Morgunblaðið - 19.09.1982, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982
Ragnar Júlíusson, formaður útgerðarráðs BUR:
Togarastöðvun
af illri nauðsyn
BORGARSTJÓRN samþykkti á fundi sínum s{. fimmtudag að vísa frá tillög
frá Sigurjóni Péturssyni, um að þátttöku BÚR i stöðvunaraðgerðum Ll
verði hætt. I>að var samþykkt með 12 atkvæðum meirihluta Sjálfstæðis-
flokksins, gegn 9 atkvæðum minnihluta vinstri flokkanna. Var hér um
endurflutning tillagna úr borgarráði að ræða, en þar var tillögu Sigurjóns
einnig vísað frá.
I umræðum um málið kom það
fram hjá Ragnari Júlíussyni borg-
arfulltrúa, formanni útgerðar-
ráðs, að ekki væri annað hægt en
að taka þátt í stöðvunaraðgerðun-
um, vegna fjárhagsstöðu Bæjarút-
gerðarinnar. Sagði hann að halli
fyrirtækisins á síðasta ári hefði
verið um 37 milljónir króna. Benti
Ragnar á, að á árabilinu
1980—1981 hefði olíuverð til skipa
tvöfaldast og væri nú verð eins
lítra af olíu svipað og eins kílós af
þorski. Sagði Ragnar að togararn-
ir væru stöðvaðir af illri nauðsyn,
en ekki af pólitískum ástæðum.
Benti hann ennfremur á að meðal-
afkoma útgerðarfyrirtækja á
landinu væri betri en afkoma BÚR
og því berðist fyrirtækið fyrir
bættum kjörum. Mótmælti hann
þeim málflutningi vinstri flokk-
anna í borgarstjórn, að BÚR sýndi
þjónkun við LÍÚ í þessu máli, en
sagði að þetta væru nauðsynlegar
aðgerðir.
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagði að rangt væri að BÚR héldi
sínum skipum úti á meðan aðrir
berðust fyrir umbótum, en njóta
síðan ávaxtanna af baráttu LIÚ.
Sagði hann að afstaða vinstri
flokkanna í borgarstjórn væri
verkafólki ekki til góðs. Ef útgerð-
in brygðist og ekki veiddist, þá
myndu laun lækka í landinu, og
það kæmi fyrst við þá sem síst
mættu við því að launin lækkuðu.
Getraunir:
21% söluaukning
GETRAUNIR hafa farið vel af stað í
haust, að sögn Sigurgeirs Guð-
mannssonar hjá íslenskum getraun-
um. Seldar raðir eru 21,5% fyrstu 3
leikvikurnar en á sama tíma í fyrra,
en peningaleg velta hefur aukist um
82,2%, þar sem hver röð er 50% dýr-
ari en í fyrra.
Getraunaseðlar hafa verið seld-
ir fyrir 974.142 krónur þessar 3
leikvikur og af því fá félögin jafn-
Árekstur í Hvalfirði:
Fjórir flutt-
ir í sjúkrahús
Fimm manns slösuðust i allhörð-
um árekstri í Hvalfirði á föstu-
dagskvöld. Fjögur hinna slösuðu
voru flutt í Sjúkrahúsið á Akranesi,
og ein stúlka í hópnum var síðar
flutt með sjúkrabifreið til Reykja-
víkur. Var hún mest slösuð þeirra
fimm er meiddust, ekki talin í lífs-
hættu, en mikið skorin.
Slysið varð um klukkan 20.30 á
föstudagskvöld, skammt sunnan
Olíustöðvarinnar í Hvalfirði, þar
sem tvær fólksbifreiðir rákust á. í
annarri bifreiðinni var ökumaður
og einn farþegi. Slapp farþeginn
ómeiddur, en gert var að sári á
fæti ökumanns á staðnum. í hinni
bifreiðinni voru ökumaður og fjór-
ir farþegar, og úr henni fóru fjórir
á sjúkrahús svo sem fyrr segir.
Lögregla úr Borgarnesi var kvödd
á vettvang, og sjúkrabifreið frá
Akranesi flutti hina slösuðu til að-
hlynningar.
óðum fjórðung í sölulaun sem eru
243.500 krónur. Fram og KR selja
mest allra félaganna og selja þau
samtals um fjórðung allra seldra
seðla.
Sala hefur aukist mikið úti á
landi og fer hlutdeild Reykjavík-
urfélaganna heldur minnkandi.
Sigurgeir sagði að til gamans
mætti geta þess, að í knattspyrnu-
bæ einum miklum hér handan við
flóann hefðu verið seldar 900 raðir
í annarri leikviku. Þá var einn
bæjarbúi með 12 rétta og fékk 115
þúsund í vinning. í næstu viku,
þriðju leikvikunni, seldust í þess-
um sama bæ 2.300 raðir.
Mynd Mbl. Júlíus.
Ók á bifreið og stakk af
MAÐUR grunaður um ölvun við akstur ók á sendibifreið, sem kastaðist á
aðra bifreið, fyrir framan Laugarnesveg 56 laust eftir klukkan þrjú í
fyrrinótt. Hann stakk af vettvangi, en náðist skömmu siðar á Kleppsvegi.
Maðurinn var ásamt farþega fluttur í slysadeild, en þeir munu ekki hafa
slasast alvarlega. Bifreiðin, sem er af gerðinni Mitsubishi Colt, er mikið
skemmd.
Mynd Mbl. JúHus.
LAUST EFTIR klukkan þrjú í fyrrinótt var Fiat-bifreið ekið á Ijósastaur
fyrir framan Kleppsveg 30. Bifreiðin gjöreyðilagðist og Ijósastaurinn féll í
götuna. Tvær stúlkur voru í bifreiðinni og siuppu þær ómeiddar.
Mínútan
á 11.900 kr.
í FRÉTT í Mbl. í gær, um hækkun á
auglýsingaverði Ríkisútvarpsins,
hljóðvarps og sjónvarps, misritaöist
ein tala með meinlegum hætti.
Sagt var að mínútan í auglýs-
ingatíma sjónvarps kostaði 1.190,
en það er ekki rétt. Mínútan kost-
ar eftir hækkun 11.900 krónur, en
kostaði fyrir hækkun liðlega 9.900
krónur.
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þessari misritun.
Bílainnbrots-
þjófar teknir
Rannsóknarlögregla ríkisins hefur
haft til meðferðar fjóra pilta um tvitugt
vegna þjófnaða úr bílum. Aðfaranótt
Töstudagsins voru tveir piltar handtekn-
ir í Breiðholti. Þeir höfðu i fórum sinum
tæki, sem nota má til innbrota, og
slöngur, sem nota má til þess að taka
benzín úr bilum.
Við rannsókn fannst mikið góss,
einkum þýfi sem tekið hefur verið úr
mörgum bifreiðum á Reykjavíkur-
svæðinu að undanförnu. Er hér eink-
um um að ræða hljómflutningstæki.
Að undanförnu hefur mikið borið á
þjófnuðum úr bílum í Reykjavík. Á
fimm vikna tímabili var tilkynnt um
32 innbrot í bíla víðs vegar um borg-
ina. Það voru fyrst og fremst
hljómflutningstæki sem stolið var.
Piltarnir fjórir eru taldir eiga sök á
bróðurpartinum af þessu. Einnig
fannst þýfi, sem tekið hefur verið
annars staðar en úr bílum. Piltarnir
hafa verið í stöðugum yfirheyrslum
hjá RLR.
Haustfölvi
StykkLshólmi, 10. september.
HAIISTIÐ er nú farið að segja til sín.
Snjór er kominn á fjallatoppana og
haustfölvi á lauf og gras.
Berjaspretta var ágæt, sérstak-
lega krækiberjaspretta, en bláberin
þroskuðust seint og illa, í það
minnsta hér í nágrenninu, en margir
hafa þó notfært sér þessi búdrýg-
indi.
Byrjað er að taka upp kartöflur og
er spretta misjöfn, en yfirleitt i
betra lagi. Fréttaritari.
Guðmundur Guðmundsson, formaður Útvegmannafélags Vestfjarða:
Veit ekki annað en samstaða sé
innan félagsins um stöðvun flotans
„ÉG HEF samþykkt þessa stöðvun fyrir hönd Útvegsmannafélags Vest-
fjarða og er henni að sjálfsögðu sammála. Ég veit ekki annað en að það
sé samstaða um þetta mál innan félagsins, ef svo er ekki verður timinn
að leiða það í ljós,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, formaður Út-
vegsmannafélags Vestfjarða, í samtali við Morgunblaðið í gær.
„Það er mín skoðun á þessu
máli, að það þurfi að leiðrétta
rekstrargrundvöll útgerðarinnar,
á því hefur verið klifað í allt
sumar, en ekkert gert. Þetta er
erfið leið, það viðurkenni ég, en
er að mínu mati nauðsynleg.
Þetta er úrslitatilraun til að fá
lagfæringu, en það virðist ekki
vera hlustað á þetta og ráðuneyt-
ismenn virðast ekki gera sér
grein fyrir því að útgerðin þarf
að ganga."
Hvernig lízt þér á samþykkt
ríkisstjórnarinnar um að sækja
Grafarvogssvæðió:
Kostnaður við skipulags-
vinnu um 660 þúsund á árinu
peninga í þessa sjóði til að leysa
vanda útgerðarinnar?
„Hér er um að ræða peninga,
sem hafa runnið beint frá út-
gerðinni, sem nota á til að bjarga
ástandinu. Uppsafnaður hagnað-
ur hjá Fiskveiðasjóði er vegna
þess að útgerðarmenn hafa verið
látnir greiða dráttarvexti og of
háa vexti, annars myndast ekki
hagnaður. Þá eru þeir peningar,
sem taka á úr Tryggingasjóði
fiskiskipa, hluti útflutnings-
gjalds, sem hefur orskað lægra
fiskverð. Hlutverk sjóðsins er að
greiða 35% af iðgjaldi fiskiskipa
og þeir fjármunir, sem til eru í
Tryggingasjóði nú, eru mismun-
ur á tekjulind sjóðsins, útflutn-
ingsgjaldi og framlagi hans til
iðgjalda.
Þessar hugmyndir leysa engan
vanda og því hvet ég eindregið til
samstöðu meðal félaga í LÍÚ,“
sagði Guðmundur.
Haglabyssu og
áfengi stolið
í fyrrinótt var brotist inn í
vörugeymslu skipdeildar SÍS við
Holtagarða og þaðan stolið áfengi,
að minnsta kosti einum kassa, og
haglabyssu. Rannsóknarlögreglu
ríkisins var tilkynnt um þjófnað-
inn í gærmorgun. Þjófurinn var þá
ófundinn.
Fyrsta hálka haustsins:
KOSTNAÐUR á þessu ári vegna skipulagsvinnu við Grafarvogssvæðið mun
nema um 660 þúsund krónum, þar af er gert ráð fyrir því að vinna arkitekt-
anna sem skipuleggja svæðið muni kosta um 590 þúsund krónur, en líkan af
svæðinu kosti um 70 þúsund krónur. Þetta kom fram í svari borgarstjórans í
Reykjavík, Davíðs Oddssonar, við fyrirspurn frá borgarfulltrúum Alþýðu-
bandalagsins.
Það kom ennfremur fram í svari
Davíðs að í fjárhagsáætlun ársins
1982 hefði átt að verja tæpum
fimm milljónum til greiðslna á að-
keyptri vinnu hjá borgarskipulagi,
þar af hefði verið gert ráð fyrir
817 þúsundum til vinnu við skipu-
lag á Rauðavatnssvæðinu, en eins
og kunnugt væri hefði verið hætt
við að byggja þar.
Varðandi vinnu við hönnun
gatna og holræsa á svæðinu, sagði
Davíð að samningur hefði verið
gerður við Verkfræðistofu Sigurð-
ar Thoroddsens varðandi vinnu
við eftirtalin atriði: frumathugan-
ir á gatna- og holræsakerfi, hönn-
un gatna og holræsa á 'A hluta
svæðisins og útboðsgögn fyrir
hvern verkhluta fyrir sig sam-
kvæmt nánari skilgreiningu.
Einnig gerð nauðsynlegra vinnu-
teikninga, yfirlitsuppdrátta o.fl.
Sagði Davíð að gera mætti ráð
fyrir að kostnaður vegna samn-
ingsins við verkfræðistofuna yrði
á bilinu 1,0—1,2 milljónir króna.
Bílvelta og árekst-
ur á Hellisheiði
Fólksbifreið valt á Hellisheiði í
gærmorgun, og um svipað leyti
varð árekstur tveggja fólksbif-
reiða ofan við Kamba. Bifreiðarn-
ar skemmdust í báðum tilvikum
talsvert, en ekki urðu slys á fólki.
Að sögn lögreglunnar í Arnessýslu
var talsverð hálka á Hellisheiði er
óhöppin urðu, og var henni um að
kenna í báðum tilvikum. Er þetta
fyrsta hálkan á þessu hausti á
veginum um Hellisheiði, og öku-
menn vafalítið verið óviðbúnir
henni.