Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982 3 5
að hann hefur haft meiri tíma til
að skrifa en ella!
Frjálshyggja Ólafs
Ritgerðunum 21 er í bókinni
skipt í fjóra hluta. Einn er um
hagfræði, annar um hagsögu, ann-
ar um stjórnmál og annar um ein-
staka menn, og hefur í þessari
grein ekki veirð minnst á nema
örfáar ritgerðanna. Sama stefið er
þó kveðið í þeim flestum með ýms-
um tilbrigðum. Það er, að ein-
staklingarnir eigi að hafa fullt
frelsi til að velja markmið sín og
keppa að þeim sjálfir, en aðrir eigi
ekki að neyða þá til að keppa að
sínum markmiðum. Rétta leiðin
að þessu mikla takmarki, frið-
samlegu samlífi frjálsra einstakl-
inga, og reyndar hin eina, sem
ekki sé ófær, sé leið séreignar,
samkeppni og atvinnufrelsis.
Frjálshyggja Ólafs er ekki pen-
ingahyggja og nytjahyggja, hann
styður ekki markaðskerfið vegna
þess, að velmegun verði í því meiri
og almennari en í miðstjórnar-
kerfi (þó að svo sé reyndar og það
sé æskilegt), heldur vegna þess, að
það sé eina hagskipulagið, sem
einstaklingarnir geti notið þess
frelsis í, sem hann aðhyllist.
Frjálshyggja Ólafs er skoðun hins
víðsýna, efagjarna húmanista,
sem veit, að hann veit ekki allt
fremur en neinn annar og getur
því ekki stjórnað öllu. Þennan
húmanista hylla íslendingar á sjö-
tíu ára afmæli hans í von um, að
hann eigi enn eftir að skrifa
margt um áhugamál sín.
ísafjörður:
Hótel Mánakaffi heitir nú Hótel Hamrabær
Ilótel Mánakaffi heitir nú Hótel Hamrabær og það rekur nú Úlfar Ágústsson
á ísafirði.
BREYTINGAR hafa nú orðið á
rekstri Hótels Mánakaffis á ísafirði
og heitjr það nú Hótel Hamrabær.
Illfar Ágústsson verslunarmaður á
ísafirði hefur tekið húsnæðið á leigu
til tveggja ára og hyggst reka þar
hótel. Mbl. ræddi nýverið við Úlfar
og lýsti hann ástæðum þess að hann
réðist í þennan rekstur:
— Ástæðurnar eru eiginlega
tvær, í fyrsta lagi sú að í tengslum
við verslun mína, Hamraborg,
hugði ég á að stækka eldhús til
samloku- og hamborgaragerðar og
var því að svipast um eftir hús-
næði. Hins vegar hefi ég lengi haft
áhuga á ferðamálum og langað að
þreifa mig áfram á þeim markaði.
Stóðst ég því ekki mátið þegar eig-
andinn bauð mér hótelið til leigu
og gerðum við leigusamning til
tveggja ára.
Ertu þá að fara í samkeppni við
Hótel ísafjörð hið nýja?
— Hugmynd mín með þessu er
ekki fyrst og fremst sú að keppa
við Hótel ísafjörð heldur vil ég
reyna að auka ferðamannastraum
og markað á ísafirði og í öðru lagi
vil ég geta boðið ísfirðingum og
öðrum upp á að njóta veitinga að
degi eða kvöldi, í skyndi og með
sjálfsafgreiðslu eða að kvöldi í ró-
legheitum í sérstökum sal þar sem
yrði þjónað til borðs. En Hótel
Isafjörður vinnur á svipuðum
markaði og Hótel Hamrabær og
því er enginn vafi á samkeppni, en
ég tel að hún ætti að vera báðum
til góðs. Hótel þrífast varla án
samkeppni frekar en annar at-
vinnuvegur.
Mót sportbáta-
félaga í sumar?
— Kannski má segja að ekki sé
brýn þörf fyrir tvö hótel, en ég tel
að ekki sé vandi að skapa báðum
þessum fyrirtækjum rekstrar-
grundvöll. Ég hef t.d. þegar rætt
við forráðamenn bátafélagsins
Sæfara og kynnt þeim þá hug-
mynd mína að efna í júní til báta-
keppni, þar sem keppa mætti í
siglingum hvers konar, á sjóskíð-
um o.fl., og áhugi er einnig fyrir
að halda sjóstangaveiðimót á svip-
uðum tíma. Þetta er ein hugmynd-
in til að auka umsvifin og í vetur
má búast við einhverri umferð
skíðafólks.
Og í veitingarekstrinum geri ég
ráð fyrir að bjóða t.d. mánaðar-
lega upp á sérstaka dagskrá, t.d.
tískusýningar, eða að fá listamenn
til að koma fram, við mununi
drekka þarna sólarkaffi og borða
þorramat og tel é^g mig því hafa
ýmislegt að bjóða ísfirðingum sem
öðrum, sagði Úlfar Ágústsson.
Hótel Hamrabær var opnaö
laugardaginn 16. janúar, en í
fyrstunni verður aðeins veitinga
aðstaðan opin:
— Ég er að vinna að lagfæring-
um á herbergjum og geri því ekki
ráð fyrir að sjálft hótelið verði
opnað fyrr en kringum miðjan
febrúar. Þá er ég einnig að láta
teikna nýjar innréttingar í veit-
ingasalina og vinnur að því Jón
Kaldal arkitekt. Alls eru herberg-
in 8 og ætla ég að taka inn mest 15
gesti auk barna.
Hótel hefur verið rekið í húsi
þessu frá 1945, segir Úlfar, þegar
frú Hasler hóf þar veitingarekstur
og síðar tók sonur hennar við.
Hann seldi það síðan Bernharði
Hjaltalín og af honum leigir Úlfar
húsnæðið. Húsið sjálft var byggt
fyrir aldamót og var það áður bú-
staður sýslumanns. Bjó Hannes
Hafstein í því um aldamótin.