Morgunblaðið - 23.07.1982, Side 19

Morgunblaðið - 23.07.1982, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ1982 51 fclk í fréttum Nicole borðar ís i stað matar þegar hún hefur sem mest að gera. Nicole hefur engan frið + Nicole Honloch, hin 17 ára gamla þýska menntaskólastúlka sem að var í efsta sæti í Evrópusöngvakeppninni fyrir lagið sitt „Ein bisschen Frieden", verður æ uppgefnari og æ rík- ari þessa dagana. Lagið hennar er ennþá efst á vinsældalistanum í mörgum löndum og hún hef- ur ekki frið til að vera til fyrir útvarpsstöðvum og sjónvarpsstöðvum sem endilega vilja láta hana koma fram og syngja eða hafa viðtal við hana. Hún ætlar líka að taka stúdentspróf næsta vor og hún segist alls ekki geta komið stærðfræði inn í hausinn á sér, svo að hún hefur nóg að gera. Robert Jungk, umboðsmaður hennar og sá sem átti heiðurinn af því að „uppgötva" hæfileika hennar og gera hana fræga, segir að nú sé að koma út ný plata með 12 söngvum, sem örugglega eigi eftir að verða álíka vinsæl og „Ein bisschen Frieden". Sjálf segir Nicole að hún hafi engan tíma til að taka sér sumarfrí fyrr en í september. Margrét og Roddy hittast aftur + Konunglega blómasýningin í Chelsea í London þykir merki- legur atburður þar um slóðir. Konungsfjölskyldan mætir venjulega og fleira þvílíkt fólk. Margrét prinsessa mætti á sýn- inguna á þessu ári í fylgd með móður sinni. Þar var einnig mættur fyrrverandi hjartans vinur Margrétar prinsessu, Roddy Llewellyn. Hann yfirgaf Margréti prinsessu á sínum tíma til að giftast tískuteiknar- anum Töniu Seskin. Allir við- staddir glenntu upp augun og sperrtu eyrun þegar að Margrét prinsessa og Roddy Llewellyn fóru að tala saman, að því er virtist af mestu ánægju. Ekkert heyrðist á mál þeirra, en Mar- grét prinsessa sagði við móður sína á eftir, nógu hátt til að margir heyrðu: „Það er svo langt síðan að ég fjarlægðist hann.“ Hjarta- skurðlæknir sem hjarta- knúsari + Christian Barnard, hjartaskurð- læknirinn heimsfrægi frá Suður- Afríku, er nýlega skilinn við Barb- öru, konu sína númer tvö. Þau áttu saman tvo syni en þar sem að hjartaskurðlæknirinn gat ekki hætt að stunda diskóin gafst Barbara upp á honum og einn dag- inn, þegar hann kom heim til sín úr einhverri skemmtireisu, var Barbara farin. Upp á síðkastið hefur svo hjartaskurðlæknirinn sést mikið á skemmtistöðum í Rómaborg sem að kunnugir segja að sé uppá- haldsborgin hans. Sérstaklega virðist hann kunna vel við sig á næturklúbbnum „Jackie 0“, sem er aðalstaðurinn fyrir frægt og ríkt fólk í Rómaborg. Og ýmislegt bendir til að hjarta Christian Barnards slái hraðar en honum sé hollt í nærveru ungrar stúlku að nafni Moana Bozzi. Moana þessi er leikkona að atvinnu, þó ekki fræg, og segist hún vera mjög hamingjusöm í návist Christians. Hjartaskurðlæknirinn Christian Barnard og Moana Bozzi. í næturklúbbnum „Jackie 0“. Jane Birkin Ijósmyndar + Jane Birkin á „salon du prét a porter", ómáluð, á gallabuxum eins og tímaritið Feminin tók fram í blaði sínu í vikunni sem leið, innan um allt tískudótið frá Guy Laroche ... Þarna var hún með litla mynda- vél og tók ljósmyndir í gríð og erg fyrir blaðið Bezt. Frægust er hún sjálfsagt fyrir lagið „Je t’aime, moi non plus“, en það söng hún, eða hvað á maður að kalla það, með eiginmanni sínum Gainsbourg, en þau eru víst nýskilin og Serge Gainsbourg sést æ oftar með tískusýningardömunni Bambou. Honum er margt til lista lagt, gefur út hljómplötur, semur tónlist fyrir kvikmyndir og leikstýr- ir og hefur getið sér gott orð fyrir ljósmyndir. Hann er venjulega illa rakaður í gallabuxum, og reykir víst eins og skorsteinn. SÝNISHORN ÚR MATSEÐLI Rjómalöguð bleikjusúpa Salat Pönnusteiktur fjallasilungur með valhnetu-youghurtsósu Verð kr. 95,- GOÐUR ODYR LIPUR SÆLL AFBRAGÐ AKriARHÓLL Hvíldarstaður í hádegi höll að kveldi Velkomin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.