Morgunblaðið - 23.04.1981, Blaðsíða 45
-
MÖRGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1981
45
£ a
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
AJf IY-ÁJU/ flUI U fr* ■
Og einhver merkasta breyting,
sem kom í kjölfar áfangakerfisins,
var heimild, til náms fyrir þá, sem
áður höfðu ekki átt þess kost,
einhverra hluta vegna. Öldunga-
deildir eru nú víða starfandi og
líklega hefur útkoman úr þeim
sannað betur en flest annað, að
starf þeirra er nauðsynlegt og
sjálfsagt.
Skóli er ekki lengur fyrir fáa
útvalda né til þess að þjálfa upp
einhæfa embættismenn. Skóla er
ætlað að ná til flestra og að auka
víðsýni, en sporna við þröngsýni.
Allir eiga að hafa jafnan aðgang
að skóla án tillits til búsetu eða
efnahags. Og með tilkomu áfanga-
kerfisins hefur verið stigið spor
þar fram á við.
Mikill kostur við áfangakerfið
er og, að það er mun liðlegra en
gamla bekkjarkerfið, og nú geta
nemendur hagað námshraða eftir
getu, og aðstæðum, í stað þess að
gleypa allt á einum vetri.
Afangakerfið er þó ekki galla-
laust, og vafalaust má breyta þar
ýmsu, t.d. einkunum og vægi
prófa. En án þess að raska þar
heildarskipulaginu.
Slík mistök verða í mörg-
um tilvikum ekki bætt
Mistök lækna hafa verið nokkuð
til umræðu að undanförnu. Norð-
lenskur bóndi braut ísinn og vakti
umræður á jafnmikilvægu máli.
Læknar gera mistök engu síður en
aðrir, þó þau hafi verið of lítið til
umræðu jafn opinskátt og núna.
Það eru sjálfsögð mannréttindi
þjóðfélagsþegnanna, að geta leitað
réttar síns gagnvart mistökum
lækna og annarra heilbrigðis-
stétta. Þau mistök eru vissulega
mun alvarlegri en önnur því að
þolendur eru lifandi og skyni
gæddar verur en ekki dauðir
hlutir. Og í mörgum tilfellum
verða slík mistök aldrei bætt,
jafnvel þó fé komi fyrir.
En yfirleitt hefur því verið
trúað að illmögulegt væri fyrir
almenning að ná fram bótum ef
slík mistök er að ræða. Það kom
því ýmsum á óvart, er formaður
félags ungra lækna, lýsti því yfir í
útvarpinu fyrir nokkru, að mjög
auðvelt væri að leita réttar síns í
þessum efnum. En misjafnar sög-
ur ganga af árangri slíks mála-
rekstrar.
Til að forðast óþarfa
misskilning ok tortryg>;ni
Eðlilegast er að þolendur stofni
með sér félagsskap er hefði að
markmiði, að veita fólki aðstoð í
þessum efnum. Yrði þeim félags-
skap eingöngu stjórnað af aðilum,
sem ekki störfuðu að heilbrigð-
ismálum né hefðu við þau nein
bein tengsl. Slíkur félagsskapur
gæti, ef nógu öflugur væri, komið í
veg fyrir, að mistakamál yrðu
svæfð eða þögguð niður án rann-
sóknar. Ennfremur væri hægt að
fá árlega yfirsýn yfir þau misferli
sem fram kæmu og væru lögð
fyrir félagið til meðferðar.
Mikið hefur skort á, að fólk hafi
gert sér grein fyrir réttarstöðu
sinni í mistakatilfellum. Ljóst er,
að með vaxandi umsvifum í heil-
brigðismálum og breyttum þjóð-
félagsviðhorfum er kominn tími
til að ræða þessi mál á opinskáan
hátt, til að forðast óþarfa mis-
skilning og tortryggni. Slíkt er
öllum fyrir bestu, ekki síður þeim
sem að heilbrigðismálum vinna.
Um leið vita þolendur hvar þeir
standa réttarfarslega."
hádegi á laugardaginn (18. apr-
íl), í verslun í Kópavogi. Síðan
átti að nota mjólkina um hádegi
á sunnudag, en þá var hún óhæf
til neyslu og fór öll í vaskinn.
Það þarf víst varla að lýsa því,
hvað þetta getur haft mikil
óþægindi í för með sér fyrir
fólk, fyrir utan fjárhagstjónið,
því að mjólkin er yfirleitt keypt
til þess að hafa með öðrum
vörum sem verða jafnvel að
litlum eða engum notum þegar
mjólkin bregst. Og þó að neyt-
endur séu e.t.v. bæði súrir og
þunnir í höfðinu að dómi
mjólkursamsölumanna, þá eru
þeir þó ekki svo frávita, að þeir
viti ekki að þarna hefur sami
grautur verið í sömu skál, hvort
sem um eins eða tveggja lítra
umbúðir hefur verið að ræða.
L 4 borftum i
vitum
hvað kom fyrúr
mjólkurbússtjón
segir i
>*
Hulda Valtýsdóttir
Um datrinn og veginn:
Ágætlega samið og
vel flutt erindi
H. skrifar:
„Þess ber að geta sem gert
er vel. Ég hlustaði á erindi frú
Huldu Valtýsdóttur sl. mánu-
dag um daginn og veginn.
Erindið var ágætlega samið og
vel flutt, komið víða við og til
þess fallið að hvetja fólk til að
hugsa og vinna.
Þannig eiga þessir þættir að
vera og ætti útvarpsráð að
láta þetta erindi vera hvatn-
ingu til að vanda þessa þætti
betur en verið hefur í vetur."
Gæti sárnað
minna
Álfheiður Sylvia Helgadóttir
Briem skrifar 14. apríl:
„Manni gæti sárnað minna, en
það að vera svipt nafni og öllum
forfeðrum og ættingjum með einni
setningu, sem blaðamaðurinn
„hafði heyrt". Að hann skyldi
síðan taka þessa kjaftasögu trúan-
lega, og ekki gefa sér tíma í eitt
símtal við viðkomanda til að
kanna málið nánar — það er
ennþá sárara. Ég tek það því hér
með fram, í tilefni af ættartölu
Eggerts Briem, sýslumanns, sem
birt var í Þjóðviljanum sunnudag-
inn 12. apríl sl., að ég hefi bæði
nafn og foreldra, og er ekki og hefi
aldrei verið tökubarn eða „kjör-
dóttir".
Dóris og Helgi P. Briem eru
mínir raunverulegir foreldrar,
eins og hver og einn af frændum
mínum eða frænkum í ættartöl-
unni hefðu getað sagt blaðamann-
inum, hefði hann bara kært sig
um að kanna það.
Ég hef sjálft heyrt þessa fárán-
legu sögu áður, og ekki bætti þessi
grein úr skák með það, en ég vona
svo sannarlega að ég þurfi aldrei
að heyra hana aftur.
Með þökk fyrir birtinguna."
„5. Helgi P. Briem ambassador,
hans kona Doris Milfred Parker
og tóku þau eina kjördóttur."
--" ‘Li kG . » * J .J »d»Vi b'lU)
íbúð óskast
til leigu
Karnábær h.f. óskar aö taka á leigu íbúö
eöa lítiö hús í Reykjavík fyrir starfsmann
sinn. Fjögur í heimili. Reglusemi og góöri
umgengni er heitið auk skilvísra greiöslna.
Upplýsingar veittar í síma 85055, á
skrifstofutíma eöa eftir lokun í síma
25562.
HELO - Sauna
Höfum ávalt fyrirliggjandi Saunaofna og klefa á mjög
hagstæöu veröi.
Benco,
Bolholti 4, sími 21945.
•imi -íuinot li'iiil SDurjvi u.pq
11-JiV