Morgunblaðið - 02.02.1982, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982
37
Minning:
Jónas Jónsson
frá Brekknakoti
kennarana, sem í gær voru með
henni í leik og starfi, en sjá hana
ekki framar.
íris Sigmarsdóttir var ljúf
stúlka og góð, geðþekk bæði nem-
endum og kennurum og hvers
manns hugljúfi. Foreldrum henn-
ar og öðrum aðstandendum sendi
ég innilegustu samúðarkveðjur frá
okkur öllum í Menntaskólanum í
Reykjavík.
Guðni Guðmundsson
Kveðja frá vinkonum
„Knginn tími, enginn stadur
enginn hlutur dauda ver.
Bú þig hédan burt, ó, madur,
hraularlengd þú eigi sér.
Vera má, að vegferð sú
verði skemmri en ætlar þú.
Kskan jafnt sem ellin skundar
eina leið til banastundar.*'
(Björn llalldórsson)
Iris er dáin. Sá hörmulegi at-
burður átti sér stað aðfaranótt 26.
janúar að ein úr okkar vinahópi
lést í bílslysi.
Við höfum þekkt írisi í nokkur
ár bæði í Skólahljómsveit Kópa-
vogs og í gegnum skóla. Iris var
alltaf sérstök á sinn hátt. Það
sýndi sig ætíð hversu mikils hún
mat réttlæti og hafði alltaf
ástæðu til að gleðjast eða hryggj-
ast með þeim sem ástæðu höfðu
til. Tónlistin skipaði vissan sess í
lífi hennar. Mjög lengi hafði hún
starfað með Skólahljómsveit
Kópavogs og í gagnfræðaskóla var
hún í hljómsveit skólans og spilaði
hún á þverflautu.
Okkur er það mjög minnisstætt
eitt sinn er kór og hljómsveit skól-
ans voru á æfingu, þá uppgötvaði
stjórnandinn okkar að hún gat
éinnig sungið vel.
Það sem var helst einkennandi í
fari írisar, var hversu snýrtileg
hún var alltaf og bar umhyggju
fyrir útliti sínu og klæðaburði.
Fyrir tæpum tveimur árum
kynntist hún Guðmundi Rafni
Guðmundssyni, og hafa þau verið
óaðskiljanleg síðan. Þau áttu
margt sameiginlegt þar sem hann
er í þann veginn að ljúka námi í
píanóleik, og hefur einnig verið fé-
lagi í Skólahljómsveit Kópavogs.
Þau voru eins og sköpuð fyrir
hvort annað. Það er því ekki hægt
að gera sér í hugarlund hversu
mikill missir þetta hefur verið
fyrir hann eins og hennar nán-
ustu.
Okkar vinkona og skólasystir
Iris, er horfin yfir móðuna miklu
langt fyrir aldur fram. „Þeir sem
guðirnir elska deyja ungir." Með
þakklæti í huga kveðjum við kæra
vinkonu.
Við biðjum unnusta hennar og
fjölskyldu styrks í þungum raun-
um og blessunar Guðs alla
ókomna daga.
Blessuð sé minning hennar.
Mrafnhildur, Elfa I)ís og Erla.
Hún kom eins og sólargeisli inn
í líf okkar. Falleg, kát og fínleg
með kastaníubrúnt hár, blá augu
og heillandi bros. Stundum svolít-
ið hlédræg og feimin en umfram
allt kvenleg, gædd fjöri og yndis-
þokka æskunnar. Öllum leið vel í
návist hennar.
Hún var yngsta barn og auga-
steinn foreldra sinna, Sigmars
Grétars Jónssonar og Gróu Sig-
fúsdóttur, og var ein eftir heima
enda aðeins sautján ára og enn í
skóla. Systur hennar, Halla og
Brynhildur, sem hún var í miklu
dálæti hjá, höfðu stofnað eigið
heimili.
Framtíðin blasti við henni björt
og fögur, en ástina hafði hún
fundið með syni okkar Guðmundi
Rafni. Með honum gerði hún
glæstar áætlanir í nútíð og fram-
tíð, en þau voru mjög samhent og
lík að eðlisfari. Bæði stunduðu
hljómlistarnám auk hefðbundins
skólanáms, spiluðu í hljómsveit-
um og iðkuðu íþróttir. Öllum
stundum voru þau saman, þegar
skólinn eða önnur störf kölluðu
ekki. Náin vinátta þróaðist milli
þeirra og Oskars, yngir sonar
okkar.
Mánudagskvöldið var eins og
mörg önnur. Þau íris og Guð-
mundur Rafn litu inn til okkar áð-
ur en þau færu heim til hennar að
sofa. Rætt var um daginn og veg-
inn, brosað og hlegið. En þá um
nóttina hvarf sólargeislinn okkar
allra, að minnsta kosti um sinn.
Án þess að gera boð á undan sér.
Hörmulegt slys varð á leiðinni
heim. Okkur vanmáttugum mönn-
unum sýnist röð tilviljana hafa
ráðið ferðinni. Ung stúlka í blóma
lífsins er að því er virðist í algjöru
tilgangsleysi hrifinn burt frá þeim
sem elska hana og hún vissulega
elskaði líka.
Vegir drottins eru órannsakan-
legir og lífið er ráðgáta, sem seint
eða aldrei verður skilin. Það eina
sem varir er trúin. Við trúum að
Guð hafi kallað hana til sín veitt
henni elsku sína og ætli henni
hlutverk á æðri vegum. Hjá hon-
um munum við hitta hana, þegar
kall sérhvers okkar kemur.
Á skilnaðarstundu ástvinanna
Irisar og Guðmundar Rafns, áður
en yfir lauk, hijómaði af tilviljun
lag og ljóð, sem henni var kærara
en flest önnur. Það er fjallað um
hverfulleik og tilgangsleysi efnis-
legra gæða og hins vegar mikil-
vægi vináttunar, ástarinnar. Síð-
asta erindið er þannig:
,.1‘aú er komin vetrartíð meó veður köld ojj slríð
ég stend við gluj;gann, myrkið streymir inn í
huj»a minn
þá Hnn ég hlýja hönd, sál mína lifnar við
eins og jurt sem stóð í skugga en hefur aftur litið
Ijós í vetrarsól/*
Slýsið varð, það dimmdi yfir, en
hlýja höndin kom og leiddi hana
inn í ljósið sem við öll leitum.
Megi almáttugur Guð styrkja
foreldra, unnusta og systur henn-
ar og annað venslafólk og ástvini í
þeirra miklu sorg. Guð blessi
minningu góðrar stúlku, írisar
Sigmarsdóttur.
Svava og Guðmundur
Orð frá engu lýst þeim mikla
harmi, sem nú grúfir yfir þeim
stóra ástvinahópi, er að baki
henni stóð. Hún er horfin sjónum
okkar elskuleg íris og hefur kvatt
okkur um sinn, því Guð, hinn
hæsti höfuðsmiður himins og
jarðar, hefur kallað hana á sinn
fund.
En því er svo yndisleg stúlka,
sem alltaf hafði hug og hjarta
fyrir allt og alla, kölluð svo
skyndilega með svo sviplegum
hætti á braut? Sagt er; að þeir
deyi ungir, sem guðirnir elski. Við
leitum alltaf að skýringum, það er
okkar eðli. Það er nú svo, að þeir,
sem kveðja þennan heim ungir,
eru oftast búnir öllum þeim kost-
um, sem annars tekur nær alla
ævi að þroska með sér. Þannig var
því farið með mágkonu mína og
vin, írisi. Hún hafði mikinn
þroska til að bera og stafaði jafn-
an af henni þessi undursamlega
gleði og hlýja, sem svo mjög ein-
kenndi hana. Allir sem nutu sam-
neytis við hana, þann stutta tíma,
sem hún dvaldi meðal okkar, öðl-
uðust vináttu hennar. Alltaf, þar
sem hún var nærri, fann maður til
ólýsanlegs öryggis Hún var sem
hugur manns. Já, hún var hvers
manns hugljúfi og allir viidu eiga
eitthvað í henni. Því er það svo
stingandi sárt að vita öll þau
áform og áætlanir um lífið og
framtíðina, sem hún og unnusti
hennar höfðu gert með sér, verða
ekki að veruleika. Draumarnir um
líf hennar og framtíð meðal okkar
hafa breyst. En allir ástvinir
hennar, sem voru ófáir, munu
varðveita minningu hennar og
lífsgleði.
Góður Guð gefðu foreldrum
hennar, unnusta og systrum allan
þann styrk og þann kraft, sem
fyrirfinnst í almætti þínu, til að
axla þá byrði, sem lögð hefur verið
á herðar og hugi þeirra.
„IK*yr fé,
dt vja frændr,
dt*yr sjalfr i*( sama.
Kn oróstírr
deyr aldrigi,
hveims sér góóan gt*lr.‘‘
Og nú þegar hún íris mín er
horfin yfir hina miklu móðu, þar
sem hún mun bíða og u’ndirbúa
samfundi okkar, bið ég góðan Guð,
að gæta hennar og geyma.
Einlægur vinur Guðmundur.
Elsku íris mín er farin. Ég skil
ekki nú, en kannski geri ég það
seinna, hvers vegna hún er farin
frá mér. Mamma og pabbi segja
mér, að hún sé flutt til Guðs og
eigi heima hjá Honum núna. Þau
hjálpa mér í bænum mínum, að
biðja Jesú að varðveita hana og
geyma.
Guð blessi og geymi elsku bestu
frænku mína.
Litli frændi Grétar Örn.
Í dag, 2. febrúar, kveðjum við
hinstu kveðju vinkonu okkar írisi,
en hún var ein af okkur í Horna-
flokki Kópavogs.
Fyrstu kynni okkar af írisi voru
þau að hljómsveitin fór í Hljóm-
leikaferð til Norðurlanda sumarið
1973. Var íris fánaberi í þeirri
ferð. Móðir hennar, Gróa Sigfús-
dóttir, hjúkrunarkona, var farar-
stjóri hjá okkur þá, sem og í fleiri
ferðum.
Ári síðar byrjaði íris að spila á
flautu, þá 10 ára gömul, og var
einnig tambúrmær síðastliðin ár.
Félagslíf hefur ætíð verið mikið
og gott í hljómsveitinni og má það
meðal annars rekja til þeirra
ferða sem við höfum farið, bæði
innan lands og utan. Hafa því
skapast náin tengsl milli okkar.
Slysin gera aldrei boð á undan
sér. Það er því mikið áfall þegar
ein okkar er hrifin burt í blóma
lífsins.
Það er erfitt að sætta sig við að
Iris mæti ekki aftur á æfingu,
þessi hýra og káta stúlka sem átti
hug og hjörtu okkar allra. Aldrei
sáum við hana skipta skapi, en
alltaf lék bros á vörum hennar.
Sumarið 1980 fórum við í
hljómleikaferð til Svíþjóðar og
Finnlands. Þar hófst vinskapur
með Irisi og einum hljómsveitar-
félaga, Guðmundi Rafni Guð-
mundssyni, og varð sá vinskapur
innilegri eftir að heim kom. Voru
þau mjög samrýnt og glæsilegt
par sem átti framtíðina fyrir sér.
Minningin um fallegu og kátu
stúlkun munum við ætíð geyma í
hjörtum okkar.
Við berum Guðmundi, foreldr-
um Irisar, systrum og öðrum að-
standendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Hornaflokkur Kópavogs
Mig langar nokkrum orðum að
minnast kynningar minnar við
Jónas, því hann varð mér bæði
góður vinur og fyrirmynd og alltaf
þegar við hittumst fór ég hlýrri af
hans fundi. Hann var kennari hér
í Hólminum þegar ég kom hingað,
og hann var meira, hann var leið-
togi unglinganna og var með þeim
í leik og starfi og taldi aldrei þær
stundir eftir sem hann veitti til
góðra mála hér. Hann hvatti unga
sem aldna til fjallgöngu og
náttúruskoðana og marga göng-
una fór ég með honum hvernig
sem veður var, því Jónas lét aldrei
smámuni aftra sér. Hann kom hér
á dansæfingum, bæði voru æfðir
nýju og þó sérstaklega gömlu
dansarnir, var með í leiksýning-
um, taflklúbbi stýrði hann og
málfunda efndi hann til. Það voru
alltaf næg verkefni og kringum
Jónas var aldrei neinn doði eða
ládeyða. Ég var oft undrandi hve
miklu hann kom í framgang. Jón-
as var einlægur bindindismaður
og fyrirmynd. Hann vissi sem er
að svo er tekið mark á þeim sem
vísa veginn og þeir fari hann sjálf-
ir. Allt starf Jónasar hér mótaðist
af því að beina æskunni leið ha-
mingjunnar og hann fékk oft að
sjá góðan árangur og hvað ekki
síst þakklæti heimilanna sem
mátu starf hans og muna það enn
í dag. Marga ferðina man ég og
stundum var kappið ekki með for-
sjá svo sem þegar við í súld og
vondu veðri klifum Bjarnarhafn-
arfjall og þá til lítils því útsýni
var brostið þegar upp var komið,
en þá var að komast niður og oft
er það svo að hægara er að fara
upp en komast niður og ennþá dá-
ist ég að forystu hans í þokunni á
leið niður þótt hann væri lítt
kunnugri en við. I skólanum var
hann með börnunum og félagi
þeirra. Þessvegna var honum vel
ágengt í kennslunni. Og nú þegar
FÖSTUDAGINN 14. febrúar næst-
komandi boða Reykingavarnanefnd
og Vinnueftirlit ríkisins til umræðu-
og kynningarfundar um reykinga-
varnir á vinnustöðum. Fundurinn
verður haldinn í Kristalsal Hótels
Loftleiða og hefst kl. 14.00 og stend-
ur til 18.00.
Til fundarins er sérstaklega
boðið fulltrúum aðila vinnumark-
aðarins, opinberra stofnana, ým-
issa samtaka og fjölmiðla en öll-
um er heimill aðgangur að fundin-
um.
Á fundinum mun Þorkell Jó-
hannesson prófessor og formaður
eiturefnanefndar flytja erindi um
efnasamsetningu tóbaksreyks,
Sigurgeir Kjartansson læknir um
helstu sjúkdóma tengda reyking-
um og áhrif óbeinna reykinga og
dr. med. Hrafn V. Friðriksson um
reykingar og atvinnu. Ingimar
Jónas er horfinn af hérvistarsviði
heyri ég marga minnast hans
ágætu daga hér. Hann var aðeins
3 ár, en markaði meiri og sterkari
spor en margir sem hafa verið í
tugi ára. Ég sá mikið eftir Jónasi
héðan úr bæjarlífinu, enda sást
það strax á. Hverju bæjarfélagi er
það mikils virði að njóta þeirra
sem hafa áhuga og hugsa ekki um
hvað kemur í aðra hönd. Þeim
fækkar nú, því miður, og ef þessi
hugsunarháttur snýr ekki til baka
er voðinn vís.
Jónas var Þingeyingur. Hann
var rúmlega 80 ára er hann lést.
Andlegri reisn og gleði og hugar-
fari leiðbeininga og kærleika fékk
hann að halda. Seinast þegar ég
hitti hann var hann hinn sami.
Hafði ekkert breyst. Lífshugsjónir
hans eins. Barátta fyrir góðum
málum í fullu fjöri. Landið er ríkt
meðan það á marga slíka. Ég vil
að seinustu þakka góða samfvlgd.
Hún var mér mikils virði. Og þó að
hríði í heila öld harðsporarnir
sjást í snjónum. Guð blessi minn-
ingu góðs samferðarmanns.
Árni Helgason
Sigurðsson deildarlögfræðingur
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins, sem jafnframt er
formaður reykingavarnanefndar,
mun fjalla um lög og reglur um
takmörkun reykinga og skýra frá
undirbúningi nýs lagafrumvarps
um reykingavarnir sem unnið er
að um þessar mundir. Fjallað
verður um reykingavarnir á
vinnustöðum og mun Þorvarður
Örnólfsson framkvæmdastjóri
Krabbameinsfélags Reykjavíkur
flytja erindi um helstu úrræði í
þessum efnum en síðan verða
kynnt sjónarmið atvinnurekenda,
launþega og Vinnueftirlits ríkis-
ins. Ix)ks munu fara fram umræð-
ur í hópum og almennar umræður.
Fundarstjóri verður Haraldur
Steinþórsson varaformaður
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja.
Umræðufundur
um reykingavarn-
ir á vinnustöðum
Utsala* Útsala hjá verksmiðju ★ Utsala
Kvenbuxur — Pils — Blússur — Karlmanna- og barnabuxur o.fl. o.fl.
opiö 9-18. Geriö góö kauP. Verksm.salan
Skeifunni 13, suðurdyr.