Morgunblaðið - 05.07.1981, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ1981
15
Á dögunum var verið að taka útiatriði i myndinni um Jón Odd og
Jón Bjarna vestur á Nesi. Tvíburarnir Páll Jósef og Wilhelm
Sævarssynir, sem Ieika bræðurna. eru hér á upptökustað, hinir
fagmannlegustu. (Ljósm. Mbl. Kristján Einarsson.)
Jón Oddur og Jón
Bjarni hálfnaðir
Að sögn leikstjórans, Þráins
Bertelssonar, hafa tökur á
myndinni um Jón Odd og Jón
Bjarna, eftir samnefndum sög-
um Guðrúnar Heigadóttur,
gengið vel og munu vera u.þ.b.
hálfnaðar. Þessa dagana er ver-
ið að taka útiatriði vestur á
Seltjarnarnesi og á næstunni
verður farið austur fyrir fjall.
um Grafninginn og Þingvelli,
til að taka atriði sem gerast i
útilegu.
Gert er ráð fyrir að kvik-
myndatökunni verði lokið fyrir
næstu mánaðamót og verða
næstu tveir mánuðir notaðir í að
fullvinna myndina. Frumsýning
ætti því að geta orðið á tímabil-
inu frá nóvember til jóla. Sá
háttur hefur verið hafður á við
vinnslu myndarinnar að hún
hefur verið send til framköllun-
ar til Danmerkur jafnóðum og
klippt hér heima, en klippari er
Kristín Pálsdóttir.
Það er hlutafélagið „Norðan 8“
sem framleiðir Jón Odd og Jón
Bjarna og er Helgi Gestsson
framkvæmdastjóri. Fjöldi
þekktra leikara kemur fram í
myndinni en aðalhlutverkið
leika tvíburarnir Páll Jósef og
Wilhelm Sævarssynir, „hinir
sprækustu strákar", eins og leik-
stjórinn, Þráinn Bertelsson,
orðaði það.
Sigurður Sverrir Pálsson mundar kvikmyndavélina, en hann kemur
víða við sögu i islenskri kvikmyndagerð, nú siðast i Utlaganum.
Allt samkvæmt áætlun í
Hita og þunga dagsins
VINNA við kvikmynd Hrafns
Gunnlaugssonar, sem hefur
vinnutitilinn „Hiti og þungi
dagsins“, cða „Okkar á milli
sagt“ hófst í apríl sl. og er
kvikmyndataka nú i fullum
gangi. Atriði hafa m.a. verð tekin
upp á Laugarvatni og við Ljósa-
foss. Hrafn semur handrit og
leikstýrir, en kvikmyndatöku-
maður er Karl óskarsson.
Aðspurður um efni myndarinn-
ar kvað Hrafn hana fjalla um
„kynslóðina sem byggði steinhúsin
í Reykjavík og samskipti hennar
við næstu kynslóð, sem á eftir
kom, semsagt daginn í dag“.
Vinnubrögð við handritsgerðina
kvað Hrafn vera þau sömu og
hann viðhafði við Oðal feðranna,
þ.e. að byggja ekki á skáldsögu eða
slíku, heldur að „yrkja beint út úr
formi kvikmyndarinnar".
Fjölmargir leikarar koma við
sögu í „Hita og þunga dagsins" en
Benedikt Árnason er í hlutverki
aðalpersónunnar, sem er fimm-
tugur verkfræðingur, en um hann
og samskipti hans við umhverfi
sitt fjallar söguþráður myndar-
innar. Verkið mun hafa gengið
samkvæmt áætlun, ef undanskilin
eru óhöpp er urðu í upphafi þegar
nokkrar filmur eyðilögðust og
verða „Hiti og þungi dagsins“ eða
„Okkar á milli sagt“ væntanlega
tilbúin um áramót.
Gerpla
kvikmynduð að ári
í samtali við Hrafn Gunn-
laugsson kom einnig fram að nú
mun vera gengið frá öllum samn-
ingum varðandi gerð kvikmyndar
eftir Gerplu Halldórs Laxness og
heldur Hrafn væntanlega utan til
meginlands Evrópu í ágúst, til að -
finna staði fyrir þau atriði sem
þar verða tekin. Hér á Islandi
hefst taka Gerplu væntanlega
næsta haust. Það er sænska fyrir-
tækið Viking-film, sem fjármagn-
ar gerð Gerplu, en það eru sömu
aðilar og sáu um dreifingu á mynd
Hrafns, Óðali feðranna.
Benedikt Árnason, leikstjóri, sent fer með aðalhlutverkið i „Hita og þunga dagsins“ er hér 40 metrum
undir yfirborði jarðar á bakka fljótsins við Ljósafoss. Leikstjóri og Edda Andrésdóttir horfa á.
Sámur í biðstöðu til septemberloka:
Falast eftir stórstjörnum
EINS OG sagt var frá í fréttum á
sinum tíma. höfðu þýskir aðilar
uppi áætlanir um að gera kvik-
mynd hér á landi eftir skáldsögu
Svians Per Olof Sundmanns,
Sagan af Sámi, sem byggð er á
Hrafnkelssögu. Af þvi hefur þó
ekki orðið og var Sigrún Val-
bergsdóttir innt eftir stöðu mála.
Sigrún tók þátt í undirbúnings-
vinnu fyrir töku myndarinnar hér
á landi sumarið 1978. Sagði Sig-
rún málið vera í biðstöðu en þó
ekki komið af dagskrá og yrði
væntanlega tekin ákvörðun um
það hvort af töku myndarinnar
yrði í september nk. Það var
„Regina Ziegler Film Produc-
tions“, sem hugðist framleiða
Söguna um Sám og liggur hand-
ritið fyrir fullunnið, en það er
Sigrún Valbergsdóttir
eftir Botho Strauss. Leikstjóri
hafði verið ráðinn, Peter Stein,
þekktur þýskur leikhúsmaður, og
valdi höfundur, Sundmann, Stein
úr hópi margra er áhuga höfðu á
verkinu, að sögn Sigrúnar. Ein-
hver ágreiningur mun hins vegar
vera milli framleiðandans, Reginu
Ziegler, og leikstjórans um það
hvenær skuli hefja gerð myndar-
innar, en Ziegler vill hefjast
handa næsta sumar. Ennfremur
sagði Sigrún að þetta yrði geysi-
lega dýr mynd í framleiðslu, ef af
yrði, og hefði verið falast eftir
stjórstjörnum á borð við Robert
de Niro og Donald Sutherland í
hlutverk þeirra Hrafnkels og
Sáms. En eins og áður sagði, er
Sámur í biðstöðu fram í septem-
ber.