Morgunblaðið - 16.10.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981
29
I Laufskálarétt
Skagfirðingar hafa
löngum verið taldir miklir
hestamenn og þeir eiga
margt hrossa. Frá þeim
koma margir góðir gaeð-
Grárri stóðhryssu vísað til vegar í
Laufskálarétt.
ingar og er skemmst að
minnast, að af þeim sjö
hestum sem kepptu á Evr-
ópumótinu í Larvík í Nor-
egi í lok ágúst, voru allir
nema einn ættaður úr
Skagafirði.
Laufskálarétt í Hjalta-
dal er ein hrossaflesta
stóðrétt í landinu, en í
hana koma stóðhross úr
Hjaltadal og Viðvíkur-
sveit sem rekin eru á af-
rétt. Þó hefur á síðustu
árum verið beitt ítölu við
rekstur stóðhrossa á
þessu svæði. Margir
hestamenn víðsvegar að
koma til þessarar réttar,
bæði til að kaupa hross og
skemmta sér, en í réttinni
er líf og fjör eins og jafn-
an í stóðréttum. Þessar
svipmyndir tók Sigurður
Sigmundsson í Laufskála-
rétt þann 4. október.
Snjófol var yfir er hrossin voru rekin til réttar, en nú er allt á kafi í snjó á þessum slóðum.
Húnvctningurinn Guðmundur Valtýsson leggur sitt af mörkura er Skag
firðingar draga hross sín í dilka.
Fleiri á tveimur fótum en fjórum.
Utvarp
Reykjavík
í Bombay
á Indlandi
SENDINGAR á efni úr íslenzka út-
varpinu á stuttbylgju njóta vinsælda
víða erlendis, og þá jafnt hjá íslend-
ingum, sem búa ytra, og eins hjá
sjómönnum. Nýlega voru hafnar
sendingar á nýrri stuttbylgjutíðni og
er sent út frá klukkan 18—20 á
kvöldin. Pessar nýju sendingar hafa
náðst mjög víða og meðal annars
hafa borizt fréttir um, að sendingar
útvarpsins, sem Póstur og sími ann-
ast, hafi heyrzt í flugvél, sem var á
flugvelli í Bombay á Indlandi. Með-
an unnið var að prófunum og undir
búningi fyrir þessar sendingar frétt-
ist af því, að þær heyrðust í Venezú-
ela.
Útvarpið sendi áður út á ann-
arri tíðni, en einhverra hluta
vegna heyrðust þær ekki nægilega
vel á stundum í nálægari löndum,
en úr þvi hefur nú verið bætt. Þær
sendingar heyrðust hins vegar í
fjarlægum löndum eins og Astr-
alíu, Nýja Sjálandi og S-Afríku.
Nokkuð er um það, að útvarpið
fái sendar spólur frá útvarps-
áhugamönnum, sem taka þá
sendingar sem þeir heyra upp á
segulbönd. Eins kemur það fyrir
að útvarpinu berist spólur, sem
alls ekki hafa að geyma íslenzkt
efni, þó svo að sendandinn hafi
staðið í þeirri meiningu.
HNNSKIR VATTERAÐIR KOLDAIAKKAR
6.161