Morgunblaðið - 16.10.1981, Page 1
56 SÍÐUR
231. tbl. 68. árg.
FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Líbýumenn varpa
sprengjum á Súdan
TúnLs, Khartoum, Kairó, 15. október. AP.
MIRGHANI, utanríkisráðherra Súd-
an, sagði í dag, að Líbýumenn héldu
áfrarn uppteknum hætti og vörpuðu
sprengjum á landamæraþorp í vest-
urhluta Súdan. íbúar þorpanna
hefðu engin tök á að verjast þessum
árásum, þar sem þeir væru óvopnað-
ir, en yfirvöld hefðu þó í hyggju að
spyrna fótum við þessum aðgerðum.
Spáð að sala
AWACS-véla
nái fram
U ashington, 15. október. Al*.
HERMALANEFND Öldunga
deildar Bandaríkjaþings mælti í
dag með 10 atkvæðum gegn
Timm með sölu AWACS-flugvéla
og annarra hergagna til Saudi-
Arabíu. Búist var við þessari
niðurstöðu nefndarinnar, sem er
aðeins ráðgefandi.
Howard H. Baker, leiðtogi
meirihluta Öldungadeildarinn-
ar, spáði því í dag, að Ronald
Reagan Bandaríkjaforseta,
mundi nægja sá frestur sem
hann hefur til að tryggja sér
þann meirihluta í deildinni
sem nauðsynlegur er til að
áform hans um sölu AWACS-
flugvélanna til Saudi-Arabíu
nái fram að ganga.
Að sögn áreiðanlegra heimilda
ríkir mikil spenna á landamærum
Súdan og Chads, en líbýskar
flugvélar, sem aðsetur hafa í
Chad, hafa undanfarna tvo mán-
uði varpað sprengjum og gert
árásir á þorp í vesturhluta Súdan.
Stjórn Gaafars Nimeiri forseta
hefur margsinnis kvartað undan
árásum Líbýamanna við Samein-
uðu þjóðirnar. I dag var frá því
skýrt, að Súdanir hefðu farið þess
á leit við Arababandalagið, að það
reyndi að miðla málum í deilu
Súdana og Líbýumanna. Arásir
Líbýumanna hafa fyrst og fremst
verið á svæði þar sem nú eigast
við uppreisnarmenn undir forystu
Hissene Habre, fyrrum varnar-
málaráðherra Chad, og sveitir
stuðningsmanna Goukouni Ou-
eddei, forseta Chads, sem Líbýu-
menn hafa stutt. Súdanir hafa
stutt sveitir Habres m.a. með
vopnum
Ghazala, varnarmálaráðherra
Egyptalands, staðfesti í dag, að
egypskir ráðgjafar hefðu verið
sendir til Súdan til að þjálfa súd-
anska hermenn og færa þeim
vopn. Hins vegar vísaði ráðherr-
ann á bug fregnum um að sveitir
hermanna hefðu verið sendar til
Súdan.
Elias Canetti hlýtur
bókmenntaverðlaunin
Stokkhólmi, 15. október. AP.
TILKYNNT var í dag, að Elias Can-
etti hefði verið veitt bókmenntaverð-
laun Nóbels í ár. Hann skrifar á
þýsku og er oft líkt við tékkneska
rithöfundinn Franz Kafka. Canetti
er fæddur í Búlgaríu en hefur eytt
mestum hluta ævinnar í Bretlandi.
Hann er 76 ára.
Canetti fór í felur þegar hann
frétti af verðlaununum en ætlar
þó sjálfur að taka við þeim í
Stokkhólmi 10. desember. Hann
hefur lengi verið velkunnur bók-
menntamönnum í Mið-Evrópu en
er síður þekktir annars staðar og
sagði talsmaður verðlaunanefnd-
arinnar það eina ástæðu þess að
hann varð fyrir vali nefndarinnar
í ár.
í greinagerð nefndarinnar sagði
að ritverk Canettis „bæru með sér
víðsýni, hugmyndaflug og listræn-
an kraft". Honum var líkt við
Dostoyevsky og aðra rithöfunda
sem hófu ritferil sinn í Vín
snemma á 20. öldinni eins og
Kafka, Robert Musil og Arthur
Köstler.
Canetti hefur skrifað meirihátt-
ar skáldsögu, nokkur leikrit,
endurminningar, ferðapistla og
ritgerðir.
Sjá frétt á bls. 15
Símamynd — AP.
Hosni Mubarak ræðir við ekkju Sadats, fyrrum forseta Egyptalands, eftir að Mubarak sór embættiseið sem fjórði
forseti Egyptalands. Gafaar Nimeiri, forseti Súdan, er lengst til vinstri á myndinni og forsetaekkjunni á vinstri hönd
eru Dr. Sufi Abu Taleb og Camal Sadat, sonur forsetans fyrrverandi.
Linnulaust eftirlit
yfír Egyptalandi
Kairó, 15. október. AP.
BANDARÍSKAR AWACS-eftirlitsflugvélar hófu eftirlitsstörf í egypskri loft-
helgi í dag um leið og þær komu til Egyptalands eftir beint flug frá Tinker
flugstöðinni í Oklahoma. Talsverð leynd hvflir yfir flugi flugvélanna, en þó er
búist við að þær muni einkum fylgjast með landamærum Egyptalands til
vesturs og suðurs. Lýst var yfir hættuástandi á landamærunum við Líbýu.
Stjórn Hosni Mubaraks forseta,
sór í dag embættiseiða, og fyrsta
verk forsetans var að ákveða
dauðarefsingu fyrir sérhvern
þann er verður sekur fundinn um
ólöglegan vopnaburð.
Embættismenn í ísrael sögðu í
dag, að yfirvöld þar í landi hefðu
ekkert við þá ákvörðun banda-
rískra yfirvalda að athuga, að
senda AWACS-flugvélar til eftir-
lits yfir Egyptalandi. Sögðu emb-
ættismennirnir tilvist flugvélanna
styrkja varnir Egypta, en þeim er
fyrst og fremst ætlað að fylgjast með
umsvifum líbýskra hersveita við
landamæri Egyptalands og Súdan.
Bandarískar áhafnir eru að öllu
leyti á flugvélunum. Eru þær
linnulaust á lofti, tíu klukku-
stundir í senn.
Leonid Brezhnev, forseti Sovét-
ríkjanna, hvatti Mubarak til þess í
dag að leggja sitt af mörkum til að
bæta sambúð ríkjanna, sem versn-
aði eftir morðið á Sadat.
Skiptar skoðanir eru um það
innan Arababandaiagsins hvort
Egyptar eigi þangað afturkvæmt
eftir morðið á Sadat. Innanríkis-
ráðherra Saudi-Arabíu lét í ljós
vonir um, að einangrun Egypta í
röðum Araba yrði senn lokið, en
varaforsætisráðherra Sýrlands
sagði hins vegar í dag, að ekkert
rúm væri fyrir Egypta í röðum
Araba nema bylting yrði í Egypta-
landi og stjórnin færi frá. Þótt
Sadat hefði verið tekinn af lífi
fyrir gjörðir sínar, sæti stjórn
hans áfram að völdum óbreytt.
Harðnandi afstaða pólska kommúnistaflokksins:
V erkalýðsforingi
rekinn úr flokknum
Varsjá, 15. október. AP.
BOGDAN Lis, einn af þremur helztu leidtogum Samstöðu, var í dag
rekinn úr Kommúnistaflokki Póllands vegna starfa sinna í þágu óháðu
verkalýðsfélaganna, og þykir þetta vísbending um harðnandi afstöðu
flokksins í garð Samstöðu. Einnig er litið á brottvikninguna sem viðvörun
til kommúnista innan óháðu verkalýðsfélaganna að velja á milli flokksins
eða Samstöðu, en áætlað er að af þremur milljónum félaga í flokknum
heyri ein milljón jafnframt til óháðu verkalýðsfélögunum.
I tilkynningu um brottvikn- og Samstöðu frá þingi samtak-
ingu Lis sagði að hann hefði
hagað sér í ósamræmi við sam-
þykktir og reglur flokksins og
gefið yfirlýsingar er væru and-
stæðar stefnu flokksins í
grundvallaratriðum.
Viðræðunefndir Samstöðu og
stjórnvalda ræddust við í dag
um leiðir út úr matvælaskorti
Pólverja, og var þar um að ræða
fyrstu viðræður stjórnarinnar
anna í Gdansk á dögunum. Wal-
esa tók ekki þátt í viðræðunum
þar sem hann er á ferðalagi í
Frakkiandi, en tilgangur við-
ræðnanna virtist vera að draga
úr spennu sem er í landinu vegna
matvælaskorts.
Á morgun kemur miðstjórn
Kommúnistaflokksins saman og
verður þar líklega tekin afstaða
til samþykkta þings Samstöðu
um aðgerðir í efnahagsmálum og
félagsmálum.
Um 12.000 verkakonur voru í
setuverkfalli í klæðaverksmiðj-
um í Zyrardow í dag, þriðja dag-
inn í röð. Kom einnig til mót-
mælaaðgerða víðs vegar annars
staðar í landinu vegna matvæla-
skortsins í landinu.
Samstaða skýrði frá því í dag,
að tekin yrði um það ákvörðun
næstkomandi fimmtudag, hvort
efna skuli til mótmælaverkfalla
um land allt ef viðræður við
stjórnvöld um aðgerðir til að
bæta úr matvælaskortinum hafa
engan ávöxt borið fyrir þann
tíma.
Spá sigri
Korchnois
Mcranó, 15. októbcr. AP.
SJÖTTA einvígisskák Karpovs og
Korchnois fór í bið eftir 41 leik, og
halda sérfræðingar því fram, að allt
stefni í fyrsta sigur Korchnois í ein-
víginu um heimsmeistaratitilinn.
„Mér sýnist Korchnoi ætla að
vinna þessa skák,“ sagði stór-
meistarinn og sovézki útlaginn
Lev Alburt, og bandaríski stór-
meistarinn Lubomir Kavalek tók í
sama streng.
Korchnoi er peði undir, en staða
drottningar hans, biskups og
hróks á kóngsvæng Karpovs gefur
honum góða sóknarmöguleika.
Þótti sérfræðingum öflug tafl-
mennska Korchnoi koma á óvart,
en þeir höfðu búist við að hann
tefldi til jafnteflis með svörtu
mönnunum.
Karpov, sem stýrir hvítu mönn-
unum, þótti verða á mikil yfirsjón
í 40. leik, en þá átti hann kost á að
ógna sterku mönnum Korchnois á
kóngsvængnum með riddara sín-
um.
Sjá nánar skákskýringar á bls. 16.