Morgunblaðið - 16.08.1981, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.08.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1981 35 vera að bræða með sér alls konar ofskynjanir, því að sannleikur- inn var sá, að henni hreinlega leiddist ólýsanlega og hafði óslökkvandi þörf fyrir að fara til Moskvu, þó ekki væri nema í stutta heimsókn. Henni fannst að Tolstoj væri „gáfaður, lyriskur og þróttmik- ill“ og hún var óskaplega hrifin af honum, en samtímis fannst henni hún vera meðhöndluð eins og „dúkka, eiginkona en ekki MANNESKJA". Reiðin og gremjan varð trúr fylginautur Sonju gegnum tíðina og það ber að harma, því að engum dettur í hug að draga í efa hug Tolstoj til hennar. Einn kaldan gráan nóvember- dag er hún kom niður til morg- unverðar lagði sápulykt að vit- um hennar. Feit hörundsdökk bóndakona með kröftugar axlir og mikil brjóst lá á hnjánum að skrúbba gólfið í ganginum. Barn fjögurra eða fimm ára gamalt var að leik í dyragættinni. Sonja hreytti út úr sér við drenginn að loka dyrunum. Drengurinn stóð grafkyrr og horfði á hana. Svo hljóp hann orðalaust til móður sinnar, sem greip utan um drenginn og horfði á húsfreyj- una á bænum án þess að depla auga. Þetta varð Sonju mikið áfall. Það var ekki nóg með það, að hún skynjaði samstundis hver konan var, þetta var einnig í fyrsta skipti sem hún hafði horft á fyrrverandi þræl og séð hana sem jafningja, 'sem ól með sér sjálfsþótta og virðingu, eins og hún var gædd sjálf. Inærfellt tvær vikur eftir þennan atburð, var Sonja í hálfgildings, eða öllu nær, algeru móðursýkiskasti. Hún vissi, að sú skipun hafði verið gefin, að Axinia kæmi aldrei inn fyrir dyr hússins aftur, en það sefaði hana hvergi. Það sem særði hana mest var að hennar dómi skilningsleysi og tilfinn- ingaleysi eiginmanns hennar. Hún var þrumu lostin, að hann virti hana sjálfa svo lítils, að hann léti það óátalið að Axinia >-nn. Qf-0"1 > þv> húsi sem hann deildi með lögmætri sinni. Og Axinia hélt áfram að vera til, og myndi verða til um alla framtíð, ekki ýkja langt frá húsi þeirra. Og nú rifjaðist upp fyrir henni ýmislegt, sem hún hafði lesið í dagbókinni sem hann hafði þröngvað henni til að lesa, þar sem hann hafði sagt, að hann hefði aldrei verið jafn ástfanginn og meðan hann var með Axiniu. Þann 6. desember 1862 skrifar hún í dagbókina: „Einn góðan veðurdag gerir afbrýðisemin út af við mig ... Og allt vegna feitrar og hallærislegrar kell- ingar! Viðbjóður! Ég hef horft á rýtingasafnið hans ... það væri svo auðvelt. Og svo veit ég af henni (Axiniu) í næsta nágrenni. Þetta gerir mig brjálaða. Ég ætla að fara í ökuferð. Kannski ég rekist á hana á leiðinni! Svo að þessa manneskju elskaði hann! Ef ég gæti bara brennt dagbók hans og alla fortíð hans.“ En lífið var ekki bara svart- nætti, því að Sonja unni honum þótt fyrirlitning hennar á fortíð hans gerði þeim báðum lífið afar erfitt á stundum. Hún var háð honum kynferðislega og það vakti með henni sárindi að hann vísaði kvíða hennar á bug sem hégóma. Hún fór á ný að lesa allar dagbækur hans og sökkti sér niður í lýsingar hans á samskiptum hans við konur. Allt varð til að auka á þraut hennar og þjáning. Samt áttu þau þenn- an vetur sínar dýrmætu stundir, þcgar þeim tókst báðum og samtímis að láta hið liðna vera gleymt og grafið og njóta þeirrar ánægju og ástar, sem þau báru hvort til annars. (Jóhanna Kristjónsd. þýddi lauslcRa.) Annc Kdnards: Sonja: Thc Lifc oí Coun- tcss Tolstoy. l>t«. Hoddcr and StouKhton. N-kóreanskir hermenn í Zimbabwe Salishury. 11. ÚKÚst. AP. NORÐUR-Kóreumenn hafa sent 106 hernaðarráðgjafa til Zimb- abwe (áður Ródesíu) að sögn Robert Mugabes forsætisráð- herra. Mugabe lagði á það áherzlu í viðtali við blaðið „Salisbury Her- ald“ að 5.000 manna herdeild, sem Norður-Kóreumennirnir mundu þjálfa, yrði eingöngu þjálfuð í varnarskyni og alls ekki til að- gerða handan landamæra Zimb- abwe. Hann kvað þær fréttir fjölmiðla alrangar að koma norður-kóresku hernaðarráðgjafanna stæði í sam- bandi við hugsanlega aðstoð Zimb- abwe við mósambískt herlið í baráttu þess gegn uppreisnar- mönnum í Mozambique. Norður-Kóreumennirnir hafa bækistöð í austanverðum Iny- anga-hálendunum nálægt landa- mærum Mozambique. Herdeildin, sem þeir þjálfa, er meðal annars búin skriðdrekum. Bandarísk bækistöð á Diego Garcia I/tmdon. 11. ágúst. AP. BRETAR hafa leyft bandarísk- um sprengjuflugvélum af gerð- inni B-52 afnot af flugvelli á eynni Diego Garcia á Indlands- hafi að því er staðfest var í dag. Sagt var frá fréttinni í Banda- ríkjunum í marz, en brezka utan- ríkisráðuneytið bar hana til baka þá. Nú er fréttin staðfest í síðbún- um þingtiðindum. Staðfestingin kemur fram í svari Douglas Hurds aðstoðarut- anríkisráðherra við fyrirspurn á þingi. Sagt er að staðfestingin hafi dregizt vegna óvenjumikils fjölda fyrirspurna á þingi. Joan Lestor, þingmaður Verka- mannaflokksins, átaldi þessi vinnubrögð, er gæfu til kynna að eitthvað þyrfti að fela. The Times segir að brezkir embættismenn neiti að upplýsa hvort kjarnorku- vopnum verði komið fyrir á Diego Garcia. Samtök andstæðinga kjarn- orkuvopna (CND) segja um málið að stigið hafi verið nýtt skref í átt til kjarnorkuárekstra. Bændur fá land Pcking: YFIRVÖLD í héraðinu Sich- uan hafa ákveðið að skila bændum aftur þeirra eigin jarðnæði til bráðabirgða til þess að auka ágóðavon og auka þar með framleiðslu í kjölfar flóða, sem hafa kostað 8.311 mannslíf og spillt 667.000 hekt- örum af akurlendi. Viö efnum til EFN A/FAT AM ARK AÐS HLJOMPLOTU- að Skúlagötu 30, (áður J. Þorláksson & Norðmann) Hefst kl. 1 e.h. a mörgun Opiö aöeins þessa viku 7-lSAS MJÖG GOTT VERÐ *&$&*&$* * >'V Einnig ýmis mjög ódýr fatnaöur sem enginn hefur efni á aö láta fram hjá sér fara Þú getur fengiö plötur frá 29 krónum. Þaö er engin veröbólga á plötumarkaöi okkar. Notaöu einstakt tækifæri og fáðu þér góðar plötur á góöu verði BELG JAGERÐIN Hijómplötur: Þetta er aðeins brot af þeim plötum sem til sölu eru á markaðnum okkar Abba — Super Trouper. Styx — Paradise Theater. Toto — Turn Back. Earth Wind & Fire — Faces. Barbra Streisand — Guilty. Ottoman — DISCO. Madness — Absolutely. Rod Stewart — Greatest Hits. Neil Young — Hawks and Doves. Utangarðsmenn — Geislavirkir. Mezzoforte — í hakanum. Haukur Morthens — Lítið brölt o.fl. o.fl. o.fl. Plötuúrvalið er ótrúlegt á útsölumarkaðnum. Það er fullt af góðum plötum á sprenghlægilegum k prísum. fUínor hf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.