Morgunblaðið - 28.11.1981, Side 3
Ofsögum
sagt
OFSÖGUM SAGT eftir Þórarin Eldjárn.
Hver á element í Bestfrend ef umboðið er
ekki til? Getur hákarl drepið íslenska menn-
ingu? Hvað áforvörður aðforverja? Getur son-
ur Gauja í Þresti hafið sjálfstæðisbaráttu á
White Star og Reykjavikurbar? Hvaða líf er i
tuskum? Hver var hinn dularfulli Tilbury sem
skóp ýsfirsk örlög? Eru töskumál yðar í lagi?
Þetta eru aðeins örfáar af þeim ótalmörgu
spumingum sem hér er varpaðfram í tíu smá-
sögum eftir Þórarin Eldjám. Þetta em áleitnar
spumingar, en þó em svörin enn áleitnari,
segja þeir sem hafa þau. Emð þér einn af
þeim?
Það er ekki ofsögum sagt
af Þórarni Eldjárn
Hann er ekki einungis mest lesna og vin-
sœlasta Ijóðskáld sem nú yrkir, revíuskáld,
rímnaskáld og hver veit hvað, heldur hefur
hann nú samið óvenjuskemmtilegt smásagna-
safn. Hér sýnir hann á sér nýja hlið, en fyndn-
in og skopið er samt við sig. Það er sama hvort
hann segirfráferð með KFUM í Vatnaskóg eða
rannsóknaræfingu hjá íslenskufræðingum,
Upplausninni Miklu í Ýsufirði eða orðræðum
kúnna á þrettándanótt. Aldrei bregst honum
það að geta búið til bráðskemmtilega og beitta
sögu. Það er ekki OFSÖGUM SAGT af því.
Ljóðabækur Þórarins, Kvæði, Disneyrímur
og Erindi em allar fáanlegar — ennþá.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981
Þórarin
Eidján
IÐUNN
Úr refoiækt I söiumennsku.
Ungt skáid á umbrotaskeiði
FLÖKKULÍF er æskusaga Hannesar Sigfús-
sonar skálds, skemmtileg og fróðleg bók um
uppvöxt og mótun skálds á fjórða og fimmta
áratugnum.
Ur refarækt í sölumennsku
Hannes segir frá bernskuámm sinum í
Reykjavík, fjölskylduhögum þar sem á ýmsu
gengur, endasleppri skólavist, fjölbreytilegri
æskureynslu. Hannes verður skálda yngstur til
að lesa úr verkum sínum i útvarp, — og litlu
síðar heldur hann til Noregs að læra refarækt.
Um þann náms- og starfsferil fer eins og fleira
að hann verður ekki til frambúðar. Hannes
gerist sölumaður og fer í þeim erindum um-
hverfis land, en jafnframt fæst hann við
skáldskap, umgengst aðra unga áhugamenn um
bókmenntir sem í bróðemi mæla andleg afrek
sín við skáldverk félaganna.
Koma hér við sögu ýmsir rithöfundar sem
þá vom ungir og óráðnir en nú em löngu þjóð-
kunnir og virtir. Hannes lýsir sjálfum sér og
samferðamönnunum fjörlega, hispurslaust og
hressilega, með húmor sem ekki beinist síst að
honum sjálfum.
FLÖKKULÍF erfróðleg bók um mótunarár
hinna svonefndu atómskálda, en höfundur bók-
arinnar varð einn hinn fremsti í þeim hópi sem
mddi braut nýjungum í íslenskri Ijóðagerð um
miðja öldina. — FLÖKKULÍF er lifandi sjálfs-
lýsing, létt og leikandi dregin mynd ungs skálds
á umbrotaskeiði sem margir munu hafa ánægju
ogfróðleik af.