Morgunblaðið - 15.05.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 1981
25
félk f
fréttum
+ Hið fræga ameríska karl-
penings-mánaðarblað, „Play-
boy“ — Glaumgosinn, hefur
birt kápumynd af „Leikfangi
Glaumgosans 1981“. Kjörið
fer fram með þeim hætti, að
kosið er um þær 12 stúlkur,
sem kjörnar eru á mánuði
hverjum og hljóta þá t.d.
titilinn „Janúar-leikfang
„Glaumgosa-
leikfangið
1981 “
Glaumgosans", „Apríl-leik-
fang Glaumgosans" o.s.frv.
Leikfangið árið 1981 er þessi
fallega stúlka, sem heitir
Terri Welles. Hún var á
kápumynd maíheftis Glaum-
gosans 1980. A myndinni er
hún að grinast við eiginmann
sinn, en þau hjónin búa í Los
Angeles.
Járnkall
í hausinn
+ Þessi maður komst á fréttasíður
víða á Vesturlöndum og í Banda-
ríkjunum fyrir skömmu. Maður-
inn er 39 ára gamall og lenti í
bifreiðarslysi í Boston. Hann heit-
ir John Thompson og er myndin
tekin af honum á*sjúkrahúsi þar í
borginni, fjórum dögum eftir að
hann lenti í þessu slysi. í bílnum
sem hann var í, hafði 7 feta langur
járnkall legið á palli aftan við
stýrishúsið. Thompson hafði þurft
að snarbremsa bílnum sínum á
miklu slysahorni, en við það hafði
járnkallinn þotið af stað, sem ör
væri. Fór hann í gegnum stýris-
húsið á bílnum og ekki nóg með
það, heldur gekk járnkallinn stóri
langt inn í höfuð mannsins, án
þess að drepa hann. Læknarnir á
borgarspítalanum í Boston, en
þangað var hann fluttur í snatri,
gátu bjargað lífi og heilsu bíl-
stjórans, sem var talinn úr allri
haettu fjórum dögum eftir slysið
og skurðaðgerðina á spítalanum.
+ Þetta er eiginkona rússneska
andófsmannsins Anatoly
Chtcharansky, sem fyrir nokkru
tók þátt í göngu 3000 manna
suður í Parísarborg, til þess að
vekja athygli ráðamanna í
Frakklandi á hnignandi heilsu
andófsmannsins, sem sovésk-
rússnesk stjórnvöld létu varpa í
fangelsi árið 1978, en þá var
hann dæmdur til þriggja ára
fangelsisvistar fyrir andsovésk-
an áróður. Hann er nú sagður
nær dauða en lífi í fangabúðun-
um. Er sagður vera aðeins um
48 kg að þyngd, og er mjög
óttast um líf hans og heilsu.
Kona andófsmannsins heitir
Evital.
Mountbatt-
en-sýning
+ Á landsetri því er Lord
Mountbatten bjó, er hann var
myrtur af mönnum ÍRA árið
1979, var fyrir fáum dögum
opnuð sýning til minningar
um lordinn, sem var í augum
Breta í tölu bestu sona lands-
ins. Það var frændi hans, Karl
Bretaprins, og unnusta hans,
Lady Diana Spencer, sem
opnuðu sýninguna. Á sýning-
unni er ýmislegt af því sýnt
sem snerti líf og starf Mount-
battens á áratuga starfsferli í
þjónustu lands og þjóðar, svo
sem bækur, ljósmyndir og
annað í þeim dúr, svo og
einkennisbúningar hans, t.d.
sá er hann klæddist er hann
var varakonungur á Indlandi
er yfirráðum Breta lauk þar.
Landsetur Mountbattens
heitir Broadlands og er í
Hampshire.
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Skólasiit og brautskráning stúdenta veröur laugar-
daginn 23. maí kl. 14.00.
Skráning nýrra nemenda í Öldungadeild fer fram
þriöjudaginn 19. maí kl. 17—19. Skráning eldri
nemenda í Öldungadeild fer fram laugardaginn 16.
maí kl. 12.30—16.30 og mánudaginn 18. maí kl.
17—19.
Prófúrlausnir í Öldungadeild veröa sýndar 16. maí kl.
10—12. Rektor
Vegna jarðarfarar
ÓLAFS HALLDÓRS ÞORBJÖRNSSONAR
veröa verzlanir okkar og skrifstofur
lokaðar
í dag, föstudaginn 15. maí frá kl. 14—17.
Verzlanirnar veröa opnaöar aö nýju frá kl. 17—19.
Fálkinn,
Suðurlandsbraut 8,
Laugavegi 24,
Austurveri.
Kommóður í úrvali
Ljós fura — Brúnbæsaöar — Hvítlakkaöar.
Sendum um land allt. Opið til kl. 8 í kvöld.
Opið til hádegis laugardag.
Vörumarkaöurinn hl.
sími 86112.
Quadro
klæðir
Skoöiö nýju munsturbökina í
gólf- og veggdúk frá Bala-
mundi. Algjör bylting í litum
og munstrum.
Pantanir teknar niöur á
staönum.
Liturinn
Síðumúla 15, si'mi 33070.