Morgunblaðið - 16.10.1981, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.10.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981 19 Hættu ekki við þátttöku þótt bíllinn stórskemmdist af eldi, daginn fyrir keppnina Bílar Gunnlaugur Rögnvaldsson TOMMA-rallið svonefnda hefst í dag. Rallinu verður startað frá Fáksheimilinu við Breiðholtsbraut kl. 18.00. Keppendur eru 16 tals- ins. í gær var sagt frá í Mbl. að rallbíll hefði brunnið. Sá bfll mun samt sem áður taka þátt í rallinu, eigendur hans, Gunnlaugur og Kagnar Bjarnasjnir, gáfust ekki upp, þrátt fvrir mótlætið. Máluðu þeir yfir brunninn bflinn og gerðu það nauðsynlegasta við vélina til að geta a.m.k. byrjað keppnina. í gær voru bflarnir skoðaðir af bif- reiðaeftirlitinu og kom þá ansi skrítinn svipur á skoðunarmenn- ina, er þeir litu bfl þeirra Gunn- laugs og Ragnars. En í gegnum skoðun fór hann, þó svo útlitið væri ófagurt. í Tomma-rallinu verður farið austur fyrir fjall og eru leiðirnar gefnar hér að neðan. Best væri fyrir áhorfendur að fylgjast með startinu í dag og síðan Esjuleið. Eins og sést á töflunni, þá mun mikill hluti rallsins fara fram í myrkri og því erfitt fyrir áhuga- menn að fylgjast með. En á morgun við birtingu er upplagt að sjá bílana, sem eftir verða, aka hjá Kolviðarhóli og síðan Lögbergi. Rallbílarnir munu síð- an koma í mark við Tommaborg- ara á Grensásvegi um kl. 2 e. hádegi. Tomma-rallið er seinasta keppni ársins og aldrei hefur verið búist við jafn harðri keppni. Ómar og Jón ætla sér sigur, þrátt fyrir að hafa þegar tryggt sér Islandsmeistaratitil- inn í rallakstri á þessu ári. Það er fyrir víst að milli 6—7 kepp- endur munu stefna markvisst á fyrsta sætið. En eins og oftast áður verður aðeins einn útval- inn. Hver sá verður er ekki þor- andi að spá um. Þeir sem fylgj- ast vilja með stöðunni í rallinu geta hringt í síma 33679 eða litið við í Fáksheimilinu, á nóttu sem degi. Óraar og Jón Ragnarssynir raunu aka í síðasta skipti á „Runólfi" f haustrallinu, en sannarlega verður söknuðurinn mikill. Omar og Jón Islandsmeistarar annað árið i röð BRÆÐURNIR margfrægu Ómar og Jón Ragnarssynir hafa tryggt sér íslandsmeistaratitilinn í rall- akstri. Mun engu skipta hver úr slitin verða í Tommarallinu. Ómar og Jón hafa sigrað í öllum keppn- um ársins hingað til, eru þeir með 60 stig og á enginn möguleika á að ná þeim að stigum. En mikil barátta stendur um annað sætið. Þrír keppendur koma sterklega til greina, Egg- ert Sveinbjörnsson með 27 stig, Hafsteinn Hauksson með 25 stig og Gunnlaugur Ragnarsson með 23 stig. Möguleikar Gunnlaugs eru þó litlir því bíll hans brann í fyrrinótt og þrátt fyrir að gert hafi verið við hann, er bíllinn ekki í toppstandi. Keppnin um annað stigið verður því á milli Eggerts og Hafsteins, sem báðir eru þekktir fyrir djarfan akstur. Úrslit rallsins skera því úr um hver hreppir hnossið. Kristinn Ólafsson tollgæzlustjóri: Fagna því að opinber rannsókn fer fram - Niðurstöður hennar upplýsa hvað rétt er í málinu LEGUKOPAR Legukopar og fóöringar- efni í hólkum og heilum stöngum. Vestur-þýzkt úrvals efni, Atlas hf (■rofinni 1. — Simi 2f»7.r)f>. Fósthólf 193. Reykjavík. „ÉG fagna því að opinber rannsókn verður látin fara fram á máli þessu og tel að niðurstöður hennar komi til með að upplýsa hvað rétt er í máli þessu,“ sagði Kristinn Ólafsson, Tveir seldu í Þýzkalandi TVEIR íslenzkir togarar seldu fisk í Þýzkalandi í gær og var mest af afla þeirra karfi. Ýmir HF seldi 129,3 tonn í Bremerhaven fyrir 803.700 kr. og var meðalverð á kíló kr. 6,21. Þá seldi Ársæll Sigurðsson HF 129,6 tonn í Cuxhaven fyrir 926.600 þús. kr. og þar var meðalverð á kíló kr. 7,10. tollgæzlustjóri, er Mbl. ræddi við hann vegna máls þessa. Þá sagðist Kristinn telja að bréf hans til fjármálaráðherra, þar sem hann hefði farið fram á brottvikningu Matthíasar And- réssonar tollvarðar, lýsti bezt af- stöðu hans til málsins. Hann sagði einnig, að hann teldi ekki rétt að vera með neinar yfir- lýsingar vegna umræðnanna á Al- þingi á þessu stigi. Hann myndi fyrst kynna sér nákvæmlega þau ummæli sem fallið hefðu þar í sinn garð og svara þeim síðar, ef þau væru svaraverð. Þá benti Kristinn á, að þrátt fyrir rökstudda ósk um að Matthí- asi yrði vikið frá störfum hefði hann eingöngu verið færður til og væri Matthías því enn við störf innan Tollgæzlunnar, eftir því sem honum væri best kunnugt. NÁKVTEMLEGA SAMA GCTDA BRAGÐIÐ FRÁ 29. JÚLÍ HÖFUM VIÐ BÆTT C-VÍTAMÍNI í APPELSÍNIÐ. C-VÍTAMÍN ER NAUÐSYNLEGT BÆTI- EFNI, OG EINA VÍTAMÍNIÐ SEM ÞÚ GETUR ALDREI FENGIÐ OF MIKIÐ AF.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.