Morgunblaðið - 15.05.1981, Síða 16

Morgunblaðið - 15.05.1981, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MAÍ1981 ptoVjpl iuliIafrH> Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 70 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 4 kr. eintakið. Tilræðið við Jóhannes Pál páfa II IDavíðssálmum stendur: „Þótt ég tali friðlega, vilja þeir ófrið." Þessi orð eiga við, þegar fjallað er um skotárásina á Jóhannes Pál páfa II. Með friði hefur páfinn farið víða um lönd og í ættlandi sínu Póllandi orðið tákn þeirra, sem sækja fram gegn kúgunaröfl- unum. Jóhannes Páll II hefur síðan hann settist á hinn helga stól 1978 orðið andlegt afl í heiminum. Áhrif hans ná langt út fyrir katólsku kirkjunnar, enda urðu menn felmtri slegnir um víða veröld, þegar fréttin um morðtilræðið við páfa barst síðdegis á þriðjudag. Hryðjuverkamaðurinn tyrkneski, sem handtekinn var og ákærður fyrir voðaverkið, er alræmdur flóttamaður frá heima- landi sínu, sem hafði strokið undan réttvísinni og búið um sig í Vestur-Þýskalandi. Hann er dæmigerður fulltrúi fyrir þá gæfulausu menn, sem ógna friðsömu lífi almennra borgara með hrottaskap og hryllilegum athöfnum. Það er hroðaleg staðreynd, að ýmsar ríkisstjórnir líta með velþóknun á starfsemi þessara glæpamanna í lýðræðisþjóðfélögunum og styðja þá jafnvel bæði fjárhagslega og með öðrum hætti. Furðulegt er, að menn skuli telja unnt að breyta veröldinni til hins betra með því að vega jafnvel sjálfan páfann úr launsátri. Maðurinn, sem skaut á páfann á Péturstorgi á þriðjudaginn, sagðist gera það til að mótmæla stórveldapólitík Bandaríkjamanna í E1 Salvador og Sovétmanna í Afganistan. Óhæfuverkið byggist á marklausri samanburðarrök- fræði í alþjóðamálum, vonandi hlýtur það ekki blessun neinna, sem þau „fræði" aðhyllast. Leiðtogar allra landa hins frjálsa heims hafa sameinast í fordæmingu á tilræðinu við páfa. Jafnframt hafa þeir heitið hver á annan um samstöðu í átökunum við hryðjuverkamenn. Almenningur verður að standa að baki leiðtogum sínum í viðureigninni við þessa ófriðarmenn, sem læðast með veggjum í borgum eða leynast á afskekktum stöðum, þar til þeir láta byssuna, sprengjuna eða önnur morðtól tala fyrir sína hönd. Jóhannes Páll páfi II verður hér eftir ekki aðeins andlegt afl í veröldinni heldur lifandi tákn þess, að hið illa megnar ekki að útrýma hinu góða. Grimmdin mun ekki víkja nema allir menn temji sér kristilegt umburðarlyndi og kærleika. Fyrir páfanum og fullum bata hans er beðið um heim allan. í þeim bænum felast einnig óskir um að ofbeldinu í veröldinni linni, að þeir hverfi frá villu síns vegar, sem vilja ófrið, en hinir ráði úrslitum, sem tala friðlega. Átökin í Líbanon Þegar fjallað er um tilræðið við Jóhannes Pál páfa II, beinist hugurinn að átökunum í Líbanon, á því svæði, þar sem er vagga kristninnar og Jesús Kristur gekk um meðal fólksins og boðaði trú. Líbanon, sem bjó við veikt stjórnkerfi vegna þess, að þar var reynt að sætta ólíka trúarhópa með því að lögbinda áhrif þeirra í stjórn ríkisins, sundraðist í yfirráðasvæði nokkurra meginfylkinga eftir borgarastyrjöld fyrir 5 árum. Landið er nú vettvangur átaka milli ísraelsmanna og Sýrlendinga. Arabaheim- urinn vill að í Líbanon sé griðastaður fyrir palestínska flóttamenn, en kristnir íbúar Líbanon telja, að þar með sé verið að ræna þá landi sínu. Átökin í Líbanon færðust á nýtt stig, þegar Sýrlendingar ákváðu að koma þar fyrir eldflaugum til að granda flugvélum ísraelsmanna, sem hafa bæði gert árásir á Palestínumenn í Líbanon og fylgst með athöfnum Sýrlendinga þar. Fulltrúi Bandaríkjastjórnar hefur undanfarna daga ferðast á milli Damaskus, Jerúsalem og Beirut í því skyni að ná samkomulagi, svo að dregið verði úr hættu á allsherjarófriði á þessum slóðum. Stríð milli Sýrlendinga og ísraelsmanna yrði háð af hinni mestu grimmd og yrði alvarleg ógnun við heimsfriðinn. Vonandi tekst að ná samkomulagi um brottflutning sýrlensku eldflauganna frá Líbanon. Hitt er ekki síður brýnt að finna lausn á vanda palestínskra flóttamanna. Þau sjónarmið kristinna manna í Líbanon, að með öllu sé óþolandi, að með valdbeitingu sé þeim þröngvað til að sætta sig við ofríki þessa ógæfusama fólks, hljóta að njóta skilnings hjá öllum skynsömum mönnum. Auðvitað er ekki til nein einföld lausn á vandanum í Líbanon. Hins vegar verður ekki lagður grundvöllur að friði þar, fyrr en palestínskir flóttamenn hafa fengið varanleg heimkynni og Sýrlendingar semja við ísraelsmenn með svipuðum hætti og Egyptar gerðu á sínum tíma. í báðum tilvikum er samkomulag með staðfestingu Bandaríkjanna og Sovétríkjanna forsenda viðunandi lausnar. Með því að beita Sýrlendingum fyrir sig vilja Sovétmenn sýna, að ekki náist friður fyrir botni Miðjarðarhafs nema við þá sé talað. En hvenær þóknast Sovétmönnum að stuðla að friði, sem þeir óttast, að Vesturlönd hafi hag af? Illuti framkvæmdanefndarinnar á fundi með fréttamönnum. Talið frá vinstri: Páll Ársælsson, Ásgeir Ileiðar. Sigurður Magnússon, Hermann Gunnarsson, Baldvin Ottósson, Þór Jakobsson og Vésteinn Þórsson. A myndina vantar Daníel Þórarinsson. Ljósm. Emiiía. Hjólreiðadagur til efl- ingar íþróttum og úti- vist fatlaðra barna „IIJÓLAÐ í þágu þeirra sem geta ekki hjólað“ er kjörorð hjólreiðadagsins sem Styrktar- félag lamaðra og fatlaðra. Iljólreiðafélag Reykjavíkur og Lionsklúbhurinn Njörður gang- ast fyrir sunnudaginn 24. maí nk. til eflingar íþróttum og útivist fatlaðra barna. Safnast vcrður saman við 10 skóla horgarinnar kl. 13 og hjólað eftir ýmsum leiðum til Laugar- dalsvallar. Þar verður eitthvað til skemmtunar, m.a. er gert ráð fyrir að frægur belgískur hjólreiðakappi, sem hjóla mun með einum hópnum. keppi við einhverja þátttakendur eða fé- laga úr Hjólreiðafélaginu. Þá fær hver keppandi happdrætt- ismiða og verður vinningurinn, keppnishjól, dreginn út á Laug- ardalsvelli. Framkvæmdanefnd hjólreiða- dagsins skipa Sigurður Magn- ússon framkvæmdastjóri Styrktarfélags lamaðra og fatl- aðra, Hermann Gunnarsson fréttamaður, Ásgeir Heiðar og Páll Ársælsson frá Hjólreiðafé- laginu, Daníel Þórarinsson frá Lionsklúbbnum Nirði, Baldvin Ottósson lögregluvarðstjóri og feðgarnir Þór Jakobsson og Vésteinn Þórsson sem komu hugmy-ndinni að hjólreiðadegin- um á framfæri. Fyrirmyndina fengu þeir erlendis. A fundi framkvæmdastjórnar- innar með blaðamönnum sagði Sigurður Magnússon að allir þeir sem væru 10 ára og eldri gætu tekið þátt í hjólreiðadegin- um sem hann sagðist reikna með að yrði sá fjölmennasti sem haldinn hefur verið hér á landi. Þó mega yngri börn taka þátt en óskað er eftir því að þau verði í fylgd með fullorðnum. Hver þátttakandi aflar áheita sem nema að minnsta kosti 250 Þannig líta áheitakortin út. krónum. Sérstök áheitakort verða notuð og eru þau afgreidd í grunnskólum borgarinnar, sportvöruverslunum, sund- stöðum og hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra að Háaleit- isbraut 12. Þegar þátttakend- urnir koma í Laugardalinn af- henda þeir áheitakortin og pen- ingana og fá í staðinn litprentað viðurkenningarskjal. Hagnaði af hjólreiðadeginum verður, eins og áður kemur fram, varið til efl- ingar útivistar og íþrótta meðal fatlaðra barna. Sigurður Magn- ússon tók það fram að þá væri átt við allar tegundir fötlunar, ekki einungis hreyfihömlun. Allir þátttakendur fá sérstak- ar húfur og númer. Lionsklúbb- urinn Njörður hefur kostað gerð þátttökugagnanna og viðurkenn- ingarskjalanna. Leiðirnar, sem farnar verða, eru um 10 kílómetrar hver og voru þær valdar í samráði við umferðarlögregluna. Er reiknað með að það taki um hálftíma > fyrir hvern hóp að komast á Laugardalsvöllinn. Félagar úr Hjólreiðafélaginu verða fyrir framan og aftan hvern hóp og að loknum atriðunum á Laugar- dalsvelli, sem reiknað er með að taki um klukkutíma, verður hjól- að til baka sömu leið með þeim sem þess óska. Framkvæmda- nefndin tók það fram að hér væri ekki um keppni að ræða heldur myndu þeir sem gæta þess að halda hópnum saman sjá um að hafa hraðann við allra hæfi. Baldvin Ottósson lögreglu- varðstjóri sagði á blaðamanna- fundinum að leið hjólreiðamann- anna yrði ekki merkt en lög- regluþjónar yrðu á verði víða og aðstoðuðu fólkið við að komast yfir fjölfarin gatnamót og fleira. Hann sagði einnig að lögreglan ætlaðist til þess að ökumenn tækju sérstakt tillit til þessara hjólreiða. Á blaðamannafundinum kom það fram að búist er við flestum þátttakendum úr grunnskólum Reykjavíkur þótt það væri tekið fram að hjólreiðadagurinn er jafnt fyrir börn sem fullorðna. Hermann Gunnarsson frétta- maður hefur undanfarið kynnt hjólreiðadaginn í skólum borg- arinnar. Hann sagði að sér hefði verið mjög vel tekið og hann hefði orðið var við mikinn áhuga barnanna. Þegar er búið að dreifa 2.500 áheitakortum. Þau eru merkt þátttakendunum en þeir sem leggja fram fé rita nöfn sín og upphæðina sjálfir á kort- in. Þeir skólar, sem safnast verð- ur saman við, eru: Hagaskóli, Hvassaleitisskóli, Hlíðaskóli, Langholtsskóli, Réttarholtsskóli, Laugarnesskóli, Breiðholtsskóli, Árbæjarskóli, Seljaskóli og Fellaskóli. Aprílaflinn tvöfalt meiri viða en kom á land i marzmánuði í aprílmánuði. I Vestmannaeyjum komu á land í mánuðinum 16.795 lestir af botnfiski, en hins vegar aðeins 8.567 lestir í marzmánuði og 4.330 lestir í febrúar. í Þorlákshöfn komu á land 6.605 lestir í marz, en 15.700 lestir í apríl og var þó netaveiðibann hjá bátaflotanum í nokkra daga í aprílmánuði. 1 Grindavík komu 8.703 lestir á land í marz, en 15.819 lestir í apríl. Á Höfn í Hornafirði komu 6.416 lestir á land í apríl á móti 3.673 lestum í marzmánuði. I öðrum verstöðvum var stígandi í vertíðinni eins og venja er, en slíkar sveiflur og nefndar eru hér að framan var ekki að finna annars staðar á landinu. Ef dæmi er tekið af stöðum eins og Keflavík og Sand- gerði þá var marzafli í Keflavík 4.306 lestir, en 4.907 lestir í apríl. í Sandgerði komu 4.653 lestir á land í marz á móti 6.256 lestum í apríl. Til Ólafsvíkur bárust 3.425 lestir í marz, en 3.884 lestir í apríl. GRINDAVÍK varð aílahasta vcr- stoðin á vertíðinni fram til 8. maí. ar voru i öðru sæti með 34 þúsund lestir og siðan Þorlákshöfn i þriðja en þar komu á land frá áramótum sæti. um 35 þúsund lestir. Vestmannaeyj- Mikill hluti þessa afla kom á land

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.