Morgunblaðið - 02.02.1982, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRUAR 1982
15
Skákþing Reykjavíkur:
Sævar efstur
um, að tími og starfsorka skyldi
verða afgangs til þátttöku í þjóð-
málum og öðrum félagsmálum, en
svo hefur orðið í ríkum mæli.
Aður var minnst á þátttöku
hans í stjórnmálum. Af öðrum fé-
lagsstörfum ber hæst formennska
hans i Bandalagi starfsmanna
ríkis og bæja í 8 ár, frá 1948 til
1956. Ekki lítið hlutverk til viðbót-
ar öllu öðru, sem hann hafði á
sinni könnu! Hann var í stjórn
Dansk-islenska félagsins 1945—
'56 og síðasta árið formaður þess.
Þá var félagið á erfiðum tímamót-
um og auðvitað var það Ólafur
Björnsson, sem af skylduhvöt
einni tók að sér formennsku í fé-
laginu að sinni. Hann var í stjórn
Félags hagfræðinga í nokkur ár og
mjög virkur þátttakandi í umræð-
um á fundum þess. Ýmis önnur
félagssamtök hafa notið starfs-
krafta hans.
Af framan sögðu er ljóst, að
geysimikil aukastörf hafa hlaðist
á Ölaf. Víst er, að eins hlédrægur
og tilætlunarlaus og hann er að
eðlisfari hefur hann ekki, nema
síður sé, sóst eftir opinberum
trúnaðarstörfum og félagsstörf-
um. Hér hygg ég það hafa verið að
verki, að vegna jákvæðs eðlis og af
skylduhvöt vill hann koma til
móts við óskir þeirra, sem til hans
leita. Asókn á hendur honum til að
fá hann til trúnaðarstarfa hefur
verið mjög mikil, og ekki aðeins
frá skoðunarbræðrum í stjórn-
málum, því að hann nýtur trausts
allra, sem til hans þekkja. Fæstir
hefðu komist með hreinan skjöld
frá þeirri starfsbyrði, sem hvílt
hefur á Ólafi, en ótrúlegt starfs-
þrek hans og góð heilsa hafa séð
fyrir því, að honum hefur auðnast
að rækja öll störf sín með sóma.
Fáum — jafnvel ekki nánum
samstarfsmönnum Ólafs — er
kunn þátttaka hans í hinni svo
kölluðu lögskilnaðarhreyfingu
1942—’44, og er því ekki úr vegi að
geta hennar hér. Lögskilnaðar-
menn börðust fyir því, að sýnd
yrði varfærni og tillitssemi í með-
ferð sambandsmálsins og staðið
við ákvæði sambandslagasamn-
ingsins frá 1918. Vorið 1942 mörk-
uðu nokkrir valdamiklir stjórn-
málamenn þá stefnu, að gengið
skyldi sem allra fyrst frá sam-
bandsslitum við Dani á þeim
grundvelli, að þeir hefðu vanefnt
sambandslagasamninginn. Gylfi
Þ. Gíslason varð fyrstur til að
andmæla þessum áformum á
opinberum vettvangi — í skeleggu
útvarpserindi um daginn og veg-
inn sumarið 1942. Ólafur var mjög
mótfallinn þessari stefnu í sam-
bandsmálinu, og í nokkurra daga
sumarleyfi okkar austur á Kirkju-
bæjarklaustri sumarið 1942 rædd-
um við, að frumkvæði hans, mögu-
leika á að gera eitthvað í málinu.
Við vissum um marga áhrifa-
menn, sem töldu þessa meðferð
sambandsmálsins mikið óráð, en
þeir voru ófúsir á að ganga fram
fyrir skjöldu og lítið samband var
milli þeirra. Til þess að koma á
móthreyfingu þurftu einhverjir að
taka að sér að vera tengiliður milli
þessara manna, er síðan tækju
ákvarðanir um athafnir.
Niðurstaða okkar Ólafs varð sú,
að við ákváðum að hefjast handa.
Þegar eftir heimkomu úr leyfi fór-
um við á fund margra líklegra
skoðunarbræðra, sem flestir tóku
erindi okkar vel. Allmargir menn
voru í kjarna þessarar hreyfingar
í upphafi, en þar voru fremstir í
flokki þeir séra Bjarni Jónsson, dr.
Sigurður Nordal, Vilmundur Jóns-
son landlæknir og Þorsteinn
Þorsteinsson hagstofustjóri.
Akveðið var að hefja þá þegar
söfnun undirskrifta áhrifamanna
undir áskorun til Alþingis um, að
sambandsslitum yrði frestað til
stríðsloka. Undir þessa áskorun
skrifaði 61 maður í Reykjavík, úr
öllum stjórnmálaflokkum, og með-
al þeirra voru margir þjóðkunnir
menn. Af sérstökum ástæðum var
áskorunin ekki send Alþingi, held-
ur afhent Ólafi Thors forsætis-
ráðherra 24. ágúst 1942. Saga
þessarar hreyfingar, sem stóð í
rúmt 1 'Æ ár og var sérstæð á ýms-
an hátt, verður ekki rakin hér, en
nú á merkisdegi Ólafs Björnsson-
ar má það koma fram, að hann
átti meginþátt í því, að stofnað
var til hennar, og að hann var þar
í fremstu víglínu uns yfir lauk.
Ólafur hefur verið frjálshyggju-
maður allar götur síðan á háskóla-
árum sínum. Ég man, að hann tal-
aði oft um skoðanir austurríska
prófessorsins Ludwig von Mises,
sem hann hafði miklar mætur á.
Ég hef alltaf borið virðingu fyrir
skoðunum Ólafs um þessi efni.
Það er hans hjartans sannfæring,
að frelsi fólksins og efnahagslegri
farsæld almennings sé best borgið
með því að takmarka mjög ríkis-
afskipti og gera ráðstafanir til, að
frjáls markaðsverðmyndun sé ráð-
andi þáttur í uppbyggingu hag-
kerfisins. Frjálshyggja er ómeng-
uð hugsjón hans; sérhagsmuna-
áhrif koma þar hvergi nærri. —
Eins og verðugt er heiðrar Félag
frjálshyggjumanna Ólaf sjötugan
með útgáfu afmælisrits, með
mörgum ritgerðum hans. Dr. Guð-
mundur Magnússon háskólarektor
skrifar formála að ritgerðasafni
þessu.
Gifta hefur fylgt Ólafi í einka-
lífi hans. Heilsugóður hefur hann
verið alla ævi — heita má, að hon-
um hafi ekki orðið misdægurt í
hálfa öld. Hjónaband hans hefur
verið einstaklega heillaríkt. Kona
hans er Guðrún Aradóttir, kenn-
ara á Þórshöfn á Langanesi, Jó-
hannessonar og konu hans Asu
Aðalmundardóttur. Þau gengu í
hjónaband árið 1943. Guðrún er
manni sínum traust og dygg stoð,
hjartagóð kona, gestrisin húsmóð-
ir, listhneigð og félagslynd. Má
með sanni segja, að hún umvefji
heimili þeirra Ólafs glaðværð og
hlýju. Guðrún er í föðurætt komin
af Reykjahlíðarætt og Laxamýr-
arætt. Móðir Guðrúnar er á 10.
aldurstug og við sæmilega heilsu.
Guðrún og Ólafur eiga þrjá
syni, sérlega efnilega menn: Ari
Helgi, í Trollháttan í Svíþjóð,
skurðlæknir við sjúkrahús í
Viiersborg og jafnframt í fram-
haldsnámi. Kona hans er Þorbjörg
Þórisdóttir hjúkrunarfræðingur
og eiga þau 2 börn. Björn Gunnar,
þjóðfélagsfræðingur, kvæntur
Helgu Finnsdóttur og eiga þau 2
börn. Hann starfar hjá Fram-
kvæmdastofnun ríkisins. Yngsti
sonurinn, Jónas, hefur próf frá
Háskóla Islands í sálarfræði og
heimspeki. Hann er ókvæntur.
Auk fyrr nefndrar bókar Félags
frjálshyggjumanna, gangast sam-
kennarar Ólafs í viðskiptadeild
Háskólans og nokkrir aðrir
starfsbræður hans fyrir útgáfu af-
mælisrits honum til heiðurs. Kem-
ur það í hefti af Fjármálatíðind-
um, sem er sérstaklega helgað
honum. Verða þar birtar ritgerðir
um hagfræðileg efni o.fl., eftir þá,
sem að útgáfunni standa.
Frá nánum persónulegum kynn-
um okkar Ólafs á ég margs að
minnast og mikið að þakka. Ég hef
metið hann því meir sem ég hef
kynnst honum betur. Aldrei hefur
borið skugga á samskipti okkar. I
sambandi við efnahagsaðgerðir
1950, sem Ólafur vann að eins og
fyrr segir, áttum við í allhörðum
deilum fyrir opnum tjöldum. Það
hafði engin áhrif á persónulegt
samband okkar, og var það honum
að þakka fremur en mér. Ég man
ekki eftir að hafa séð Ólaf reiðan,
en honum getur hitnað í hamsi í
orðræðum um mál, sem hann ber
fyrir brjósti. Ólafur er hreinskipt-
inn maður, óspar á að láta skoðan-
ir sínar í ljós, og heldur fast við
grundvallarsjónarmið sín. Samt
held ég, að hann eigi fáa eða enga
óvildarmenn, og er það fátítt fyrir
mann, sem hefur haft eins mikil
opinber umsvif og hann.
ÓLafur fær á þessu ári lausn frá
embætti fyrir aldurs sakir, eins og
sagt er, en það er ekki sama og að
hann setjist í helgan stein. Því er
engan veginn tímabært að gera nú
heildarúttekt á lífsstarfi hans.
Andleg og líkamleg orka hans er
óskert, og engin þreytumerki sjást
á honum, þó að hann eigi að baki
langan og strangan vinnudag. Full
ástæða er til að ætla, að hann eigi
enn eftir að vinna mörg og merk
störf á áhugasviðum sínum. Á
sjötugsafmæli hans flyt ég honum
hugheilar óskir um, að svo megi
verða, og árna honum og fjöl-
skyldu hans allra heilla.
...... Kiemens, Tryggvason
Prófessor Ólafur Björnsson er
sjötugur í dag. Hann er sá kennari
í Háskóla Islands sem lengstan
starfsaldur hefur. Hann varð
kennari í viðskipta- og lagadeild
1941. Áður kenndi hann við Við-
skiptaháskólann eða frá 1939 þar
til kennslan fluttist í háskólann.
Dósent varð Óiafur 1942 og síðan
prófessor að sex árum liðnum.
Hefur hann gegnt því starfi óslitið
síðan. Ólafur Björnsson hefur
ásamt prófessor Gylfa Þ. Gísla-
syni mótað hagfræðimenntun í
landinu.
Það er athyglisvert að mjög fáir
íslendingar öfluðu sér menntunar
í þjóðhagfræði erlendis frá 1940
og fram undir 1960. Ólafur hefur
því verið meðal brautryðjanda í
hagfræðinámi. Hann hefur komið
mikið við sögu íslenskra efna-
hagsmála sem rithöfundur, þing-
maður, ráðgjafi og kennari. Hann
hefur verið einn einarðasti mál-
svari frjálshyggjunnar hér á landi
og hefur átt mikinn þátt í að auka
skilning alls almennings á frjálsri
verslun og skaðræði opinberra af-
skipta af neyslu og framleiðslu.
Því miður hafa ekki nógu margir
stjórnmálamenn gengið í skóla
hjá prófessor Ólafi, annaðhvort í
háskólanum eða á Alþingi, þar
sem hann tók sig stundum til og
hélt fyrirlestra þegar honum
blöskraði vanþekkingin á efna-
hagsmálum.
Það er enginn tilviljun að skrif
Ólafs hafa verið rifjuð upp á síð-
ustu árum af frjálshyggjumönn-
um. Hann gerði sér snemma grein
fyrir því að allar forsendur um
skynsamt ríkisvald og forsjá fyrir
einstaklingum að því marki sem
gerist í barnaheimili, leiða í
ógöngur. Þar hefur hann átt sam-
stöðu með Hayek og sennilega orð-
ið fyrir miklum áhrifum frá hon-
um.
Stærstu ritverk Ólafs eru:
Þjóðarbúskapur íslendinga 1952
og Frjálshyggja og alræðishyggja
1978, en auk þeirra má nefna Hag-
fræði 1951, Haftastefnu eða kjara-
bótastefnu 1953 og Sögu íslands-
banka og Útvegsbanka íslands
1981. Þá gefur Félag frjálshyggju-
manna út greinasafn eftir hann í
tilefni afmælisins. Hvet ég bæði
nemendur í hagfræði og stjórn-
málamenn til að lesa þessar grein-
ar.
Ritið Þjóðarbúskapur íslendinga
fyllti í miklar þekkingareyður um
landshagi. Er skortur á kennslu-
bók í íslenskri haglýsingu sem
tæki við þar sem bók Ólafs sleppir.
Ólafur man tímana tvenna og
hefur sagt mér ýmislegt úr há-
skólalífinu, en hann þekkir skól-
ann af eigin raun frá því um það
leyti er aðalbygging háskólans var
vígð 1940. Ólafur hefur t.d. sagt
mér frá því, að fyrsta veturinn leit
ekki út fyrir að unnt væri að
kenna í skólanum þar sem ekki
var nægilegt fé til að standa
straum af kyndikostnaði. Þetta
bjargaðist með því að Bretar gáfu
kol til upphitunar hússins. (Senni-
lega var þetta vel við hæfi þar sem
þeir höfðu hreiðrað um sig á
Gamla Garði.) Þetta þættu tíðindi
nú.
Mér hefur reynst Ólafur einkar
traustur maður og sanngjarn,
bæði í viðskiptadeild og háskóla-
ráði. Hann gegndi reyndar rekt-
orsstörfum um hríð árið 1973, þeg-
ar prófessor Magnús Már Lárus-
son baðst lausnar.
Um manninn sjálfan og hin
margvíslegustu störf Ólafs önnur
en í Háskóla íslands og á fræða-
sviðinu er fjallað ítarlega af öðr-
um hér í blaðinu í dag.
Fyrir hönd viðskiptadeildar og
Háskóla íslands alls sendi ég
heillaóskir í tilefni sjötugsafmæl-
isins til prófessors Ölafs Björns-
sonar, konu hans, frú Guðrúnar
Aradóttur og fjölskyldu þeirra.
Við hjónin sendum þeim einnig
innilegar afmælisóskir og erum
þakklát fyrir alla þá hlýju sem
þau hafa veitt okkur.
Guðmundur Magnússon
Sjá grein Hannesar H. Gissurar
sonar, „Kinstaklingsfrelsi og hag-
skipulag ", á bls 34.
SÆVAR Bjarnason hefur forustu á
Skákþingi Reykjavíkur þegar ein
umferð er eftir, hefur hlotið 8'/2 vinn-
ing að loknum 10 umferðum. Sævar
vann Benedikt Jónasson í 10. um-
ferð á meðan helsti andstæðingur
hans, Margeir Pétursson, gerði jafn-
tefli við Ililmar Karlsson, en áður
hafði Margeir unnið sex skákir í röð.
SÁTTASEMJARI ríkisins, Guðlaug-
ur Þorvaldsson, hélt í gær fund á
ísafirði með fulltrúum Alþýðusam-
bands Vestfjarða og Félagi vinnu-
veitenda. Á fundinum var faiið yfir
drög að samkomulagi aðila og mið-
aði nokkuð, en annar fundur verður
Margeir hefur hlotið 8 vinninga,
en Róbert Harðarson, sem veru-
lega hefur komið á óvart, er í þrið-
ja sæti með 7Vfe vinning; vann Dan
Hansson í 10. umferð. Síðasta um-
ferð verður tefld á morgun. Þá
teflir Sævar við Ingimar Hall-
dórsson og Margeir við Benedikt
Jónasson.
haldinn í dag. Vinnuveitendur á
Vestfjörðum hafa undanfarið greitt
samkvæmt þeim samningi, sem ASÍ
gerði við VSÍ og Vinnumálasam-
handið í haust. ASV er ekki aðili að
þeim samningi og hefur neitað slík-
um samningi.
r,
___^-1982-
GÓÐU
MYNDIRNAR
ÞÍNAR EIGA STÆKKUN
SKILIÐ, KOMDU MEÐ KODAK
FILMUNAl FRAMKÖLLUN
OG NÝTTU ÞÉR
STÆKKUNARTILBOÐIÐ
HfíNS PETERSEN HF
TRYGGÐU GÆÐIN -TAKTÁ KODAK
KNUD MUMKHOIM ApS
7M
Bflamálarar -
Bflaeigendur
Höfum opnaö verzlun aö
Funahöföa 8. Seljum hin
þekktu vestur-þýzku bíla-
lökk og undirefni frá Spies
Heeker.
Frá KM í Álaborg, bón 7 — 9 — 13 á
vinyl, tjöruhreinsir, lásaolía, bletta-
vatn, í rúöupiss, vaxleysir fyrir nýja
bíla, afrafmögnunarefni.
Nýkomnar sendingar.
Bílamálun Funahöfða 8,
umboös- og heildverzlun,
sími 85930.
Drög að samningi rædd á ísafirði