Morgunblaðið - 16.09.1982, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1982
+
Móðir okkar,
ÞÓRHILDUR ÞORSTEINSDÓTTIR,
Brekku, Norðurárdal,
lést 14. september.
Jaröarförin auglýst siöar. Erna Þ6röardóttir,
Ólafur Þórðarson,
Þorsteínn Þóröarson,
Guðrún Þóröardóttir.
Faöir okkar,
GEIR SiGURDSSON,
bóndi, írafelli, Kjós,
lést þriöjudaginn 14. september.
Börnin.
+
Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma,
ELÍN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Furugrund 64, Kópavogi,
andaöist í Landspítalanum þriöjudaginn 14. september.
Jaröarförin auglýst síöar.
RagnarMagnússon,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Móöir okkar,
JÓNA ÞORBJARNARDÓTTIR
frá Úlfarsá, Langholtsvegi 67,
andaöist í Borgarspitalanum, þriöjudaginn 14. september.
Sverrir Jónsson,
Páll Jónsson,
Sólveig Jónsdóttir,
Gunnar Jónsson.
Faöir okkar,
EGGERTARNÓRSSON,
sem lézt 8
StSlli i v-,..
fyrrverandi skrifstofustjóri,
Blönduhlíð 29,
september, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík, föstudaginn 17. september kl. 13.30.
Sigurlaug Eggertsdóttir,
Margrét Eggertsdóttir,
Arnór Eggertsson,
Ragnheiöur Eggertsdóttir,
Stefán Eggertsson,
Benóní Torfi Eggertsson.
Eiginmaöur minn og faöir,
KJARTAN LORNE CHRISTOPHERSON,
lést í San Francisco mánudaginn 6. september. Útför hans fór
fram föstudaginn 10. september.
Hrafnhildur Snorradóttir Christopherson,
Stefaní Anne Christopherson.
+
Útför eiginkonu minnar og móöur okkar,
FRIDRIKKU JÚLÍUSDÓTTUR,
Leifsgötu 8,
fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 17. september kl. 15.00.
Sœvaldur Konráösson
og synir.
+
Útför foreldra okkar,
INGIBJARGAR RÓSU ÍVARSDÓTTUR
og
GUÐJÓNS HALLGRÍMSSONAR
frá Maröarnúpí,
fer fram frá Undirfellskirkju laugardaginn 18. september kl. 2.
Börnin.
Auðbjörg Jónsdóttir
frá Skeiði - Minning
Fædd 9. nóvember 1897
Dáin 7. september 1982
Auðbjörg Jónsdóttir var fædd
að Kaldabakka á Bíldudal 9. nóv-
ember 1897. Hún var dóttir hjón-
anna Sigríðar Benjamínsdóttur og
Jóns Guðmundssonar. Bjuggu þau
hjón allan sinn búskap á Bíldudal
og var Auðbjörg elst sex barna
þeirra. Eftirlifandi systkini Auð-
bjargar eru Bergþóra og Benjamín
bæði búsett í Reykjavík.
Auðbjörg gekk í barnaskólann á
Bíldudal og var snemma mjög
námsfús og verklagin en á þessum
árum var ekki um frekari skóla-
göngu að ræða. Auðbjörg talaði
oft um það hvað hún hefði þráð að
læra meira enda er óhætt að
segja, að hún hafði vissulega hæfi-
leika til þess.
Haustið 1918 fór Auðbjörg til
Selárdals að Neðra-Bæ til að
hjálpa húsmóðurinni þar, sem var
veik. Var ætlunin að hún yrði þar
um mánaðartíma en raunin var sú
að hún dvaldist tæpa hálfa öld í
dalnum. Felldu þau hugi saman
Móöir okkar, + GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR,
Eyrarvegi 9, Selfossi,
veröur jarðsungin frá Selfosskirkju, laugardaginn 18. september
kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Selfosskirkju eða líkn-
arstofnanir.
Guöríöur Guömundadóttir, Guörún Hulda Guömundsdóttir, Dóra Guðmundsdóttir.
+
Bróöir okkar,
STEINGRÍMUR GUDMUNDSSON
frá Rifi,
til heímilis aö Skólabraut 8, Hellissandi,
veröur jarösunginn aö Ingjaldshólskirkju, laugardaginn 18. sept
ember kl. 13.30.
Fyrir hönd systkina hins látna,
Friöþjófur Guömundsson.
Móöir okkar, +
RAGNHEIÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR,
lllugagötu 75, Vestmannaeyjum,
verður jarðsungin frá Landakirkju, laugardaginn 18. september kl.
2 siödegis. Helga Ólafsdóttir, Margrét Ólafsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför eiginmanns míns,
HJARTAR GUNNARSSONAR,
Aöalgötu 6, Keflavík.
Magnea Magnúsdóttir.
+
Innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur samúö og vinarhug við
andlát og útför mannsins míns, fööur, tengdafööur og afa,
OLIVERS GUDMUNDSSONAR,
Ferjubakka 10.
Lára Einarsdóttir,
Edvard G. Oliversson, Ósk Skarphéöinsdóttir,
Sigríöur Oliversdóttir, Árni G. Finnsson,
Guöbjörg S. Oliversdóttir, Þórir A. Sigurbjörnsson,
Sigurbirna Oliversdóttir, Þórir K. Guömundsson,
og barnabörn.
Afmælis- og
minningargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn-
ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess
skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort
ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð-
um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð
og með góðu línubili.
hún og Árni Magnússon sonur
hjónanna að Neðra-Bæ.
Arni er fæddur að Króki í Sel-
árdal en skömmu seinna taka for-
eldrar hans við Neðra-Bæ og
bjuggu þar allan sinn búskap.
Hófu þau Auðbjörg og Árni líka
sinn búskap þar. Síðar fluttust
þau að Uppsölum í Selárdal en
lengstan tíma bjuggu þau að
Skeiði í sömu sveit.
Auðbjörg og Árni eignuðust sjö
börn, en dóttur sína, Ástu Bryn-
hildi, misstu þau þegar hún var á
fyrsta ári. Börn þeirra eru: Gunn-
ar kvæntur Lilju Guðmundsdótt-
ur; Sigríður gift Stefáni Ólafssyni
og eiga þau fjögur börn; Jón
kvæntur Ester Finnsdóttur og
eiga þau þrjú börn; Sveinn kvænt-
ur Sigrúnu Aradóttur og eiga þau
tvær dætur; Bergsveinn kvæntur
Gróu Friðriksdóttur og eiga þau
fjögur börn; Agnar kvæntur
Magnhildi Friðriksdóttur og eiga
þau þrjú börn.
Á fyrstu búskaparárum Árna og
Auðbjargar í Selárdal var þar
nargt um manninn og tók Auð-
björg virkan þátt í öllu félagslífi
sveitarinnar. Hún var um skeið
formaður slysavarnafélagsins á
staðnum og ævifélagi upp frá því.
Lagði hún oft mikið á sig vegna
félagslífsins. Mér hefur verið sagt,
að hún hafi gengið inn á Bíldudal
eitt sinn til að sækja þar mann-
fögnuð, en þetta eru um 25 km.
En þegar tók að fækka fólki í
dalnum hlýtur svo félagslynd
kona sem Auðbjörg var að hafa
borið söknuð í brjósti. Árið 1962 er
sú mikla ákvörðun tekin að bregða
búi og flytja til Bíldudals enda
börnin þeirra öll flutt suður nema
Agnar. Þegar þau fara úr dalnum
eru þar innan við tíu manns.
Síðar, þegar Agnar sonur þeirra
ákveður að kaupa verslunina
Rangá með undirritaðri, er síðasta
skrefið stigið og flutt til Reykja-
víkur sumarið 1972. Keyptu þau
lítið hús að Skipasundi 33, sem
þau gerðu að unaðsreit.
Bæði hús og garður voru í niður-
níðslu þegar eignin var keypt, en
börnin þeirra tóku húsið í gegn en
gömiu hjónin ræktuðu garðinn
sinn enda má segja að þau hafi
gert það líka í viðari skilningi
þeirra orða.
Ein síðasta minning mín um
Auðbjörgu var núna síðsumars
þegar hún var að sýna mér rósa-
beðið sitt og Árni var að snúa hey-
inu á grasflötinni í garðinum
þeirra.
Það hefur oft verið tekið til þess
hér í götunni hvað fjölskyldan er
samhent. Auðbjörg sagði það líka
oft að börnin sín væru góð en
tengdabörnin væru engu síðri. Það
eru ekki allar tengdamömmur sem
tala svona.
Það er dásamlegt þegar efri ár-
in geta liðið við „leik“ og störf.
Bæði Auðbjörg og Árni fundu lífi
sínu tilgang í ellinni með sköpun-
argleði sinni og vinnusemi. Hún
sat og saumaði út margvíslega
muni og tók einnig mikinn þátt í
félagsstarfi aldraðra að Norður-
brún 2, en Árni smíðar forláta
kistla og kistur og áhuginn er svo
mikill að ekki var alltaf hægt að
mæta í mat á réttum tima.
Þegar fólk hefur búið saman yf-
ir 60 ár eins og þau Árni og Auð-
björg er erfitt að skilja þau að í
huga sínum, þau verða ósjálfrátt
sem ein heild.