Morgunblaðið - 05.07.1981, Síða 27

Morgunblaðið - 05.07.1981, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ1981 27 Gauti Wr safnaði fyrir sínu hjóli með blaðaútburði. Aðalfundur Hjúkrunar- félags íslands: Vanmat á hjúkrunar- starfinu IIJÚKRUNARFÉLAG íslands hélt aðalfund sinn dairana 26,— 27. mars siðastliðinn. Höfuðmál fundarins var umræða um kjara- mál hjúkrunarstéttarinnar, en mikil óánanja rikir i stéttinni eftir siðustu kjarasamninKa. Um- ræður fóru á þann veg. að flestum bar saman um að hjúkr- unarstéttin liði fyrir það að vera kvennastétt hvað laun snertir ok stéttin ekki viðurkennd sem fyrirvinna fjölskyidu. EinnÍK kom það fram í umræðunum að lítið tillit væri tekið til eðlis starfsins. svo sem sjáifstæðis ok þeirrar ábyrKÓar sem því fylKÍr. auk mikils vinnuálaus ok óreKÍu- leKS vinnutima. í fréttatilkynningu sem barst frá fundinum segir meðal annars: ,Fulltrúafundur Hjúkrunarfélags Islands 1981 vekur athygli á því hve grunnlaun hjúkrunarfræðinga eru í raun og veru, það er að segja 11. launaflokkur, sem gera 5.899.- krónur. Eftir sex ára starf eru hjúkrunarfræðingar aðeins komn- ir í 13. launaflokk. Það er ljóst að þessi laun nægja ekki til að framfleyta fjölskyldu. Hjúkrunar- fræðingum finnst því tími til kominn að kannaðar verði nýjar baráttuaðferðir, þar sem ljóst er að þessi laun örva hvorki hjúkrun- arfræðinga til starfa né ungt fólk til að hefja hjúkrunarnám." Fundurinn taldi ennfremur, að ástæðan fyrir því hve erfitt væri að fá hjúkrunarfræðinga til starfa, séu léleg laun, sem ef til vill mætti rekja til vanmats á því ábyrgðarmikla starfi sem hjúkrun er. Fundurinn varar ennfremur við að ófaglært fólk sé ráðið til að sinna hjúkrunarstörfum. Uppgötvið Norðrið ÁRSÞING samtaka veitinga- ok Kistihúsa á Norðurlöndum var haldið i Finnlandi 13. —16. júni síðastiiðinn. Á þessu þinKÍ var ÁsiauK Alfreðsdóttir formaður Sambands veitinKa- ok KÍstihúsa kjörin forseti NHR íyrir næsta starfsár. I fréttatilkynningu frá Sam- bandi veitinga- og gistihúsa segir ennfremur, að þær umræður, sem hæst bar á þinginu, hefðu fjallað um norræna samvinnu á ferða- mörkuðum utan Norðurlandanna. Þótti allmikið á skorta að hún væri næg. Sagði ennfremur að slík sam- vinna ætti að vera sjálfsögð milli Norðurlandanna. Úmheimurinn lítur á Norðurlöndin sem heild og ferðamenn heimsækja gjarnan mörg þeirra í senn. Eigi þessar þjóðir margt skylt og því grund- völlur fyrir sameiginlegri kynn- ingu undir kjörorðinu „Uppgötvið Norðrið“. Telja norrænu veitinga- og gistihúsasamtökin, að slík sam- vinna muni vekja athygli um- heimsins á okkur, stórauka mögu- leikana á því að laða til okkar ferðamenn og önnur viðskipti. Þar eð slíkt vekefni snertir þjóðfélagið í heild, ber að fjár- magna það af opinberu fé frá Norðurlöndunum öllum. Skora samtök veitinga- og gistihúsa á stjórnvöld að hrinda þessari hug- mynd í framkvæmd sem fyrst. Ungir upprennandi reiðhjólagarpar á TryKgvagötunni. Guðgeir Leifsson: „Þessi nýju eru ekkert lik gömlu „Vísitöluhjólun um.“ girarnir biluðu oft. Annars sagðist hann vera mjög ánægður með að eiga hjólið. Niður í Austurstræti var ung stelpa að hjóla á tíugírareiðhjóli. Við náðum tali af henni og kvaðst hún heita Margrét Guðmunds- dóttir og vera sendill. „Ég nota hjólið í vinnunni," sagði hún, „og svo hjóla ég mikið í Breiðholtinu en þar á ég heima. Mér þykir mjög gaman að hjóla og hef hjólað mikið um ævina.“ Margrét sagði það vera góða tilbreytingu frá þriggjagírahjól- inu að vera á tíugírahjóli og sagði að flestir af hennar kunningjum ættu þannig hjól. Hún kvartaði yfir aðstöðuleysinu hér í höfuð- borginni og sagði að bílstjórar væru gersamlega tillitslausir í umferðinni gagnvart hjólandi fólki. Hún hafði einu sinni lent í því að svínað var fyrir hana, þannig að hún lenti á bílnum og rauk þá bílstjórinn út og hund- skammaði hana. Eru sennilega til mýmörg dæmi um slíkt. Magnús Guðjónsson 13 ára og bræðurnir Ásmundur og Grétar Hörður Sigurgíslasynir 13 og 11 ára voru að hjóla á Tryggvagöt- unni og stoppuðu hjá „Bæjarins bestu“, þar sem við náðum tali af þeim. Bræðurnir sögðust báðir bera út blöð og höfðu þannig Edda. Kara og Gugga sögðu að það reyndi mikið á fæturna að hjóla á íslandi. Jón Jóhannsson hjá Fálkanum: „Þetta er bara tiskufyrirbrigði.“ safnað sér fyrir hjólunum. Þeir fengu þau á sama tíma og sögðu að þau væru alltaf að bila. Magnús hafði átt sitt í viku og hafði hann einnig safnað sér fyrir því með blaðaútburði. Hann var ánægður með hjólið sitt og að- spurður um reiðhjólaæði, sagði hann að það væri bara della sem gengi yfir. Á Laugaveginum voru þrjár ungar stúlkur í hnapp að tala saman. Sennilega í pásu. Þær sögðu að það væri æðislega gaman að hjóla og sögðu að það væri mikil heilsubót í því. „Það reynir mikið á fæturna að hjóla hér á íslandi. Sérstaklega í Breiðholtinu," sagði ein af þeim, Edda, að jafni. Tóku hinar undir það og sögðu að það væri allt of mikið af brekkum hér, og öfund- uðu þær Dani, sem aldrei þurfa að hjóla upp brekkur. „Þetta er bara eins og hvert annað tískufyrirbrigði að eiga hjól,“ sagði Gugga. „Það er eitt- hvað trimmæði í fólki," bætti Kata við „enda heldur það við línurnar að hjóla.“ Þegar þær voru spurðar að því hvort þær hjóluðu eitthvað út fyrir bæinn, sögðu þeir að það væri svo vont að hjóla á malarveg- um og þess vegna færu þær aldrei af malbikinu. Sigurður Friðfinnsson: „Eins og fuglinn fljúgandi þegar maður hjólar.“ Al íil.VSIMiASIMINN F.R: 22480 Jt)«r0unbtAbib

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.