Morgunblaðið - 23.07.1982, Blaðsíða 12
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ1982
Fremsta röö frá vinatri: Steinn Guöjónsaon, Svsrrir Einarsson, Hafþór Svainjónsson, Friórik Frióriksson, Martsinn Gairsson, Guómundur Baldursson, Einar Bjðrnsson, Hafþór
Aðalsteinsson, Lárus Grétarsson.
Miöröó frá vinstri: Siguróur Svavarsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar, Haildór B. Jónsson, formaóur knattspyrnudaildar, Andrej Strajlau, þjálfari, Erlendur Davíósson,
Guðmundur Torfason, Halldór Arason, Árni Arnþórsson, Bryngeir Torfason, Ástþór Óskarsson, liósstjóri, Eyjólfur Bargþórsson, formaóur meistaraflokksráós.
Aftasta röð frá vinstri: Kristinn R. Jónsson, Trausti Haraidsson, Albert Jónsson, Ólafur Hafsteinsson, Gísli Hjálmtýsson, Vióar Þorkelsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Valdimar
Stefánsson, Vilhjálmur Hjörleifsson, liðsstjóri.
Knattspyrnufélagið Fram
ÁRANGUR Framara í 1. deildinni undan-
farin ár hefur veriö nokkuð skrykkjóttur.
Liöið varð íslandsmeistari árið 1972 og
hefur síðan rokkað milli botns og topps
deildarinnar. Á þessum áratug hefur liöið
fjórum sinnum hafnaö í öðru sæti, síðast
í fyrra, og þá hefur liöið þrisvar endað í
sjötta, og einu sinni í því áttunda.
Framliöið er nú í 7. sæti. Deildin hefur
sjaldan eöa aldrei veriö jafn jöfn og spenn-
andi og nú, og er því ógerningur aö segja
til um lokastööu hennar. Framarar gætu átt
eftir aö spjara sig, en liöiö er mjög ungt aö
árum. Ásamt reyndum landsliðsmönnum,
eins og Marteini Geirssyni og Trausta Har-
aldssyni, skipa lióiö mjög ungir og efnilegir
strákar. Eru þaö t.d. þeir Viöar Þorkelsson,
Ólafur Hafsteinsson, Steinn Guðjónsson
og Þorsteinn Þorsteinsson. Þorsteinn er
aðeins 17 ára aö aldri, en viröist nú hafa
tryggt sér sæti í liöinu. Hefur hann staöiö
sig vel í undanförnum leikjum, og víst er aö
Framarar eru langt frá því aö vera á flæöi-
skeri staddir í sambandi viö knattspyrnu-
menn framtíöarinnar.
Þrátt fyrir misjafnt gengi í deildarkeppn-
inni hefur Fram staöiö sig vel í Bikarkeppni
KSI síöastlióinn áratug. Liöiö hefur þrisvar
sigraö í keppninni á þessu tímabili, og auk
þess leikiö í tvö önnur suápk til úrslita í
keppninni. 1973 bar liöiö sigurorö af ÍBK í
úrslitaleiknum, og síöan sigraöi liöiö í
keppninni tvö ár í röö, 1979 og 1980. í fyrra
skiptió var þaö Valur sem lúta varö í lægra
haldi fyrir Fram og seinna skiptiö voru þaö
Vestmannaeyingar sem töpuöu. I fyrra-
sumar náöi ÍBV aö vísu fram hefndum. Liö-
in léku þá til úrslita annaö áriö í röö og
sigruðu Eyjamenn meö þremur mörkum
gegn tveimur í mjög eftirminnilegum leik.
Fram hefur oft tekiö þátt í Evrópukeppni,
en aldrei náö því aö komast í 2. umferö.
Eftirminnilegasti Evrópuleikur liösins er án
efa er spánska stórliöiö Real Madrid lék á
Laugardalsvellinum og sigraöi meö tveimur
mörkum gegn engu, haustiö 1974.
Komu Framarar mjög á óvart og urðu
stórstjörnurnar aö hafa mikið fyrir sigrin-
um.
MORG UNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ1982
45
Aftari röó frá vinstri: örtygur fvarsson, liðsstjóri, Haraldur Haraldsson, Jóhann Jakobsson, Hinrik Þórhallsson, Jón Marinósson, Erlingur Kristjánsson, Ásbjörn Björnsson, Friöfinnur
Hermannsson, Steingrímur Birgisson, Einar Áakelsson, Tómas Lárus Vilbargsson, Atoc Willoughby, þjálfari. Frsmri röó frá vinstri: Eyjólfur Ágústsson, Ormarr Örlygsson, Gunnar
Gíslason, Þorvaldur Jónsson, Elmar Geirsson, Aóalsteinn Jóhannsson, Ragnar Rögnvaldsson, Guöjón Guðjónsson, Gunnar Kárason, formaöur Knattspyrnudeildar.
Knattspyrnufélag Akureyrar
ER ÍBA-liðið féll niöur úr 1. deildinni 1975,
tóku Akureyringar það til bragös að
hætta aö keppa undir merki Bandalags-
ins, og þess í stað hófu félögin í bænum,
KA og Þór, aö leika í 3. deitd áriö eftir.
Fóru liðin bæói upp í 2. deild þaö ár, og
síöan léku KA-menn í 1. deild i fyrsta
skipti sumarið 1978. En þeir dvöldu ekki í
deildinni aó þessu sinni, fall varð hlut-
skipti liðsins.
Sumarið eftir tó Skotinn Alec Wiil-
oughby vió liðinu, og sigruðu þeir { 2.
deild um sumarið með glæsibrag, sigr-
uöu í 15 leikjum, geröu 1 jafntefii og töp-
uöu aöeins tveimur leikjum. Hlaut liöiö 31
stig, skoraði 61 mark en fékk aöeins á sig
15.
Eftir þetta glæsilega sumar lék liöið síö-
an í 1. deildinni ööru sinni á síöastliönu
sumri, og óhætt er aö segja aö Noröan-
menn hafi komiö á óvart með góöri
frammistööu, þar sem þeir voru lengi vel í
toppbaráttu og áttu töluveröa möguleika á
Islandsmeistaratitlinum. Svo fór þó aö liöið
dalaöi undir lokin og hafnaöi í 7. sæti.
Takmarkinu var þó náö, aö halda sætinu í
deildinni.
Gengi liösins í sumar hefur verið nokkuö
skrykkjótt, liðið hefur t.d. aöeins unniö einn
leik á heimavelli. Var þaö síöasti leikur,
þannig aö nú gæti veriö aö rofa til hjá liöinu
fyrir norðan. Liöiö er nú um miöja deild
meö tíu stig, en hafa veröur í huga aö þeg-
ar þetta er skrifaö hefur ekki veriö dæmt í
kæru KA-manna á hendur Val, þannig aö
þeir gætu átt eftir aö færast ofar i deildina,
og komast í 3. sætiö.
i liðinu er blanda af ungum og gömlum
leikmönnum, og sterkasti hluti liösins verö-
ur aö teljast vörnin, meö þá Erling Krist-
jánsson, Harald Haraldsson og Aöalstein
Jóhannsson sem bestu menn. Erlingur hef-
ur leikiö í landsliði U-21 árs, og þá hefur
miövallarspilarinn Gunnar Gíslason einnig
leikiö í landsliði í sumar, bæöi U-21 og
A-landsliöi. „Gömlu“ mennirnir, Elmar
Geirsson og Hinrik Þórhallsson, hafa einnig
leikiö í landsliöi, sem kunnugt er.