Morgunblaðið - 02.02.1982, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982
Svæðamótið í Randers:
Guðmundur Sigur-
jónsson í fjórða sæti
GUÐMUNDUR Sigurjónsson er í
fjórða sæti þegar ein umferð er eftir
í 8 manna úrslitakeppni svæóamóts-
ins í Randers í Danmörku. Guð-
mundur hefur hlotið 3 vinninga að
ioknum 6 umferðum.
Fimmta umferð var tefld á
laugardag. Þá vann Guðmundur
Svíann Lars Karlsson í 28 leikjum,
eftir að Svíinn hafði boðið jafn-
tefli eftir 19 leiki. Guðmundur
tefldi stíft til vinnings og tókst að
binda endi á sigurgöngu Karls-
sons, sem hafði unnið þrjár skákir
Fjölmenni
við útför
Bjartmars
Guðmundssonar
llúsavík, I. ft hrúar.
JARDARFÖR Bjartmars Guð-
mundssonar, fyrrverandi alþing-
ismanns á Sandi, fór fram frá Nes-
kirkju sl. laugardag að viðstöddu
fjölmenni þrátt fyrir erfiða færð.
Veður var þó bjart og fagurt.
Séra Sigurður Guðmundsson,
vígslubiskup að Grenjaðarstað,
flutti útfararræðuna og jarðsöng
og las ljóð eftir Valtý, bróður hins
látna, en Guðrún, dóttir Bjart-
mars, flutti ljóð eftir Hólmfríði
systur sína. Aðaldælahreppur
heiðraði minningu hins látna með
því að bjóða öllum viðstöddum til
erfidrykkju að Ýdölum.
Fréttaritari.
í röð. Raunar vann Guðmundur
Lars Karlsson í undankeppninni.
Karlsson hefur á undanförnum
misserum átt mikilli velgengni að
fagna við skákborðið; vann síð-
astliðið sumar fjögur alþjóðleg
skákmót og hefur 2500 Elo-stig.
Hins vegar hefur Guðmundur tak
á Karlsson, hefur unnið þrjár
skákir gegn honum, en fjórðu við-
ureigninni lyktaði með jafntefli.
Öðrum skákum í 6. umferð lyktaði
með jafntefli, Murey-Lobron,
Grunfeld-Tiller og Borik og Kag-
an.
I 7. umferð tefldi Guðmundur
við Murey, Israel, og sömdu þeir
um jafntefli eftir 30 leiki. Karls-
son vann Borik eftir að skákin
hafði farið í bið, Grunfeld vann
Ijobron og Kagan og Tiller gerðu
jafntefli.
Staðan er því;
1. Murey 4'k
2. Karlsson 4
3. Grunfeld Vk
4. Guðmundur 3
5-7. Lobron, Borik og Tiller 2'k
8. Kagan 2.
„Eg tefli á morgun við Grunfeld
og Karlsson við Murey. Enn á ég
fræðilega möguleika á að komast
áfram og mun tefla stíft til vinn-
ings, þó mér hafi alltaf gengið af-
leitlega gegn Grunfeld. Hann hef-
ur unnið mig þrisvar, en tveimur
skákum okkar hefur lyktað með
jafntefli," sagði Guðmundur í
spjalli við Mbl. í gærkvöldi.
I.josm. Mbl. Kmilía.
Hinir umdeildu Ikarus-strætisvagnar eru nú komnir á götur höfuðborgarinnar og var þessi mynd tekin af
Breiðholtsvagninum í gær.
Litlu togararnir:
8 öfluðu fyrir
en 18 millj. í
Aflaverðmæti Páls Pálssonar 19,3 milljónir
ÁTTA togarar af minni gerð öfluðu
fyrir meira en 18 milljónir króna á
síðastliðnu ári, samkvæmt því sem
kemur fram í togaraskýrslu Lands-
sambands íslenzkra útvegsmanna.
Fjórir þcssara togara eru frá Vest-
fjörðum, einn frá Norðurlandi
vestra, einn af Austfjörðum, einn
frá Norðurlandi eystra og einn af
þá kemur Dagrún frá Bolungavík
með aflaverðmæti upp á 18.504,4
millj. kr., Arnar frá Skagaströnd
aflaði 4.826 tonn að verðmæti
18.336,1 millj. kr., Bjartur frá
Neskaupstað, afli 4.569 tonn að
verðmæti 18.313,5 millj. kr., Guð-
björg frá ísafirði aflaði 4.994
tonn að verðmæti 18.302,0 millj.
meira
fyrra
kr., Sigurbjörg frá Ólafsfirði
fékk 4.833 tonn á árinu að verð-
mæti 18.070,9 millj. kr. og Júlíus
Geirmundsson á ísafirði aflaði
5.075 tonn að verðmæti 18.004,0
millj. kr.
Af umræddum togurum var
Páll Pálsson með mestan afla á
úthaldsdag, 16,3 tonn, Guðbjörg
var með 15,5 tonn á úthaldsdag
og Dagrún 15,4 tonn.
Nýja „síðdegisblaðið“:
Útgáfa morgunblaðs á
mánudögum í athugun
NU ER komin upp sú hugmynd
meðal þeirra, sem íhugað hafa út-
gáfu nýs síðdegisblaðs, að gefa út
blað, sem komi út vikulega á
mánudagsmorgnum.
Samkvæmt þeim heimildum,
sem Morgunblaðið hefur aflað
sér, telja aðstandendur útgáf-
unnar fyrirhuguðu sig hafa
nægilegt fjármagn til slíkrar út-
gáfu og er þá reiknað með 40
síðna blaði. Þá hafa komið fram
ýmsar aðrar hugmyndir og eru
nokkuð skiptar skoðanir um
fyrirkomulag útgáfunnar. Þá er
einnig enn unnið að söfnun
hlutafjár.
Breytingum á Viðey lokið
ÁHÖFNIN á skuttogaranum Viðey
mun halda til Póllands á fóstudag
til að sækja skipið eftir þær breyt-
ingar, sem á því hafa verið gerðar.
Síðastliðinn föstudag kom
skeyti frá Póllandi, þar sem beðið
var um, að áhöfn skipsins kæmi
út þann 4. febrúar. Eigendur
skipsins telja því, að lokið sé við
breytingar á skipinu og ef allt er
með felldu ætti Viðey að geta
haldið heimleiðis í næstu viku.
I skeyti því sem sent var frá
Póllandi var sagt að vel gengi
með breytingarnar á Engey, en í
upphafi var gert ráð fyrir að
breytingum á skipunum myndi
ljúka með mánaðar millibili.
Fyrsti og þriðji vélstjóri Við-
eyjar héldu til Póllands í dag, en
sjö menn fara utan á föstudag.
Snæfellsnesi.
Sá togari, sem var með mest
aflaverðmæti, er Páll Pálsson frá
Hnífsdal, sem aflaði fyrir
19.365,1 millj. kr. og Páll Pálsson
var um leið aflahæsti togarinn af
minni gerð með 5.712 tonn. Næst-
ur í röðinni er Már frá Ólafsvík,
heildarafli Más er 4.598 tonn og
aflaverðmæti 18.575,0 millj. kr.,
Skeiðará vex
jafnt og þétt
SKEIÐARÁRHLAUP vex jafnt og
þétt, en talið er að hlaupið verði í
hámarki eftir næstu helgi. Flest
bendir til að hlaupið verði svipað
og síðasta Skeiðarárhlaup, sem
varð árið 1976. Menn frá Orku-
stofnun og Vegagerðinni fylgjast
grannt með gangi mála eystra.
INNLENT
Sáttatillagan var sam-
þykkt og verkfalli aflétt
Flest börn og unglingar
bólusett gegn mislingum
LANGFLEST börn og unglingar
á grunnskólaaldri hafa verið
bólusett gegn mislingum að und-
anfórnu. Þessi ráðstöfun var gerð
vegna hættu á að mislingafarald
ur, sem geisað hefur í Noregi,
stingi sér niður hér á landi.
Að sögn Skúla Johnsen borg-
arlæknis hefur þessi faraldur
ekki gert vart við sig hér enn.
Líkurnar á því að hann gæti
breiðst hér út eru hverfandi.
3 sækja
um stöðu
borgardómara
ÞRIR hafa sótt um stöðu borgar-
dómara í Reykjavík, en umsóknar-
frestur rann út á föstudag. Magn-
ús Thoroddsen, sem gegnt hefur
embættinu, var fyrir skömmu
skipaður hæstaréttardómari. Þeir
sem sóttu um stöðuna eru: Allan
V. Magnússon, fulltrúi sýslu-
mannsins í Árnessýslu, Eggert
Óskarsson, fulltrúi sýslumannsins
í Rangárvallasýslu, og Sigríður
Ólafsdóttir, aðalfulltrúi yfirborg-
ardómara.
Ástæðan fyrir því er sú, að í
síðasta mislingafaraldri, sem
gekk yfir hér á landi, þá voru
öll börn á aldrinum 2—4 ára
bólusett og því orðin ónæm
fyrir þessum sjúkdómi. I hóp-
inn hafa svo bæst þau börn og
unglingar, sem bólusett hafa
verið í vetur.
Tvær erlendar
í lukkupottinn
TVÆR erlendar stúlkur,
sem búa í (Irundarfirði og
starfa þar líkast til við fisk-
vinnslu, kræktu í samein-
ingu í 11 rétta í (ietraunum
um helgina. Hlutu þær rúml-
ega 42.000 krónur í sinn
hlut.
í fyrsta sinn í 5 vikur
þurfti ekki að grípa til ten-
ingsins hjá Getraunum þar
eð vetur konungur linaði
takið á óveðurskrumlunni,
sem legið hefur yfir Bret-
landseyjum. Þrír seðlar
komu fram með 11 rétta en
með 10 rétta voru 85 raðir.
Sjálfstæðisflokkurinn:
Borgarstjórnarlistinn
ákveðinn 9. febrúar nk.
FLENTIK stóru skuttogaranna héldu
til veiða á sunnudagskvöld og að-
faranótt mánudags eftir að sjómenn
og útgerðarmenn höfðu samþykkt
sáttatillöguna. Verkfall hafði verið á
stóru togurunum í Reykjavík, Hafn-
arfirði og Grindavík frá 26. desem-
ber.
Sjómenn á stóru togurunum fá
14% hækkun á fastakaupi, en í
samningi þeim, sem felldur var í
atkvæðagreiðslu sjómanna á dög-
unum, var kveðið á um 10% hækk-
un. Samningstími er til 31. ágúst
eða sama tíma og samningarnir
um bátakjörin. Þá verður* vænt-
anlega skipuð 5 — 7 manna nefnd
á næstunni til að fjalla um fækk-
un á stóru togurunum. Sáttanefnd
hefur ritað forsætisráðherra bréf
þar sem farið er fram á, að stjórn-
völd hlutist til um skipan þeirrar
nefndar.
97 sjómenn tóku þátt í atkvæða-
greiðslunni um sáttatillöguna á
laugardag og sunnudag, en 211
voru á kjörskrá. 55 sögðu já en 42
sögðu nei. Þátttaka í atkvæða-
greiðslunni verður að teljast góð
ef tillit er tekið til þess, að margir
skipverjar á stóru togurunum
höfðu leitað sér að vinnu við önnur
störf þrátt fyrir verkfall og verk-
bann. Á fundi útgerðarmanna á
sunnudag var sáttatillagan einnig
samþykkt.
TILLÖGUR kjörnefndar um skipan
framboðslista Sjálfstæðisflokksins í
Keykjavík fyrir komandi borgar-
stjórnarkosningar verða lagðar fyrir
fund fulltrúaráðsins í Keykjavík til
samþykktar þriðjudagskvöldið 9.
febrúar nk.
Kjörnefndin er að ljúka störfum
þessa dagana. Fundur fulltrúa-
ráðsins verður haldinn í Súlnasal,
Hótel Sögu.