Morgunblaðið - 16.09.1982, Blaðsíða 44
Síminná QQfiQQ
afgreéöslunni er OOUOO
2Borgmtbfabtö
v
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1982
Ríkisstjórnin á fundi í dag:
Fjögur fiskiskip
eru í viðbragðs-
stöðu á miðunum
4 riUisistjórnarfundi í dag mun vandi útgerðarinnar tekinn fyrir; en talið er
nú að usaxkuldir útgerðarinnar nemi um 800 milljónum króna. Á fundinum
mun siávarútvegsráðherra, Steingrímur Hermannsson, leggja tillögur ráðu-
neytis sins fyrir ríkisstjórnina og verða þar væntanlega teknar endanlegar
ákvaroanir um það hvað gera skuli.
Þá -rsun á þessum fundi verða
fjallað um beiðnir um sölu fisks
erlendis, en nú bíða fjögur skip í
viðhrr.gðsstöðu á miðunum, til-
búin til að sigla með aflann, fáist
leyfi til þess. Þessi skip eru Vestri
BA, Katrín VE, Hrugnir GK og
Karlsefni RE. Þessi skip voru að
veitv.m fyrir vestan land, en hafa
nú flutt sig austur fyrir til að geta
náð til Bretlands og Þýzkalands á
mánudag. Nú liggja fyrir við-
skiptaráðuneytinu beiðnir 15 út-
gerðaraðilja um sölu fisks erlend-
is.
Sjá nánar um solur er-
lendis á bls. 2.
Bandaríska fjárveitingin til
flugstöðvarbyggingarinnar:
Reikna með svari
20. september
r
— segir Olafur Jóhannesson utanríkisráðherra
„MAÐFR fer að vita eitthvað um
niðurstöðu þessa eftir 20. septem-
ber,“ svaraði Ólafur Jóhannesson
ulamíkisráðherra, er Mbl. spurði
haiio hvort svör hefðu borist frá
Kandaríkjunum við óskum hans
um að fjárveiting Bandaríkja-
stjórnar til nýrrar flugstöðvar-
byggingar á Keflavíkurflugvelli
verði framlengd, en samkvæmt
handarískum lögum rennur fjár-
vcitir.garheimildin út 1. október
BSRB:
Atkvæðagreiðsla
stendur yfir
N(I stendur yfir atkvæðagreiðsla
innan BSRB um aðalkjarasamninga
BSRB og fjármálaráðuneytisins.
Atkvæðagreiðslu lýkur á föstu-
dag og verða atkvæði utan af landi
að hafa borizt póststofum fyrir
lokun þann dag.
nk., ef ekki eru þá hafnar fram-
kvæmdir við bygginguna.
Eins og komið hefur fram í
fréttum beitti minnihluti ríkis-
stjórnarinnar, þ.e. alþýðubanda-
lagsmenn, neitunarheimild sinni í
stjórnarsáttmála ríkisstjórnar-
innar og greiddi atkvæði gegn til-
lögu Ólafs Jóhannessonar um að
ráðist skyldi í byggingu flugstöðv-
arinnar. Þegar fyrirséð var að
ckki yrði hafist handa um bygg-
ingu flugstöðvarinnar fyrir 1.
október lýsti Ólafur Jóhannesson
því yfir, að hann myndi leita eftir
framlengingu á fjárveitingu
Bandaríkjastjórnar.
Utanríkisráðherra hefur verið í
sambandi við utanríkisráðuneyti
Bandaríkjanna og utanríkisráð-
herra vegna málsins og sent þang-
að beiðni um framlengingu. Fram-
lenging fjárveitingarheimildar-
innar þarf að fá þinglega meðferð
í Bandaríkjunum og kvaðst Ólafur
reikna með að málið skýrðist
næstu daga eftir 20. september.
Verkfall skollið á og
lítil von um lausn í bráð
SÁTTAFUNDI í deilu starfsmanna
á Tugnaársvæðinu og vinnuveit-
enda lauk um klukkan 20.30 i
gærkvöldi án þess að nokkuð þok-
aði í samkomulagsátt og virðist
lausn ekki í sjónmáli. Nýr fundur
hefur ekki verið boðaður.
Fámennt var á virkjunarsvæð-
inu við Sultartanga þegar blaða-
menn Mbl. litu þar við í gær-
morgun. Rúmlega 200 starfs-
menn fóru af svæðinu um leið og
verkfail hófst á miðnætti á
þriðjudagskvöld. Myndina tók
Kristján Einarsson er einn
starfsmanna hélt af virkjun-
arsvæðinu um hádegisbilið í
gær, en þá voru aðeins örfáir
verkstjórar eftir á svæðinu.
Sjá nánar í miðopnu.
Nýja súpukjötið
hækkar um 30,5%
Nýtt verð ákveðið á sauðfjárafurðum:
SEXMANNANEFNDIN, sem ákveður verð landbúnaðarafurða, hefur ákveð-
ið nýtt verð á sauðfjárafuröum. Kílóið af súpukjöti 1. veröflokki, kostar nú í
smásölu 60,25 kr., það kostaði 46,15 kr. fyrir hækkun og hækkar því um
30,5%. Kílóið af hjörtum og nýrum hækkar úr 36,30 kr. í 41,55 kr. eða 14,5%.
Kílóið af lifur lækkar um 10 aura, úr 54,85 kr. í 54,75 kr. Eitt slátur kostar nú
60,10 kr., kostaði áður 51,65 og hækkar þvi um 16,4%. Landbúnaðarafuröirn-
ar hækkuðu siðast 1. júní sl.
Sexmannanefndin, sem skipuð
er 3 fulltrúum frá bændum og 3
fulltrúum frá neytendum, var
sammála um verðákvörðunina en
hún miðast við að niðurgreiðslur
verði óbreyttar að krónutölu.
Ákvörðunin verður kynnt á ríkis-
stjórnarfundi í dag, en ríkisstjórn-
in tekur ákvörðun um hvort
breyta skuli niðurgreiðslum.
Nýja verðið tekur gildi þegar af-
urðir af nýslátruðu koma á mark-
aðinn í haust, en kjötið frá síðustu
sláturtíð verður á óbreyttu verði
þangað til það selst upp. í byrjun
þessa mánaðar voru óseld rúm 200
tonn af gamla kjötinu.
Sláturkostnaður er nú 15,20 á
hvert kíló af kjöti og gærum og
hefur hækkað um 48% frá síðustu
sláturtíð. Það kostar því um 200
krónur að slátra hverju einasta
lambi.
Sjómenn um ástandið vegna stöðvunar flotans:
„Með því svartara
sem við höfiim séð“
SJOMENN, sem Morgun-
bladið ræddi viö í gær,
höföu allir áhyggjur yfir af-
komu sinni, vegna stöðvun-
ar togaraflotans og yfirvof-
andi stöðvunar bátaflotans.
Meðal þess sem kom
fram hjá þeim, var að
stöðva yrði innflutning á
nýjum skipum og breyta
rekstrargrundvelli út-
gerðarinnar, þannig að
hann yrði viðunandi. Þá
kom fram, að öll þjóðin
yrði að axla byrðina
vegna rýrnandi afla.
Fremur reyndust þeir
vantrúaðir á að ástandið
breyttist fljótlega og
nokkrir töldu að um lang-
vinna stöðvun flotans yrði
að ræða.
Þá voru þeir sammála
um að kjör sjómanna
hefðu versnað vegna rýrn-
andi afla og að það myndi
reynast erfitt að fá það
bætt að einhverju leyti.
Sjá nánar: „Ef þessir
stjórnmálamenn..." á
miösíöu.
Kvennaskólinn:
Karlmað-
ur skóla-
stjóri
Aðalsteinn Eiriksson hefur
verið settur skólastjóri Kvenna-
skólans í Reykjavik. Hann hefur
kennt við skólann í tæp 20 ár og
er fyrsti karlmaðurinn sem stýrir
Kvennaskólanum. Þá hefur Sæv-
ar Hilbertsson verið settur yfir-
kennari skólans.
Aðalsteinn tekur við af Guð-
rúnu P. Helgadóttur, sem
starfaði við skólann í rúman
aldarfjórðung. Nemendur í
Kvennaskólanum eru í vetur
269, þar af rétt um 20 piltar.