Morgunblaðið - 02.02.1982, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982
3
Sjálfstæðismenn
á Akureyri:
Gísli Jónsson
efstur í forvali
innan fulltrúa-
ráðs
GÍSLI Jónsson menntaskólakennari
varð efstur í skoðanakönnun, sem
fram fór í fullt rúaráði sjálf-
stæðisfélaganna á Akureyri um helg-
ina, sem haldið var til undirbúnings
prófkjöri flokksins í lok febrúar. Að
sögn Guðmundar H. Frímannsson-
ar, formanns uppstillingarnefndar,
var þátttaka í forvalinu eða skoðana-
könnuninni góð, og tóku þátt í henni
um 80% allra fulltrúaráðsfélaga.
Flest atkvæði hlaut sem fyrr
segir Gísli Jónsson, eða 86. I öðru
sæti varð Sigurður J. Sigurðsson
með 72 atkv., þá Bergljót Rafnar
með 70 atkv., Björn Jósef Arnvið-
arson hlaut 59, Sigurður Hannes-
son 49, Guðfinna Thorlacius 44,
Stefán Sigtryggsson 41, og átt-
unda varð Nanna Þórsdóttir með
36 atkvæði.
Guðmundur Frímannsson sagði
að ákveðið hefði verið að gefa ekki
atkvæði fleiri upp að sinni a.m.k.,
en þessi komu næst að atkvæða-
magni, í þessari röð: Gunnar
Ragnars, Margrét Kristinsdóttir,
Karólína Guðmundsdóttir, Jón G.
Sólnes, Þórunn Sigurbjörnsdóttir,
Gunnar Jónsson og Bjarni Árna-
son.
Kosning fór þannig fram, að
kjósendur rituðu nöfn þeirra, er
þeir óskuðu að tækju þátt í próf-
kjörinu, á kjörseðilinn, nöfn 5 til 8
manna og kvenna. Á endanlegum
prófkjörsseðli kvað Guðmundur
væntanlega verða 20 nöfn. Yrði nú
farið í að ræða við þá er efstir
urðu í skoðanakönnuninni, og ef
þeir gæfu kost á sér í prófkjörið,
myndu væntanlega 20 efstu verða
þar í framboði.
Prófkjör sjálfstæðismanna á
Akureyri vegna vals á framboðs-
listann við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar í vor fer svo fram síðustu
helgina í febrúar, að sögn Guð-
mundar, og verður það opið öllum
stuðningsmönnum Sjálfstæðis-
flokksins er kosningarétt hafa í
kosningunum í vor, og þeim félög-
um í sjálfstæðisfélögunum, sem
eru á aldrinum 16 til 19 ára.
Prófkjörin í Reykjavík:
5917 kusu hjá
Sjálfstæðis-
flokknum, um
1300 hjá Fram-
sókn og 401
hjá Alþ.bl.
ÞKIR stjórnmálaflokkanna hafa nú
haldið prófkjör í Reykjavík vegna
borgarstjórnarkosninganna, sem fram
fara í lok maí í vor. Það eru Sjálfstæð-
isflokkur, Kramsóknarflokkur og Al-
þýðubandalag, og prófkjör, er í undir
búningi hjá Alþýðuflokknum. Öll þau
prófkjör sem þegar hafa verið haldin,
hafa aðeins verið opin flokksbundnu
fólki, það er flokksbundnum sjálf-
stæðis-, framsóknar og alþýðubanda-
lagsmönnum. Prófkjör Alþýðuflokks-
ins verður á hinn bóginn opið öllum
stuðningsmönnum flokksins, 18 ára og
eldri.
I prófkjöri Sjálfstæðisflokksins,
sem fram fór síðustu helgi nóv-
embermánaðar, kusu 5917 manns. í
prófkjöri Framsóknarflokksins, sem
haldið var fyrir röskri viku, kusu
tæplega 1300 manns, og í prófkkjöri
eða „forvali" Alþýðubandalagsins nú
um helgina, kaus 401 alþýðubanda-
lagsmaður. í borgarstjórnarkosning-
unum 1978 hlaut Sjálfstæðisflokkur-
inn 7 menn kjörna, Framsóknar-
flokkurinn einn og Alþýðubandalag-
ið fimm. Alþýðuflokkur fékk tvo
menn kjörna.
verzlunum
samtímis
Austurstræti
Laugavegi
Glæsibæ *
Ath.
15°/
afslattur af
nýjum jakka-
fötum meöan
á útsölu
stendur.
i mikiö ^
íingana hjá
útsalan sem * hala ba»
únstendursemhæst.
Allt nýjar
ognýlegar vörur.
't&frKARNABÆR
laugaveg. 6C — Glafs.b* . - Aus* tfst' r*. «\
r S.m. frá shipt.bo'ö'850bí> __
arfe
Greifahúsmu.
Austurstræti 22.
Austurstræt. 22 Sim. frá sh.pt.borö. 85055
Uugmgi Ml SM M aklplMI (
Látið ekki happ úr hendi sleppa