Morgunblaðið - 15.05.1981, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 15.05.1981, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 15. MAÍ 1981 31 • Tottenham-leikmaðurinn Ardiles í baráttu við Gerry Gow Manchester City. Milli þeirra sést í dómarann Hackett. og lengst til vinstri er Nicky Reid. Sanngjarn sigur Tottenham Villa skoraði tvö mörk ÞAÐ VAR Argentinumaðurinn Ricardo Villa sem fa'rði Tottenham sigur í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu í gærkvöldi er lið hans sigraði Manchester City 3—2, í æsispennandi úrslitaleik. Villa skoraði tvö mörk fyrir Tottenham og sigurmark hans kom aðeins þrettán mínútum fyrir leikslok. Mark hans þótti sérlega glæsilegt. Villa. sem þurfti að fara útaf i fyrri leik liðanna þar sem hann þótti ekki standa sig nægilega vel. var hinn sannkallaði sigurvegari í gærkvöldi og samkvæmt fréttaskeytum grét hann af gleði eftir leikinn. Leikur liðanna þótti mjög vel leikinn og þá sérstaklega af hálfu Tottenham-liðsins sem verðskuldaði sigurinn. Það var sannkölluð bikar- stemmning á Wembley-leikvang- inum í London í gærkvöldi. Upp- selt var á leikinn. Og loftið þrungið spennu þar sem ljóst var að leikið yrði til þrautar. Víta- spyrnukeppni átti að vera í lokin ef ekki fengjust úrslit. En til þess kom þó ekki. Tottenham hóf leik- inn af miklum krafti og fyrsta markið kom á áttundu mínútu. Það var Ardiles sem átti heiður- inn af því. Hann einlék upp völlinn og átti síðan snilldarsend- ingu á Steve Archibald sem skaut þrumuskoti en Corrigan •varði. Hann hélt ekki boltanum og Villa kom á fullri ferð og þrumaði í netið, 1—0. Aðeins þremur mínút- um síðar hafði City jafnað metin. Tommy Hutchison skallaði bolt- TULSA Roughnecks, Jóhannes Eðvaldsson og félagar. hafa feng- ið mikinn liðsauka og góðan. Tvö golfmót um helgina ann út til MacKenzie. Táningurinn skaut af um tuttugu metra færi og skoraði draumamark. Tottenham sótti mjög ákaft í fyrri hálfleikn- um og átti 12 marktækifæri í fyrri hálfleiknum, en City aðeins fjög- ur. Á 29. mínútu bjargaði Corrig- an markvörður City tvívegis meistaralega. Fyrst skoti frá Villa og síðan frá Tony Galvin. Iluncan McKenzie gekk til liðs við félagið á sínum tima. Nú hafa tveir snjallir norður írskir lands- liðsmenn gengið í raðir Tulsa. Eru það Chris McGrath frá Man- chester Utd. og Dave McCreery frá QPR. en hann lék áður einnig með Manchester Utd. Tottenham O - Man. City O Staðan í hálfleik var jöfn, 1—1. Mikill hraði var í síðari hálfleikn- um og hart var barist. Á 50. mínútu var brotið illa á David Bennet inni í vítateig. Það voru varnarmennirnir Paul Miller og Chris Houghton sem felldu hann. Umsvifalaust var dæmt víti. Kev- in Reeves skoraði af miklu öryggi með þrumuskoti og kom City yfir, 2—1. Litlu munaði að Tottenham fengi víti á 70. mínútu. En þess þurfti ekki með því að mínútu síðar skoraði Crooks og jafnaði metin. Þetta var hans 22. mark á keppnistímabllinu. Nú fór allt í gang hjá Totten- ham-liðinu og það átti snilldarleik síðustu mínútur leiksins. Og eins og áður sagði skoraði Villa sigur- markiö aðeins 13. mínútum fyrir leikslok. John Bond setti Dennis Tueart inná, en allt kom fyrir ekki. Tottenham sigraði og hefur aldrei tapað í bikarúrslitum. Liðið sigraði árin 1901, 1921, 1961 og í gærkvöldi fór bikarinn aftur á White Hart Lane. Þetta er þriðja árið í röð sem bikarinn er kyrr í Lundúnum, Arsenal vann 1979, og West Ham í fyrra. Lið Tottenham átti 21 marktækifæri í leiknum en City aðeins 7. Það sýnir best hversu vel Tottenham verðskuld- aði sigur í leiknum. Tveir góðir til Tulsa Áður hefur verið frá því skýrt. að Varamennirnir skoruðu mörkin - er Víkingur sigraði FH IIAFÞÓR Ilelgason kom inn á sem varamaður hjá Víkingi í gærkvöldi og skoraði tvívegis er lið hans sigraði FII, 2 — 1. í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu á Melavellinum. Reyndar sáu varamenn- irnir um að skora öll mörkin í leiknum. því Guðmundur Hilmarsson skoraði eina mark FII undir lok leiksins. en hann var nýkominn inn á.w Annars lék völlurinn stórt hlutverk að þessu sinni. enda þakinn vatnsaugum eftir úrhelli gærdagsins. Ilefði gamli Melavöllurinn staðið fyllilega undir nafninu Þúsundpollavöllurinn í gærkvöldi og er nöturlegt að horfa upp á íslandsmótið bvrja á slíkum velli. Fyrri hálfleikur var ekki upp á marga fiska, beinlínis ömurleg knattspyrna og þrátt fyrir pollana virtist sem menn væru hreinlega ekki að reyna. Liðin fengu hvort sitt færið í upphafi hálfleiksins, Hreggviður FH-markvörður sá við Lárusi og Pálmi Jónsson brenndi af. Færi Pálma var erfiðara. Á 24. mínútu tvívarði Hreggviður síðan eftir að hafa misst frá sér auka- spyrnu. Annað gerðist ekki í fyrri hálfleik utan hvað Logi Ólafsson spyrnti knettinum út á Suðurgötu í þriðja skiptið í tveimur leikjum. Jourie Zetov gerði eina örlaga- ríka bre.vtingu á liði Víkings í hléinu, tók Jóhann Þorvarðarson út af, en skellti Hafþóri Helgasyni inn á. Það varð til þess að bæði stigin höfnuðu að Hæðargarði. Fyrra markið skoraði hann á 56. mínútu eftir að hafa fengið send- ingu frá Herði Sigurðssyni og leikið á einn varnarmanna FH. Knötturinn þaut undir Hreggvið markvörð, svolítið klaufalegt hjá piltinum, en hann bætti það upp með snjallri markvörslu síðar í leiknum. Síðara markið skoraði Hafþór á 74. mínútu, skallaði í tómt mark eftir aukaspyrnu Magnúsar Þorvaldssonar frá vinstri. Á milli markanna gerðist það að Víkingar áttu sinn besta leikkafla og FH-ingar fengu eitt besta tækifæri sitt. Hreggviður varði skot Hafþórs af stuttu færi og Magnús Teitsson skallaði fram hjá frá markteig eftir fyrirgjöf Helga Ragnarssonar frá vinstri. Bæði liðin klúðruðu síðan góðum færum áður en Guðmundur Hilm- arsson skoraði fyrir FH eftir góða sóknarlotu Viðars og Pálma. í stuttu máli: íslandsmótið í 1. deild: Víkingur - FH 2-1 (0-0). Víkingur é%B -FH Lí Mörk Víkings: Hafþór Helgason á 56. og 74. mínútum. Mark FH: Guðmundur Hilmars- son á 89. mínútu. Aminningar: Þórður Marelsson Víkingi. Dómari: Eysteinn Guðnuindsson. -gg. Ilafþór Helgason skoraði hæöi mörk Víkings. Urslit bikarsins í sjónvarpinu ÍSLENSKA sjónvarpið mun sýna háða bikarleikina. Sá fyrri verð- ur sýndur í íþróttaþættinum næstkomandi laugardag og hefst útsending á honum kl. 16.30. Síðari hikarleikurinn verður svo sýndur viku seinna og hefst útsending á honum á sama tíma. Vormót IR Hreinn kastaði 19,12 VORMÓT ÍR í frjálsum íþróttum fór fram á Laugardalsvellinum i gærkvöldi. Veður var frekar óhagstætt til keppni en samt sem áður náðist ága'tur árangur. Helstu úrslit urðu þessi: Ilreinn Halldórsson sigraði í kúluvarpi kastaði 19.12 metra. Ilreinn hefur átt við meiðsli að stríða og því er árangur hans góður. Óskar Jakobsson gerði öll köst sín ógild. Jón Oddsson <ig Guðni Tómasson náðu báðir 11.1 sek. í 100 m hlaupi. Guðni sigraði í 300 m hlaupi á 36.6 sek. Gunnar Páll Jóakimsson sigraði í 800 m hlaupi á 1.55.0 mín. Ágúst Ás- geirsson sigraði í 3000 m hlaupi á 8.38.3 mín. Stcfán Stefánsson sigraði i hástökki stökk 1.92 m. Urslit í kvennagreinunum urðu þessi: Oddný Arnadóttir sigraði í 100 m hlaupi hljóp á 12.2 sek. Sigríður Kjartansdóttir sigr- aði í 100 m hlaupi á 56.1. Guðrún Karlsdóttir í 1500 m hlaupi á 1.51.1 mín. Guðrún Ingólfsdóttir í kringlukasti með 15.12 m. Bryndís Ilólm sigraði í lang- stökki stökk 5.62 m. og Birgittc Guðjónsdóttir sigraði í spjótkasti kastaði 11.18 m. _ |>r. Aston Villa kemur ekki Nú er ljóst að Englandsmeistarar Aston Villa koma ekki til íslands eins og til stóð. Stjórn KSÍ hefur borist skeyti þess efnis að liðið sjái sér ekki fairt að koma og keppa hér að þessu sinni. — þr. TVÖ GOLFMÓT fara fram um na^stu helgi. Á Grafarholtsvelli fer fram undirhúningskcppni fyrir Hvítasunnumót. 32 bestu keppendurnir komast áfram. Víkurbæjarkeppnin fer svo fram á Leiru og hefst á laugar- dag. Þá keppa 2. og 3. flokkur. Á sunnudag leika 1. fl. og mfl. Mfl. leikur 36 holur. en hinir flokk- arnir 18. Keppnin hefst kl. 9 á laugardagsmorgun. Þátttaka til- kynnist til Golfklúbbs Suður- nesja. ÍSLANDSMOTIÐ -1.PEILD MELAVÖLLUR í KVÖLD KL. 20 BREIÐABLIK - FRAM Strætisvagnaferð verður farin frá skiptistöðinni í Kópavogi kl. 19.30 og aftur í Kópavog strax eftir leik. Allir á völlinn - ekkert hik - áfram BREIOABLIK!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.