Morgunblaðið - 02.02.1982, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982
25
r
i á gamla góða daga. Ólafur hefur nú sett stefnuna á tslandsmeistaratitilinn með lið
IJósm. Ka\.
in að siqri Þróttai
vellinum; Ólafur Benediktsson varði
eins og berserkur í marki þeirra,
vörnin var traust. Varnarleikur FH
riðlaðist og markvarzlan í molum.
Þróttur breytti stöðunni úr 14—13 í
21—14 á 13. mínútna kafla og úrslit
voru ráðin. Mestur varð munurinn
átta mörk, 23—15 og lokastaðan
26—20. Öruggur sigur Þróttar í
höfn.
Þróttur lék mjög vel í síðari hálf-
leik. Markvarzla Óiafs Benedikts-
sonar frábær, varnarleikurinn
sterkur og sóknarleikurinn beittur.
Þar voru i aðalhlutverki Sigurður
Sveinsson og Páil Ólafsson. Þróttar-
ar beittu nokkuð sérkennilegri takt-
ik í síðari hálfleik. Ólafur H. Jóns-
son hafði það hlutverk eitt að losa
um Sigurð Sveinsson, þannig tóku
þeir mann úr spilinu til að losa um
stórskyttuna. Þetta gaf góða raun.
ekki aðeins skoraði Sigurður
grimmt, heldur olli hann slíkum
usla í vörn FH að losnaði um aðra
leikmenn, einkum Ólaf H. Jónsson á
línunni.
Með sömu baráttu, sömu mark-
vörzlu, er engum vafa undirorpið að
Þróttur hefur á að skipa meistara-
kjarna. Að vísu vantar enn breidd í
liðið, það kom berlega í ljós í upp-
hafi leiksins, þegar Páll Ólafsson
var nánast einn um að halda
merkinu á lofti; sá eini sem gat
ógnað og skorað.
Lið FH lék framan af eins og
meistaralið, en þegar á móti blés
þoldu hinir ungu leikmenn ekki
spennuna, mótstöðuna og leikur
liðsins hrundi. En í liði FH eru
margir efnilegir leikmenn. Þar ber
Þróttur — FH
26—20
fyrst að nefna Kristján Arason, en
einnig Hans Guðmundsson, Óttar
Matthiesen, Valgarð Valgarðsson og
Pálma Jónsson. Sæmundur Stef-
ánsson var og drjúgur og liðinu
styrkur. Veikleiki FH er markvarzl-
an; en það er engum vafa undirorpið
að FH hefur á að skipa geysilega
efnilegu liði, því efnilegasta sem
fram hefur komið um langt skeið í
íslenzkum handknattleik. Strákarn-
ir hans Geirs þurfa nú að brúa bilið
milli þess að vera efnilegir og verða
beztir. Hvort þeim tekst það í vetur
á eftir að koma á daginn.
Leikinn dæmdu Karl Jóhannsson
og Björn Kristjánsson og fórst þeim
það mjög vel úr hendi og engum
vafa undirorpið að þeir eru okkar
beztu dómarar.
Mörk Þróttar skoruðu: Páll
Ólafsson 7, Sigurður Sveinsson, 7, 1
víti, Ólafur H. Jónsson 5, Gunnar
Gunnarsson 4, Jens Jensson 2 og
Jón Viðar Sigurðsson 1. Mörk FH
skoruðu: Kristján Arason 5, 2 víti,
Pálmi Jónsson 4, Hans Guðmunds-
son, Sæmundur Stefánsson, og Guð-
mundur Magnússon 3 hver, Björg-
vin Guðmundsson og Finnur Arna-
son 1 mark hvor.
H. Halls.
inn leikinn fyrir ÞróttM
verið til að dreifa í vetur. En með
þessum skell komast þeir niður á
jörðina. Finna að þeir verða að
leggja sig alla fram til að ná ár-
angri."
— Nú eru þrjú félög efst og jöfn á
toppi 1. deildar, Víkingur, Þróttur
og FH og KR skammt undan.
Hverja telur þú möguleika ein-
stakra liða?
„Ég held, að ef FH leikur eins og
liðið hefur leikið í vetur, þá eigi liðið
góða möguleika á sigri í 1. deild.
Liðið er ungt og mjög efnilegt, en
strákarnir verða að átta sig á því,
að þeir verða að vinna saman sem
ein heild ef árangur á að nást, en
ekki leika eins og sjö einstaklingar.
Staða okkar er nokkuð sterk, við
eigum eftir að leika við Val og Vík-
ing i Hafnarfirði. Heimavöllurinn
er okkur mikils virði og kann að
reynast okkur drjúgur.
Hitt er svo, að leikmenn Víkings
hafa mesta leikreynsluna, mestu
„rútínuna" og það fleytir liðinu
langt. Þróttur er óútreiknanlegt lið,
getur leikið mjög vel einn daginn,
en afleitlega næsta dag. En ef Ólaf-
ur Benediktsson ver eins og hann
gerði á móti okkur, þá fara þeir
langt með mótið. KR er óskrifað
blað og ekki má afskrifa þá.“
— Nú hefur FH á að skipa ungu
liði og strákarnir þínir sýndu fram-
an al leiknum mjög góðan hand-
knattleik; að þar fer efni í stórlið í
íslenskum handknattleik.
„Já — þeir eiga framtíðina fyrir
sér. Ég hef verið með þetta lið í 3 ár
og meðalaldur liðsins er eitthvað
um 20 ár. Kjarnann skipa strákar
sem hafa sigrað í gegn um alla
yngri flokkana. Þeir vita hvað þarf
til að sigra, en það er munur á að
vera í efsta sæti 1. deildar. Þeir
þurfa að brúa bilið milli þess að
vera efnilegir og bestir. Kannski eru
þeir of ungir enn, kannski þola þeir
ekki spennuna.
En ég er sammála þér, að þetta
lið getur orðið næsta stórlið í ís-
lenskum handknattleik og ef til vill
var það bara gott að fá ærlegan
skell, það kemur þeim niður á jörð-
ina,“ sagði Geir Hallsteinssi.H. Halls.
Sigurmark Fram kom á
síðustu sekúndu leiksins
FRAM gerði sér lítið fyrir og sigraði Val í 1. deild íslandsmótsins í hand-
knattleik á sunnudagskvöld með einu marki, 17—16. Það var Ilermann
Björnsson sem skoraði sigurmark Fram á síðustu sekúndu leiksins. Iler
mann fór laglega innúr horninu og skoraði fallega. En ekki voru menn á eitt
sáttir hvort markið hefði verið löglegt. Fram fékk aukakast og framkvæmdi
það strax og greinilega innan punktalínunnar, ekki á réttum stað. En slakir
dómarar leiksins gerðu enga athugasemd og dæmdu markið gilt. Þar náði lið
Fram sér í tvö dýrmæt stig í hinni hörðu fallbaráttu 1. deildar.
Fram — Valur
17—16
Slakur fyrri hálfleikur
Fyrri hálfleikur var mjög slakur
hjá liðunum. Valsmenn höfðu öllu
betur og voru allan fyrri hálfleik-
inn með forystu. Þegar 15. mínút-
ur voru búnar af leiknum var stað-
an 5—3, og í hálfleik hafði Valur 4
marka forskot, 11—7. Var oft
hreint ótrúlegt hversu illa leik-
mönnum Fram gekk að skora í
fyrri hálfleiknum.
Fram sneri dæminu við
Það var alveg greinilegt á leik-
mönnum Fram í síðari hálfleikn-
um að þeir ætluðu sér að berjast
betur, en í þeim fyrri. Mun meiri
kraftur var í leik þeirra og vel var
tekið á í vörninni. En það sem
gerði gæfumuninn var að í markið
kom ungur leikmaður, Arnór
Biltved, og varði hann mjög vel.
Þegar síðari hálfleikur var hálfn-
aður hafði Fram tekist að jafna
metin, 13—13.
Valsmenn náðu þó aftur tveggja
marka forystu með laglegum
mörkum Steindórs Gunnarssonar.
Dagur Jónasson í liði Fram náði
svo að jafna metin, 15—15, á 52.
mínútu leiksins. Síðustu átta mín-
útur leiksins var hart barist og
varla mátti á milli sjá hvort liðið
ætlaði að hafa það.
Hannes Leifsson kom Fram yfir
á 57. mínútu er hann skoraði með
góðu skoti. Fyrrum Framari nú
Valsmaður, Theódór Guðfinnsson,
jafnaði metin fyrir Val, 16—16, á
58. mínútu.
Leikmenn Fram héldu svo bolt-
anum síðustu tvær mínútur leiks-
ins. Þeim gekk mjög illa að finna
smugu í vörn Vals og það var ekki
fyrr en á síðustu sekúndu leiksins
að Hermann fór inn úr horninu og
skoraði fallega. Hermann átti góð-
• Hannes Leifsson skoraði falleg
mörk fyrir Fram gegn Val.
an leik í liði Fram og skoraði mik-
ilvæg mörk.
Liðin
Bestu menn í liði Fram voru
þeir Hannes Leifsson, Hermann
Björnsson og markvörðurinn ungi
Arnór Biltved. Lið Fram lék þenn-
an leik alls ekki vel og þarf að gera
enn betur ef það ætlar að halda
sæti sínu í 1. deild. Leikur liðsins
er of oft sveiflukenndur og það var
ekki fyrr en um miðjan síðari
hálfleik sem virkileg barátta kom
í leikmenn liðsins en þá fóru hlut-
irnir líka fyrst að ganga.
Lið Valsmanna var með ólíkind-
um ráðleysislegt í síðari hálfleikn-
um gegn Fram. Þar var enginn
einn leikmaður sem gat tekið af
skarið. Það hefði þótt saga til
næsta bæjar fyrir tveimur árum
að liðið sem lék til úrslita í Evr-
ópukeppni meistaraliða væri kom-
ið í fallhættu í 1. deild eftir svo
skamman tíma. Skástu menn Vals
voru þeir Steindór Gunnarsson og
Theódór Guðfinnsson. En í heild
kom alveg ótrúlega lítið út úr leik
liðsins. Leikmenn virka þungir og
stirðbusalegir þegar þeir eru að
reyna að framkvæma leikkerfi
liðsins og ekkert einstaklings-
framtak lítur dagsins ljós.
I stuttu máli: Islandsmótið 1.
deild, Laugardalshöll.
Fram—Valur 17—16 (7—11).
Mörk Fram:
Hannes Leifsson 4, Hermann
Björnsson 3, Jón Á. Rúnarsson 2,
Dagur Jónsson 2, Egill Jóhanns-
son 2, Agnar Sigurðsson 1, Gauti
Grétarsson 1, Björn Eiríksson 1.
Mörk Vals:
Theódór Guðfinnsson 4, Steindór
Gunnarsson 3, Þorbjörn Jensson 3,
Brynjar Harðarson 2 (lv.), Friðrik
Jóhannesson 1, Gunnar Lúðvíks-
son 1, Jón P. Jónsson 1, Þorbjörn
Guðmundsson 1.
Brottvísanir af velli:
Steindór Gunnarsson tvívegis í 2
mínútur. Þorbjörn Jensson 2 mín-
útur og Jakob Sigurðsson 2 mín.
Ekkert vítakast fór forgörðum.
Dómarar voru þeir Árni Sverr-
isson og Gunnar Jónsson og var
dómgæsla þeirra afar slök.
— ÞR.
„Þetta voru dýrmæt stig“
ÞETTA voru dýrmæt stig okkur til
handa sagði fyrirliði Fram, Jón Árni
Rúnarsson eftir leikinn. — Það er
hörð fallbarátta framundan og því
hvert stig mikilvægt. Leikur okkar
við KA getur ráðið úrslitum um
hvort við sleppum við fall eða ekki.
Það verða fjögur jöfn lið sem berjast
STAÐAN
í 1. deild
karla
STAÐAN í 1. deild íslandsmótsins í
handknattleik er nú sem hér segir:
Víkingur 8 602 176:145 12
Þróttur 8 602 181:157 12
FH 8 6 0 2 201:185 12
KR 8 503 171:165 10
Valur 8 305 158:160 6
HK 8 2 1 5 125:146 5
Fram 8 2 1 5 159:187 5
KA 8 1 07 147:178 2
Næsti leikur í 1. deild karla fer
fram miðvikudaginn 3. feb. kl. 20.00
í Laugardalshöllinni. Þá leika Fram
og Víkingur.
um fallið, HK, Fram, KA, og Valur.
— Það er að sjálfsögðu takmark
okkar að halda sæti okkar í I.
deild. En ég vil engu spá um hvort
það tekst. Það er hörð barátta
framundan. Við verðum að gera
meira en að taka stig af botnliðun-
um. Við erum greinilega eitthvað
STAÐAN
í 2. deild
karla
Haukar — Breiðablik 19—19.
Staðan í 2. deild handknattleiksins
er nú þessi:
ÍR 9 7 0 2 169—154 14
Stjarnan 10 6 1 3 211—205 13
Þór 9 5 1 3 182—178 11
llaukar 9 4 2 3 197—178 10
Týr 10 4 0 6 225—234 8
UMFA 8 2 3 3 167-173 7
UBK 9 2 3 4 170—176 7
Fylkir 10 1 2 7 192—225 4
Næsti leikur fer fram föstudaginn
5. febr. Þá leika UMFA — l>ór að
Varmá og Stjarnan gegn Haukum í
Ásgarði.
að rétta úr kútnum eftir slaka
frammistöðu. Strákarnir eru farn-
ir að skilja það að þeir þurfa að
berjast fyrir stigunum sagði þjálf-
ari Fram, hinn kunni handknatt-
leiksmaður Björgvin Björgvins-
son.
- ÞR.
STAÐAN
Úrslit í 3. deildar leikjum karla í
íslandsmótinu í handknattleik um
síðustu helgi urðu þessi:
Grótta — Selfoss 26-18
Keflavík - — Daivík 23—19
Reynir — Dalvík 19—26
Ögri — Ármann 16—44
Að þessum leikjum loknum er
staðan í 3. deild sem hér segir:
Armann 19 9 1 2 314:213 19
Grótta 11 8 1 2 288:213 17
Akranes 12 8 1 3 354:242 17
Þór Ak. 10 8 1 1 269:216 17
Keflavík 10 7 0 3 247:184 14
Reynir S. 11 3 1 7 254:283 7
Dalvík 12 3 0 9 271:307 6
Selfoss 9 2 1 6 165:212 5
Ögri 12 2 0 10 212:382 4
Skallagr. 7 0 0 7 100:222 0
Samkvæmt mótaskrá HSÍ eiga
næstu leikir í 3. deild karla að fara
fram 5. feb. Þá leika ÍA og Grótta á
Akranesi og Þór Ak og Ögri mætast
fyrir norðan.