Morgunblaðið - 02.02.1982, Síða 46

Morgunblaðið - 02.02.1982, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982 Henrik Lund flvtur fyrirlestur um Grænlendinga eins og þeir eru í dag við opnun Grænlandskynningarinnar í Norræna húsinu sl. laugardag. Hátíðahöld vegna 1000 ára landnáms norrænna manna á Grænlandi „Ég vil leggja áherslu á að hátídarhöldin á Grænlandi í sumar vegna 1000 ára land- náms norrænna manna þar veita okkur tæki- færi til ad treysta vin- áttubönd milli Islend- inga og Grænlendinga og undirbúa enn nánari tengsl milli þjóðanna í framtíðinni,“ sagði Henrik Lund bæjar stjóri í Julianeháb á fundi með blaða- mönnum. „Þjóðirnar búa mjög nálægt hvor annarri og auknar sam- göngur auðvelda sam- skipti milli þjóðanna í dag sem voru mun erf- iðari hér áður. Þjóðirnar þurfa margt að vita hvor um aðra, margir Islend- ingar búa reyndar yfir töluverðri þekkingu um Grænland og mikill áhugi er fyrir Islandi og íslenskri menningu meðal Grænlendinga.“ Henrik Lund átti frumkvæði að og er formaður undirbún- ingsnefndar þeirra hátíðar- halda sem Grænlendingar efna til dagana 2.-9. ágúst í sumar. A fundinum kom einnig fram að Norræna félagið mun standa fyrir Grænlandsferð í tilefni hátíðarhaldanna og verður lagt af stað 30. júlí og komið til baka 10. ágúst. Farið verður með tvær sýningar í tilefni hátíð- arhaldanna, sýningu um ís- lenska hestinn og handritasýn- ingu. Henrik Lund flutti fyrirlest- ur um Grænlendinga nútímans við opnun dagskrár í Norræna húsinu í tilefni 1000 ára minn- ingarhátíðarinnar á laugardag. Auk þess verða eftirtalin atriði á þessari dagskrá sem lýkur um miðjan maí: 4. febr.: Dr. Kristján Eldjárn flytur minningar frá sumar- dvöl á Grænlandi 1937, og segir frá uppgreftri miðalda- minja í Vestribyggð. 12. febr.: Prófessor, dr. Rolf Kjellström frá Svíþjóð fjallar um giftingarsiði eskimóa. 17. febr. Dr. Björn Þorsteins- son: Saga Grænlendinga. 25. febr. Steindór Steindórsson frá Hlöðum: Náttúra Græn- lands. 4. mars: Atvinnumál á Græn- landi: Menningar- og fræðslusamband alþýðu ann- ast dagskrána. 11. mars: Grænlenskar listir og bókmenntir, frásögn, sýning og upplestur. Herdís Vigfús- dóttir, Valtýr Pétursson, Ein- ar Bragi o.fl. 18. mars: Samskipti Grænlend- inga og annarra þjóða: Grænlenskur fyrirlesari. 25. mars: Haraldur Ólafsson, lektor: Grænlenska þjóðin og grænlenskt samfélag. Formleg samtök um kvenna- framboð í Reykjavík stofnuð STOFNUÐ hafa verið formleg samtök um kvennaframboð, sem bjóða munu fram til borgarstjórnar í Reykjavík í vor. Nefnast samtökin: Samtök um kvennaframboð — Kvennaframboðið. A stofnfundi samtakanna, sem haldinn var sunnudaginn 31. janúar að Hótel Borg komu saman um 300—400 manns, og gengu 150 konur formlega í samtökin, en alls hafa þau um 400 manns á skrá hjá sér. Að sögn talsmanna kvenna- starf hafa farið í að koma húsnæði framboðsins, þá er hér ekki um eiginleg stjórnmálasamtök að ræða enda samtökin ekki byggð upp sem slík, heldur starfa þau á grundvelli nefnda og starfshópa, sem fjalla um hin ýmsu mál. A vegum samtakanna starfa sjö aðal nefndir, en sjö manna fram- kvæmdanefnd hefur yfirumsjón með öllu starfi samtakanna og annast fjármál þeirra. Starfshóparnir fjalla um hin ýmsu málefni eins og atvinnumál, launamál, valddreifingu í borg- inni, uppeldismál, æskulýðsmál, húsnæðismál, skipulagsmál, fjár- mál borgarinnar, athvarf fyrir konur, heilbrigðismál, fyrirbyggj- andi heilsugæslu, öldrunarmál og menningarmál. Aðspurðar sögðu konurnar að svo virtist sem stofnfélagarnir væru á öllum aldri og úr hinum ýmsu atvinnustéttum þó mennta- konur væru fjölmennastar. Flest- ar hefðu konurnar ekki komið ná- lægt stjórnmálastörfum í þeim stjórnmálaflokkum sem hér starfa. En þó að konur gengju í samtökin um kvennaframboð, þá væri ekkert í lögum samtakanna, sem útilokaði þær frá því að vera félagar í stjórnmálasamtökunum. Þær kváðu einingu ríkja innan samtakanna en auðvitað hefðu menn skiptar skoðanir eins og gengur og gerist. Auk starfa í nefndum og mál- efnahópum, kváðu þær drjúgt því sem kvennaframboðið hefur til umráða að Hótel Vík í fundarhæft ástand. Þar hafa konurnar tvær hæðir til afnota. Kváðu þær mikla vinnu hafa farið í að hreinsa til og lagfæra húsnæðið og væri um sjálfboðavinnu að ræða og fjár- mögnunin í formi frjálsra fram- laga. Næstkomandi laugardag verður haldinn fyrsti félagsfundur sam- takanna og verður þá kosið í fram- kvæmdanefnd, fjáröflunarnefnd, kynningarnefnd, uppstillingar- nefnd, stefnuskrárnefnd, ritstjórn og hússtjórn. Þrjár fyrstu nefnd- irnar, sem hér voru upptaldar voru kosnar til bráðabirgða í nó- vember síðastliðnum en nú er komið að endurnýjun og tilfærsl- um að sögn forráðamannanna. Sögðu þeir, að ennþá væri verið að vinna að stefnuskrá í borgar- málefnum fyrir kosningarnar í vor en hennar væri að vænta fyrir lok febrúar. í kjölfar hennar kæmi svo framboðslisti samtakanna. Sögðu konurnar að gera mætti ráð fyrir að áður en uppstillinganefnd tæki ákvörðun þá myndi fara fram skoðanakönnun innan sam- takanna um væntanlega fram- bjóðendur á listanum. Aðspurðar kváðu þær kvenna- framboðið nú þegar hafa haft já- kvæðar afleiðingar eða síðan um- ræða um það hófst í haust. í fyrsta lagi hefði umræða um kon- ur og afskipti þeirra af stjórnmál- um aukist mjög og undanfarin prófkjör hefðu sýnt að konur ættu nú greiðari aðgang að öruggum sætum á flokkslistum en áður. Kvennaframboðið hefur opið hús alla virka daga frá klukkan 3—7 og flest kvöld meðan fundir standa yfir. Þá er ráðgert að halda fundi á laugardögum. Hefur verið sköpuð aðstaða fyrir börn uppi á annarri hæð Hótel Víkur, þar sem börnin geta leikið sér undir eftir- liti meðan mæðurnar funda. í húsnæði kvennaframboðsins að Hótel Vík, talið frá vinstri: Sólrún Gísladóttir, Sigríður Kristmundsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Elísabet Guðbjörnsdóttir, Guðrún Geirsdóttir. Hitaveita Reykjavíkur: Borun holunnar við Hátún lokið NÚ ER lokið borun holu Hitaveitu Reykjavíkur við Hátún og er nú unnið að hreinsun hennar. Ekki er enn Ijóst hvernig til hefur tekizt en talið er að holan geti gefið um 30 sekúndulítra af 130 gráða heitu vatni að minnsta kosti. Að sögn hitaveitustjóra, Jó- hannesar Zoega, hefur borunin tekið tæpa tvo mánuði, en hún hófst í byrjun desember. Borunin hefði gengið vel og holan væri 1.400 til 1.500 metrar á dýpt. Kostnað við borunina sagði hann vera hátt á fjórðu milljón króna. Nú væri ákveðið að næst yrði borað í Laugardal, en óvíst hven- ær. Það ylti á fjárhag Hitaveit- unnar, en hann væri mjög þröng- ur um þessar mundir og hefði verið undanfarin ár. Aðeins hefði verið boruð tæplega ein hola að meðaltali á ári frá 1977 og væri það of lítið og því hætt við vatnsskorti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.