Morgunblaðið - 16.05.1981, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1981
45
m
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
w TIL FÖSTUDAGS
i ,é Édruiá^ itfi m u
ViVWl.W-
Víðar en á hafinu
sem menn eru ósam-
mála fiskifræðingum
Veiðimaður skrifar: „Ég var
fyrir skömmu að kynna mér hvað
veiðileyfin kostuðu nú í Elliða-
vatni. Kom þá í ljós að hálfur
dagur (eða réttara sagt kvöld-
stundin, því að menn nota hálfs-
dagsleyfin aðallega á kvöldin) kost-
ar 50 kr. Dagur í vatninu kostar 80
kr. Þetta eru miklir peningar fyrir
þá tegund veiðimanna, sem þarna
hefur verið þaulsætnust. Mig lang-
ar í þessu sambandi til að fá það
upp gefið, hverjar heildartekjur
voru af sölu veiðileyfa í vatninu í
sumar sem ieið.
Stórdraga úr sókn
En það má annars um þetta
segja, að það er víðar en á hafinu,
sem menn eru ósammála fiskifræð-
ingum. Þeir hafa haldið því fram
(m.a. Jón Kristjánsson), að sem
mest ætti að veiða í vötnum þar
sem fiskur er smár, vegna tak-
markaðs beitarþols þeirra, þ.e.a.s.
því meira sem stofninn sé grisjaður
(að vissu marki), því vænni verði
fiskurinn sem eftir lifi í vatninu.
En þessum vísindum fiskifræð-
inganna virðist ekki hafa verið
trúað, ef marka má verðlagningu
veiðileyfanna í Elliðavatni. Þau
koma ekki til með að verka hvetj-
andi í þá veru að fiskurinn verði
grisjaður þar í sumar. Þau hljóta
að stórdraga úr sókn okkar kvöld-
og helgarveiðimanna þangað.
Ekki vitlaus íjárfesting
I fyrrasumar talaði ég við veiði-
menn við Vífilsstaðavatn. Þar
höfðu þeir veitt ár eftir ár. Þeir
sögðu mér að fiskurinn sem þeir
væru að veiða um þetta leyti væri
um helmingi minni að meðaltali en
árið áður. Það virðist því ekki
vitlaus fjárfesting að selja veiði-
leyfin ódýrt í þessum vötnum
meðan verið er að grisja þau og ná
upp fiskstærðinni."
Samræma þarf verð-
ið á veiðileyfunum
Snorri Jónasson skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Ég las í dálkum þínum þann 12.5.
grein eftir Jón Helga Jónsson um
veiðiieyfisokrið í Elliðavatni og er
ég honum sammála að öllu leyti
ásamt fjölda manna sem ég hef
talað við.
Ég er einn af þessum „kaffi-
brúsakörlum", sem hafa gaman af
að renna fyrir fisk í Elliðavatni
einn og einn góðviðrisdag og eina
og eina kvöldstund, en nú virðist
eiga að girða fyrir að svo megi
verða í framtíðinni vegna þessa
okurverðs á veiðileyfum í vatninu.
Mig langar að gera samanburð á
verði veiðileyfa í nokkrum veiði-
vötnum og vil ég þá byrja fyrst á
Elliðavatni. Þar kostar hálfdags-
veiðileyfi 5.000 gkr. fyrir stöngina
og fyrir allan daginn kostar veiði-
leyfið 8.000 gkr. fyrir stöngina.
Fyrir sumarkortið verður að borga
hvorki meira né minna en 70.000
gkr. Fiskurinn sem veiðist þarna er
smábleikja um og innan við eitt
pund. Einnig fæst þar lítilsháttar
af urriða sem er aðeins stærri en
bleikjan.
í Kleifarvatni kostar veiðileyfið
á dag 3.000 gkr. fyrir stöngina og
fyrir sumarkortið verður að borga
15.000 gkr. Sams konar fiskur
veiðist þar og í Elliðavatni.
í Vífilsstaðavatni kostar 3.000
gkr. fyrir stöngina á dag og sumar-
kortið kostar þar 25.000 gkr.
I Djúpavatni kostar 3.000 gkr. á
dag fyrir stöngina.
I Hlíðarvatni í Selvogi kostar
4.500 gkr. fyrir stöngina á dag.
Einnig vil ég koma því að, að hús
fylgja veiðileyfum við Djúpavatn
og Hlíðarvatn í Selvogi.
Eins og Jón Helgi vil ég eindreg-
ið fá að vita ástæðuna fyrir þessum
verðmun á Elliðavatni og hinum
vötnunum.
Vil ég skora á forráðamenn
EUiðavatns að endurskoða verð á
veiðileyfunum og reyna ða sam-
ræma verðið við það sem annars
staðar tíðkast.
Með kærri þökk fyrir birting-
una.“
Erum við íslend-
ingar „heppnir“?
Friðrik Kristjánsson skrifar:
„Oft heyrum við stjórnmmála-
menn og aðra, jafnt lýðræðis-
sinna sem kommúnista, ræða um
það að við íslendingar séum
heppnir að vera meðal þeirra
þjóða, sem búa við hvað bestu
lífskjörin, sem í okkar veröld
þekkjast. Oftast fylgir það tali
þessu, beint eða óbeint, að
heppni okkar sé í því fólgin að
teljast tii vestrænna lýðræðis-
þjóða.
Lýðræðissinnar ættu að huga
vel að þessu heppnistali og íhuga
hvort ekki séu einhverjar tiltölu-
lega einfaldar skýringa á þessari
„heppni" okkar. Við þá athugun
kemur einfaldlega í ljós að
heppni okkar er faiin i stórpóli-
tískri ákvörðun, sem tekin var af
Bjarna Benediktssyni og fleiri
lýðræðissinnuðum stjórnmála-
mönnum og staðfest á Alþingi
þann 30. mars, 1949, í algjörri
andstöðu við kommúnista og
„Alþingi götunnar", sem svo
minnisstætt ætti að vera öllum
íslendingum. Heppnin er semsé
einfaldlega fólgin í þeirri heilla-
vænlegu ákvörðun mikils meiri-
hluta þjóðarinnar að fylkja sér í
raðir vestrænna lýðræðisþjóða
og taka fullan þátt í vörnum
þessara þjóða gegn yfirgangi
alþjóðakommúnismans.
Er við þannig getum orðið
okkar eigin gæfu smiðir, ber
okkur að hafa það vel hugfast að
á sama hátt getum við einnig
stuðlað að okkar eigin ógæfu
með andvaraleysi því, sem svo
augljóst er í athöfnum þess fólks
sem gerist meðreiðarsveinar
kommúnista og vinnur gegn
samvinnu okkar við aðrar vest-
rænar lýðræðisþjóðir á sviði
varnarmála.
A sama hátt getum við stuðlað
að enn meiri „heppni" okkar
íslendinga, hvað bætt lífskjör
varðar, með því einfaldlega að
allt lýðræðissinnað fólk samein-
ist í algjörri andstöðu við komm-
únista á sviði efnahagsmála.
Já, við getum verið heppnir
íslendingar.”
Lýðháskóli
í Skálholti
Almennt framhaldsnám. Fjöldi valfrjálsra greina.
Leiötogamenntun. Samfélag og vinakynni.
Hringið í síma 99-6870.
Skálholtsskóli.
Stálundirstöður fyrir
loftplötur og brúargerð
Stærðir frá 1.80—3.00 mh. burðarþol 1000 kg.—2780 kg.
Stærðir frá 2.20—3.60 mh. burðarþol 2170 kg.— 856 kg.
Stærðir frá 2.40—4.20 mh. buröarþol 2950 kg.—1100 kg.
Stærðir frá 3.10—5.00 mh. buröarþol 5000 kg.—1300 kg.
Vestur-þýzk úrvalsvara og viðurkennd af
þýzka öryggiseftirlitinu (TUV).
Hagkvæmt verð. Leitið tilboða.
Allar upplýsingar
Atlas hf
Grófinni 1. — Sími 26755.
Pósthólf 193, Reykjavík.
umboðs & heildverzlun
Söluaóilar
SELTJARNARNES
iþróttaféfagið Grðtta
GARÐBÆR
Umf. Stjaman
MOSFELLSSVEIT
Umf. Afturatding
KJÓS
Umf. Drangur
KJALARNES
Umf. Kjalnesinga
AKRANES
iþróttabandalag Akraness
BORGARFJÖRÐUR
Ungmennafélögin
HELUSSANDUR
Umf. Reynir
ÓLAFSVfK
Umf. Vikingur
GRUNDARFJÖRÐUR
Umf. Grundvlkinga
STYKKISHÓLMUR
Lúðrasveitln
BÚÐARDALUR
Umf. ólafur Pé
PATREKSFJÖRDUR
Héraðssambandið Hrafna-f
T ÁLKNAF JÖRÐUR
Umf. Tálknaf jaröar
BÍLDUOALUR
íþróttafélagið
FLATEYRI
iþróttafélagiö Grettir
ÞINGEYRI
iþróttafélagið Höfrungur
SUÐUREYRI
iþróttafélagið Stefnir
BOLUNGARVÍK
Umf. Bolungarvlkur
ISAFJÖRÐUR
Knattspymuráð iaafjarðar
SÚÐAVlK
Umf. Geiali
HÓLMAVlK
Umf. Geislinn
STRANDASÝSLA
Ungmennafélögin
HÚNAVATNSSÝSLA
Umf Getsiar
SAUÐÁRKRÓKUR
Skátafélagið
SKAGAFJÖRÐUR
Kaupféiagiö f Varmahlið
HOSÓS
Umf Hðfðstrendingur
FLJÓT
Sigurtaug Jónsdóttir
Bjamargili
SIGLUFJÖRDUR
iþróttabandalag Siglufjarðar
ÓLAFSFJÖRÐUR
Kirkjukórinn
EYJAFJÖRDUR
UMSE
AKUREYRI
iþróttafélagið Þór
HÚSAVÍK
Tónlistarfélagið
MÝVATNSSVEIT
iþróttafélagið Eillfur
REYKJAHVERFI
Umf. Reykhverfingur
REYKJADALUR
Umf. Efling
KÓPASKER
Umf. Snörtur
RAUFARHÖFN -
Umf. Austrí
VOPNAFJÖRÐUR
Umf. Einherji
EGILSSTAÐIR
Hjálparsveit skáta
JÖKULDALUR
Umf JðkuktaBla
FUÓTSOALUR
Umf Fljótsdaale
eiðaþinghA
Jóhann G*Johannsaon
SKRIODALUR
Umf Sknðdæla
FELLAHREPPUR
Umf. Huginn
HLÍOAHREPPUR
Umf. Vlsir
HJALT AST AÐAÞINGhA
Umf. Fram
HRÓARSTUNGA
Umf. Hróar
NESKAUPSSTADUR
Jón Gunnarsson
Blómsturvöllum 37
SEYÐISFJÖRDUR
Björgunarsveitin isólfur
DJÚPIVOGUR
Kvenfélagið
REYÐARFJÖRDUR
Umf. Valur
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR
Umf. Leikmr
STÖÐVARFJÖRÐUR
Umf. Súian
ESKIFJÖRtHJR
Umf. Austri
BREIÐOALSVÍK
Umf Hrafnkell Freyagoði
HÖFN HORNAFIRDI
Umf. Sindrí
VÍK f MÝROAL
Umf Drangur
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR
Umf. Ármann
HELLA
Gríllakálinn
HVOLSVÖLLUR
Umf. Baldur
VESTMANNAEYJAR
iþróttabandalag Vestmannaeyja
BISKUPSTUNGUR
Umf. biskupstungna
FLÚÐIR
Verslunin Grund
STOKKSEYRI
Kvennadeild Siysavamafélagsina
HVERAGERDI
Umf Hverageröis og ölfuss
GNÚPVERJAHREPPUR
Umf Gnúpverja
LAUGARVATN
Kaupfélagið
SELFOSS
Umf. Selfoss
ÞORLÁKSHÖFN
Umf. Þór
GRINDAVlK
Umf. Gríndavfkur
SANOGERÐI
Knattspyrnufélagið Reynir
GARDURINN
Knattspurnufélagið Vlðir
VOGAR
Umf. Þróttur
KEFLAVÍK
i. B K. '
NJARÐVÍK
Umf Njarðvfkur
Kór Langholtskirkju-Feróasjóður