Morgunblaðið - 23.07.1982, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ1982
47
ÚR ÝMSUM Á TTUM
Sveinn Guöjónsson
Heimur
versnandi
fer
Bítillinn Paul McCartney,
einn vinsælasti og ríkasti
tónlistarmaður poppsögunn-
ar, er nú kominn á fimmtugs-
aldurinn og um þær bláköldu
staðreyndir lét hann nýlega
falla eftirfarandi orö: — „Mér
fannst ég fyrst vera orðinn
miðaldra þegar dóttir mín
Heather kom heim með kær-
astann sinn. Hún var búin að
láta lita hárið á sér appelsínu-
guit og Ijósgrænt og hann var
með nælu í nefinu, það er vist
þetta sem menn kalla pönk.
Svona slæmt var það ekki,
þrátt fyrir allt, fyrir tuttugu ár-
um þegar Bítlarnir voru út-
hrópaðir sem einhverjir ræflar
fyrir sitt „síða“ hár.“
Eins og
táningur
Talandi um eldri menn í
poppbransanum má geta
þess að þeir félagar í Rolling
Stones eru í svipaöri stöðu og
Paul hvaö þetta varðar.
Söngvari þeirra, Mick Jagger,
fékk líka heldur betur á bauk-
inn í lesendabréfi í breska
blaðinu „Sunday Mirror" nú
nýverið. Bréfritai sagði meðal
annars: — „Alveg er þaö átak-
anlegt að sjá hinn miðaldra
Mick Jagger hoppa um eins
og táningur. Hvað er hann eig-
inlega aö reyna að sanna. The
Stones hafa ekkert breyst í
tuttugu ár og mér finnst tími
til kominn að þeir hætti þess-
um fíflagangi og fari aö haga
sér eins og fullorðnír
menn ..“
„íslendingar
eru léttir og
skemmtilegir“
— Þetta hefur gengið framar öllum vonum og ég er
auðvitað hinn ánægðasti,“ — sagði Guðmundur Rúnar
Lúövíksson er við hittum hann að méli nú nýverið, en
hann er einmitt maðurinn sem er ábyrgur fyrir því að lögin
„Háseta vantar á bát“ og „Súrmjólk og Serios“ hafa glum-
ið í eyrum landsmanna að undanförnu. Guömundur var
hinn hressasti enda með nýja plötu undir hendinni, sem
hann var að senda frá sér nú í vikunni. Það er „stór“
fjögurra laga plata, sem ber heitið „Ég lifi — og þér
munuð lifa“, en á henni nýtur hann aðstoðar hljóðfæra-
leikara sem gerðu garðinn frægan með gömlu Mánunum
hér i eina tið.
„Það er töluverð breyting
frá fyrri plötunni,“ sagði
Guðmundur Rúnar enn-
fremur. — „Þetta er nýr stíll
og vandaðri vinna. Platan er
sú fyrsta sem kemur út úr
Stúdíói NEMA, sem Labbi
og þeir eiga, en það er staö-
sett á sveitasetrinu Glóru í
Gaulverjabæ. Þetta er
þrælgott stúdíó og umhverf-
iö er mjög afslappaö og
þægilegt.
Viö víkjum nú talinu aftur
að fyrri plötunni en um hana
segir Guðmundur Rúnar
meðal annars: „Það gekk
ekki átakalaust aö koma
þessu út og ég fór á milli
útgefenda en án árangurs
svo að ég ákvað aö gefa
þetta út sjálfur. Ég stofnaði
útgáfufyrirtækið „Hljóm-
teitl*, sem er gott íslenskt
orð, dregið af hljómlist og
ölteiti, en þetta tvennt fer
oft saman. Þetta var mikiö
ævintýri og dýrt og það má
segja, að ég hafi selt nær-
buxurnar minar til aö eiga
fyrir þessu, en þó vann ég
þetta eins ódýrt og kostur
var, — spllaði t.d. mest
sjálfur Inn á plötuna. En út
úr þessu kom platan „Vinna
og ráöningar“ og ég sé ekki
eftir að hafa hellt mér út í
þetta — enda var ég buinn
að ganga með þetta í mag-
anum i mörg ár.“
„Annars hef ég heyrt aö
þaö sé mál i uppsiglingu út
af textanum í „súrmjólk-
inni“. Þetta hefur líklega far-
íð í taugarnar á einhverjum,
sem kannski er von, og ég
hef heyrt að það liggi fyrir
kæra hjá jafnréttisráði. En
ég held að þaö sé best aö
vera ekkert að ræða þetta á
þessu stigi.“
Hefur þú einhverjar
skýringar á vinsældum
laganna?
Þesai mynd var tekin ( vor þegar Guðmundur Rúnar kom
til höfuðborgarinnar til að kynna plötu efna „Vinna og
ráðningar“.
Spjallaö vid
Gudmund Rúnar
Lúdvíksson um
plötuútgáfu
og fleira
„Eg veit satt aö segja
ekki, en ég held að þetta
llggi í því aö íslendingar eru
að eðlisfari léttir og
skemmtilegir í sér og þegar
veturinn er liöinn og voriö
komiö þá springur út þessi
iífsgleöi. Platan kom út á
réttum tíma og var mátu-
lega létt og kæruleysisleg til
að grípa menn.“
En hvaö um miajafna
gagnrýni?
„Já, platan fékk bæöi
góða dóma og slæma. En
um gagnrýni vil ég aðeins
segja, aö aðalatriðið er aö
menn gangi aö svona lög-
uöu meö réttu hugarfari.
Þaö þýöir til dæmis ekki
fyrir hálærða tónlistarmenn
að dæma pönk eða pönk-
ara að dæma um sinfóníur.
Eins er meö svona léttleika,
menn veröa aö skilja aö til-
gangurlnn er ekki aö skapa
háþróað tónlistarverk. Einn
gagnrýnendanna sagöi að
þetta væri „tilgangslaus
plata“ vegna þess að það
væru fjölmargir aðrir aö
semja svona heima hjá sér.
En það er ekki nóg að menn
séu að gera þetta heima hjá
sér, á sama hátt og þaö er
ekki nóg aö framleiöa mal-
bik ef það er ekki sett á göt-
urnar.”
En hver er Guðmundur
Rúnar Lúðvíksson? Af íög-
unum fær maður á tilfinn-
inguna að hér sé Eyjamaö-
ur á ferð?
„Ég er fæddur Akurnes-
ingur, en þó ég hafi aöeins
verið búsettur f Eyjum f eitt
ár er ég hreinræktaður
Vestmanneyingur. Annars
hef óg komið víða við og
starfa nú sem bryti á sjúkra-
húsinu i Eyjum. Ég geri ráö
fyrir aö halda því áfram.
Þessi plötuútgáfa og iaga-
smíð er bara „hobbý“. Sum-
ir fara á hestbak, aðrir
safna frfmerkjum og nokkrir
gefa út plötur. Annars hef
ég áhuga á að fara út í
hljómplötuútgáfu og er meö
ákveöna hugmynd á prjón-
unum sem er þegar komin
af stað. Hugmyndin er aö
efna tit hljómsveltakeppni á
fjórum stöðum á landlnu og
siðan yrði 16 hljómsveita-
úrslit hér i Reykjavik. Mein-
ingin er síöan að gefa út
stórar plötur með þelm
tveimur hljómsveitum sem
bera sigur úr býtum.
Svo má það vel koma
fram, aö óg er þegar byrjað-
ur aö vinna aö þriöju plöt-
unni minni og hún á aö heita
„Verslun og viðskipti". Hún
mun fjalla um viðskiptaiífið
og allt stressiö sem því fylg-
ir,“ sagöi Guðmundur Rúnar
og meö það var hann rok-
inn til að dreifa nýju plöt-
unni.
Jassað á Þingvöllum
„Það má segja að þetta sé bæði hugsjón hjá mór og svo
hitt, að mig langar til aö gera eitthvað aöeins meira fyrir
gestina en þetta venjulega,“ — sagði Ómar Hallsson, hótel-
stjóri á Hótel Valhöll á Þingvöllum, er við slógum á þráðinn
til hans nú í vikunni. Ómar hefur tekið upp þá skemmtilegu
nýbreytni aö bjóöa gestum sínum upp á Ijúfa jassiónlist um
helgar, í kaffitímanum og á kvöldin.
Um síðustu heigi komu þar fram Kristján Magnússon, Árni
Scheving og Alfreð Alfreðsson og var geröur góöur rómur aö
leik þeirra félaga. Þeir munu væntanlega mæta aftur til leiks í
Valhöll seinni partinn í ágúst. Nú um helgina veröa hins vegar
þeir Pálmi Gunnarsson, Guömundur Steingrímsson og Guð-
mundur Ingólfsson og er ekki aö efa, aö gestir Valhallar munu
njóta góös og ánægju af liprum leik þeirra félaga.
Pálmi Gunnarsson og Guðmundur Steingrímsson,
ásamt Guðmundi Ingólfssyni píanóleikara
Jerry Lewis i dag.
Dean Martin fjórum árum síð-
ar, árið 1946. Þeir voru þá
með sinn hvorn skemmtiþátt-
inn i klúbbi í Atlantic City en
urðu brátt mestu mátar og
ákváöu að koma fram saman.
Þetta var skynsamleg ákvörö-
un og innan átta mánaöa
höföu launin hækkaö úr 350
dölum t 5000 dali á viku. Þá
var það kvöld eitt aö kvik-
myndaframleiðandinn Hal
Wallis rakst inn í klúbbinn og
hann varö svo hrifinn að hann
bauð þeim samning um að
leika i kvikmynd hjá sér.
Fyrsta myndin var „My Friend
Irma", sem var frumsýnd árið
1949 og á nóttu urðu þeir fé-
lagar stórstjörnur. Þeir slitu
samstarfinu áriö 1956, en
héldu áfram hvor í sínu lagi
við góöan orðstír.
Jerry byrjadi sem dyravörður
Það lifnaöi heldur betur
yfir aödáendum gamanleik-
arans Jerry Lewis þegar eitt
af kvikmyndahúsunum (
Reykjavfk tók til sýningar
nýja mynd með gömlu
kempunni í aðalhlutverki. í
blaöaummælum um mynd-
ina segir m.a.: „Þegar Jerry
kemst í ham vöknar manni
snarlega um augun af hlátri.
Dásamlegt að slíkir menn
skuli enn þrífast á vorri
plánetu." En Jerry Lewis
varð að berjast fyrir frama
sínum á hvíta tjaldinu eins
og svo margir aðrir.
Hann fékk sitt fyrsta tæki-
fsBri í skemmtibransanum
þegar hann var 15 ára gamall,
en sú uppákoma var eins mis-
heppnuö og hugsast gat.
Áhorfendur hrópuöu hann
niður af sviðinu og hann var
svo niöurbrotinn á eftir aö
hann ákvaö aö koma aldrei
framar nálægt skemmtiiðnað-
inum. En þessi spaugsami
unglingur gafst þó ekki upp
og með tímanum varö hann
ein skærasta stjarnan í
bandarískum skemmtiiönaöi.
Jerry Lewis, sem réttu
nafni heitir Joseph Levitch,
fæddist árið 1926 og foreldrar
hans voru báðir starfandi
skemmtikraftar. Faðirinn
söng á næturklúbbi og móðir
hans lék á píanó í útvarps-
þætti. Jerry hætti í skóla 14
ára gamall og fór aö afgreiöa
á matsölustaö. Siöan varö
hann skipaafgreiöslumaöur
hjá hattaverksmiöju og því
næst dyravöröur hjá „Loew's
State Theater“ í New York. I
frítímanum æföi hann sig á aö
fara með grínþætti og fékk
sitt fyrsta tækifæri 15 ára
eins og áöur segir. Þaö var í
fjölieikahúsi i Buffalo þar sem
hann var hrópaöur niöur.
Hann var aö því kominn að
gefa allt upp á bátinn, en
grínisti viö fjölleikahúsiö, Max
Coleman, stappaði í hann
stálinu og ráölagöi honum aö
gefast ekki upp.
Næsta sumar var Jerry
ráöinn á hótel eitt í New York
og þar sló hann í gegn. En
hann náði sér þó ekki á strik
fyrr en hann hitti söngvarann
Jerry Lewis á sínum yngri árum, — óþskkt-
ur sviðslsikari á næturklúbbi.
Það var skynsamlsg ákvörðun þsgar þsir
Dean Martin og Jsrry Lswis ákváðu að koma
fram saman árið 1946.
Tími
til
kominn
Breski söngvarinn Cliff
Richard, sem nú er 41 árs
gamall, hefur undanfarin
tuttugu ár verið einn um-
talaöasti piparsveinn
skemmtanaiönaöarins og
þá einkum fyrir þaö, aö
hann hefur þótt óvenju
daufur í kvennamálum,
þrátt fyrir yfirburöastööu
sem vinsæll skemmtikraft-
ur. Gekk umtalið jafnvel
svo langt, að menn voru
farnir aö hafa þetta í flimt-
ingum á hinn ósmekkleg-
asta hátt. En nú hefur Cliff
slegið vopnin úr höndum
„slefberanna" og komið
fram í dagsljósið með konu
upp á arminn og hafa þau
tilkynnt heimspressunni
aö þau sáu opinberlega
trúlofuð. Hún heitir Sue
Barker og er þekkt tenn-
isstjarna, 25 ára gömul.
Um giftingaráform hefur
Cliff m.a. látiö hafa eftir
sér: „Hver veit? — Sue er (
öllu falli indælasta stúlka
sem ág hef kynnst.“