Morgunblaðið - 28.11.1981, Síða 14

Morgunblaðið - 28.11.1981, Síða 14
NÁTTFUGLARNIR er afar nærfærnislega og vel sögd saga, ein af þeim barnábókum sem ekki l'iba úr minni. Tormod Haugen er norskur og hefur hlotid mikla viöurkenningu fyrir barna- bækur sínar, m.a. verðlaun bókmenntagagn- rýnenda í Noregi. Jóakim er átta ára og á heima í sambýlis- húsi ásamt mömmu sinni og pabba. Mamma vinnur í kjólabúð, pabbi er kennari, en hann fer ekki i skólann. Hann er hræddur. Jóakim er lika hræddur, krakkarnir í götunni eru stund- um vondir og Sara segir honum frá ýmiss kon- ar h ryllilegum atburðum sem eiga að hafa gerst i húsinu. Og svo er Jóakim hræddur við nátt- fuglana svörtu og Ijótu í klæðaskápnum. Hann verður að muna að læsa skápnum á kvöldin svo þeir komist ekki út... Þegar NÁTTFUGLARNIR komu út i þýskri þýðingu var bókin sæmd þýsku bama- bókaverðlaununum og þar með valin hin besta úr hópi um sex hundruð bóka, útgefinna i Vestur-Þýskalandi, Austurríki, Rúmeníu og Sviss. I niðurstöðu dómnefndar sagði: „Sjaldan hefur höfundi tekist svo vel sem hér að lýsa ótta og vandkvæðum, þrám og draumum barns. “ Anna Váldimarsdóttir þýddi. NEYÐARKALL LÚLLA eftir E.W. Hildick i þýðingu Álfheiðar Kjartansdóttur. Lúlli er frábær mjólkurpóstur — eða dreif- ingarstjóri — eins og við kynntumst í Liðinu hans Lúlla. Strákarnir sem vinna hjá honum, Timmi og Smitti, verða því að halda á spöðun- um. En nú er allt i einu eins og gæfan hafi snúið baki við Lúlla. Það byrjar þannig að einn viðskiptavinurinn finnur gullfisk i flöskunni sinni. Og svofinnst fleira og fleira ... Auðvitað fækkar viðskiptavinunum fljótt þegar svo er komið. Það skyldi þó ekki vera að dreifingar- stjóri keppinautanna standi hér á bak við? Og ef svo er, hvernig á að sanna það? Timmi og Smitti fara á stúfana, og svo sendir Lúlli út neyðarkall, því hér er mikið í húfi ... E.W. Hildick er einn vinsœlasti unglinga- sagnahöfundur Breta. Bækurnar um Lúlla og Liðið hans hafa þó hlotið mesta viðurkenningu af bókum Hildicks, enda eiga þær fáa sína líka að fyndni og fjöri. Þetta eru bækur handa öll- um sem kunna að meta sögur sem eru skemmti- legar og spennandi í senn. Frábær hollensk unglingasaga EINN í STRÍÐI eftir Evert Hartman í þýðingu Árna Þórarinssonar gerist í Hollandi á tveimur árum síðari heimsstyrjaldar, 191+2—J+L Arnold er brennimerktur í augum félaga sinna og faðir hans fylgir nasistum af blindri trú og hollustu. Slíkt ofstæki er Arnold fjarri skapi, en hann er milli tveggja elda og margt hlýtur hann að reyna áður en lýkur. Sagan er afar viðburðarík og spennandi og frásögnin með slíkum raunsæ- isbrag að ætla mætti að höfundur segði hér frá eigin reynslu, ef ekki vildi svo til að hann var aðeins sjö ára í stríðslok. Pabbi hans var nasisti „Arnold sá hatrið í augum þeirra, hatrið sem síðustu mánuðina hafði leitt þá til að sví- virða hann, ofsækja hann og gera lif hans eins óbærilegt og unnt var, aðeins vegna þess að faðir hans varfélagi í hollenska Þjóðernissósí- alistaflokknum (NSB). Foreldrar hans höfðu sagt honum að láta það sem vind um eyru þjóta og þá myndi því linna af sjálfu sér. Þau sögðu að góður NSB-ari yrði að geta haft stjórn á sjálfum sér. En jafnvel sjálfsstjóm eru takmörk sett. “ Evert Hartman er virtur hollenskur höf- undur og fyrir þessa bók hlaut hann verðlaun sem veitt eru bestu unglingabók ársins í Hol- landi og einnig var bókin sæmd Evrópsku ung- lingabókaverðlaununum. — EINN í STRÍÐI er frábær unglingasaga: spennandi, vel rituð, með skýrum mannlýsingum, fróðleg og vekjandi. SYNIR ÞRÆLANNA eftir Sven Wernström í þýðingu Þorsteins Broddasonar er sjálfstæð saga í bálknum um þrælana. Fyrsta bókin kom út á íslensku fyrir tveim árum, en fyrir hana hlaut höfundurinn sænsku Nilla Hólmgeirs- sonar-verðlaunin. Sven Wernström er þekktur höfundur og hefur staðið um hann verulegur styrr. í SONUM ÞRÆLANNA lýsir hann hlut- skipti hinna kúguðu á sextándu, sautjándu og átjándu öld. Frásögn Wernströms er í senn spennandi ogfróðleg um lífshætti og kjör fyrr á öldum. OTTÓ NASHYRNINGUR eftir Ole Lund Kirkegaard í þýðingu Valdísar Óskarsdóttur. „Um leið rak nashyrningurinn á veggnum upp hátt, skröltandi hljóð og sneri höfðinu. ‘Hjálp ’ veinaði Viggó og stökk næstum hæð sina í loft upp. ‘Uss, ekki hafa hátt \ sagði Topper. ‘Þú ger- ir hann hræddan með þessum öskrum í þér. Hæ, nashymingur. ’ OG SVO STEIG HANN ÚT Á MITT GÓLF.“ Þannig byrja ævintýri Viggós og Toppers með nashyrningnum Ottó. Þetta er bráð- skemmtileg saga, ekki síður en fyrri bækur höf- undar sem komið hafa út á íslensku. Þær eru: Fúsi froskagleypir, Gúmmí-Tarsan, Albert og Hodja og töfrateppið. ÆVINTÝRABÆKUR Enid Blyton þarfekki að kynna fyrir þeim sem voru böm á sjötta ára- tugnum. Er nokkur búinn að gleyma Finni, Disu, Jonna og Önnu — að ekki sé talað um páfagaukinn Kíki? — Bækumar um ævintýri og svaðilfarir þeirra félaga em átta talsins, og nú er Iðunn að gefa þær út aftur. í ár koma fimmta og sjötta bókin, ÆVINTÝRAFJALLIÐ og ÆVINTÝRASIRKUSINN. Báðar þessar bækur eru afburðaspennandi og í þeim báðum kemur Villi, vinur krakkanna að sjálfsögðu við sögu. Myndir i bókunum eru eftir Stuart Tres- ilian. Sigriður Thorlacius þýddi. DULMÁLSBRÉFIÐ eftir Jan Terlouw erfjórða bók þessa virta hollenska höfundar sem kemur út á íslensku. Ingi Karl Jóhannesson þýddi. Sagan segir frá þrem krökkum, Evu og systkinunum Bínu og Tómasi sem em vinir hennar... Dag einn finnur Eva bréf með dul- arfullri, torráðinni áletmn. Það á eftir að draga dilk á eftir sér. Voveiflegir atburðir ger- ast, en óhugnanlegast er þó að pabbi Evu virðist bendlaður við myrkraverk. Slíkt leyndarmál er þungt að bera, ekki síst vegna þess að and- rúmsloftið á heimili hennar er ekki gott. Nú færist brátt harka í leikinn og Eva, Bína og Tómas komast i hann krappan áður en lýkur. Þetta er skemmtileg, spennandi og umhugs- unarverð saga sem hinn stóri lesendahópur Terlouws hér á landi mun taka tveim höndum. Fyrri bækur hans á íslensku em Stríðsvetur, í föðurleit og Fárviðri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.