Morgunblaðið - 05.07.1981, Page 1

Morgunblaðið - 05.07.1981, Page 1
64 SIÐUR 147. tbl. 68. árg. SUNNUDAGUR 5. JtLÍ 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Frekari mannskaði í fellibyl Manila. Filippseyjum. i. júlí. AP. FELLIBYLURINN Lynn olli mannskaðatjóni, þegar hann gekk yfir Luzoneyju á Filipps- eyjum í dag. Að minnsta kosti 10 manns létust í óveðrinu, en fyrr i vikunni fórst 161, þegar fellibylurinn Kelly gekk yfir eyjuna. 40 manns er saknað á Luzoneyju. Mikil rigning fylgir stormin- um. Hann hefur náð til um 300 km svæðis. í Manila urðu nokkur flóð. Lynn stefnir í vestur í átt að hrísgrjónaræktarsvæðum Fil- ippseyja. Vanheilir ná tindi Mt. Ranier Paradís. Washingtonriki. i. júlí. AP. FIMM blindir menn, tveir heyrn- arlausir, einn með gervifót og einn flogaveikur, náðu tindi Mt. Ranier-fjallsins, sem er 4.392 metra hátt, á föstudag. Þeir lögðu upp í ferðina á miðvikudag og voru einum degi fljótari á leiðinni en þeir höfðu reiknað með. Þeir voru yfir sig ánægðir, þegar þeir náðu tindinum og mátti heyra fagnaðaróp þeirra í tal- stöðinni, sem þeir höfðu með sér. Þeir sögðu, að afrek þeirra sýndi, að heimur vanheilla þyrfti ekki að vera eins takmarkaður og margir álíta. Á leið sinni niður fjallið varð snjóskriða á vegi þeirra, og þurftu þeir að taka á sig verulegan krók fram hjá henni. Einn hinna blindu sagðist hafa orðið mjög skelkaður, þegar hann heyrði til skriðunnar. 11 manns létust á því svæði nýlega. Sjö fararstjórar voru með mönnunum í ferðinni og tveir blaðamenn. Glæpum fjölg- ar í Póllandi Varsjá. I. júli. AP. INNANRÍKISRÁÐHERRA Póllands, Mirslaw Mil- ewski, skýrði frá því í pólska þinginu á föstudag, að afbrotum væri ávallt að fjölga í landinu. I»ar á meðal hefði árásum á lögregluþjóna fjölgað verulega, sam- kvæmt fréttum pólska útvarpsins. Kolaframleiðsla í Póllandi dróst mikið saman á síðasta ári. Fulltrúar á þingi Comecon, sem stendur um þessar mundir í Sofíu í Búlgaríu, kvörtuðu marg- ir sáran undan kolaskorti. Wojciech Jaruzelski, forsætis- ráðherra Póllands, lofaði í ræðu á þinginu að reyna að bæta úr þessu og gera átak í efnahags- málum Póllands á næstunni, meðal annars með því að auka ákveðni pólska kommúnista- flokksins gegn deilum á vinnu- markaði. Andrei Gromyko, utanríkis- ráðherra Sovétríkjanna, er nú í stuttri heimsókn í Póllandi. Hann heimsótti í dag minnis- merki óþekkta hermannsins og sovéskt minnismerki. Sendi- herra Sovétríkjanna í Póllandi var í fylgd með Gromyko og fulltrúar pólska utanríkisráðu- neytisins. Ekki sást neinn úr leiðtogahópi pólska kommún- istaflokksins. Gromyko átti fundi með æðstaráði flokksins í dag og miðstjórninni. Búist var við, að á fundunum yrðu umbætur þær, sem Pólverjar hafa farið fram á í stjórnmálum og efnahagsmál- um, ræddar. Pólskir verkamenn hafa farið fram á fimm daga vinnuviku og rétt til að gagn- rýna stefnu stjórnarinnar í inn- anríkismálum. Talið er, að þess- ar umbætur verði samþykktar á aukaþingi pólska kommúnista- flokksins, sem hefst 14. júlí. 2000 fulltrúar munu sitja þingið. Kosningu á þingið er lokið, en margir gamalreyndir flokks- menn náðu ekki kjöri á það. Bazargan fram í forsetakjöri Boirut. 1. júll. AP. LÍKLEGT er nú talið, að Moh- ammad Ali Rajai, forsætisráð- herra, verði ekki einn um hit- una í forsetakosningunum i íran. sem fram fara 24. þessa mánaðar. Þrír aðrir eru sagðir hyggja á framboð og er þar fremstur í flokki Mehdi Bazarg- an, fyrrverandi forsætisráð- herra, sem sagði af sér í nóv- ember 1979 eftir að islamskir byltingarverðir réðust inn í bandariska sendiráðið. Aðrir tveir trúlegir frambjóð- endur eru Noreddin Kianoori, aðalritari Tudeh-flokksins, kommúnistaflokks, sem hailur er undir Moskvu, og Farrokh Neg- ahdar, formaður Khalq-flokksins og hlynntur Tudeh. Rajai nýtur stuðnings Islamska lýðveldis- flokksins, klerkastéttarinnar, sem nú ræður lögum og lofum í Iran. Tilgangur mótframbjóðenda Rajai er sagður sá einn að minna á tilvist sína í írönskum stjórn- málum en enginn þeirra getur gert sér neinar vonir eins og málum er nú háttað í íran. Bazargan fyrrverandi forsætis- ráðherra er miðjumaður í írönsk- um stjórnmálum og stuðnings- maður Bani-Sadr, sem rekinn var úr forsetastóli. Hinir tveir eru komúnistar, sem hefur þó tekist að hafa nokkurt samstarf við klerkastéttina. Bazargan Hann vill fægja Frelsisstyttuna Salt Lake City, i. júlí. AP. BOB GRACE er ákveðinn í að skrúhba Frelsisstyttuna og gera hana kopargljáandi, þótt einhverjir embættismenn segi, að það sé fullkominn óþarfi. Grace hefur dreymt um þetta í þrjú ár og vil) láta til skarar skríða, áður en styttan, sem stendur í hafnarmynni New York-borgar. verður 100 ára 1984. Grace hefur ekki úr of mikl- um fjármunum að spila og vonar, að einkaframtakið sé enn svo mikið í Bandaríkjun- um, að hann fái styrk til aðgerðanna. Hann hefur einnig látið sér detta í hug að sækja um ríkisstyrk. Lögfræðingur hans í Chicago hefur stofnað sjóð til hreinsunar styttunni, en ekki má gefa í hann, fyrr en samþykki hefur fengist frá yfirvöldum fyrir því, að hafist verði handa. Grace skrifaði Ronald Reag- an, áður en hann var kjörinn forseti, um áform sín. Reagan sagði í svarbréfi, að hann myndi kynna sér málið nánar, ef hann næði forsetakjöri. Ekki hefur síðar. heyrst frá Reagan um þetta mál. Grace lætur það ekki á sig fá, þótt hann viti, að Frelsis- styttan yrði aðeins fagurgljá- andi í 18 mánuði og yrði jafn græn eftir þann tíma sem áður. Lítil eining sögð á fundi Comecon Soíiu. Búkaríu. i. júli. AP. ÞRIGGJA daga fundi Efnahags- handalags Austantjaldsríkj- anna. Comecon, lauk í dag í Sofíu án þess, að nokkuð væri til marks um, að aðildarlöndunum hefði tekist að samræma yfir- standandi fimm ára áætlanir sínar. Ólíkir hagsmunir þjóð- anna. erfiðleikar Pólverja, sem ekki hafa getað staðið við gerða samninga um hráefnissölu, og hilið á milli evrópsku aðildar- landanna og hinna þriggja úr þriðja heiminum virðast hafa verið sá Þrándur í Götu, sem ekki varð yfirstiginn. Fundurinn fór fram fyrir lukt- um dyrum en hermt er, að Ilie Verdet, forsætisráðherra Rúm- eníu, hafi lagt mikla áherslu á nauðsyn nánara samstarfs milli Comecon-ríkjanna, einkum hvað varðar útvegun eldsneytis, orku og hráefna. Til þessa hafa fylgi- ríki Sovétríkjanna fengið þaðan ákveðið magn af olíu og gasi á föstu verði og það, sem umfram er, á heimsmarkaðsverði, en fréttir herma, að Rússar hafi krafist þess að fá framvegis meiri greiðslur í gildum gjald- eyri, þ.e. vestrænum gjaldeyri. Ræður, sem haldnar hafa verið á fundinum, hafa ekki verið birtar fyrr en eftir mikla mæðu og þykir margt benda til að þær hafi verið ritskoðaðar ítarlega. Auk Austantjaldsríkjanna eiga Mongólía, Kúba og Víetnam aðild að Comecon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.