Morgunblaðið - 23.04.1981, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 23.04.1981, Blaðsíða 48
Síminn á afgreiöslunni er 83033 JRtrgunbbibib FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1981 Síminn á afgreiðslunni er 83033 JRargunblnbib Sjö milljarða taprekstur hjá Flugleiðum 1980 Rekstrartapið lækkaði um 65% milli ára IIP:iLDARTAP FluKleiða á sl. ári samkvæmt reikninKum er sjö milljaröar króna cn væri scx Mikið fiskirí MJÖG mikill fiskur barst á land i verstöðvum sunnanlands í Kær- daK. fyrsta heila daKÍnn eftir páskastoppió. )>k virtist aflinn sízt minni nú en í hrotunni fyrir páska. samkvæmt upplýsinKum fréttaritara Mbl. m.a. í Vest- mannaeyjum ok Grindavlk. Flestallir Vestmannaeyjabátar voru á heimamiðum í kringum Eyjar ok komu þeir allir að landi með mjöK KÓðan afla, en afli bátanna var á bilinu 15 (il 40 tonn. Ástand í vinnslufyrirtaekjum var með bezta móti í K*r, þar sem tekizt hafði að hreinsa upp í stoppinu. Grindavíkurbátar voru að tínast að landi í K*rkvöldi ok voru þeir flestir með mjöK KÓðan afla, en aflamaKnið var á bilinu 13—40 tonn. Koma 15 „feg- urstu stúlkur alheimsins44 til Islands á árinu? EKKERT verður úr því, að fcKurðarsamkeppnin um titil- inn „Miss Universe” verði haldin hér á landi i sumar eins ok rætt var um á liðnum vetri. Iforfið var frá því veKna þess m.a. að ekki eru möKuleikar á beinni sjón- varpssendinKU héðan. Eíkí að síður er líkleKt að íslend- inKar fái að berja feKurðar- drottninKarnar auKum i ár, því forráðamenn þessarar keppni hafa sýnt mikinn áhuKa á að verðlauna þær 15 feKurstu með íslandsferð. Það er fyrirtaeki í Banda- ríkjunum, sem árleKa gengst fyrir þessari keppni og hefur það lýst miklum áhuga sínum á, að Islandsferð verði meðal verðlauna. Hafa þeir óskað eftir samvinnu við Flugleiðir, Ferðamálaráð og fleiri fyrir- tæki hér á landi. Ef af þessari hugmynd þeirra verður koma „fimmtán fegurstu stúlkur al- heimsins" til íslands í ár og e.t.v. einnig næstu ár. Sex af stærstu loðnuskipunum á kolmunnaveiðar FIMM af stærstu loðnuskipunum halda væntanlega í þessari viku til kolmunnaveiða á Færeyjamiðum. Það eru Jón Kjartansson SU. Börk- ur NK. Eldborg IIF. Grindvikingur GK (»K Óli Óskars RE. sem eru að útbúa sík á þessar veiðar. cn líklegt er að Júpiter RE bætist við síðar. Kolmunninn er þessa dagana að ganga inn í færeyska lögsögu á leið sinni norður á hÓKÍnn. Kolmunna- veiði á þessum slóðum hefur gengið all vel undanfarið og munu Norð- menn t.d. vera á góðri leið með að veiða upp í kvóta sinn. milljarðar ef tekinn væri inn i dæmið að hálfu styrkur íslands og Luxcmborgar til Norður- Atlantshafsflugsins. Hins vegar hefur rekstrartapið lækkað um f>5% milli síðustu ára og sagði Sigurður Ilelgason forstjóri Fluglciða I samtali við Mbl. i gærkvöldi að þar væri um veru- leKan árangur að ræða í barátt- unni fyrir rekstrarKrundvelli fé- laKsins. Taldi hann þennan árangur til kominn aðalleKa veKna aðhalds- ok samdráttarað- Kerða FluKleiða að undanförnu. Á sl. ári varð 35% tekjuaukning hjá Flugleiðum, en rekstrargjöld hækkuðu um 13,6%. Eigin fjár- staða Flugleiða er 15—20 milljarð- ar króna. Tapreksturinn er til kominn vegna verðbólgu, hárra vaxta, tapreksturs á Atlantshafs- fluginu, í innanlandsfluginu, og fleiri þátta, en Sigurður kvað vonir standa til að félaginu tækist að halda taprekstrinum á Atlants- hafinu innan þeirra marka sem styrk íslands og Luxemborgar nemur á tímabilinu 1. okt. sl. til 31. sept. nk. Þá kom það fram í viðtalinu við Sigurð að hækkun eldsneytis hef- ur stöðvast í fyrsta sinn í fjögur ár og hefur orðið um nokkra lækkun að ræða á þeim þætti í rekstri Flugleiða. Sjá viðtal við SÍKurð Helga.son á bls. 22 „Veru- legur árangur... “ Sigurjón Pétursson forseti borgarstjórnar, tekur á móti Viktor Korchnoi í móttöku borga.rstjórnar í Höfða í gær, en Sigurjón vildi ekki undirrita stuðningsávarp við fjölskyldu Korchnois. Með þeim á myndinni eru kona Sigurjóns, Ragna Brynjarsdóttir og Högni Torfason. Ljósm. Ól.K.M. Höfum engin afskipti af málefnum Korchnois — Svör sovéska sendiráðsins við beiðni stuðningsnefndar um fyrirgreiðslu ÍSLANDSDEILD stuðnings- nefndar fjölskyldu skákmeist- arans Viktors Korchnois fór þess á leit við sovéska sendiráð- ið í Reykjavik í fyrradag, að það kæmi á framfæri við yfir- völd Sovétrikjanna ávarpi, þar sem lýst er yfir stuðningi við baráttu Korchnois um að fá fjölskyldu sína frá Sovétríkjun- um og undirritað hafa 100 íslendingar. Sendiráðið hafnaði þessari beiðni og kváðust starfsmenn þess ekki vilja hafa nein afskipti af málinu. Halldór Blöndal, Margeir Pét- ursson og Páll Heiðar Jónsson, sem sitja í stuðningsnefndinni, skýrðu frá þessu á fundi með fréttamönnum í gær og kvaðust þeir mjög undrandi á þessum svörum sendiráðsins. Hér væri aðeins verið að fara fram á eðlilega fyrirgreiðslu sendiráðs- ins um að koma orðsendingu til skila og væri ekki hægt að líta á þessa neitun öðruvísi en sem hreina móðgun. Var sendiráðs- starfsmönnum sagt, að reynt yrði að fara aðrar leiðir til að koma ávarpinu á framfæri og gengu nefndarmenn í gær á fund forsætisráðherra og utanríkis- ráðherra. Friðrik Olafsson for- seti Alþjóðaskáksambandsins er nú í Sovétríkjunum og kvaðst Halldór Blöndal gera ráð fyrir að hann ræddi málefni fjöl- skyldu Korchnois' og að hann bæri fyllsta traust til Friðriks í þessu máli. Sjá nánar á miðopnu. Sementsverksmiðjan komin í þrot: Olíulaust í gær - skyndilán úr ríkissjóði til bjargar Dugar til nk. mánudags I GÆR lá við stöðvun Sements- verksmiðju ríkisins vegna olíu- skorts, en oliufélögin neita að selja verksmiðjunni olíu, nema gegn staðgreiðslu. Eftir hádegi i gær var byrjað að kæla niður ofn verksmiðjunnar, en siðdegis i Kær fékk vcrksmiðjan lánaðar 80 milljónir gkróna úr ríkissjóði til þess að greiða oliuúttekt, sem mun duga verksmiðjunni til nk. mánudags. Þetta er í annað skiptið á skömmum tíma, sem verksmiðjan fær lánaða peninga úr ríkissjóði.'í fyrra skiptið fékk verksmiðjan lánaðar 100 milljónir gkróna til þess að greiða olíuúttekt. Sam- kvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér, getur það verið dýrt spaug, að kæla niður ofn verksmiðjunnar, þar sem ein- angrun í ofninum getur bilað, og ef það gerist getur rekstur verk- smiðjunnar stöðvast meðan vcrið er að endurnýja einangrunina. Það mun hafa verið Friðjón Þórðarson, dómsmálaráðherra, sem einnig á sæti í stjórn verk- smiðjunnar, sem beitti sér fyrir láninu úr ríkissjóði í gær. í frétt í Mbl. í gær kom fram hjá Gylfa Þórðarsyni, framkvæmdastjóra Sementsverksmiðjunnar að tap hennar nemi nú um 100 milljónum gkróna á mánuði og sagði hann, að verksmiðjan hefði selt framleiðslu sína undir kostnaðarverði frá sl. hausti. Sótt hefði verið um 19% hækkun um síðustu áramót, en þeirri hækkunarbeiðni hefði ekki verið sinnt. Á miðvikudag fyrir páska átti að halda fund í Verðlagsráði til að fjalla um hækkunarbeiðni Sem- entsverksmiðjunnar og annarra aðila, en þeim fundi var frestað að beiðni Gunnars Thoroddsens, for- sætisráðherra. Nokkru áður hafði ríkisstjórnin einhliða tekið ákvörðun um 10% hækkun, en Loðnuskipið Júpíter til Eskif jarðar? NÓTASKIPIÐ Óli Óskars RE hefur verið selt til Neskaupstað- ar eins og greint hefur verið frá í fréttum og undanfarið hafa farið fram viðræður um sölu á hluta loðnuskipsins Júpiter RE til Eskifjarðar. Hrólfur Gunn- arsson, útgerðarmaður og skip- stjóri á Júpiter, sagði í samtali við Morgunblaðið, að aðeins hefði verið um viðræður yfir kaffibolla að ræða og alls ekkert væri ákveðið í þessu máli. Á Eskifirði og Neskaupstað eru afkastamiklar loðnubræðslur og með kaupum á þessum skipum hyggjast fyrirtækin tryggja sér hráefni, en mjög hefur verið þrengt að loðnuveiðum undan- farin misseri. fallið frá þeirri hækkun vegna mótmæla Verðlagsráðs, sem vakti athygli á, að samkvæmt lögum hefði ríkisstjórnin einungis rétt til að staðfesta eða hafna tillögum Verðlagsráðs um verðhækkanir. Samkvæmt upplýsingum Mbl. munu vera raddir um það innan stjórnar Sementsverksmiðjunnar, að stöðva beri rekstur hennar nú þegar, þar sem ekki sé hægt að reka fyrirtækið með lánum úr ríkissjóði á nokkurra daga fresti. í stjórn Sementsverksmiðjunnar eiga sæti Skúli Alexandersson, Ásgeir Pétursson, bæjarfógeti, Friðjón Þórðarson, dómsmálaráð- herra, Sigurjón Hannesson og Daníel Ágústínusson. Lánskjaravísitala hækkar um 3,02% SEÐLABANKINN heíur reiknað út lánskjaravisitölu fyrir maí- mánuð og er hún 239 stig. Hún hefur hækkað um 7 stig, eða 3,02% frá fyrra mánuði. Á einu ári hefur lánskjaravísi- tala hækkað úr 157 stigum í 239 stig, eða um liðlega 56,20%.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.