Morgunblaðið - 28.11.1981, Side 5
Fróðleikur og frásagnarlist
íslenskur fróðleikur og frásagnarlist
EF HÁTT LÉT í STRAUMNIÐ HÉRAÐS-
VATNA, minningar Ólínu Jónasdóttur, er bók
sem allir unnendur íslenskrar alþýðlegrar frá-
sagnarlistar og þjóðlegra fræða munu kunna að
meta. Ólína Jónasdóttir var Skagfirðingur og
segir frá mannlifi þar. Líka er skemmtilegur
kafli um Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu,
æskuheimili Jóhanns Sigurjónssonar skálds.
Broddi Jóhannesson og Frímann Jónasson sáu
um útgáfuna.
Fágætlega vel samdir þættir
Minningar Ólínu Jónasdóttur eru náma af
fróðleik um mannlíf atvinnuhætti og hugsun-
arhátt fólksfrá fyrri tíð. Umfram allt eru þætt-
ir Ólínu svo vel samdir að fágætt er. Til dæmis
eru Ijóslifandi lýsingar hennar á heimilisfólki á
Kúskerpi þar sem hún dvaldi allmörg ár í
æsku. í þessari bók er prentað allt lausamálið
úr bókinni Ég vitja þín, æska sem út kom 19^6
og hefur verið ófáanleg og mikið eftirspurð í
áratugi.
Fullur helmingur nýju bókarinnar er áður
óbirt handrit sem legið hefur á Landsbókasafni.
Hér eru þættir um einstaka menn og skemmti-
legar og lifandi frásagnir um siði og venjur,
hjátrú og kreddur fyrri tíðarfólks.
EF HÁTT LÉT í STRAUMNIÐ HÉRAÐS-
VATNA er kjörbók þeirra sem hafa yndi af
rammíslenskum fróðleik og frásögnum. Bókin
er prýdd allmörgum myndum.
Steinunn
Jóhannesdóttir
DA JSfS Á
HPSUM
/
Athyglisvert samtímaleikrit
DANS Á RÓSUM, leikrit Steinunnar Jóhann-
esdóttur, áhrifamikið samtímaverk um fjöl-
skyldulíf og tilfinningasamband fólks innan
fjölskyldu og utan. Leikritið gerist á Akureyri.
Þangað kemur Ásta, kona um þrítugt. Leikritið
er nú sýnt í Þjóðleikhúsinu.
DANS Á RÓSUM er athyglisverð frum-
raun þekktrar leikkonu við leikritagerð og hef-
ur hlotið lofsamlega dóma og góðar viðtökur
almennings, vakið umræðu og skoðanaskipti.
tslensk
sagna-
skemmtun
íslensk sagnaskemmtun í
upprunalegri mynd
AF JÖKULDALSMÖNNUM OG FLEIRA
FÓLKI eftir sagnaþulinn Þorkel Björnsson frá
Hnefilsdal er óvenju skemmtileg syrpa þjóðlegs
fróðleiks í upprunalegustu merkingu þess orðs,
sagnir og minni sem varðveist hafa í munnlegri
geymd kynslóðum saman.
Minningar, sagnir, kímnisögur
og þjóðsögur
Jón Hnefill Aðalsteinsson annaðist útgáfu
þessa safns og ritar að því formála. Þar segir
hann meðál annars: „Hér eru saman komnir
allir helstu flokkar þjóðsagnaefnis, minningar,
sagnir, kímnisögur og þjóðsögur, auk bundins
máls... Hér birtast allar þessar sögur og sagnir
í þeim búningi sem Þorkell bjó þeim. Sögurnar
hefur hann heyrt hjá ýmsu eldrafólki og varð-
veitt þar til nú að hann kemur þeim á fram-
færi. Sagnimar hefur hann dregið saman úr
ýmsum áttum og miðlar þeim nú eins og hann
veit þær ítarlegastar og nœst raunverulegum
atvikumJ
AF JÖKULDALSMÖNNUM OG FLEIRA
FÓLKI eru skemmtilegar frásagnir sem fólk
mun lesa sér til ánægju, hvar sem er á landinu.
Allmargar myndir prýða bókina.