Morgunblaðið - 02.02.1982, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982
19
Mörg hundruð ung-
menni í átökum við
lögregluna í Gdansk
14 slasast og 250 handteknir. Herlögin hert í borginni
Vín, 1. febrúar. Al*.
PÓLSKA herstjórnin herti
mjög á herlögunum í hafnar
borginni Gdansk í gær,
sunnudag, deginum eftir að
Læðzt í lög-
regluskáp
í London
London, I. febrúar. AIV
HEIMUR versnandi fer, sagði
talsmaður deildar innan Lund-
únalögreglunnar, er hann
skýrði frá því, að nú væri svo
illa komið að hirzlur lögregl-
unnar væru ekki öruggar fyrir
bófum lengur: einhver spássér
aði inn á skrifstofu lögreglunn-
ar á Viktoríustöðinni í London,
lauk þar upp rammgerðum pen-
ingaskáp, eins og ekkert væri,
og hafði á brott með sér um sjö
þúsund sterlingspund í reiðufé
og 250 þús. pund í ferðatékk-
um.
Þetta mun hafa gerzt fyrir
nokkrum dögum, en illkvittn-
ir blaðamenn segja að ekki
hafi komizt upp um þjófnað-
inn fyrr en nú um helgina.
Aðrar heimildir telja að lög-
reglan hafi ekki verið teljandi
áfjáð í að þetta spyrðist út.
þar kom til mikilla átaka
milli mörg hundruð mótmæl-
enda og lögreglunnar. M.a.
hefur notkun einkabíla verið
bönnuð og einnig íþróttamót,
skemmtanir og aðrar sam-
komur almennings.
Erfiðlega hefur gengið að fá
nákvæmar fréttir af átökunum í
Gdansk enda er erlendum frétta-
mönnum í Póllandi ekki leyft að
fara út úr Varsjárborg. Að sögn
PAP-fréttastofunnar pólsku voru
það einkum háskólastúdentar og
annað ungt fólk, sem tók þátt í
óeirðunum og réðst að ýmsum
opinberum byggingum. Sagt var,
að 14 manns hefðu slasast, þar af
átta lögreglumenn, og að 250 hafi
verið handteknir. PAP sagði, að
unga fólkið hefði verið „undir
áhrifum af áróðri Bandaríkja-
stjórnar".
í kjölfar óeirðanna í Gdansk var
í gær hert mjög á herlögunum í
borginni. Skemmtisamkomur af
öllu tagi og íþróttamót hafa verið
bönnuð, einkasímar eru óvirkir,
notkun einkabifreiða er bönnuð og
enn betur er nú fylgst með ferðum
fólks en áður. Orðrómur er einnig
á kreiki um, að skipasmíðastöðv-
unum í Gdansk verði lokað og þær
ekki opnaðar fyrr en ljóst er hver
verða viðbrögð fólks við verð-
hækkunum, sem ganga í gildi í
dag, mánudag, en þar er um að
ræða allt að fjór- eða fimmföldun
á verði ýmissa vörutegunda.
Þrettán fórust
í snjóflóði
Salzburg, I. febrúar. Al*.
TÍU þýzkir námsmenn og þrír kennarar þeirra fórust í snjóflóði í grennd við
Salzburg um helgina, og tókst björgunarmönnum að finna síðasta líkið í
morgun. Fimm komust lífs af, þegar mikil snjódyngja losnaði og skall á
skíðamönnunum. Þegar spurðist um snjóflóðið fóru 140 björgunarmenn á
staðinn og segir í fréttum, að þeir hafi unnið mikið og gott starf við erfiðar
aðstæður. Farið var að skyggja er slysið varð og varð að lýsa svæðið upp með
sérstökum kyndlum og flóðljósum.
Leitin hófst er einn námsmann-
anna, 16 ára að aldri, komst upp
úr snjódyngjunni og til byggða.
Vont veður var þegar nemendurn-
ir og kennarar þeirra héldu í
skíðaferðina og þykir sæta nokk-
urri furðu að kennararnir skuli
ekki hafa sýnt meiri varfærni.
Tókst svo að bjarga fjórum nem-
endum og einum kennara, en hann
iézt svo skömmu síðar.
Leikarinn Max von Sydow í sjónvarpsþættinum um Pólland — merki Samstöðu í baksýn
Þáttur Reagans hlaut
dræmar undirtektir
U ashinglrtn, I. febrúar. Al*.
BANDARÍSKI sjónvarpsþátturinn,
Iæt l’oland be Poland, sem sýndur
var víða um heim á sunnudag og
var ætlað að sýna samstöðu hins
frjálsa heims með baráttu Sam-
stöðu í Póllandi hlaut dræmar und-
irtektir þeirra er hann sáu.
Ber fjölmiðlum víða um heim
saman um að þátturinn hafi lítinn
tilgang haft, auk þess að vera ákaf-
lega ófrumlegur. Aðeins um helm-
ingur þeirra þjóða, sem áttu þess
kost að sjá þáttinn, kaus að sjón-
varpa honum og þykir það sýna
áhugann öðru fremur.
Hér fer á eftir skeyti frá Önnu
Bjarnadóttur, fréttaritara Mbl. í
Washington:
Hugmyndin að baki bandaríska
sjónvarpsþáttarins Let Poland be
Poland, sem var sjónvarpað á
sunnudag, var að sýna samstöðu
hins frjálsa heims með baráttu
Samstöðu í Póllandi og vanþókn-
un hans á kúgun hervaldsins.
Þjóðarleiðtogar, listamenn og
skemmtikraftar voru fengnir til
að koma fram og tjá sig um
ástandið í Póllandi en í undirbún-
ingi var þátturinn kallaður:
„Stórfenglegasti sjónvarpsþátt-
urinn í sögu veraldar."
Hugmyndina að þættinum átti
Charles Z. Wick yfirmaður upp-
lýsingaþjónustu Bandaríkjanna
en Voice of America sá um gerð
þáttarins. Hugmyndin var gagn-
rýnd harðlega í síðustu viku og
óttuðust margir að of mikill
Hollywood-bragur yrði á þættin-
um til að hann yrði tekinn alvar-
lega.
Aðeins 29 þjóðir af 54, sem
hefðu getað sýnt þáttinn beint,
kusu að gera það. Og í dag segir
sjónvarpsgagnrýnandi Washing-
- fjölmiðlar í V-Evrópu
lítt hrifnir og kaldar
kveðjur úr austan-
tjaldslöndunum
ton Post: „Þátturinn gaf Banda-
ríkjamönnum tækifæri til að sjá í
hvað skattpeningum þeirra er
eytt, en trúlega leiddist þeim sem
horfðu á þáttinn svo mjög að þeir
nenntu ekki einu sinni að reið-
ast.“
Alls 15 þjóðarleiðtogar lásu
stutt ávörp, þar á meðal Gunnar
Thoroddsen og Kare Willoch en
forsætisráðherra Danmerkur,
Hollands og Grikklands af
NATO-löndunum kusu að koma
ekki fram. Glenda Jackson kynnti
mótmælafundi, Kirk Douglas
sagði frá heimskókn sinni til
Póllands fyrir 10 árum og Frank
Sinatra sagði nokkur orð og lagið
Homeward Ever Homeward, sem
hann söng á Pólsku fyrir mörgum
árum ,var leikið.
Þátturinn var settur saman í
New York úr aðsendum filmum.
Ekkert í honum var ferskt og fátt
kom á óvart. Grafíkmyndir af lífi
í Póllandi, sem sýndar voru í
byrjun þáttarins, á meðan fv.
sendiherra Póllands í Bandaríkj-
unum sagði sögu landsins í stuttu
máli, voru áhrifaríkar. í lok þátt-
arins var fróðlegt að heyra Henry
Fonda lesa það sem Engels hafði
að segja um sjálfstæði Póllands á
síðustu öld.
Óttinn við að þátturinn yrði of
léttúðugur var óþarfur. Hann var
90 mínútna langur og kannski að
„dálítið meiri Hollywood-
ósmekkvísi hefði í reynd getað
hjálpað" svo vitnað sé í Wash-
ington Post. Eða eins og einn af
hörðustu gagnrýnendum hug-
myndarinnar að þættinum sagði
eftir að hann sá hann: „Ég býst
við að hann hefði getað verið
verri." Svo margir þjóðarleiðtog-
ar hafa aldrei fyrr komið fram í
sama sjónvarpsþættinum, það
segir þó nokkuð um vanþóknun
hins frjálsa heims á hervaldinu í
Póllandi.
Viðbrögð í V-Evrópu
Fjölmiðlar á Bretlandseyjum
voru harðorðir í garð aðstand-
enda þáttarins. T.d. sýndi breska
sjónvarpið, BBC, aðeins einnar
mínútu útdrátt úr þættinum og
þótti auðsjáanlega lítið til hans
koma.
The London Daily Mail lýsti
þættinum sem „heimshneyksli"
og í Times mátti lesa að hann
hefði verið „næstum eins leiðin-
legur og austur-evrópsk áróð-
ursmynd." A forsíðu blaðsins
sagði, að þrátt fyrir góðan hug að
baki flestra ummælanna í þætt-
inum hefði hann verið lítið fyrir
augað.
I Sviss var talið að einungis 1%
sjónvarpsáhorfenda hafi séð
þáttinn og hann litla hrifningu
vakið. í Hollandi var hluti þáttar-
ins sýndur og einstaka stöðvar í
V-Þýskalandi sýndu úr honum.
Vidbrögð í A-Evrópu
Eins og við var að búast vakti
þáttur þessi litla hrifningu í aust-
antjaldslöndunum. Tass-frétta-
stofan í Sovétríkjunum lét þess
getið að þetta hefði verið
„ómerkileg sýning í anda Holly-
wood“. Varsjárútvarpið lýsti
þættinum, sem „gróflegri íhlutun
í málefni Pólverja." Aðstoðar-
utanríkisráðherra Póllands, Jozef
Wiejacz, lýsti honum sem dæmi
um „slæman smekk Bandaríkja-
manna“.
gott færi — oftast — gott veður
SKIÐAFERÐIR
Akureyri — Húsavík — ísafjörður frá tveggja til fimm nátta gistingu
AKUREYRI:
Helgarferöir Útsýnar til Akureyrar bjóöa upp á fyllsta frelsi því þeim fylgir bíll til eigin afnota og er hann búinn skíöagrind á þaki.
Þaö er því haegt aö skreppa upp í hin góöu skíðalönd í Hlíöarfjalli, eöa hina frábaeru upplýstu síöagöngubraut fram í „Kjarna",
hvenaer sem hugurinn girnist án þess aö vera háö áaetlunarbílum.
Auk þess seljum viö 3ja til 5 nátta skíöaferöir án bíls.
Allir Útsýnarfarþegar fá gistingu á hóteli i baenum meöan dvalist er á Akureyri.
Þaö er fagurt í skíðalöndum Akureyringa. Meö Útsýn á skíöi á Akureyri. Brun — svig — ganga.
HÚSAVÍK:
Þingeyingar láta ekki deigan síga. Viö Husavík er afbragös skíöaaöstaöa, góöar lyftur, skemmtilegar brekkur, frábærlega vel
troönar skiöagöngubrautir í hlaövarpanum.
Þriggja til fimm nátta dvöl á Hótel Húsavík, nýju gistihúsi miösvæöis.
Þaö er hressandi aö vera á skíöum meö Þingeyingum. Með Útsýn á skíöi viö Húsavík. Brun — svig — ganga.
ÍSAFJÖRÐUR:
ísfiröingar eiga og hafa átt marga skíöagarpa, þaö ætti aö mæla meö skiöalöndum
þeirra. Nú er komiö upp nýtt og gott gistihús þar, Hótel isafjörður og Útsýnarfarþegar
í skíöaferð á ísafirði dveljast þar. Þaö er því „ekki í kot vísaö“.
Meö Útsýn í skíöaferö til ísafjaröar. Svig — brun — ganga. Útsýn velur vel fyrir sína.
Skíðaferðir um páska eru þegar orðnar eftirspurðar, dragið
ekki að panta skíðaferðina um páskana til:
AKUREYRAR — HÚSAVÍKUR — ÍSAFJARÐAR
Feröaskrifstofan
ÚTSÝN
Austurstræti 17.
Sími (91) 26611.