Morgunblaðið - 28.11.1981, Page 9

Morgunblaðið - 28.11.1981, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981 DULIN FORTÍÐ eftir Phyllis A. Whitney í þýöingu Auðar Haralds. Hvað hafði gerst á Silfurhæðum? Að móður sinni látinni kemur Malinda til ættarseturs hennar á Silfurhæðum. Þar dvelur móðursystir Malindu sem löngu fyrr hafði orð- ið sinnisveik og misst minnið eftir að hafa vald- ið sviplegum dauða föður síns, að því er fólk sagði. En var það rétt? Áður en móðir Malindu lést hafði hún sagt henni að systir sín væri saklaus og Malinda einsetur sér að upplýsa málið. En hún rekur sig á að frændfólkið hefur vægast sagt lítinn áhuga á því. Hún er því enginn aufúsugestur á Silfurhæðum og það er reynt að hindra að hún nái fundi móðursystur sinnar. Hér er greinilega eitthvað gruggugt á bak við, eitthvað sem verður að dylja hvað sem það kostar. Fjandskapur fjölskyldunnar magn- ast æ meir og Malinda finnur að einhver er sá sem einskis svífst til að stöðva eftirgrennslanir hennar. Hver er það? Og hvar á hún hjálpar að vænta gegn þessum óþekkta óvini? Phyllis A. Whitney bregst ekki vonum les- enda sinna nú fremur en áður. DULIN FOR- TÍÐ er áttunda bók hennar sem út kemur á íslensku. Hún er hörkuspennandi, dularfull og rómantísk frá upphafi til enda. DULIN FOR- TÍÐ er bók sem þú getur gleymt þér yfir — sagan um leyndarmál Silfurhœða. MYRKRAVERK I MOSKVU eftir Adam Hall í þýðingu Kristínar Magnúsdóttur. Ný, æsispennandi saga um njósnarann Quiller. Þetta er þriðja sagan um hann sem út kemur á íslensku. Hinar voru Njósnir í Berlín og Á ystu nöf. Hér er Quiller falið erfitt verk- efni: hann á að frelsa breskan njósnara sem tekinn hefur verið höndum í Moskvu, en fellur sjálfur í hendur sovésku leyniþjónustunni. Og þá er ekki að sökum að spyrja ... Á valdi KGB „Quiller hefur fyrr komist í hann krappan, en aldrei eins og hér, innilokaður í Lubyanka- fangelsi, á valdi KGB. Örlög fimmtán fremstu njósnara Breta eru undir honum komin ... Adam Hall kann svo örugg tök á iþrótt sinni að hann slær aldrei skakka nótu, heldur allri þess- ari æsilegu frásögn í skefjum sennileikans.u (North Eastem Evu Gazette.) „Enginn njósnari jafnast á við Quiller.“ (Chicago Daily News.) „... taugatitringur á nánast hverri blað- síðu sem magnast hægt og hœgt allt að hámarki ...“ (Westem Evening Post.) MYRKRAVERK í MOSKVU, nýja sagan um hinn frábæra njósnara Quiller er bókin handa þeim sem kunna að meta ekta njósnasög- ur. SUMAR ÓTTA OG ÁSTAR eftir Mary Stewart í þýðingu Álfheiðar Kjartansdóttur. „Spennan stígur jafnt og þétt, allt til örlagarikra þáttaskila ... þetta er saga gædd dularfullu seiðmagni, sögð af frábærri íþrótt.u Þannig var komist að orði í stórblaðinu The Times um þessa sögu Mary Stewart. Hún á marga aðdáendur hér á landi. SUMAR ÓTTA OG ÁSTAR er sjötta bók hennar sem út kemur á íslensku. Eins og hinar fyrri er þessi nýja bók þrungin spennu og rómantík frá upphafi til enda. Karítas er stödd ásamt vinkonu sinni í sumarleyfi í Provence í Frakklandi. Á þessum friðsæla stað, í steikjandi sólarhita, er ekkert sem bendir til að hún dragist inn í dtdarfulla og skuggalega atburði. „Hvemig átti ég að vita að flestir af leikendunum í harmleiknum væru á þessari stundu samankomnir í þessu snyrtilega og tilgerðarlausa hóteli? Reyndar allir nema einn, og hann var ekki langt undan, þokaðist í hring og leið vítiskvalir. Og hringurinn sá þrengdist óðum ..." Hér er það sem Karítas kynnist drengnum Davíð og síðan Ríkharði föð- ur hans, og eftir það á hún sér engrar undan- komu auðið... Mary Stewart bregst ekki lesendum sínum hér frekar en fyrri daginn. Þetta er raunar bókin sem lagði grundvöll að frægð hennar. Frábær saga til að sökkva sér niður í, hverfa með Mary Stewart til Provence á SUMRI ÓTTA OG ÁSTAR. LILLI PALMER. Minningar leikkonunnar rit- aðar af henni sjálfri í þýðingu Vilborgar Bickel-ísleifsdóttur. „Lilli Palmer er ekki aðeins ein hin feg- ursta og þokkafyllsta leikkona sinnar kynslóð- ar. Hún er einnig meðal vitrustu og göfugustu kvenna i hópi leikara. Það má sjá á hverri blaðsíðu þessarar fögm og manneskjulegu bók- ar.u (Theater Rundschau). Minningar LILLI PALMER, hinnar dáðu þýsku leikkonu, em óvenjulega auðug og heill- andi sjátfsævisaga. Hér rekur hún feril sinn aUt frá bemskuámm í Berlín á þriðja tug ald- arinnar. Hún segir frá fyrstu spomm sínum á leiklistarbrautinni, dvöl í París á kreppuámm, lýsir hinum stranga aga sem hún varð að leggja á sig áður en hún náði árangri á sviði og í kvikmyndum. Hún segirfrá hjónaböndum sínum tveimur og einkahögum og bregður upp eftirminnilegum svipmyndum af frægu fólki sem hún kynntist: Gary Cooper, Bemard Shaw, Helen Keller, svo að nefnd séu þrjú, hvert úr sinni átt. Umfram aUt lýsir hún auðvitað sjálfri sér og gerir það af fjöri og einlægni, með skopgáfu sem hún kann að snúa að sér sjálfri. Bókin tekur lesandann föstum tökum allt frá upphafi, — þótt hún sé býsna löng óskar hann þess eins að bókarlokum að hún væri enn lengri. Hún er prýdd fjölda mynda. Minningar LILLI PALMER er róman- tísk, spennandi bók, bregður upp fróðlegri mynd af lífi kvikmyndastjömunnar og leik- sviðsstjömunnar að tjaldabaki, — heillandi bók.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.