Morgunblaðið - 05.07.1981, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ1981
Kynningarbæklingur um skipulag Austursvæðanna:
Áróðursrit
á kostnað
borgarsjóðs
Loigjendasamtökin í Reykjavík tjölduðu til einnar nætur á lóð Menntaskólans í Reykjavík aðfaranótt
laugardagsins til að mótmæia háu verði á húsaleigu i borginni. Á vegum Leigjendasamtakanna var
þar reist eitt stórt tjald en auk þess tjölduðu nokkrir einstaklingar þarna þeirti til samlætis. Þá var
starfsemi Leigjendasamtakanna kynnt og boðið upp á ýmis skemmtiatriði tjaldbúum og gestum
þeirra til skemmtunar. Ljósmynd Mbi. Guðjón.
Ársskýrsla Landsbanka íslands 1980:
Innlán jukust um 65%, en
útlán hins vegar um 58%
Á borgarstjórnarfundi sl.
fimmtudag var tekin til meðferð-
ar samþykkt borgarráðs frá 30.
júní sl. sem gengur út á að gefa
skuli út kynningarbækling um
Sala Árvakurs
og Þórs geng-
ur treglega
LÍTIL hreyfing er enn á sölu
varðskipanna Árvakurs og bórs
og hafa ekki enn komið fram
tilhoð i skipin, sem talin eru
nægilega há.
Að sögn dómsmálaráðherra,
Friðjóns Þórðarsonar, er ekki ljóst
hvernig staðið verður að sölu
Árvakurs vegna þess að skipið
heyrir bæði undir dómsmálaráðu-
neytið og samgöngumálaráðuneyt-
ið. Hann sagði ennfremur að Þór
yrði ekki seldur nema viðunandi
verð fengist þar sem skipið væri
enn í mjög góðu ástandi og með
nýja vél og þar sem nægilega hátt
tilboð hefði enn ekki borizt, stæði
ekki til að selja það á næstunni.
UNDANRÁSIR í 350 og 800
metra stökki hófust hér á föstu-
dagskvöld. á Fjórðungsmóti
sunnlenskra hestamanna á Hellu
á Rangárvöllum. Mjög góður tími
náðist í 800 metra stókkinu. en
bestum tima náði Þróttur, er
hljóp á 60,3 sekúndum. Öðrum
besta tima náði Leó, sem hljóp á
61.8 sek.. og þriðja besta Eldur,
sem fór sprettinn á 63,4 sek.
Fyrirfram var talið að Reykur
yrði sigurstranglegastur í sínum
riðli, en knapi hans, Harpa Karls-
dóttir, varð fyrir því óhappi að
falla af baki í hlaupinu og er
Reykur því úr keppninni. Harpa
var borin brott af skeiðvellinum í
sjúkrabörum, en ekki er kunnugt
hve alvarlega hún er slösuð. Talið
er að óhappið hafi orðið vegna
þess að gjörðin losnaði og rann
aftur eftir hestinum, og byrjaði
hann þá að skvetta sér með þeim
afleiðingum að Harpa féll af baki.
Hún dróst síðan nokkra metra
ný byggingarsvæði á höfuðborg-
arsvæðinu. svonefnd Austur-
svæði, og dreifa meðal almenn-
ings. Bar Davíð Oddson fram
tillögu frá sjálfstæðismönnum
um að visa samþykktinni um
kynningarbæklinginn frá.
í greinargerð með frávísunartil-
lögunni segir m.a.: að skipulags-
stjórn hefði þegar lýst því yfir að
tillögur um skipulag svæðisins
væru ekki í afgreiðsluhæfu formi
og t.d. nauðsynlegt að gera upp
vatnsverndunarmál það, sem
endurskoðuninni tengist áður en
staðfesting gæti átt sér stað.
Meirihlutanum sé orðið ljóst að
ákvarðanir hans njóti ekki stuðn-
ings borgarbúa og vilji láta gera
áróðursrit á kostnað borgarsjóðs
til að bæta stöðu sína í málinu.
Þessi tillaga var felld með 8
atkvæðum gegn 7. Þá lagði Davíð
fram viðaukatillögu þess efnis að
við gerð kynningarbæklingsins
skyldi gæta þess að sjónarmið
minni- og meirihluta borgar-
stjórnar fengju bæði að koma
fram. Þessi tillaga hlaut 7 atkvæði
og því ekki stuðning.
með hestinum, en losnaði þó
fljótlega. Mikill skaði er ef Harpa
verður frá frekari keppni á mót-
inu, því hún er einn fremsti knapi
hrossa í hlaupagreinum hérlendis
og átti að sitja marga hesta í
ýmsum hlaupum.
I 350 metra stökki voru fimm
riðlar, og komust eftirtalin hross
áfram, sem verða í þremur riðlum.
Tímar hestanna í undanriðlum
eru fyrir aftan nafn hvers hests. I
fyrsta riðli undanrása verða þess-
ir hestar:
Stormur 25,3 sek., Blakkur 26,0,
Skelfir—Ægir 26,0 og Óli 26,1 sek.
í öðrum riðli verða þessi hross:
Sneggla 26,0, Móri 26,0 og Kóngur
26,2.1 þriðja riðli verða svo Skessa
25,8, Hrímir 26,0, Haukur 26,1
Silfurtoppur 26,4 og Yrpa sem
hljóp á 26,5.
Þetta ættu að vera gagnlegar
upplýsingar fyrir þá sem enn hafa
ekki veðjað, en skilafrestur er til
klukkan 15 á sunnudag. Undan-
rásir hefjast klukkan 17 laugar-
dag.
LANDSBANKA íslands var árið
1980 á margan hátt hagstætt.
Innlán jukust töluvert umfram
hækkun verðlags. en aukning
útlána varð minni en aukning
innlána. Lausafjárstaða hankans
styrktist þvi verulega. Þetta kem-
ur fram í nýútkominni árs-
skýrslu Landshanka íslands
fyrir árið 1980.
— Hagnaður varð 2.784 millj-
ónir gkróna 1980, en var 1.581
milljón gkróna árið 1979. Hafa þá
verið dregnir frá vextir af eigin fé
að upphæð 2.803 milljónir gkróna
og miðast þeir við nafnvexti á 3ja
mánaða vaxtaaukareikningum.
Við mat á fasteignum bankans
var gerð sú mikilvæga breyting að
miðað er við opinbert fasteigna-
mat, þar sem því verður við komið.
Endurmat fasteigna nam alls
6.482 milljónum gkróna. Eigið fé
hækkaði alls um 12.069 milljónir
gkróna og var í árslok 19.289
milljónir gkróna, eða 6,3% af
heildareignum.
Heildarinnlán jukust um 53,2
milljarða gkróna, eða 65%. Var
það nokkru minni hlutfallsleg
aukning en hjá innlánsstofnunum
almennt. Innlán námu 135,3 millj-
örðum gkróna, að meðtöldum
gjaldeyrisreikningum í árslok
1980. Spariinnlán jukust á árinu
um 37,9 milljarða, eða 63%, og var
staða þeirra í árslok 97,9 milljarð-
ar gkróna. Veltiinnlán jukust um
12,1 miltjarð gkróna, eða 61%, og
námu 31,9 milljörðum gkróna í
árslok. Innstæður á innlendum
gjaldeyrisreikningum voru að
jafnvirði 5,5 milljarðar gkróna í
árslok.
Heildarútlán bankans námu
149,8 milljörðum gkróna í árslok
1980 og eru endurlánuð erlend
lán þá ekki talin með. Aukningin á
FORSETI íslands. Vigdís Finn-
bogadóttir. mun verða viðstödd
setningu landsmóts Ungmennafé-
laga íslands á Akureyri 10. júli
nk. í framhaldi þess mun forseti
ferðast um Þingeyjarsýslur og
Eyjafjarðarsýslu og m.a. heim-
sækja Grimsey.
Ferðaáætlunin er í megindrátt-
um á þessa leið: Flogið verður frá
Akureyri til Þórshafnar laugar-
daginn 11. júlí og þaðan haldið til
Raufarhafnar, Kópaskers og
Húsavíkur. Fyrri hluta sunnu-
dagsins 12. júlí dvelur forseti
íslands á Húsavík en heldur síð-
árinu nam 55,1 milljarði gkróna
eða 58%. Útlán bankans án endur-
seljanlegra lána jukust hins vegar
um 37,6 milljarða gkróna, eða
62%. Þar af hækkuðu eigin lán
bankans í afurða- og rekstrarlán-
um, svokölluð viðbótarlán, um 10,2
milljarða gkróna, og greiddar
óinnleystar ábyrgðir, sem eru
fyrst og fremst vegna olíukaupa,
um 3,0 milljarða gkróna. Að þess-
um lánum frátöldum var aukning
útlána Landsbankans 58%.
degis til Mývatnssveitar. Mánu-
daginn 13. júlí verður flogið til
Grímseyjar. Þriðjudaginn 14. júlí
verður farið til Dalvíkur og Ólafs-
fjarðar. Miðvikudaginn 15. júlí er
ferðinni heitið fram í Eyjafjörð og
dvalið verður á Akureyri síðari
hluta dagsins. Til Reykjavíkur
verður komið aftur fimmtudaginn
16. júlí.
I för með forseta Islands verða
Vigdís Bjarnadóttir, fulltrúi á
forsetaskrifstofunni, og eiginmað-
ur hennar, Guðlaugur Tryggvi
Karlsson.
Fréttatilkynninic-
Fjórðungsmótið á Hellu:
Reykur úr keppninni eftir að Harpa
Karlsdóttir féll af baki í 800 m
FjórðunKsmóti sunnlenskra
hostamanna á Ilellu. 4. júli.
Forseti íslands heimsækir Eyja-
fjarðar- og Þingeyjarsýslur
Félagsmálastofnun Reykjavíkur
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
efnir til tveggja feröa í samvinnu við Feröaskrifstof-
una Útsýn, fyrir borgara 60 ára og eldri.
Feröaskrifstofan
ÚTSÝN
Eldri borgarar Reykjavík
Portoroz í Júgóslavíu — brottför 28. ágúst — 3 vikur. Dvalist verður á Hóte
Roza, fyrsta flokks hóteli, meö fullu fæði.
Verö kr. 8.400,---fyrir manninn í tveggja manna herbergi.
Mallorca — Magaluf — brottför 9. september — 3 vikur. Dvalist verður á Hotel
Forte Cala Vinas, fjögurra stjörnu hóteli, með fullu fæði.
Verd kr. 7.800,- fyrir manninn í tveggja manna herbergi.
Félagsmálastofnun Reykjavíkur. Ferðaskrifstofan Útsýn.
1 — e. iúlí kl-16-30' .. ...
'ú"
mánudaginn ,ra
Par ve.M ,/opplírsMP' ^
Otsýnar munu y
bókunum