Morgunblaðið - 16.10.1981, Side 5

Morgunblaðið - 16.10.1981, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981 5 Ráðsteftia um utan- ríkisstefnuna og Sjálfstæðisflokkinn „UTANRÍKISSTEFNAN og Sjálfstæðisflokkurinn" er yfirskrift ráðstefnu, sem hefst í dag kl. 14.30 í sjálfstæðishúsinu Valhöll við Háaleitisbraut. Ráðstefnan er haldin að frumkvæði utanríkismálanefndar Sjálfstæðisflokks- ins og verður þar fjallað um alla meginþætti utanríkismálanna. Ásgeir Pétursson, bæjarfógeti, flytur erindi um lýðveldisstofnun- ina og utanríkisstefnu íslendinga í kjölfar hennar og þau Ragnhildur Helgadóttir, fyrrv. alþingismaður, og dr. Þór Whitehead, prófessor, fjalla um efnið. Eyjólfur K. Jóns- son, alþingismaður, ræðir um landhelgismálið og Már Elísson, fiskimálastjóri, og Valdimar Indriðason, framkvæmdastjóri, fjalla um það. Björn Matthíasson, hagfræðingur, ræðir um þátttöku íslendinga í alþjóðlegri efna- hagssamvinnu og Guðmundur Magnússon, rektor, og Guðmund- ur H. Garðarsson, viðskiptafræð- ingur, fja.lla um málið. sem Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, flytur ávarp. Fundarstjóri á ráðstefnunni verða þau Matthías Á. Mathiesen, al- þingismaður, Árni Sigfússon, blaðamaður, og Margrét Einars- dóttir, sjúkraliði. Björn Bjarna- son, blaðamaður, er formaður utanríkismálanefndarinnar, sem hefur skipulagt ráðstefnuna og mun hann slíta henni síðdegis á laugardag. Þeim, sem hyggjast taka þátt í ráðstefnunni, er bent á að snúa sér til skrifstofu Sjálfstæðisflokksins (sími 82900). ^jálfstæðiskonur í Reykjavik: kvenna- llsta SjálfstæAiskonur hugleiAa nú alvarlega að bjóða fram sérstakan kvennalista Inafni flokksins I næstu borgar- stjórnarkosningum. Björg Einarsdóttir formaöur Hvatar var spurð um þetta og svaraði hún spurningunni á þessa leið: ,,Énda þótt sú skoðun sé rfkjandi hjá konum i röðum Sjálfstæðismanna, aö eðli- legast sé að vera i framboði . á almennum flokkslista, þá hafa þær ekki gefið frá sér þá hugmynd aö bjóða fram sér- Stakan kvennalista i nafni i flokksins sem þrautalend- ingu.” „Hugsum ekkert frekar um sérlista en konur í öðrum stjórnmálaflokkum“ segir Björg Einarsdóttir í ÞJÓÐVIUANUM í gær var það haft eftir Björgu Einarsdóttur, for manni Hvatar, að sjálfstæðiskonur í Reykjavík væru alvarlega að hug- leiða að bjóða fram sérstakan kvennalista í nafni Sjálfstæðis- flokksins við næstu borgarstjórnar kosningar. Morgunblaðið hafði sam- band við Björgu í gær og spurði hana hvort hér væri rétt með farið og kvað hún svo ekki vera að öllu leyti. „Sjálfstæðiskonur eru ekkert frekar en aðrar konur í stjórnmál- um á íslandi að hugsa til sérfram- boðs innan flokka. Hugmyndin að sérlista innan flokka kom til um- ræðu á ráðstefnu Kvenréttindafé- lags íslands með konum í sveita- stjórnum í október í fyrra. Þar var því varpað fram, að ef allt um þryti fyrir konur að komast í ör- ugg sæti á almennum framboðs- listum hver hjá sínum flokki, þá gætu þær gripið til þess ráðs sem konur á Norðurlöndum hafa stundum viðhaft, og þá jafnvel að frumkvæði flokksforystu, að bjóða fram sérlista í nafni flokksins," sagði Björg. „Hugmyndinni að þessari „neyð- arlausn" var fagnað af konum úr flokkum á ráðstefnu kvenréttinda- félagsins og var mikið rædd og framhaldsumræða mun fara fram á ráðstefnu sem KRFÍ hefur boðað til um konur og kosningar þann 21. nóvember nk. í þessu felst að sjálfstæðiskonur hafa ekki frekar en aðrar konur í stjórnmálaflokk- um gefið frá sér hugmyndina um sérstakan kvennalista í nafni flokksins, sem yrði þá þrautalend- ing, en hins vegar er það ríkjandi skoðun hjá flestum konum í Sjálfstæðisflokknum að sérfram- boð af hvaða tagi sem þau eru spunnin séu ekki af hinu góða fyrir flokkinn," sagði Björg að lok- um. Á laugardaginn hefst ráðstefn- an á því, að Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri, ræðir um varnar- og öryggismál og þeir Ólafur G. Einarsson, alþingismað- ur, og Baldur Guðíaugsson, lög- maður, fjalla um efnið. Geir H. Haarde, hagfræðingur, ræðir um samskipti við þróunarlönd og Ólafur Björnsson, prófessor, og Guðmundur Heiðar Frimannsson, menntaskólakennari, fjalla um efnið. Ágúst Valfells, verkfræð- ingur, er málshefjandi um alþjóð- lega samvinnu um auðlindir, orku og stóriðju og Birgir ísl. Gunn- arsson, alþingismaður, og Jónas Elíasson, prófessor, fjalla um efn- ið. Einar K. Guðfinnsson, stjórn- málafræðingur, ræðir um alþjóð- leg hugmyndafræðileg átök og Pétur J. Eiríksson, hagfræðingur, og Björg Einarsdóttir, skrifstofu- maður, fjalla um málið. Ráðstefnugestir munu í hádegi á laugardag sitja hádegisverð þar Húsvíkingar á skíðum til rjúpnaveiða liúsavík, 15. október. UNDANFARIN ár hafa Húsvíkingar fjölmennt til rjúpnaveiða fyrsta dag- inn, sem veiði er leyfileg, en vegna ófærðar og snjóa er mér ekki kunn ugt um nema fimm menn sem til veiða fóru í morgun og þeir sem lengst fóru voru á skíðum. Lítið sáu þeir enda skyggni slæmt og hríðarmugga öðru hverju. Skíðamennirnir fengu 7 og 10 stykki, en hinir minna. Minnkandi éljagangur hefur verið hér í dag, en þetta er jafn- framt 17. dagurinn sem snjóað hefur. Fréttaritari Þriðja prests- embættið á Akureyri RÍKISSTJÓRNIN hefur heimilað stofnun nýs prestsembættis á Akur eyri; þess þriðja, sem nefnist Gler árprestakall og nær yfír Lög- mannshlíðarsókn og Miðgarðasókn í Grímsey. Biskup hefur því auglýst laus til umsóknar tvö prestaköll á Akur- eyri; það nýja og embætti það sem hann sjálfur gegndi áður en hann varð biskup. Umsóknarfrestur er til 14. nóvember og ættu kosn- ingar að geta farið fram í desem- ber og Akureyringar fengið tvo nýja presta fyrir jólin. Komdu og kíktu á fínar buxur Stretch flannel buxur 98% ull, 2% lycra Litir; Grátt, milligrátt, brúnt, millibrúnt, blátt. Verð frá: 495.- Stærðir 76 cm til 100 cm í mitti. Satín fóðraðar. Herra flannel buxur 100% uli. Stæröir: 76 cm til 100 cm. Verð frá: 435 _ Liir: Grátt, brúnt, blátt. EINKAUMBOÐSMENN UM LAND ALLT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.