Morgunblaðið - 16.10.1981, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981
Norsk laxahrogn
í vínberjaolíu
brátt á boðstólum
Frá Jan Krik Laure, TrétUriUra
Morgunblaðsins í Osló, 15. október. Al*.
SÆLKERAR um víða veröld munu
Schmidt á
batavegi
Bonn, 15. október. AP.
HELMUT Schmidt, kanslari Vest-
ur-l>ýskalands, er á batavegi eftir
hjartauppskurð. Hann hefur þé hætt
við ferð sína á fund þjóðarleiðtoga
iðnaðar- og þróunarlanda í Mexíkó í
næstu viku en Hans Dietrich
Genscher, utanríkisráðherra, mun
fara í hans stað.
Leonid Brezhnev mun fara í
opinbera heimsókn til V-Þýska-
lands í þriðja skipti í næsta mán-
uði. Schmidt bauð honum þegar
hann var í Moskvu í júní 1980.
Brezhnev heimsótti V-Þýskaland
1978 og 1974.
brátt gæða sér á norskum laxa- og
regnbogasilungahrognum niður
soðnum í olíu, sem unnin er úr
vínberjasteinum. Þau eru nú kynnt á
alþjóðamatvælasýningunni í Frank-
furt.
Rannsóknastofa lagmetisiðnað-
arins hefur fundið aðferð til að
hreinsa þessa gerð hrogna. Starfs-
mennirnir þar fara ekki leynt með
að þeir hafa lært mikið af
starfsbræðrum sínum á Islandi.
„Við bindum álíka miklar vonir
við þessa framleiðslu og loðnu-
hrogn sem við kynntum á alþjóða-
markaði 1976,“ segja starfsmenn
við iðnaðinn.
Vínberjaolían gerir hrognin
sérlega lystug. Rannsóknastofa
lagmetisiðnaðarins er 50 ára um
þessar mundir. Þar eru nú gerðar
tilraunir með pökkun á hráum
sardtnum og varðveislu selkjöts.
4/5
smjör
Z
O
>
1/5
sojaolía
„Þessi afuiö sameinar
bratjógæói og
bætiefnamnihald smjörs
og mýkt olíunnar"
segir Dr. Jón Óttar Ragnarsson í grein sinni,
,,Mjúka fitan og neytandinn” sem birtist í Frétta-
bréfi um heilbrigðismál, júníhefti 1981, um Bregott
sem er sænskt smjör, blandað mjög mjúkri jurtaolíu
Nú hefur Osta-og smjörsalan fengið einka-
leyfi fyrir þessari framleiðslu sem hefur hlotið
nafnið SMJÖRVI.
SMJÖRVI er eins og áður segir að 4/5 hlutum smjör
en að 1/5 hluta sojaolía.
Smjörvi- sá eini sí mjúki
meó smjörbragði.
Friðkaupa-
stefna talin
ógna að nýju
Washington, 15. okt. AP.
LAWRENCE Eagleburger, aðstoðar
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
líkti í dag friðarstefnu í Evrópu nú,
við friðkaupastefnuna fyrir síðari
heimsstyrjöldina og varaði við því að
„veiklyndi, hik og friðarkaup'*
mundu aðeins auka líkur á árekstr
um milli Bandaríkjanna og Sovét-
ríkjanna.
Hann sagði að eina skynsama
stefnan sem Vesturlönd gætu tek-
ið, væri að hefjast þegar handa í
því skyni að „gera Sovétríkjunum
ljóst að útþenslustefna þeirra gæti
ekki heppnazt. öld heimsvelda er
liðin".
Hann benti á að heimsstyrjöld
hefði brotizt út aðeins nokkrum
mánuðum eftir ferð Neville
Chamberlains til Munchen 1938 til
að kaupa „frið um vora daga, frið
með sóma“. „ótti, óskhyggja og af-
vegaleiddar hugsjónir tvinnuðust
saman. Þetta má aldrei koma fyrir
aftur.“
Hann sagði að þessar tilfinn-
ingar hefðu á ný breiðzt út í Evr-
ópu vegna kvíða um að Bandaríkin
kunni að ganga of langt í tilraun-
um sínum til að endurvekja hern-
aðarmátt sinn og svara áskorun-
um Rússa.
En hann sagði að Bandaríkin
hefðu lagt niður herskyldu, fækk-
að í herafla sínum og dregið úr
raunverulegum herútgjöldum á
sama tíma og Rússar hefðu fjölg-
að um einn þriðja í herafla sínum,
í 4,8 milljónir manna og aukið
raunveruleg herútgjöld um rúm-
lega 50%.
Skilnaðir
algengastir í
Bandaríkjunum
Sameinudu þjóóunum, 15. október. AP.
SKILNAÐIR eru algengastir í
Bandaríkjunum samkvæmt nýjum
upplýsingum Sameinuðu þjóðanna.
Þar skilja 5,17 af hverjum 1000
íbúum. Næstar koma Jómfrúreyjar
með 4,54 af 1000 íbúum og síðan
Úkraína í Sovétríkjunum með 3,68
af 1000.
ísland var 10. i röðinni. Hér
skilja 2,06 af hverjum 1000 íbúum.
í Danmörku bíður skilnaður 2,98
af 1000, í Svíþjóð 2,46, í Finnlandi
2,18 og í Noregi 1,54.