Morgunblaðið - 19.09.1982, Síða 5

Morgunblaðið - 19.09.1982, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 5 Út og suöur kl. 10.25: Eldeyjarleiðangur Á dagskrá hljóðvarps kl. 10.25 er þátturinn Út og suður í umsjá Friðriks Páls Jónssonar. Árni Johnsen segir frá Eldeyjarleið- angrinum sem farinn var í síð- asta mánuði. — Þetta fjallar mest um að- draganda ferðarinnar og upp- gönguna í eyjuna, sagði Árni, — en ekkert greint frá glímu við súlu. Þeir eru á kafi í að vinna myndina sem tekin var í leið- angrinum, sjónvarpsmennirnir, en það er ekki vitað ennþá, hve- nær hún verður tilbúin til sýn- ingar. Hugleiðingar um nöfn Kl. 19.25 er í hljóðvarpi dagskrárliður er nefnist Hugleið- ingar um nöfn. Dr. Gunnlaugur Þórðarson flytur erindi. — Á sínum tíma flutti ég á Alþingi frumvörp til laga, sem höfðu að markmiði að koma í veg fyrir notkun erlendra nafna á verslunum, fyrirtækjum, gistihúsum og veitingastöðum, sagði Gunnlaugur. — Frumvarpið varð að lögum eftir að varaþingmennsku minni lauk í það sinnið. Lögin voru samt ekki fullkomin og tókst nokkrum fyrirsvarsmönnum verslana og fyrirtækja að fara í kringum þau. Urðu embættismenn sem höfðu með skrásetningu þessara firma að gera fyrir aðkasti af þeim sökum og tek ég svari þeirra í máli mínu. Einnig hugleiði ég um mannanöfn og nöfn á vikudögum, sem við hefðum átt fyrir löngu að vera búnir að færa til fyrra horfs. Þarna koma fram ýmis kímileg atriði, t.d. í sambandi við mannanöfnin, en í því efni væri af nógu að taka. Árni Johnsen ísamt nokkrum af leiðangursmönnum, þeim Val Andersen, Haraldi Geir Hlöðverssyni og Þorkeli Húnbogasyni. Hljóðvarp kl. 19.25: Dr. Gunnlaugur Þórðarson Sjónvarp kl. 21.00: Jóhann Kristófer — sjöundi þáttur Á dagskrá sjónvarps kl. 21.00 er sjöundi þáttur myndaflokksins um Jóhann Kristófer. Þýðandi er Sigfús Daðason. Vegur Jóhanns Kristófers sem tónsnillings fer vaxandi. Þeir Oliver taka þátt í kjarabaráttu verkalýðsins. Lögreglan ræðst á kröfugöngu verkamanna 1. maí. Oiiver fellur í valinn en Jóhann Kristófer flýr til Sviss. Helgarferöir-vikuferöir AMSTERDAM -eina sanna .Bnópuhjartað Amsterdam er óumdeilanlega í sviðsljósinu um þessar mundir - jafnt hér- lendis sem erlendis. Þessi fallega stórborg hefur í æ ríkara mæli tekið við hlutverki hins eina sanna „hjarta Evrópu" og í borginni finnur þú tækifæri til nær allra þeirra hluta sem hugurinn girnist. Einstaklingsferðir Brottföralla föstudaga í 5 daga ferðir. Brottför alla þriðjudaga eða föstu- daga í vikuferðir. Innifalið í verði: Flug, gisting með morgunverði. Gisting á lúxushótelunum Marriott og Hilton eða á hinu stórskemmtilega og vingjarnlega Parkhotel. Allt einstaklega vel staðsett hótel. Hópferðir aðildarfélaga 5 daga ferðir (hægt að framlengja) Október: 1, 22, 29 Nóvember: 12, 26. Desember: 10. Verð er sama og f einstaklings- ferðunum en auk flugs og gistingar með morgunverði er eftirfarandi innifalið: Ferðir til og frá flugvelli erlendis, íslensk fararstjórn og skemmtisigling um síki Amsterdam. Næturlífið er fjölskrúðugt og eldfjörugt, verslanirnar í sérflokki, veitingastað- irnir hver öðrum skemmtilegri og listheimurinn óviðjafnanlegur. Síðast en ekki sfst mætir þér hvarvetna glaðvært og hlýlegt viðmót sem Hollendingar hafa löngum verið annálaðir fyrir. Hvað er gert í Amsterdam? Verslun Glæsilegar verslanir af öllum tegundum. Verðlagið er engu líkt. Veitingahús Veitingahúsin eru frá öllum heims- hornum enda gjarnan sagt að í Amsterdam sé hægt að „borða á öllum tungumálum". Líflegir barir og notaleg kaffihús að auki. Næturlífið Diskótek, næturklúbbar og skemmtistaðir skipta hundruðum. Myndlistin 50 listasöfn, t.d. Rembrandt- og Van Gogh söfnin, Rijksmuseum, Stede- lijks Museum, vaxmyndasafnið Madame Tussaud's, hús önnu Frank o.fl. Tónlistin Klassík, popp, jazz, kirkjuorgel og margt fleira. Snjöllustu listamenn heims troða upp ( hverri viku. Gleymum heldur ekki ballettinum og 50 kvikmyndahúsum með allar nýjustu myndirnar með ensku tali. Knattspyrnan Deildarkeppnin, Evrópuleikir, lands- leikir. Verð frá kr. 4.950 Nánari upplýsingar á skrifstofunni. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 cc S rfi Verð miöast við flug og gengi 1.9.1982

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.