Morgunblaðið - 24.03.1982, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 24.03.1982, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1982 Skák- „sjúklingar“ Adam Kuligowsky Hér fer á eftir síðari þáttur Adam Kuliyow.skys frá Keykjavik- urskákmótinu: Skákin er ekki tennisleikur og skákmenn búa oft við þröngan kost. Menn verða að elska skák- ina ef þeir ætla sér að eyða tím- anum í að kynna sér leyndar- dóma hennar. Skák-„sjúklinKar“ eru allt annars eðlis. í Reykjavík voru, meðal annarra, tveir ágæt- ir skákmeistarar sem hafa ofur- ást á skákinni. Annar þeirra er stórmeistarinn Sahovic frá JÚKÓslavíu, hinn er alþjóðleni meistarinn Burger frá Banda- ríkjunum. Sahovic heldur því fram, að skákin sé listgrein og hann er andvígur byrjanafræð- inni. „Að leika 20—30 leiki eftir byrjanafræðinni er ekki list, það er eins og að vinna á skrifstofu," sefjir hann. Skákir hans eru mjöK skemmtilejíar. Tökum dæmi: Westerinen — Sahovic 1. e4 — Rc6, 2. Rf3 — e6, 3. d4 — d5, 4. e5 — b6, 5. c3 — a5, 6. Bb5 — Bd7. Menn verða að sýna ýtr- ustu jtætni ef þeir fara ekki troðnar slóðir í byrjuninni. Ef svartur léki til dæmis í 6. leik — I)d7 með hótuninni 7. — Ba6 væri hann strax búinn að fá mjög slæma stöðu eftir hið ein- falda svar De2 og svartur hefur ákaflena þrönga stöðu á drottn- in(jarvængnum. 7. Bd3 — Ra7! Hann fær upp- hrópun fyrir frumleika í hujjsun. 8. Kf»5 — g6, 9. I)f3 — De7, allt þvingað, en kemur Sahovic ekk- ert á óvart 10. h4 — h6, 11. Rh3 — Dxh4! Hugmyndin er þessi: Taktu peðið og afleiðingunum. 12. Be.3 — De7, 13. Rd2 — Bg7! Þessi leikur virðist óeðlilegur frá hendi meistara. Almennt er talið að í frönsku vörninni eigi bisk- upinn að rása á skálínunni a3—f8. En málið er þannig vax- ið, að Sahovic er listamaður og fyrirlítur margþvælda leiki og er fyllilega fær um að finna frá- bæra og frumlega leiki. 13. — Bg7 er mjög góður varnarleikur og það er broddur í honum. 14. Rf4 — 0-0-0, 15. c4 — Bc6, 16. cxd5 — exd5. Biskupinn á g7 verður æ magnaðri, það er ekki nema veik peðasamstæða á d4-e5 sem leggur hömlur á biskupinn. 17. Hcl — Bb6, 18. Hc3. Óljóst er 18. e6 og erfitt er að verjast eftir þennan leik, en Westerinen legg- ur allt kapp á kóngssókn ... 18. — Kb8, 19. 0-0 — Bxe5!, 20. Bxg6 — Rb5, 21. Kd3 — Bd4, 22. Hb3 — Bxe3, 23. fxe3 — Rd6, 24. Bh5 — d4, 25. e4 — f5. Hernaðaráætl- un svarts hefur staðizt í einu og öllu, hvítur er glataður. Sahovic er vissulega listamaður, það er erfitt að trúa því að hægt sé að ná upp slíkri stöðu gegn stór- meistara í aðeins 25 leikjum eft- ir svona byrjun! Dr. Burger er allt önnur manngerð. Áður fyrr fékkst hann aðallega við að græða fé og spilaði með góðum árangri á kauphöllinni. Nú leggur hann sig fram um að komast til botns í skákinni og teflir á mörgum mótum á ári hverju. Nú, þegar hann hefur eignazt sína fyrstu milljón (dollara, að sjálfsögðu), er hann kominn langleiðina að næsta takmarki sínu — að verða stórmeistari. í Reykjavík var hann þó ekki sem bezt upplagður. Hann missti nokkrum sinnum af strætis- vagninum og tapaði nokkrum Adam Kuligowsky skákum sem hann hefði átt að vinna. Þrátt fyrir þetta brá hann fyrir sig „milljónerastílnum": Kogan — Burger 1. d4— Rf6, 2. c4 — e6, 3. g3 — d5. í upphafi er teflt á hefðbund- inn hátt og engu hætt. 4. Bg2 — Be7, 5. Rf3 — 0-0, 6. 0-0 — dxc4, 7. Dc2 — a6, 8. a4 — Bd7, 9. Hdl — Bc6, 10. Rc3 — Bxf3! Næst sjáum við frábæran skilning á þessu tízkuafbrigði. 11. Bxf3 — Rc6, 12. Bxc6 — bxc6, 13. a5 — Hb8, 14. Da4 — Bb4!, 15. Ra2 — Be7, 16. Rc3 — Bb4. Þriðja stigið: sál- fræðileg barátta. Svartur lætur í það skína að hann sætti sig við skiptan hlut eftir 17. Ra2. Kann að vera. En það er hvítur sem verður fyrri til að hætta á að leika til vinnings og hann hlýtur makleg málagjöld í skyndi. 17. Dxc6 — Bxc3, 18. bxc3 — Dd5, 19. Dxc7 — Re4, 20. Ha3 — Rd6, 21. Ha4 — Hfc6, 22. De7 —Re4, 23. Ha3 - Hb7, 24. Dh4 — Hb3, 25. Hxb3 - cxb3, 26. Bb2 — Rxc3 og hvítur er búinn að vera. Ágætt dæmi um rökfastan skákstíl dr. Burger. Sem lokaorð vil ég leggja áherzlu á að Reykjavíkurskák- mótið var ágætt framlag til skáklistarinnar og ég óska móts- höldurunum enn meira gengis í framtíðinni. Fræðslufundir um mjólkurmál MBL. IIKKl'K borist eftirfarandi frá lleilbrigðiseftirliti ríkisins, yfirdýra- lækni, héraðsdýralæknum og mjólk- ursamlögum. Samfara miklum breytingum sem orðið hafa á starfsaðferðum við framleiðslu mjólkur á undan- förnum árum, hafa þær kröfur sem gerðar eru til bænda aukist veru- lega. Tæknin sem notuð er við framleiðslu mjólkurinnar er orðin flóknari og krefst meiri aðgætni og nákvæmni en áður var, auk hald- góðrar þekkingar á ýmsum sviðum. Þc að þessi nýja tækni sé tvímæla- laust til mikilla þæginda og hag- ræðingar fyrir framleiðendur, þá krefst hún einnig aukins aðhalds hvað þrif og hreinlæti varðar. Af þessu tiiefni og vegna fcreyttra aðferða og reglna við flokkun á mjólk frá framleiðendum hafa þeir aðilar, sem að þessum málum vinna, ákveðið að halda fræðslufundi um mjólkurmál á Vesturlandi. Þessir aðilar eru Heil- brigðiseftirlit ríkisins, yfirdýra- læknir, héraðsdýralæknar og m j ól ku rsam lögi n. Á fundum þessum verður m.a. fjallað um eftirfarandi: 1. Nýjar flokkunarreglur. 2. Frumutalningu sem þátt í bar- áttunni við júgurbólgu. 3 Kvikmynd um júgurbólgu. 4. Hreinlæti og viðhald mjaltavéla. Fundirnir verða haldnir á eftir- farandi stöðum: Þann 23. mars að Hlöðum, Skil- mannahreppi, þann 24. mars að Brún í Bæjar- sveit, þann 25. mars að Varmalandi í Stafholtstungum, þann 26. mars í húsi Mjólkursam- lagsins í Borgarnesi, þann 29. mars í Búðardal, þann 30. mars í Búðardal, þann 21. mars í Lindartungu í Kolbeinsstaðahreppi, þann 5. apríl í Félagsgarði í Kjós. fc’undirnir hefjast á öllum stöð- um kl. 14.00 nema í Búðardal kl. 15.00. Mjög mikilvægt er að allir þeir aðilar, sem að mjólkurfram- leiðslu starfa, mæti (húsbændur, húsmæður og unglingar). 75 ára afmæli: Þórunn Sigurðardóttir í dag verður Þórunn Sigurðar- dóttir, Ægisíðu 123, 75 ára, en hún er fædd 24. mars 1907. Plr ég tek mér penna í hönd með það í huga að skrifa nokkur orð um systur mína Tótu eins og við köllum hana, þá er mér efst í huga þakklæti, viðkvæmni, sársauki og gleði. En einmitt þessi hugsun er útstreymni frá þeirri sál, sem geymir hreinleika, sem lýsir lífi persónu, sem lifir heilbrigðu, göf- ugu og góðu lífi. Mig langar aðeins til, Tóta mín, á þessum tímamótum lífs þíns, að þakka þér fyrir samveruna, ásamt manni mínum og börnum, allt fram á þennan dag. Þitt líf hefur orðið mér og öðrum til fyrirmynd- ar. Með heiðri og sóma hefur þú staðið sem klettur úr hafinu er bylgjur þess hafa risið og ægis- dætur sótt sína heim. Og einnig á sólskinsdegi breyttist skúr í skin og þú mættir enn á ný í mótlæti lífsins, standa sem hetja og leyfa tárum og trega að þróast á ný í huga og hjarta og þroska þig á göngu lífsins. Þannig var hin þunga sorg lögð á þig ásamt mörg- um öðrum áföllum. En máttur þinn var mikiil, enda vegir guðs órannsakanlegir. Er ég lit til baka til starfa þinna hjá Landssíma ís- lands og mér verður hugsað heim til Patreksfjarðar þar sem við störfuðum saman og þér var veitt stöðvarstjóraembættið þar, þá ný- orðin ekkja, ásamt mörgum öðrum ábyrgðarstörfum, sem þú gegndir með miklum sóma. Og þá langar mig til, Tóta mín, sérstaklega að þakka þér sem sjómannskonu fyrir þitt fórnarstarf sem þú veitt- ir svo ótal mörgum með starfi þínu í þágu slysavarna. Ég vona að þar tali ég fyrir munn margra. Að lokum vil ég svo þakka þér fyrir börnin mín öll og við öll óskum þess, að sá sem að öllum gefur ár signi þig gegnum bros og tár. Það styttist örugglega hjá okkur báðum í hið óendanlega alheimslíf og þá er ég viss um að þú munt uppskera eins og þú sáðir. Þar mun endurspeglast frá sálu þinni tign og reisn í litbrigðum verks, sem þú hefur til unnið. Hrefna Sigurðardóttir Búlgörsk list á Akureyri Akureyri, 20. m»rz. INGVAR Gíslason menntamálaráó- herra opnaði í dag sýningu nútima- myndlistar frá Búlgaríu i húsakynn- um Myndlistarskólans á Akureyri. Þetta er sama sýningin og haldin var í Reykjavík fyrir nokkru á vegum Listasafns alþýðu, en hér er það Myndlistarskólinn, sem heldur sýn- inguna. Skólastjóri hans er Helgi Vilberg. Á sýningunni eru 48 málverk eftir 11 þúlgarska myndlistar- menn. Hinn elsti er fæddur árið 1923, en hinir yngstu árið 1952. Sýningin verður opin fram yfir næstu helgi, kl. 20—22 virka daga, en 14—22 á laugardag og sunnu- dag. Sv.P. Frá búlgörsku listsýningunni á Akureyri. Hjá málverkunum stendur skóla- stjórinn, Helgi Vilberg. Ljo»m.: Sy.i>. Stórgjafir berast Videyjarkirkju og Hallgrímskirkju ÞAl HJONIN Jónína Guðmundsdóttir og Magnús Jónsson bjuggu um all- langt skeið í Viðey og síðar hér í Reykjavík. Nú hefur sonur þeirrahjóna, Guð- mundur R. Magnússon sem lengi hefur verið verkstjóri við Hitaveitu Reykjavíkur, gefið tíu þúsund krón- ur til hvorrar sóknarkirkna þeirra hjónanna, Viðeyjarkirkju og Hall- grímskirkju í Reykjavík. Báðar þessar kirkjur eru févana, er verið að gera Viðeyjarkirkju rækilega upp og bygging Hallgríms- kirkju stendur enn yfir, sem öllum er kunnugt. Hefur orðið að senda smiði kirkjunnar heim í fyrsta sinn í 20 ár vegna fjárskorts. Guðmundi R. Magnússyni eru færðar miklar þakkir fyrir höfð- ingskap sinn. (Frétlalilkynning.) Tvær vörusýningar í Portúgal í júní Tízkusýningar eru amk. þrisvar á Frá sýningarbásum i Kristalshöllinni. dag meðan sýningar standa yfir. TVÆR vörusýningar, sem eru líkleg- ar til að vekja áhuga hérlendis, verða i Kri.stalshöllinni í Oporto í júnímán- uði. Fyrst er að nefna Portex sem stendur yfir dagana 3.-7. júní og verður þar kynntur tilbúinn fatn- aður og prjónles fyrir vor/sumar- tízkuna 1983. Dagana 12, —15. júní verður svo Mocap-skósýningin, en hún er haldin tvisvar á ári og hafa margir íslenzkir skókaupmenn far- ið á sýninguna, enda hefur skó- innflutningur frá Portúgal vaxið mjög síðustu ár. Þess má geta að Ferðaskrifstof- an Girassol Holidays í London sér um að skipuleggja ferðir á sýn- ingarnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.