Morgunblaðið - 16.10.1981, Page 16

Morgunblaðið - 16.10.1981, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 85 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 5 kr. eintakið. Vísindaafrek Það fyllir íslendinga gleði og stolti, þegar fréttir berast um það, að vísindarannsóknir íslenskra manna vekja athygli úti í hinum stóra heimi og þykja marka tímamót. Þannig er mönnum innan brjósts, þegar þeir ræða um niðurstöður rann- sókna þeirra, er Þórir Helgason, yfirlæknir á göngudeild syk- ursjúkra á Landspítalanum, hefur stundað um upptök sykursýki með aðstoð Magnúsar R. Jónassonar, læknis. Eins og Þórir Helgason segir í viðtali við Morgunblaðið í gær, þá liggur sú straðreynd fyrir eftir rannsóknina, að upphaf sykursýki getur orðið í móðurkviði, þó svo fari, að niðurstöður dýratilrauna í Aberdeen sanni ekki þá kenningu Þóris, að N-nítrósósambönd geti valdið sykursýki. í sjálfu sér felst mikil viðurkenning á rannsóknum íslensku læknanna í því, að hið virta breska læknatímarit Lancet tók grein Þóris Helgasonar, um að efni í reyktu kindakjöti geti framkallað sykursýki, til birtingar. Þórir Helgason hefur með rannsóknum sínum fikrað sig inn á þær brautir í læknisfræð- inni, sem menn beina athyglinni æ meira að, hvaða áhrif veiru- sýkingar hafi á upptök sjúkdóma. Rannsóknir Þóris Helgasonar sýna, að veirusýking eykur líkurnar fyrir sykursýki; kann hið sama til dæmis að eiga við um krabbamein? Það eru spurningar eins og þessi, sem víða er leitað svara við, og niðurstöður ís- lensku læknanna geta fært menn nær svarinu við þeim. Þegar menn lesa í blöðum um það, sem kom Þóri Helgasyni á sporið; neyslu hangikjöts og tíðni sykursýkis hjá drengjum fæddum í október á Akureyri, sýnist þráðurinn vera ótrúlega einfaldur og liggja næstum í augum uppi. Stærstu vísindaafrek- in felast oft og tíðum í því, að skarpskyggnir greina samhengi hluta og benda öðrum á þá. Til þess að draga þannig fræðilegar ályktanir af því, sem er að gerast umhverfis okkur, kostar oftast meira átak en svo, að það sé á hvers manns færi. Löngum hefur verið sagt, að vegna fámennis og fjarlægðar frá öðrum séu Islendingar kjörið rannsóknaandlag fyrir læknavísindin. Rann- sóknir Þóris Helgasonar staðfesta þessa kenningu og ættu að vera hvatning til okkar allra um að veita alla þá aðstoð, sem nauðsynleg er til að stuðla að og flýta slíkum rannsóknum. Læknisfræðilegar rannsóknir miða í senn að því að sanna vísindalegar tilgátur og stuðla að bættu mannlífi með því að koma í veg fyrir upptök sjúkdóma, hefta útbreiðslu þeirra eða lækna þá. Slíkar rannsóknir á auðvitað ekki að ræða á öðrum forsendum. Fyrir vísinda- og fræðimenn er ekki nægilegt að hafa húsnæði, tækjakost og fjármagn til að stunda rannsóknir, þeir verða einnig að starfa í því umhverfi, er hvetur menn til vísindalegra og fræðilegra dáða. Mikið skortir því miður á, að slíkt andrúmsloft ríki hér á landi, í því efni hefur fámennið sína ókosti. Fleira kemur einnig til. Er það ekki dæmigert fyrir umræðustigið hér á landi, að í kjölfar frétta um vísindaafrek Þóris Helgasonar og Magnúsar R. Jónassonar skuli fjölmiðlar leita leiða til að koma þeim upp á kant við hangikjötsframleið- endur? Það kostar enga peninga að viðhalda umræðum á.menn- ingarlegu stigi en það er ef til vill frumforsenda þess, að hér á landi þróist vísindastarfsemi og fræðiiðkanir, sem athygli vekja úti í hinum stóra heimi. Lágkúran í þessu efni eins og öðrum er þjóðfélaginu of dýrkeypt til að henni sé látið ómótmælt um leið og Þóri Helgasyni og félögum hans eru færðar heillaóskir. 6. einvígisskákin frá Meranó: Korchnoi sækir í sig veðrið SVO VIRÐIST sem að áskorandinn sé allur að hressast, a.m.k. ef marka má taflmennsku hans í 6. einvígisskákinni. Skákin fór í bið þegar leikinn hafði verið 41 leikur og hefur Korchnoi öllu vænlegri stöðu. Karpov hóf skákina með því að leika kóngspeði sínu fram og svaraði Korchnoi með opna afbrigðinu í Spánska leiknum. Skákin fylgdi hefð- bundnum leiðum fram í 17. leik er Korchnoi kom með nýjung. Stuttu síðar fórnaði hann peði og fékk í staðinn gott mótspil. Heimsmeistarinn tefldi framhaldið frekar linkulega og bætti áskorandinn stöðu sína smátt og smátt. í 41. leik fór skákin í bið og lék Korchnoi biðleik. Að sögn sérfræðinga hefur Korchnoi vinningsstöðu en það er e.t.v. full mikið sagt þó að áskorandinn hafi óneitanlega fallega stöðu. Hvítt: Karpov Svart: Korchnoi Spánski leikurinn I. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bb5 — a6, 4. Ba4 — Rf6, 5. (H) — Rxe4. Opna afbrigðið svonefnda sem mikið kom við sögu í síðasta einvígi Karpovs og Korchnois í Baguio 1978. 6. d4 — b5, 7. Bb3 — d5, 8. dxe5 — Be6, 9. c3 — Bc5, 10. Rbd2 — 0K), 11. Bc2 — Bf5, 12. Rb3 — Bg6. í Baguio lék Korchnoi jafnan 12. — Bg4 þar til Karpov fann framhaldið 13. h3 - Bh5, 14. g4 - Bg6,15. Bxe4 — dxe4, 16. Rxc5 — exf3,17. Bf4 og hvítur stendur betur. 13. Rfd4 — Bxd4, 14. cxd4 — a5, 15. Be3 — a4, 16. Rcl — a3, 17. b3 — f6. Endurbót Korchnois á fram- haldinu 17. — Rb4,18. Bbl — c5, 19. dxc5 og hvítur hefur betra tafl (Ceskovsky — Geller Sov- éska meistaramótið 1980). 18. exf6 — Dxf6, 19. Re2 — Rb4, 20. Bbl — De7, 21. Del — Hfe8, 22. Rf4 — Bf7, 23. Dcl Skák Jóhannes Gísli Jónsson 23. — c5!? Korchnoi fórnar peði en fær í staðinn ýmis gagnfæri s.s. sterkt frípeð í d-línunni. 24. dxc5 — Df6, 25. Bxe4 — Hxe4, 26. Re2 — d4, 27. Rg3 - Hee8, 28. Dd2 - Rc6. Eftir 28. - fxe3, 29. fxe3 vinnur hvítur manninn til baka með betri stöðu. 29. Bg5 — De5, 30. Racl — d3!. Svartur not- ar tækifærið og ýtir peðinu lengra áfram. 31. Hfdl — Bg6, 32. Be3 — He6, 33. Bf4 — Df6, 34. Hel — Rae8, 35. Hxe6 — Hxe6, 36. Hbl — h5! Þessum leik er fyrst og fremst stefnt gegn ridd- aranum á g3. Frumkvæðið er nú í höndum svarts. 37. h3 — h4, 38. Bg5 — Dd4, 39. Be3 — Dd5, 40. Rfl? Mun sterkari leikur var 40. Re2 með hótuninni 41. Rf4 40.— Be4, 41. Bf4. Hér fór skákin í bið og hefur svartur óneitanlega góða vinn- ingsmöguleika. Menntaskólinn í HamrahJíð: Beðið eftir viðbrögðum Menntamálaráðuneytisins Á FUNDI nemenda í Menntaskólan- um við Hamrahlíð á miðvikudag var samþykkt tillaga um frestun allra mótmælaaðgerða þar til kennarar hefðu sent Menntamálaráðuneytinu ályktun sína. Kins og fram hefur komið í fréttum snýst deilan um nýj- ar reglur frá ráðuneytinu um starfs- hætti áfangaskóla, sem ráðuneytið gaf út í sumar. Þar er m.a. kveðið á um 80 prósent mætingaskyldu í hverju fagi í stað heillar annar áður. Þá er og sagt að falli nemandi í sama fagi þrisvar sinnum skal hann rekinn úr skóla. Er í reglum þessum einnig breytt einkunnakerfinu úr bókstöfum í tölustafi. I ályktun kennara til Mennta- málaráðuneytisins segir að kenn- arar hafi fundið galla á flestum greinum þessara reglna, suma al- varlega en aðra léttvægari. Segir að kennarar í MH telji það bráð- ræði að láta reglurnar taka gildi á næstunni. Þess í stað bæri að gefa kennurum svigrúm til að ræða þær í skólunum og síðan yrðu reglurnar endursamdar í sam- starfi ráðuneytis og kennara. Seg- ir einnig í ályktuninni. „Menntaskólinn við Hamrahlíð er fyrsti áfangaskólinn á íslandi. Þar hafa orðið til starfsreglur sem aðrir skólar hafa síðan tekið upp, sumar óbreyttar, aðrar með lítið eitt öðru sniði. Á liðnum árum hafa reglur þessar þróast í kjölfar aukinnr reynslu stjórnenda skól- ans og annarra kennara af áfangakerfinu. Meðal starfandi kennara við MH eru menn sem upphaflega sömdu þessar reglur og hafa síðan átt drjúgan þátt í endurbótum á þeim. Reynslan hef- ur sýnt að reglur verða seint full- komnar, stöðugar endurbætur eru nauðsynlegar. Við vitum að ýmsar reglur sem við búum við nú þarfn- ast lagfæringa. Þegar menntamálaráðuneytið setur nú fram reglur um starfs- hætti áfangaskóla, reglur sem reynslan hefur kennt okkur að sumar hverjar eru gallaðar, aðrar þungar í vöfum eða óþarfar, hljóta kennarar að mótmæla því. Við treystum því að ráðuneytið vilji fremur skipa málum skóla í land- inu í samráði við starfsmenn þeirra en í andstöðu við þá.“ Er það haft eftir kennurum að málið snúist ekki síst um hvað mikið ráðuneytið eigi að skipta sér af almennum málefnum skólanna og hvað mikinn rétt skólarnir hafi til að ákveða sín „innanhúss“mál. Fridarverðlauii Flugrá(): Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna fær friðarverðlaun Nóbels í ár. Fer vel á því að heiðra þessa mikilsverðu stofnun í annað sinn með þessum verðlaunum. Fljóttamanna- hjálpin fékk verðlaunin í fyrra skiptið 1954, þegar hún glímdi við vandamál eftirstríðsáranna í Evrópu og"áðstoðaði allan hinn mikla fjölda fólks, sem flosnaði upp í heimsstyrjöldinni og í kjölfar hennar. Flóttamannavandinn er nú mestur utan Evrópu, en talið er, að Flóttamannahjálpin þurfi að aðstoða um 10 milljónir manna nú á tímum í 80 þjóðlöndum. Þegar John San- ness, formaður friðarverðlaunanefndarinnar, gerði grein fyrir niðurstöðum hennar nefndi hann sérstaklega flóttamanna- straum frá Víetnam, Afganistan og Eþíópíu. I þessum þremur ríkjum hefur fátæktarstefna heimskommúnismans verið að ryðja sér til rúms í krafti hervalds og ofríkis. Nú eins og 1954 er ótti manna við ofríki kommúnista og yfirráð Kremlverja helsta ástæða þess, að þeir rjúfa tengslin við heimahaga sína og ætt- jörð og leggja á flótta út í óvissuna. Afgreiðslu á umsókn Arnar- flugs frestað til 29. október FLUGRÁÐ kom saman til fundar í gærmorgun og fjallaði þá meðal ann- ars um beiðni Arnarflugs um áætl- unarflug til Sviss og Þýzkalands. Af- greiðslu málsins var hinsvegar frest- að í Flugráði samkvæmt beiðni Al- berts Guðmundssonar, í bókun sem hann lét gera í upphafi fundar fór hann þess á leit að þingmenn Sjálfstæðisflokksins gætu kynnt sér öll gögn um málið, en þingflokkur inn mun hafa rætt þetta mál. Leifur Magnússon, formaður Flugráðs, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að flug- ráðsmenn hefðu fengið ýmis gögn varðandi umsókn Arnarflugs fyrir fundinn. Albert Guðmundsson hefði strax látið gera bókun, um að ákvörðun í málinu yrði frestað, þannig að þingmenn Sjálfstæðis- flokksins gætu kynnt sér málið betur. Undir það hefði Skúli Alex- andersson, alþingismaður, tekið og sagt að þingmenn Alþýðu- bandalagsins þyrftu einnig að kynna sér málið. Því hefði verið ákveðið að senda gögn varðandi umsóknina til allra þingmanna og málið yrði því ekki tekið fyrir fyrr en á næsta fundi Flugráðs þann 29. október nk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.