Morgunblaðið - 24.03.1982, Blaðsíða 15
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1982
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1982
15
Atli Thorarvnsen, nu'istaraflnkksmaft-
ur. l>aA er framtíAin aA sigra á móti
erlendis.
„Stefni
að því
að verða
jT
Islands-
meistari“
Atli Thorarensen var tekinn tali,
en Atli er 17 ára meistaraflokks-
maöur.
Atli, hvað hefur |>ii æft lengi og
hvaö æfiröu oft í viku?
— Ég hef æft nokkuð lengi eða í
6 ár, ok nú æfi ég 5 sinnum í viku.
Ilefur þú alltaf haft sama þjálfar-
ann?
— Nei, fyrst þjálfaði Þórir
Kjartansson mig en núna er það
Guðni.
Er Armann að veröa stórveldi í
fimleikum og aö taka viö af KK?
— Sko, þegar sagt er að KR hafi
verið stórveldi í fimleikum, þá
voru það í raun aðeins nokkrir
menn sem eitthvað létu að sér
kveða, nú aftur á móti er Ármann
nteð t;ull, silfur og brons í öllum
flokkum svo það er aðeins nú sem
hægt er að tala um stórveldi.
Nú ert þú of t'amall til aö taka þátt
í unt'lingameistaramóti, fyrir hvaóa
mót ert þú aö æfa?
— Ék er að æfa núna aðallega
fyrir Norðurlandamótið sem hald-
ið verður hér í apríl, en þar ætla ég
að keppa. Én er að slípa til seríurn-
ar sem ét; ætla að taka á NM og
ætla að „prufukeyra" þær á ís-
landsmótinu scm haldið verður
innan skamms.
Attu ekki eitthvrrt uppáhalds
áhald?
— Jú, ætli það sé ekki bogahest-
urinn.
Kn er ekki mikió aó æfa mikió á
sinnum í viku og ('ent'ur vel aó sam-
ræma æfint'arnar vió skólann?
— Jú, það er nokkuð mikið, og
gegnur oft illa að samræma æf-
ingar og skóla. Til dæmis er ég
oftast búinn í skólanum kl. hálf
fimm, og er þá þegar orðinn of
seinn, því ég á að vera mættur á
æfingu kl. 4.20.
En er ekkert erfitt aö vera aó æfa
meó sömu strákum sem þú svo kepp-
ir viö?
— Ja, það er ekkert erfitt, en
það verður kannski ekki alveg
nógu mikil alvara í mótinu sjálfu,
og menn kannski taka þetta þá
frekar sem leik.
Og aó lokum, Atli, ætlaróu ekki aó
halda áfram oj> veróa íslandsmeist-
ari?
— Jú, maður heldur áfram svo
framarlega sem ekkert óvænt
kemur upp, og auðvitað stefnir
maður á að verða Islandsmeistari
og kannski líka eitthvað á erlend
mót, vegna þess að það eru svo fáir
sem keppa á mótum hér heima.
'gi-
(ieir Agnarsson í fullu jafnrægi
í hringjunum. Einbcitnin leynir sér ekki
Ifjiirk Olafsdottir, þjálfari
stúlknanna, lciAbeinir ungri
hnátu á jafnrægisslánni.
Allir aA gcra eitthvaA á nýja tcppinu
okkar, hrópaAi (iuAni þjálíari, og um lciA
smellti Ijósmyndarinn af.
(•etr Agnarsson i crliAri
gólfæf ingu.
(iuAni Sigfússon þjálfari. ViA erum
trímælalaust meA hest húna salinn til
fimlcikaiAkana hér á landi, síAan tcpp-
ió kom.
bótt aA cinn rinni crum riA samt rinir.
EitthvaA þessu líkt gætu vinirnir veriA
aA segja, en sá minni er íslandsmeist-
ari.
Hvað ertu gamall Olafur?
— Ég verð 12 ára á þessu ári.
Hvað hefurðu æft lengi?
— Ég hef æft í 2 ár.
Hvað æfirðu oft í viku?
— Ég æfi 4 sinnum í viku.
Situr skólinn ekkert á hakanum, þegar
þú aTir svona mikið?
— Jú, þetta tekur mikinn tíma frá
skólanum, en þetta er alveg þess virði.
Ilver eru þín uppáhalds áhöld i fim-
leikunum?
— Það eru dýna og hringir, en erfið-
astur er bogahesturinn.
Hefurðu aldrei meitt þig neitt?
— Nei, ég hef aldrei meitt mig, enda
eru fimleikar ekkert hættulegri en
hver önnur íþróttagrein.
Finnst þér fallegt að hafa mikla
vöðva?
— Jú, það er fallegt í hófi, en þá á ég
ekki við vöðva eins og líkamsrækt-
armenn hafa, því fimleikamenn hafa
not fyrir sína vöðva.
Hvernig gekk þér i unglingameistara-
mótinu?
— Mér gekk rnjög vel, ég varð núm-
er eitt í mínum flokki.
Hefurðu keppt áður á svu stóru móti?
— Néi, aldrei.
Áttu einhvern uppáhalds fimleika-
mann?
— Ja, það væri þá helst Alexander
Oidiatin.
/Etlarðu að halda áfram og stefnirðu
þá að einhverju sérstöku?
— Já, ég ætla að halda áfram en ég
veit ekki hvort ég stefni að einhverju
ákveðnu.
Þá var röðin komin að Geir Agn-
arss.vni.
Hvað ertu gamall Geir?
— Ég er 14 ára.
Hefurðu æft lengi?
— Nei, ég hef bara æft í eitt ár með
Ármanni, en ég var í æfingaflokki þeg-
ar ég var í Melaskólanum frá 7—10 ára
aldurs.
Hver er uppáhaldsgreinin þín?
— Ætli það séu ekki hringir, því
þeir eru lang fjölbre.vtilegastir, en erf-
iðastur er bogahesturinn.
Kinnst þér fallegt að hafa mikla vöðva
eins og flestir fimleikamenn hafa?
— Já, mér finnst fallegt að hafa
vöðva, sem hægt er að nota, en ekki
eins og vöðvaræktunarmenn hafa.
Finnst þér ekkert sla mt að keppa við
strákana sem þú æfir með?
— Nei, alls ekki, vegna þess að ég
þekki ekki annað en keppa við þá, sem
ég æfi nteð, svo það er allt í lagi. En.
rétt fyrir mót æfir hver og einn sér.
Þú varðst númer 3 í öllum greinum
sem þú kepptir i á unglingamótinu, ætl-
arðu ekki að halda áfram og gera betur á
na'sta móti?
—Jú, ég er alveg ákveðinn i að halda
áfram og reyna að gera betur. Ég
stefni núna á Norðurlandamótið sent
haldið verður hér á landi í apríl næst-
komandi og ætla að reyna að gera æf-
ingu, sem fáir jafnaldrar minir geta á
Norðurlöndum."
Ólafur Ólafsson, nýbakaAur Islands-
meistari í 2. fl.
Æfingin skapar mcistarann. Ein ung
og efnilcg á jafnrægisslánni.
3
s
Eg skal komast upp, gæti Haukur reriA
aA hugsa.
Ijósmyndir — Lárus Karl Ingason.
Margur er knár þótt hann sé... Ilauk-
ur á íullu í hringjunum.
1 xcl Hragason, Islandsmeistari í 4. fl.
llaukur Ófeigsson.
MaAur rerAur aA einbeita sér ef árang-
ur á aA nást. gæti (iuAjón (iuAmunds-
son, Islandsmeistari í 3. fl. reriA aA
hugsa.
NGT OG EFNILEGT AFREKSFOf K { FIMLEIKUM HJÁ ÁRMANNI
Vio Ktum björtum augum á framtíðina
Mikil gróska er nú hjá fimleikadcild Armanns,
hrcrt eíniA á fætur öAru rekur á fjörur landsmanna.
l>aA kom ckki sro ýkja á órart hjá þcim er til
þckkja hjá Armanni, aA Ármannspiltarnir skyldu
skipa sér í efstu sætin í öllum greinum og flokkum á
unglingameistaramótinu, sem nú nýlega er um garó
gengiA. Armenningar sigruAu þar, roru rcyndar í
þrcmur fyrstu sætunum í 4. flokki (10 ára og yngri),
3. flokki (II—-12 ára), 2. flokki (13—14 ára), og I.
flokki (15—16 ára), en stúlkunum gekk ekki alreg
jafn rel. Mhl. dreif sig þrí í íþróttahús Ármanns,
þar sem fimlcikacfnin roru aA æfingu, þar roru
strákar og stelpur á öllum aldri allt frá 4. flokki til
meistaraflokks, voru nokkur efnin tekin tali, ásamt
þjálfara þeirra CuAna Sigfússyni, sem mcó þrot-
lausri seiglu og áhuga hcfur þjálfaA og hratt
fimleikafólkiA. Það er þrí rel tilralió aA byrja á
CuAna.
Guóni, hefur þú kynnt þér þjálfun fimleika eitt-
hvaó sérstaklega, fyrir utan íþróttakennaramenntun
þína?
— „Já ég hef sótt öll námskeið sem haldin
hafa verið hér á landi, auk þess hef ég farið á
tvenn norðurlandamót og'reynt á þeim að kynna
mér allar þær nýungar sem komið hafa fram, og
svo hef ég farið á námskeið til Bandaríkjanna í
sambandi við þjálfun. Þar fylgdist ég t.d. með
þjálfun krakka allt niður í 4 ára aldur.
En nú eru mörg efni á leióinni og sum reyndar
komin alveg á toppinn, hvenær byrjaöi þessi grunn-
þjálfun?
— Grunnþjálfunin hófst 1970 og hefur verið
þrotlaus síðan.
Ntúlknaflokkarnir hafa ekki verió mjög sigursæl-
ir, er litil uppbygging þar?
— Nei, nei, það er allt í fullum gangi hjá
stúlkunum og uppbygging hafin hjá þeim, það
eru efni á leiðinni sem eiga eftir að láta að sér
kveða.
Hvernig er með aöstöóuna hjá ykkur Ármenning-
um, er hún fullnægjandi?
— Já ég tel að við séum með bestu aðstöðuna á
landinu til fimleika. Við höfum öll áhöld og öll
tæki, okkar eigin hús og síðan er ekki síst stoltið
okkar, æfingateppið sem við erum nýbúnir að
festa kaup á og komið er til okkar. Við það gjör-
breytist öll aðstaða til gólfæfinga. Þetta er eina
teppið sinnar tegundar hér á landinu en borgin
er að kaupa svona teppi fyrir Norðurlandamótið
sem haidið verður í apríl, enda er þetta teppi
samskonar og besta fimleikafólk heims notar við
sínar æfingar. Þetta teppi leysir af hendi dýnur
sem voru notaðar áður, en voru mjög óhentugar.
Hvaó kostar svona teppi?
— Það kostaöi allt í allt 110.000 krónur, þar af
hirti ríkið helming í tolla og önnur gjöld. Skal þá
engan furða að íþróttafélög séu flest illa sett
fjárhagslega, þegar ríkið hirðir helming af öllum
þeim áhöldum sem félögin þurfa að kaupa er-
lendis frá.
Ilvort er meira lagt upp úr frjálsum æfingum eóa
skyldubundnum æfingum?
— Það er lagt meira upp úr frjálsum æfing-
um, því þar semja þau sjálf hvert sína seríu þ.e.
æfingu, svo eru skylduæfingarnar leiðigjarnari
og lítið um nýmæli í þeim öfugt við frjálsu æf-
ingarnar.
En er það ekkert slæmt þegar t.d. strákarnir æfa
allir saman, svo keppa þeir hver á móti öðrum?
— Nei nei, þeir eru allir svo jafnir að þeir
skiptast á að vinna, það gengur einum vel í þessp
móti og öðrum í næsta.
En ertu ekki búin að standa lengi einn i þessu?
— Jú, en góðir menn hafa einnig aðstoðað
mig, svo á ég von á aðstoð eftir tvö ár, því það er
einn úr Ármanni að læra í Moskvu, það er Jónas
Tryggvason. Hann er við fimleikanám og er
væntanlegur heim eftir tvö ár, svo maður lítur
björtum augum á framtíðina hér á þessum víg-
stöðvum. Er við skildum við Guðna kom ljós-
hærður strákur aðvífandi, og tókst okkur að króa
hann af og spyrja hann nokkurra spurninga.
Hvað heitir þú?
— Ég heiti Axel Örn Bragason.
Hvað ertu gamall Axel?
— Ég verð 10 ára á þessu ári.
Hvað hefuröu æft fimleika lengi?
— Ég hef æft í 4 ár.
Hvað æfiróu oft í viku?
— Þrisvar sinnum.
Hverjar eru uppáhalds greinarnar þínar?
— Þær eru trampolín, stökk og hringir.
En hvað er erfiðast?
— Mér finnst svifráin erfiðust.
Er ekkert erfitt aó vera að æfa um leið og stclp-
urnar, rífist þið aldrei?
— Nei það eru allir vinir og aldrei rifist.
En hefuröu aldrei meitt þig í fimleikum, og þarft
ekki aó vera svell kaldur að fara þessi stökk?
— Já ég hef ekki meitt mig nema þegar ég er
að fara einhverja æfingu í fyrsta sinn og maður
þarf ekki að vera neitt kaldur til að fara sum
stökk ef maður sér einhvern fara stökkið þá læt-
ur maður sig fara líka.
Hvernig gekk þér á unglingameistaramótinu?
— Mér gekk mjög vel, ég vann í mínum flokki.
Hefurðu keppt áður á móti?
— Já ég keppti fyrst þegar ég var 6 ára gam-
all.
Er ekkert skrítið aó vera bestur á landinu í fim-
leikum af jafnöldrum þínum, ertu ekkert montinn?
— „Jú það er svolítið skrítið stundum en ég
monta mig aldrei þótt strákarnir í bekknum
mínum segja að ég sé montinn af því að ég kenni
stundum í leikfimi.
Og þar með var Axel rokinn. Sá sem við hitt-
um fyrir næst var ekki mjög hár í loftinu, og
helltum við okkur aftur í spurningarnar.
Hvaó heitir þú?
— Ég heiti Haukur Ófeigsson.
Hvaö ertu gamall?
— Ég er 9 ára.
Hvað æfiróu oft í viku?
— Ég æfi tvisvar í viku.
Finnst þér fallegt að hafa mikla vöóva, eins og
allir fimleikamenn hafa?
— Já, mér finnst flott að hafa mikla vöðva,
eins og þessir bestu hafa.
Hvar ertu staddur í þrepastiganum á hinum ýmsu
áhöldum?
— Ég er á 1. þrepi á tvíslá, 5. þrepi á dýnu, 4
þrepi á bogahesti og 3. þrepi í hringnum.
Ilvcrjar eru uppáhalds greinarnar þínar?
— Það eru stökk og hringir.
Hvaó eruð þió margir sem æfiö saman úr sama
flokki?
— Við erum átta.
Finnst þér ekkert vont að æfa með strákunum og
keppa svo á móti þeim?
— Nei ég er ekki í neinu öðru, enda finnst mér
þetta alveg nóg.
Hvaóa grein finnt þér vera erfiðust?
— Mér finsnt bogahesturinn vera lang erfiðast-
ur. ^
llvernig gekki þér á unglingameistaramótinu?
— Mér gekk ágætlega, ég varð arinar í mínum.
Ilefuröu keppt áóur?
— Já ég keppti á unglingameistaramótinu í
fyrra, og varð þá líka í öðru sæti.
Jæja ég má ekki vera að þessu lengur sagði
Haukur, og var þegar kominn útí erfiðar æf-
ingar. — IGI
„Fim-
leikar
taka
mikinn
tímaa