Morgunblaðið - 16.10.1981, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.10.1981, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981 TIL (SLAI LESTUNÍ ENIHI NUM AMERÍKA PORTSMOUTH Bakkafoss 26. okt. Junior Lotte 6. nóv. Ðakkafoss 18. nóv. Junior Lotte 27. nóv. Bakkafoss 9. des. NEWYORK Bakkafoss 28. okt. Bakkafoss 20. nóv. Bakkafoss 11. des. HALIFAX Selfoss 19. okt. BRETLAND/ MEGINLAND Alafoss 19. okt. Eyrarfoss 26. okt. Alafoss 2. nóv. Eyrarfoss 9. nóv. ANTWERPEN Alafoss 20. okt. Eyrarfoss 27. okt. Alafoss 3. nóv. Eyrarfoss 10. nóv. FELIXSTOWE Alafoss 21. okt. Eyrarfoss 28. okt. Alafoss 4. nóv. Eyrarfoss 11. nóv. HAMBORG Alafoss 23. okt. Eyrarfoss 29. okt. Alafoss 5. nóv. Eyrarfoss 12. nóv. WESTON POINT Urrióafoss 28. okt. Urriöafoss 11. nóv. Urrióafoss 25. nóv. Urriöafoss 9. des. NORÐURLÖND/ EYSTRASALT BERGEN Dettifoss 19. okt. Dettifoss 2. nóv. Dettifoss 16. nóv. KRISTIANSAND Mánafoss 26. okt. Mánafoss 9. okt. Mánafoss 23. nóv. MOSS Dettifoss 20. okt. Mánafoss 27. okt. Dettifoss 3. nóv. Mánafoss 10. nóv. GAUTABORG Dettifoss 21. okt. Mánafoss 28. okt. Dettifoss 4. nóv. Mánafoss 11. nóv. KAUPMANNAHOFN Dettifoss 22. okt. Mánafoss 29. okt. Dettifoss 5. nóv. Mánafoss 12. nóv. HELSINGBORG Dettifoss 23. okt. Mánafoss 30. okt. Dettifoss 6. nóv. Mánafoss 13. okt. HELSINKI Irafoss 20. okt. Mulafoss 2. nóv. Irafoss 13. nóv. RIGA Irafoss 22. okt. Múlafoss 4. nóv. Irafoss 15. nóv. GDYNIA Irafoss 23. okt. Múlafoss 5. nóv. Irafoss 17. nóv. THORSHAVN Mánafoss 5. nóv. VIKULEGAR STRANDSIGLINGAR - framog til baka frá REYKJAVÍK alla mánudaga frá ÍSAFIROI alla þriöjudaga frá AKUREYRI alla fimmfudaga EIMSKIP SIMI 27100 „Bókin um Daníel“ Ný bók eftir Guðmund Daníelsson Setberg hefur gefið út nýja bók eftir Guðmund Daníelsson, „Bók- ina um Daníel“, og er þetta heim- ildaskáldsaga um Daníel, afa höf- undar. Haustið 1979 kom út heim- ildaskáldsagan „Dómsdagur“, en þar lýsir Guðmundur Daníelsson langafa sínum, Sigurði Guð- brandssyni frá Lækjarbotnum, sem dæmdur var til dauða 1866 fyrir meinbugi í ástarmálum. „í „Bókinni um Daníel" segir höfundur sanna sögu afa síns, Daníels Þorsteinssonar, sem varð tengdasonur Sigurðar Guðbrandssonar, fæddur í Kaldárholti 1893, dáinn í Gutt- ormshaga 1912. Bækurnar eru því nátengdar, þó að hvor um sig sé sjálfstætt verk,“ segir í fréttatilkynningu frá útgef- anda. / „Varla er hægt að hugsa sér ólíkari menn en þá Sigurð og Daníel. Eitt áttu þeir þó sam- Guðmundur Daníelsson eiginlegt, að báðir lentu þeir í miklum útistöðum við yfirvöld- in og hrepptu áföll stór. Sigurð- ur tók örlögum sínum, ilium og góðum, með óbifanlegri ljúf- mennsku og jafnaðargeði, jafn- vel glaðværð, en Daníel hunsaði og fyrirleit sérhvurja vald- stjórn. Hann var uppreisnar- maður í eðli sínu, listfengur, stoltur og gáfaður — en átti við að etja ógnarlegar andstæður innra með sér. Mikilúðlegur og einmana gekk hann ævibraut sína á enda.“ „Bókin um Daníel" er 247 blaðsíður og kostar með sölu- skatti 287 krónur. Mill og Hayek HANNES H. Gissurarson getur þess í grein sinni í Morgunblaðinu þ. 12. september, að Friedrich Hayek er ósammála þeirri niðurstöðu John Stuart Mills, að ekki verði sett fræðileg lögmál um dreifingu lífs- gæða í markaðshagkerfi. Niðurstöður Mills má þó styðja einföldum rökum: (a) þar sem öll framleiðsla lífsgæða tekur tíma, þá verður aldrei vitað með vissu, hvert mun verða raunvirði ákveð- inna krónutekna mælt í einingum lífsgæða, (b) fræðileg lögmál verða ekki sett um það sem ekki verður vitað með vissu (a.m.k. var það skoðun Einsteins), og (c) þar af leiðir að ekki verða sett lögmál um dreifingu lífsgæða í mark- aðshagkerfi. Hagfræðingar nútímans hafa reyndar gert sér það til einföldun- ar að láta sem. sala aðfanga og kaup framleiðslu verði samtímis, þannig að full vissa ríki um raun- virði krónutekna og kann það að hafa villt Hayek sýn. 24. september 1981, Gunnar Tómasson. Listgagnrýnandi Morgunblaðsins Varðandi grein Braga Ásgeirsson- ar „Hugleiðingar á haustsýningu“ um sýningu Félags íslenzkra mynd- listarmanna langar mig að taka eft- irfarandi fram. Hann talar um nýliðana Hauk og Hörð og listaverk þeirra á sýn- ingunni. Hann segir að eins og bú- ist var við þá gekk ekki að sýna þau án þess að hafa gervi- glerkassa yfir þeim. Ég hef talað við Hauk og Hörð og vil benda Braga á það að það var sjálf sýn- ingarnefndin sem sagði að engin hætta væri á því að neitt kæmi fyrir verkin á sýningunni. Enda voru þau ekki á „gólfi“ heldur á lágum borðum ca. 40—50 cm frá gólfi. Því spyr ég Braga: Hverjir bjuggust við að þessi uppsetning gengi ekki? Síðan, varðandi þá staðhæfingu Braga að kostnaðurinn við að koma verkunum í öruggar umbúð- ir hafi verið þeim ofviða, vil ég taka fram að hún er alröng. Hauk- ur og Hörður treystu dómgreind sýningarnefndarinnar og því fór sem fór. Það er of seint að byrgja brunn- inn þegar barnið er dottið ofan í. Fallþungi dilka mun minni en í fyrra Kristín Ólafsdóttir og Margrét Pálsdóttir með bæklinginn. Ljósm.: Emilía. Sumargjöf gefur út bækling: „Börn, leikir og leikföng u 12. okt., MidhÚHum. HÉR hefur ríkt vetrarveðrátta sl. fjórar til sex vikur og hefur gengið erfiðlega með haustverk. Þó má segja að á þeim bæjum, sem liggja í nánd fjallabala hafi verið sífelldur skafrenningur og erfítt að hafa fé í haga. En þó er snjór ekki mikill í byggð ennþá. Slátrun sauðfjár líkur sennilega um 20. þessa mánaðar og sýnt þykir að fallþungi dilka verður mun minni en í fyrra. Nokkur brögð eru að því að fé héðan hafi farið yfir varnarlínu vestur í Gufudalssveit og samkvæmt upp- lýsingum frá Samúeli Zakarías- syni bónda í Djúpadal hafa komið þar fyrir og í Gröf í Gufudalssveit 72 kindur en þeim er öllum skil- yrðislaust slátrað í sláturhúsi í Króksfjarðarnesi. Samúel, sem er einn besti fjárbóndi landsins, sagði að heyfengur hjá sér væri nú helmingi minni en í fyrra. Samúel hefur nú um 280 fjár á fóðrum og var fallþungi hjá honum í fyrra yfir 18 kíló og þess má geta að meira en helmingur dilka voru tvílembingar. Uppskera garðávaxta er í lakara lagi en hér er lítið um matjurta- ræktun. Tveir aðilar sáðu rófum í tæpan hálfan annan hektara í vor og hafa þeir ekki náð upp vegna tíðarfarsins. Göngur og réttir Aðalfundur Vélprjóna- sambandsins HAUSTFUNDIIR Vélprjónasam bandsins var haldinn að Hallveigar stöðum lO.október 1981, 45 manns mættu á fundinn. Kosið var í stjórn. Guðjón Hjart- arson hélt erindi um ullina. Mikill hugur er í félagsmönnum að halda námskeið í prjónaskap og frágangi. Ákveðið var að halda basar 13. des- ember á Hallveigarstöðum á prjóna- vörum, sem félagsmenn vinna. Þá er vorfundur ákveðinn 15. maí. Félagsmenn í Vélprjónasamband- inu eru 240. Formaður þess er María Eyjólfsdóttir. gengu hér vel og er Kinnastaða- rétt skilarétt en hinsvegar Grund- arrétt aðal mannfagnaðarréttin. Þau hjón Lilja Þórarinsdóttir og Ólafur Sveinsson bóndi á Grund bjóða öllum réttargestum til veislu og eru oft yfir 100 manns sem þiggja þar veitingar á rétt- ardaginn. Reykhólaskóli byrjaði starf sitt sl. fimmtudag og hefur nýr skóla- stjóri, Úlfur Björnsson frá Hvera- gerði, verið settur að gegna því embætti. Einn nýr kennari hefur komið, Jón Snæbjörnsson Mýrar- tungu. Skólinn starfar í öllum bekkjardeildum og verða um 50 nemendur í skólanum í vetur. Auk Reykhólaskóla starfa barnaskólar í öllum byggðum hreppum sýsi- unnar. Nokkur brögð eru að því að fólk flytjist úr héraði á þessu ári og er því sýnilega um fækkun á íbúum sýslunnar að ræða. Ástæður fyrir þessum brottflutningum munu vera margar en „Reykjavíkursól- in“ nær frekar lítið að skína hér um þessar mundir. Almenn óánægja er með dreifbýlisskattinn en átt er við söluskatt sem lagður er á vöruflutninga en hann leggst þyngst á þá sem lengst þurfa að flytja. Samgöngur þyrftu að vera greiðari og er bráðnauðsynlegt að brúa Gilsfjörð sem allra fyrst. Sveinn Leidbeiningar um val leikfanga BARNAVINAFÉLAGIÐ Sumargjöf hefur sent frá sér bækling sem í eru leiðbeiningar um val leikfanga fyrir ýmsa aldurshópa. Bæklingnum verð- ur dreift á allar dagvistarstofnanir landsins, auk ýmissa skóla og sér stofnana. Þá geta foreldrar og aðrir uppalendur nálgast hann í verslun Sumargjafar Völuskríni við Klapp- arstíg, en þar verður hann seldur á kostnaðarverði. Mikil breyting hefur orðið á starfsemi Sumargjafar hin síðari ár, eða frá því að Reykjavíkurborg tók við rekstri dagvistarstofnana borgarinnar 1977. Það sama ár keypti félagið verslunina Völu- skrín og hefur rekið hana síðan, fyrst að Laugavegi 27 og síðan í núverandi húsnæði að Klapparstíg 26 frá apríl 1978. Bæklingurinn var saminn af starfshóp innan Sumargjafar, en mikil vöntun hefur verið á leið- beiningum af þessu tagi siðastlið- in ár, eða frá því bók Símons Jó- hanns Ágústssonar „Leikir og leikföng" kom út fyrir nokkrum áratugum. í starfshópnum áttu sæti María Finnsdóttir fóstra, Þórunn Ein- arsdóttir, umsjónarfóstra dagvist- arstofnana í Reykjavík, og Kristín Ólafsdóttir, varaformaður Sumar- gjafar. Þeim til ráðuneytis við samningu var Margrét Pálsdóttir fóstra, en hún er framkvæmda- stjóri verslunarinnar Völuskríns. Völuskrín hefur á boðstólum mikið af völdum leikföngum fyrir börn og sagði Margrét foreldra og aðra uppalendur vanda mun betur val sitt á leikföngum nú en fyrir nokkrum árum. Einnig sagði hún flest leikföng, svo sem dúkkur bollastell og bíla keypt jafnt handa strákum og stelpum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.