Morgunblaðið - 05.07.1981, Page 14

Morgunblaðið - 05.07.1981, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ1981 Kvikmyndagerð á íslandi í sumar — Hvemig standa málin? Bresk kvennamynd í áKÚst cr ráðgert að hefjast handa við töku kvikmyndar. sem hópur breskra kvenna stendur að. I>að eru þær Sally Putter, sem leikstýrir, Barhara Ma>;not, sem tekur myndina, Rose EnKÍish, hönnuður <>K Lindsey Cooper. Kvikmyndatakan er fjármögnuð af 4 frumsýningar Stutt er síðan islensk kvikmyndagerð komst á þann rekspöl sem hún er nú komin á, en sé miðað við hina sigildu höfðatölu tslendinga verður ekki annað sagt en að gróskan í þessari listgrein hér á landi sé ótrúlega mikil. í fyrra var talað um „kvikmyndasumarið mikla“, en þær eru heldur fleiri myndirnar sem í sumar eru í vinnslu, á hinum ýmsu stigum. Ef að líkum lætur má vænta frumsýningk á a.m.k. fjórum íslcnskum kvikmyndum i fullri lengd á næstu sex mánuðum og hafa þvi áhugamenn um vöxt og viðgang islenskrar kvikmyndagerðarlistar sitthvað að hlakka til. I>á færist áhugi erlendra aðila á að vinna að kvikmyndagerð á Islandi sífellt í vöxt, þótt ekki yrði af fílaævintýrinu mikla, sem 20th Century Fox ætlaði að stofna til siðastliðið sumar. í sumum tilfellum er svo um að ræða samvinnu íslendinga og útlendinga og svo eru allar myndirnar sem enn eru aðeins til í hugskoti höfundanna. innan 6 mánaða brcska kvikmyndasjóðnum. Handritið segir frá tveimur konum. sem sjá veröldina frá ólíkum sjónarhornum og mun breska leikkonan Julie Christie leika aðra þeirra. Myndin verður m.a. tekin i Húsafelli. Framkvæmda- stjóri á íslandi verður Kristin Ólafsdóttir, en hún cr við nám i Englandi. Þær Sally Potter og Lindsey Cooper eru ekki með öllu ókunnar landinu, þvi þær komu hingað til lands i fyrra með leikhópnum „Feminist Improvising Group“, sem flutti hressilega leikþætti um stöðu konunnar i mannkynssögunni. eða „herstory“, eins og þær kölluðu það. Tívolí fyrir bí? I>egar síðast fréttist af kvikmynd þeirri, sem Jakob Magnússon, Björn Björnsson og Egill Eðvarðsson höfðu uppi áform um að gera, byggða á hugmyndinni um tívoliið sem eitt sinn var í Vatnsmýrinni, höfðu þeir Egill og Björn dregið sig út úr fyrirtækinu og afhent Þorstcini Jónssyni kvikmyndagerðarmanni hugmynd- ina til handritsgerðar. Varla verður af gerð þeirrar myndar á næstunni hvað sem síðar kann að verða, en kvikmyndasjóður mun hafa veitt styrk til framkvæmd- anna. hhs. Danska leikkonan Tine Hagedorn Olsen fer með annað aðalhlut- verkið í kvikmyndinni Sóley. Klippingu lokið á Sóleyju: Frumsýning í ágúst Kvikmyndin Sóley, sem sam- nefnt hlutafélag framleiðir, verður væntanlega frumsýnd í Reykjavík í ágúst. En auk þess hefur ítalska sjónvarpið keypt sýningarrétt á myndinni og sam- ið hefur verið við Jón Ragnars- son um dreifingu á henni til Evrópulanda. Klippingu er lokið og verið að hljóðsetja myndina, en tónlistin er eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Leikstjóri Sól- eyjar er Róska, sem einnig hefur samið handritið í samvinnu við Einar Ólafsson. Tæknimenn eru flestir af erlendu, aðallega ít- ölsku, bergi brotnir, þ. á m. klipparinn, en að sögn aðstand- enda Sóleyjar var mikill liðsauki að honum og flýtti það mikið fyrir frágangi myndarinnar, hve vel gekk að klippa hana. Fjöldi leikara kemur fram í Sóleyju, flestir þeirra Islendingar, en aðalhlutverk eru í höndum þeirra Tine Hagedorn Olsen, frá Danmörku og Rúnars Guð- brandssonar. Kvikmyndin Sóley verður tæpar tvær klst. að lengd. Kukl og fjölkyngi koma töluvert við sögu i Gisla sögu Súrssonar og hér er verið að undirbúa atriði með seiðkörlum og -kerlingum. Snorri Sturluson frumsýndur í Danmörku í ágúst: Hugmyndir uppi um að frum- sýna Snorra í sept. hér á landi Kvikmyndin um Snorra Sturlu- son, sem framleidd er af sjón- varpsstöðvum Islands, Noregs og Danmerkur í sameiningu, er nú tilbúin til sýninga. Verður myndin væntanlega frumsýnd í danska sjónvarpinu dagana 9. og 16. ágúst, en hún er í tveimur hlutum, hvor hluti 78 mín. að lengd. Að sögn Péturs Guðfinnssonar, framkvæmda- stjóra sjónvarpsins, hefur ekki verið tekin ákvörðun um frumsýn- ingu Snorra hér á landi, en ýmsar hugmyndir munu vera uppi um dagsetningu, t.a.m. dagana 22. og 23. sept. En aðfaranótt 23. sept. var Snorri drepinn um miðja þrettándu öld. Myndin var reynd- ar sýnd á Nordic Screening, lok- aðri kaupstefnu norrænna sjón- varpsstöðva í Reykjavík á dögun- um og munu ýmsir aðilar hafa látið i ljós áhuga á að kaupa hana til sýninga, en samkvæmt samn- ingi eiga bæði danska og norska sjónvarpið rétt á sýningum á Snorra. Leikstjóri myndarinnar er Þráinn Bertelsson, sem einnig samdi handritið ásamt dr. Jónasi Kristjánssyni. Framkvæmdastjóri var Helgi Gestsson og með helstu hlutverk fara Sigurður Hallmars- son frá Húsavík, sem leikur Snorra Sturluson, Egill Ólafsson sem leikur Sturlu Sighvatsson og Hjalti Rögnvaldsson sem leikur Gissur Þorvaldsson. Gísli Hall- dórsson leikur Sighvat Sturluson og þeir Arnar Jónsson og Gunnar Eyjólfsson leika kempurnar Há- kon Noregskonung og Skúla jarl. Gisli Súrsson - ÚTLAGINN Bardagasenur á Breiðafirði Vestur í Breiðafjarðareyjum eru nú að hcfjast kvikmynda- tökur á miklum bardagasenum í kvikmyndinni um Gísla Súrs- son, „Útlaganum“. Drápið á Gísla verður sett á svið í Her- gilsey, þar sem sagan greinir frá að það hafi átt sér stað á öldum áður. Það er fyrirtækið ísfilm, sem stendur að gerð Útlagans og að sögn aðstandenda hefur ailt gengið samkvæmt áætlun og munu tökur nær hálfnaðar. Ágúst Guðmundsson er leikstjóri og handritshöfundur og Sigurður Sverrir Pálsson sér um kvik- myndatökuna. Framkvæmda- stjóri er Jón Hermannsson og með aðalhlutverk fara Arnar Jónsson, sem leikur Gísla og Ragnheiður Steindórsdóttir, sem leikur Auði. En auk þess kemur fjöldi annarra leikara fram í myndinni. Ef allt gengur sam- kvæmt áætlun, hér eftir sem hingað til, má búast við að Útlaginn verði frumsýndur í Reykjavík í byrjun næsta árs, en leggi síðan land undir fót, því ætlunin mun vera að sýna hann á Cannes-hátíðinni í vor. Er mynd- in unnin með það fyrir augum að unnt verði að sýna hana á almennum, enskumælandi mark- aði, nærmyndaatriði eru einnig tekin upp á ensku og annast Maureen Thomas frá Bretlandi þýðinguna. En að því er hún tjáði blm. háir það íslenskum mynd- um, sem einungis fylgir skrifað- ur texti á ensku, á erlendum markaði að þær fást einungis sýndar í lokuðum kvikmynda- klúbbum. Klipping myndarinnar er nú í fullum gangi og er það Bandaríkjamaðurinn William Diver, sem hana framkvæmir. En Diver var m.a. aðstoðarklipp- ari við mynd Skolemovskis, Ópið (m. Jack Nicolson í aðalhlut- verki), sem fékk mikið lof gagn- rýnenda fyrir klippingu. Þess má að lokum geta að Agúst Guð- mundsson mun vera á förum með Land og syni til Sikileyjar, á kvikmyndahátíð þar og einnig hefur honum verið boðið til Bandaríkjanna í sýningaferð með þá mynd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.