Morgunblaðið - 02.02.1982, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982
47
Sýning á bókum um grænlensk málefni verður í bókasafni Norræna hússins
í tengslum við dagskrá vegna 1000 ára landnámsins.
1. apríl: Leifur Símonarson,
jarðfræðingur: Jarðfræði
Grænlands.
15. aprfl: Ólafur H. Óskarsson,
landfræðingur: Land og land-
hættir.
21. aprfl: Ólafur Halldórsson,
handritafræðingur: Græn-
lendingasaga.
29. aprfl: Hjálmar Ólafsson,
formaður Norræna félagsins:
Frá Austur-Grænlandi.
6. maí: Þegar kolanáman í
Qutdligssat var lögð niður.
Kvikmynd. Leikþáttur. Fé-
lagar í Alþýðuleikhúsinu
flytja þátt úr leikritinu
„Land mannanna".
13. maí: Söngvar frá landi
mannanna: Rasmus Lyberth
söngvari og myndskurðar-
maður sýnir myndir úr tálgu-
steini og flytur frumsamin
lög og texta.
Þessir fróðleiksþættir verða
allir haldnir í Norræna húsinu
og hefjast kl. 20.30. Stuttar
kvikmyndir verða einnig sýnd-
ar á þessum kvöldum og í bóka-
safni verður sýning á bókum
um grænlensk málefni. Þá mun
Benedikta Þorsteinsson kynna
og kenna nokkur orð í græn-
lensku í lok hvers þáttar.
Þeir aðilar, sem standa að
framkvæmdum í tilefni 1000
ára hátíðarinnar hér á landi,
eru: Alþýðuleikhúsið, Árbæj-
arsafn, Félag dönskukennara,
Grænlandsvinafélagið, Menn-
ingar- og fræðslusamband al-
þýðu, Námsflokkar Reykjavík-
ur, Norræna félagið og Nor-
ræna húsið.
Forval Alþýðubandalagsins:
Sigurjón Pétursson
efstur með 245 atkv.
SIGURJÓN Pétursson varð efstur í
forvali Alþýðubandalagsins í
Rcykjavík um helgina, vegna vals á
framboðslista flokksins við borgar
stjórnarkosningarnar í vor. Þátttaka
var um 60% af flokksbundnum al-
þýðubandalagsmönnum, og kaus
401 í forvalinu. Kosningin er ekki
bindandi, en kjörnefnd mun skila
tillögu að uppstillingu listans til full-
trúaráðs flokksins síðar í mánuðin-
um.
Sigurjón Pétursson hlaut 245
atkvæði í 1. sæti, en alls 341. Adda
Bára Sigfúsdóttir hlaut 224 atkv. í
1. og 2. sæti, alls 299. Guðrún
Helgadóttir varð þriðja með 151
atkv. í 1. til 3. sæti og með 298
atkv. alls. Guðrún Ágústsdóttir
hlaut 148 atkv. i 1. til 4. sæti, alls
286. í fimmta sæti hafnaði Guð-
mundur Þ. Jónsson með 175 atkv. í
1. til 5. sæti, en með 255 atkv. alls.
Þorbjörn Broddason hlaut 172
atkv. í 1. til 8. sæti og var með 247
alls. Ólöf Ríkharðsdóttir fékk 168
atkv. í 1. til 9. sæti og alls 184. í
tíunda sæti varð Tryggvi Þór
Aðalsteinsson með 177 atkv. í 1. til
10. sæti, og hann hlaut þar með
einnig 177 atkv. alls, en kjósendur
áttu að merkja við frambjóðendur
í númeraröð frá einum upp í tíu.
Alls voru 25 manns í framboði í
forvalinu að þessu sinni, og fengu
aðrir frambjóðendur færri at-
kvæði en þeir er að framan grein-
ir.
Fyrirlestur um mengun og
félagsleg áhrif stóriðju
í KVÖLl), þriðjudag kl. 20.30, held-
ur Karl Georg Höyer fyrirlestur í
Norræna húsinu um mengun og fé-
lagsleg áhrif stóriðju.
Karl Georg Höyer er lektor við
héraðsháskólann í Sogn- og Firða-
fylki í Noregi. Hann er verkfræð-
ingur að mennt og starfaði áður
við undirbúning og uppbyggingu
orkufreks iðnaðar í Noregi, en hef-
ur í seinni tíð^snúið sér að athug-
unum á félagslegri röskun, sem
stóriðja hefur haft í för með sér
þar í landi. Hann hefur í mörg ár
verið í orkunefnd norsku náttúru-
verndarsamtakanna.
Karl Georg kom hingað til lands
í boði Samtaka um náttúruvernd á
Norðurlandi (SUNN) og annarra
félagssamtaka þar og flutti erindi
á Akureyri á laugardag um sama
efni.
Mínar innilegustu þakkir flyt éy hinum mörgu vinum
oy vandamönnum sem komu til mín i tilefni áttatíu ára
afmælis míns, með hlý handtök oy yjafir.
Einniy hinum fjölmöryu sem sendu mér heillaóskir.
Éy bið ykkur öllum blessunar Guðs.
Stefán Stefánsson,
Holtsgötu 7,
Hafnarfirði.
Valdimar efetur í
Sjálfetæðisflokki
Sameiginlegt prófkjör á Akranesi:
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 43,4% atkvæða
SAMEIGINI.EGT prófkjör stjórn-
málaflokkanna á Akranesi var hald-
ið um helgina, og kusu samtals 1263,
en kosningaréttur var miðaður við
18 ára og eldri. Flest atkvæði hlaut
Sjálfstæðisflokkurinn, 548 talsins,
eða 43,4%. Framsóknarflokkurinn
hlaut 353 atkvæði, 27,9%. Alþýðu-
flokkur hlaut 227 atkvæði, 18,9%, og
Alþýðubandalagið hlaut 135 at-
kvæði, eða 10,7%.
Valdimar Indriðason varð efst-
ur í prófkjöri sjálfstæðismanna.
Hlaut hann 336 atkvæði í 1. sæti,
en samtals 485 atkv. eða 88,5%.
Guðjón Guðmundsson varð annar,
með 335 atkv. í 1. og 2. sæti, sam-
tals 476 eða 86,9%. Hörður Páls-
son varð 3. með 213 atkv. í 1. til 3.
sæti, með samtals 360 atkv. eða
65,7%. Ragnheiður Ólafsdóttir
varð 4. með 223 atkv. í 1. til 4. sæti,
samtals 306 atkv., 55,8%. Benedikt
Jónmundsson varð 5. með 236
atkv. í 1. til 5. sæti, en alls hlaut
hann 292 atkv. eða 53,3%. Guðrún
Víkingsdóttir varð sjötta með 230
atkv. í 1. til 6. sæti, alls með 276
atkv. eða 50,4%. Þórður Björg-
vinsson varð 7. með 221 atkv. í 1.
til 7., samtals með 249 eða 45,4%.
Guðjón Þórðarson varð 8. með 166
atkv. í 1. til 8., samtals hlaut hann
191 atkv. eða 33,0%, og í 9. sæti
varð Rún Elva Oddsdóttir með 180
atkvæði eða 32,8%.
Kosning þriggja efstu, Valdi-
mars, Guðjóns og Harðar, er bind-
andi fyrir uppstillinganefnd.
Hjá Framsóknarflokki varð Jón
Sveinsson efstur, hlaut 191 at-
kvæði í 1. sæti en samtals 305
atkv. Ingibjörg Pálmadóttir varð í
2. sæti með 218 atkv. í 1,—2. en
alls með 307 atkv. Steinunn Sig-
urðardóttir varð 3. með 140 atkv. í
1. til 3. en alls með 221. Andrés
Ólafsson hlaut 150 atkv. í 1. til 4.
en samtals 210. I 5. sæti varð Bent
Jónsson með 142 atkv. í 1. til 5.
sæti, samtals með 185 atkv. Stefán
L. Pálsson varð 6. með 130 atkv. í
1. til 6., samtals 166 atkv. Þor-
steinn Ragnarsson hlaut 109 atkv.
í 1. til 7. sæti, samtals 139. Guðrún
Jóhannsdóttir varð 8. með 123
atkv. en hlaut 136 alls, og Björn
Kjartansson varð 9. með 102 at-
kvæði.
Hjá Alþýðuflokknum varð Guð-
mundur Vésteinsson efstur. Hann
hlaut 87 atkv. í 1. sæti, 49 í annað,
13 í þriðja og 6 í fjórða, en samtals
174 í 1. til 9. sæti. í öðru sæti varð
Ríkharður Jónsson, hann hlaut 62
atkv. í fyrsta sæti, 20 í annað, 27 í
þriðja og 10 í fjórða, en samtals
139 atkv. Rannveig Edda Hálfdán-
ardóttir varð í 3. sæti. Hún hlaut
20 atkv. í 1. sæti, 56 atkv. í 2., 37 í
3. og 18 atkvæði í 4. sæti. og sam-
tals 148 atkv. I fjórða sæti hjá Al-
þýðuflokknum varð Haukur Ár-
mannsson, hann hlaut 19 atkv. í 1.
sæti, 26 í 2., 31 í 3. sæti og 17 atkv.
í 4. sæti, en samtals 119 atkv. í
fyrsta til níunda sæti.
Engilbert Guðmundsson varð
efstur í prófkjöri Alþýðubanda-
lagsins. Hann hlaut 78 atkvæði í 1.
sæti, en samtals 115 í 1. til 9. sæti.
Ragnheiður Þorgrímsdóttir varð í
2. sæti með 77 atkv. í 1. til 2. sæti,
en samtals með 115. Jóhann Ár-
sælsson varð í 3. sæti með 86 atkv.
í 1. til 3. sæti, en samtals fékk
hann 104 atkvæði í 1. til 9. sæti.
Framangreindar upplýsingar
fékk Morgunblaðið í gær hjá full-
trúum flokkanna fjögurra. Þess
má geta, að í bæjarstjórnarkosn-
ingunum vorið 1978, féllu atkvæði
þannig, að A-listi Alþýðuflokks
hlaut 21,0% atkvæða, B-listi
Framsóknarflokks hlaut 17,5%,
D-listi Sjálfstæðisflokks hlaut
33,5% og G-listi Alþýðubandalags
hlaut 25,6% atkvæða.
r
DANMORK
Skipadeild Sambandsins helduruppi
reglulegum áætlunarsiglingum
á tvær hafnir í Danmörku:
Svendborg og
Kaupmannahöfn
Vegna legu sinnar er Svendborg mjög hag-
kvæm höfn fyrir alla flutninga til og frá Jót-
landi og Fjóni.
Með þvíað flytja um Svendborg vörur til og
frá þessum svæðum sparast dýr innan-
landsflutningur í Danmörku og möguleikar
aukast á að ná hagstæðari viðskiptakjörum.
Kaupmannahöfn hentar
mjög vel fyrir allar vörur
til og frá Sjálandi
Svendborg
Umboðsmenn okkar í Danmörku eru: Bjerrum & Jensen Aps.,
Havnepladsen 3, Box 190,
5700 Svendborg
Síml: (09) 212600
Telex: 58122 broka dk
Allfreight Ltd.,
35 Amaliegade,
1256 Köbenhavn
Sími: (01) 111214
Telex: 19901 alckh dk
SK/PADEILD
SAMBANDS/NS
SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SÍMI 28200