Morgunblaðið - 16.05.1981, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAI 1981
Karnabær 15 ára:
Áræði,
dugnaður
og hraði
- rætt við Hauk Björnsson, framkvæmdastjóra
SKRIFSTOFAN að Fosshálsi lét ekki mikið yíir sér.
Raunar ákaflega látlaus og lítil; ekkert lík skrifstofu
framkvæmdastjóra stórfyrirtækis á íslenzkan mæli-
kvarða, eða svo hugsaði ég með mér, þegar ég gekk inn
í skrifstofu Hauks Björnssonar, eins framkvæmdastjóra
Karnabæjar, og tók í hönd hans. Skrifborðið var hlaðið
skjolum ok fyrir framan það voru þrír stólar. Enginn
íburður; Kreinilegt að menn eru þarna til að vinna. Og
svo sannarlega hafa stjórnendur Karnabæjar unnið
hörðum höndum þau 15 ár, sem liðin eru frá stofnun
fyrirtækisins. Þeir byrjuðu smátt í verzluninni á mótum
Týsgötu og Skólavörðustígs. Þá vegna þess, að enginn
vildi selja vöru þeirra og því voru þeir „neyddir“ til að-
setja á stofn eigin verzlun. í dag er Karnabær
stórfyrirtæki á íslenzkan mælikvarða; dæmi um hvað
hægt er að gera ef vilji og áræði eru fyrir hendi. Það
hafa stjórnendur Karnabæjar haft í ríkum mæli.
í dag eru 15 ár liðin frá því
verzlun Karnabæjar var sett á
laggirnar á mótum Týsgötu og
Skólavörðustígs. Það var ein-
mitt tilefni heimsóknar
blaðamanns til( Hauks Björns-
sonar og talið barst fyrst að
stofnun fyrirtækisins, vexti
þess og viðgangi þau ár sem
liðin eru.
Enginn viidi
selja vöruna
„Þeir sem stofnuðu Karnabæ
voru Guðlaugur Bergmann, Jón
Baldursson, sem raunar dró sig
fljótlega út úr fyrirtækinu, og
faðir minn, Björn Pétursson, og
starfaði hann við fyrirtækið
meðan honum entist aldur.
Þann 16. maí 1966 lögðu þeir
upp í þessa ferð en tóku fljót-
lega aðra stefnu en ætlað hafði
verið. Þeir höfðu rekið saman
heildverzlunina G. Bergmann
hf. og höfðu hugsað sér að
dreifa tízkuvörum til verzlana
en enginn vildi verzla með
þessar vörur þá, töldu að um
væri að ræða sápukúlu, sem
myndi fljótlega springa og
hverfa. Þess vegna var verzlun-
in á mótum Týsgötu og Skóla-
vörðustígs stofnsett. Það var
ekki að sökum að spyrja. Hún
sló í gegn og fljótlega var önnur
verzlun sett á laggirnar á
Klapparstíg. Þar var verzlað
með snyrtivörur og skófatnað.
Síðan rak hver verzlunin aðra
og í dag eru 27 verzlanir víðs
vegar um landið með varning
frá okkur. Þessar verzlanir eru
ýmist í eigu fyrirtækisins eða
sjálfstæðar verzlanir með
einkasölusamning á vörum frá
okkur. Þær kaupa allar vörur
frá okkur og við dreifum ekki
okkar varningi á þeirra um-
ráðasvæði. Segja má, að við
myndum nú keðju verzlana
hringinn um landið. Við stefn-
um að því, að bæta fleiri
hlekkjum í^þessa keðju. Undan-
farið höfum við unnið að skipu-
lagsbreytingum á þessu sviði.
Þeir, sem ráku þessar verzlanir
fyrir okkur, hafa nú tekið við.
Við höfum selt þeim þær. Við
höfum nú selt verzlanir okkar á
Akranesi, Akureyri, ísafirði og í
Vestmannaeyjum og er nú svo
komið að við eigum aðeins eina
verzlun úti á landi, Hornabæ á
Hornafirði. Þetta fyrirkomulag
hefur gefizt vel.
Árið 1968 var hafin frarn-
leiðsla á fatnaði. Þangað til
hafði Karnabær aðeins verið
með innfluttan fatnað og síðan
hefur verið skammt stórra
högga í milli.
Árið 1969 var saumastofan
Últíma keypt, 1978 var Belgja-
gerðin keypt og árið 1979 flutt-
um við hingað að Fosshálsi. Við
leggjum megináherzlu á alhliða
fatnaðarvöru og hún er ýmist
flutt inn eða við framleiðum
hana sjálfir."
Innlcnda fram-
leiðslan á í vök
að verjast
Hvert er hlutfall innflutts
varnings og framleiðslu ykkar
nú?
Guðlaugur Bergmann, framkvæmdastjóri ásamt
poppstjörnunni B.A. Robertsson, en hann er nú staddur
hér á landi í boði Karnabæjar. Mynd mw. rax.
„Nú upp á síðkastið hefur
innflutningurinn aukist nokkuð
á kostnað innlendrar fram-
leiðslu en nota bene, þessar
sveiflur hafa áður átt sér stað.
Því er ekki að neita, að íslenzk-
ur iðnaður almennt á um margt
erfitt uppdráttar nú um stund-
ir. En á undanförnum árum
hefur innlenda framleiðslan
aukizt þó nú hafi komið bakslag
í seglin. Árið 1979 framleiddum
við 45% af fatnaði þeim, sem
við dreifðum en í fyrra var
þetta hlutfall komið upp í 55%.
Ég er smeykur um, að þessi tala
sé ekki jafn hagstæð í dag.
Vegna hafta ýmiss konar sem
innlendur samkeppnisiðnaður
þarf að búa við hefur nokkuð
sigið á ógæfuhliðina."
Hvaða starfsemi er hér að
Fosshálsi?
„Hér að Fosshálsi erum við
með framleiðslu okkar, —
saumastofuna. Þá eru hér lager-
ar, skrifstofur og viðhald. Við
framleiðsluna vinna um 80
manns, 10 á skrifstofunni, 5 á
lagernum og 2—3 í viðhaldi. Við
erum með fjórar verzlanir í
bænum: að Laugavegi 20 og 66, í
Austurstræti 22 og Glæsibæ. Þá
er hljómtækjadeildin að Lauga-
vegi 66. Fyrir um ári voru
gerðar skipulagsbreytingar og
hljómtækjadeildin er nú sjálf-
stætt fyrirtæki en heldur nafn-
inu Karnabær og starfar í nánu
samstarfi við Karnabæ. Þar eru
í forsvari bróðir minn, Pétur
Björnsson, og Bjarni Stefáns-
son. Hljómtækjadeildin er með
verzlun á Laugaveginum og
einnig hjá dreifiaðilum Karna-
bæjar víðs vegar um landið.
Síðasti fréttnæmi áfanginn í
starfsemi hljómtækjadeildar-
innar eru kaupin á húsi P,
Stefánssonar á Hverfisgötunni.
Þá hafa þeir nýlega hafið inn-
flutning á smátölvum, „micro-
computers" en á Islandi er nú að
opnast markaður fyrir þessi
tæki en hann hefur þegar verið
til staðar í nágrannalöndum
okkar um nokkurn tíma.
Þá er fyrirtækið Steinar hf.
að hálfu í eigu Karnabæjar á
móti Steinari Berg Isleifssyni.
Steinar er með innflutning og
dreifingu á hljómplötum. Á
síðastliðnu ári var hafin fram-
leiðsla hér á landi á hljómplöt-
um hjá fyrirtækinu. Nú er
unnið af krafti að því að koma
íslenzkum hljómlistarmönnum
á framfæri á erlendri grund og
ég held, að þar séum við að sigla
inn í verulega landvinninga.
Möguleikarnir eru fyrir hendi,
svo mikið er víst. Með öllu vinna
því um 150 manns hjá fyrirtæk-
inu.“
Áræði, dugn-
aður og hraði
Þú ert tiltölulega nýkominn
til fyrirtækisins.
„Já, ég var áður fram-
kvæmdastjóri Félags íslenzkra
iðnrekenda og kom hingað til
starfa um áramótin ’79—’80. Ég
er framkvæmdastjóri fram-
leiðslunnar hér en Guðlaugur
Bergmann hefur markaðsstörf-
in á sinni könnu. Það var
vissulega mikið verkefni að tak-
ast á við viðfangsefnin hér en
auðvitað þekkti ég vel til ís-
lenzks iðnaðar almennt þar sem
ég lifði og hrærðist í málefnum
iðnaðarins hjá FÍI. Þetta er
skemmtilegt starf og lífrænt,
sífellt verkefni og vandamál til
að takast á við.“
Ilaukur Björnsson ásamt nokkrum starfsmanna fyrirtækisins, frá vinstri, Colin Porter, Haukur, örn Ingólfsson,
Gróa Ingvadóttir, Þórunn Sigurðardóttir, Þórunn Inga Einarsdóttir og Margrét Sigurðardóttir. Myndir mm. Emiiia.