá
honum. Við hjónin keyptum
þrjár tveggja lítra fernur fyrir