Morgunblaðið - 15.05.1981, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MAÍ1981
29
^ «7 A “
VELVAKANDI
SVARAR f SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Stutt lífsreynslu-
saga um öryggisbelti
IlallKrímur MaKnússon. Pat-
reksfirði, skrifar:
„Nú á bráðum að fara að
lögleiða öryggisbelti á Islandi.
Ýmsir aðilar hafa skorið upp
herör og lýst ágæti þessara verk-
færa mörgum orðum. Máli sínu til
stuðnings vitna þeir í erlendar
rannsóknir, sem glögglega sýna að
lögleiðing öryggisbelta hefur
fækkað umferðarslysum þar. I
útlöndum eru hinsvegar yfirleitt
steyptir eða malbikaðir vegir og
oft steyptir kantar meðfram veg-
unum og þeir því ekki sambæri-
legir við íslenska malarvegi,
kantlausa og fulla af holum og
lausamöl. Því verður ekki hægt
með neinni vissu að bera saman
áhrif öryggisbelta á umferðarslys
hér og erlendis.
Ilvað hefði orð-
ið um höfuðið?
Einn fagran morgun síðastliðið
sumar var ég að aka bifreið minni
— rússneskri jeppabifreið með
blæjum — í Gufudalssveit í
Austur-Barðastrandarsýslu. Verð
ég skyndilega fyrir því óláni að
missa bílinn út í lausamöl og
þriggja sekúndna baráttu við að
halda bílnum á veginum lauk með
ósigri mínum — bíllinn hafnaði
úti í móa á hvolfi. Með mér var
einn farþegi í framsæti og hvorugt
okkar í öryggisbelti. Bæði slupp-
um við ómeidd með öllu.
Þar sem myndir lýsa oft að-
stæðum betur en mál, læt ég
fylgja hér með mynd, sem tekin
var skömmu eftir að bíllinn var
kominn á hjólin aftur. Ekki þarf
mikið ímyndunarafl til að gera sér
í hugarlund hvað um höfuðið hefði
orðið ef búkurinn hefði verið
fastur við sætið.
Ávarp til þingnianna
Kæru þingmenn, lofið okkur
sjálfum að vega og meta ágæti
öryggisbelta á grundvelli fræðslu
og leiðbeininga, en lögleiðið ekki
yfir okkur ónauðsynleg dauðaslys.
Reykjavík, 12.05.1981 “
Nýtt Nýtt
Pils, blússur, peysur.
Glugginn, Laugavegi 49.
Áður en vitleys-
an verður lögleidd
„Amma“ skrifar:
„Velvakandi góður!
I Morgunblaðinu 5. maí er grein
eftir Inga Bergmann (á bls. 34).
Ég varð fegin að sjá þessa grein,
af því að ég hef sjálf þá reynslu, að
það er eins gott að vera laus við
bílbelti, ef óhapp skeður. Ég efast
um, að telpurnar aftur í bílnum
hefðu sloppið lifandi þegar hann
valt með okkur, ef ég hefði verið
bundin í bílbelti, og sennilega
hefði ég stórslasast. En ég var
laus og tókst að henda mér aftur á
bak á milli sætanna. Ég náði
tökum á telpunni sem var komin
með höfuðið að rúðunni og gat
kippt henni að mér og haldið
henni, síðan hinni telpunni líka,
sem var hinum megin við mig.
Meðan ég náði tökum á þeim var
ég skorðuð á milli sætanna, en
losnaði þegar bíllinn fór á topp-
inn. Eftir hringveltu komumst við
út hjálparlaust, telpurnar algjör-
lega óslasaðar, en ég og bílstjórinn
(sem hélt sér í stýrið) með nokkuð
ljóta marbletti sem enginn þurfti
að sjá.
Gat hugsað og íram-
kvæmt á hættustund
Ég mun aldrei láta binda mig í
bílbelti með laus börn aftur í. Ef
beita á sektum við mig fyrir það,
þá þið um það, en þið hljótið litla
virðingu fyrir. Ég komst nefnilega
að þeirri niðurstöðu, að ég gat
hugsað og framkvæmt á hættu-
stund, þótt venjulega finnist mér
ég vera sein að hugsa.
Bílbeltin geta e.t.v. komið að
notum í glannaakstri, en það er
einmitt á móti honum sem þarf að
vinna.
Ég var svo lán-
söm að vera laus
Athugið að vegir hér eru ekki
eins og á hinum Norðurlöndunum.
Hér er það lausi malarvegurinn,
sem verður oft mjög hættulegur,
sérstaklega í þurrkum, þótt gæti-
lega sé ekið.
Fyrir alla muni: Gleypið ekki
allt hrátt eftir útlendingum. At-
hugið aðstæður í okkar eigin
landi.
Greinarhöfundur Mbl. (Ingi
Bergmann) var sjálfur sjónarvott-
ur að slysi, þar sem bílbeltin hefðu
séð til þess, að ekki hefði þurft að
binda um sár, því að farþegar
hefðu líklega ekki lifað af slysið.
Sjálf lenti ég í bílveltu og var svo
lánsöm að vera laus, gat hugsað og
framkvæmt."
0$\G6A V/GGÁ £ VLVtKAU
>QW/t tátiC VIÍV’
am-Kff
K j'
MWWMMMMt
■ ■n»n ÍlIllTllfMH
Ef þú kemur fyrir kl. 14.00 þé fnröu
myndirnar þínar skýrar og góðar eftir 24
klst. Þaft er aö segja kl. 14.00 næsta dag.
usturstræti 7
sími 10906 sérverzlun meö Ijósmyndavörur.
Tvíbreiðir svefnsófar
frá kr. 2627.-
3ja sæta 155x88x68