Morgunblaðið - 19.09.1982, Side 7

Morgunblaðið - 19.09.1982, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 7 í Betaníu, litlu þorpi utan við Jerúsalem, bjuggu þrjú systkin, sem Jesús batt mikla vináttu við og gisti oft á heim- ili þeirra. Eitt af guðspjöllum dagsins í dag segir frá heim- sókn Jesú þangað og því, hversu þær systur tóku ólíkt á móti honum. Ég hygg við þekkjum hana vel þessa sögu eins og hún er sögð í 10. kapít- ula Lúkasarguðspjalls. María settist strax við fætur Jesú til að hlýða á hann, á meðan Marta var önnum kafin við mikla þjónustu. Hjá Maríu er það númer eitt að leita and- legra verðmæta, en Marta læt- ur veraldarvafstrið ganga fyrir. Og af því að Marta kvartar, þá verður Jesús að skera úr. Það er greinilegt, að hann dregur taum Maríu. Hann segir: „Eitt er nauðsyn- legt. María hefur valið góða hlutann. Hann skal ekki verða tekinn frá henni." Jesús fordæmir ekki verald- arvafstrið, alls ekki, en það má ekki útrýma hinu eina nauð- synlega. Hluti Maríu heyrir eilífðinni til, af því að sálin ein er varanleg eign. Þess vegna er hann nefndur góði hlutinn. Hún tekur Jesú ekki sem venjulegum, veraldlegum gesti, heldur sem þeim, er einn getur svalað dýpstu þrá mannsandans. Og að sinna þeirri þrá eða þörf er það sem maðurinn á að helga sig fyrst og fremst hér á jörð. Einhver hefur sagt, að aðal- veilan hjá Mörtu sé sú, að hún metur meira á þessari stund að þjóna Jesú en þiggja þjón- ustu hans. Þó getur þjónusta hennar aldrei orðið nema í veraldlegum efnum, er verða samt hvorki honum né henni aðalatriði, þegar ofan í saum- ana er farið. Þetta þýðir hins vegar ekki, að við eigum að vanrækja ver- aldlega hluti. En við megum aldrei gleyma hinu, að grund- völlur mannlegrar hamingju er andlegur. Til þess að geta gengið heilir og sterkir til bar- áttu hins daglega lífs, til þess að geta barist þar sannri og árangursríkri baráttu, þurfum við að vera hlaðnir andlegri orku, byggðir upp til æ kær- leiksríkara lífs. Þess vegna eiga trú, von og kærleikur, góði hlutinn í lífinu, ætíð að vera númer eitt, til þess að Góði hlutinn tryggja æ betri útkomu í okkar veraldlega vafstri. Góði hlut- inn, sem við eignumst, með því að hlusta vel á allt sem Jesús segir, hann á að tryggja að gjörðir okkar geymi meira af sjálfsgjöf en sjálfselsku, meira af kærleik en öfund og úlfúð. Með því móti einu er þess ein- hver von, að lífið á jörðinni þokist til réttrar áttar. Guðspjöll þessa sunnudags vara líka við áhyggjum. Ráðið við þeim er að velja góða hlut- ann, setja Guð nr. 1, treysta á hjálp hans og ganga svo örugg- ur mót erfiðleikunum, studdur krafti hans og handleiðslu. En þannig hugsa allt of fáir. Kapphlaupið um veraldargæð- in eykst sífellt. Dansinn kring- um gullkálfinn og verðbólgu- bálið er æ hraðar stiginn og andleg mál eru ekki hátt metin á slíkum slóðum. Hljóðar stundir til að hlusta, íhuga og biðja eru það ekki heldur. Æ fleiri okkar á meðal verða því fórnardýr hraðans, sem öllu þessu fylgir, og geta illa slitið sig út/ár þeim vítahring, er af þessu leiðir. En andlegir leiðtogar hvetja til endurskipulagningar mannlífsins. Þeir fullyrða, að ef hægt sé að koma á kyrrlát- um stundum kvölds og morg- uns t.d. stuttum stundum til að hlusta, íhuga og biðja, þá muni þær koma miklu góðu til leið- ar, með því að byggja einstakl- inginn upp, gera hann í senn sterkari og kærleiksríkari, er hann gengur út í straumröst veraldarvafstursins. „Straumvötnin eru venju- lega gruggug, en gruggugt vatn verður hreint, ef það fær að vera í friði,“ mælti hinn forni spekingur Lao-tse. Mannlegt líf þarf á meiri friði að halda, hljóðum stundum sem hreinsa hugann, skapa þar innri birtu, gleði og góðleik og gefa andlegt jafnvægi. Mér finnst ég greina breyt- ingu á lífsmynstri um þessar mundir. Unga fólkið í dag krefst ekki eins mikils íburðar og margir hinna eldri hafa gert. Það kýs frekar hlýju og notalegheit. Það leitar lífs með lægri spennu en það sér fyrir sér, því finnst við hafa gert líf- ið of flókið, það eigi að vera fábrotnara, einfaldara. Við vitum, að þetta er allt satt. En getum við þá ekki sameinast um hitt líka, að trú, von og kærleikur hafa verið hornrek- ur, en þurfa að njóta viður- kenningar og sannmælis sem „góði hlutinn" í lífinu, sá góði hluti, sem einn er fær um að skapa bæði hamingju einstakl- inganna og frið og farsæld í samskiptum þjóðanna? Látum það vera íhugunar- og bænar- efni okkar. IP I Lítið meira Sér permanentherbergi Tímapantanir í síma 12725 mest Rakarastofan Klapparstíg Þetta er mikilvæg spurning þegar leiðum til þess að verðtryggja fé hef ur f jölgað og hægt er að velja mis- munandi ávöxtun. Leiðin sem hentar þér gæti m.a. verið: Verðtryggð spariskírteini Ríkissjóðs. Verðtryggð veðskuldabréf. Óverðtryggð veðskuldabréf. Happdrættisskuldabréf Ríkissjóðs. Við höfum víðtæka reynslu í verðbréfaviðskiptum og fjármálalegri ráðgjöf og miðlum þeirri þekkingu án endurgjalds. Viljir þú ávaxta sparifé þitt munum við ráðleggja þér hagkvæmustu ráðstöfun þess. VerðbréfemarkaÖur Fjárfestingarfélagsins Lækjargötu12 101 Reykjavik lónaöarbankahúsinu Simi 28566 Wröbréfemarkaöur Ejárfestingarfélagsins GENGI VERÐBREFA 19. SEPTEMBER 1982 VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI VEÐSKULDABRÉF MEÐ LÁNSK JARAVÍSITÖLU: 1970 2. 1971 1. 1972 1. 1972 2. 1973 1. 1973 2. 1974 1. 1975 1. 1975 2. 1976 1. 1976 2. 1977 1. 1977 2. 1978 1. 1978 2. 1979 1. 1979 2. 1980 1. 1980 2. 1981 1. 1981 2. 1982 1. flokkur flokkur flokkur flokkur flokkur A flokkur flokkur flokkur flokkur flokkur flokkur flokkur flokkur flokkur flokkur flokkur flokkur flokkur flokkur flokkur flokkur flokkur >S: Sölugengi nafn- Ávöxtun m.v. vextir umfram Sölugengi 2 afb./ári (HLV) verötr. pr. kr. 100,- 8.634,70 7.591,98 1 ár 96,49 2% 7% 2 ár 94,28 2% 7% 6.581,81 3 ár 92,96 2'/r% 7% 5.575,40 4 ár 91,14 2%% 7% 4.035,58 5 ár 90,59 3% 7% 3.717.73 6 ár 88,50 3% 7%% 2.566,16 7 ár 87,01 3% 7 >/«% 2.107.38 1.587,48 1.504.39 8 ár 84,85 3% 7%% 9 ár 83,43 3% 7%% 1.204,25 10 ár 80,40 3% 8% 1.117,18 932,93 15 ár 74,05 3% 8% 757,52 596,04 502,45 388.38 285.39 224.24 192,75 143,14 129,94 (0,34% afföll) (0,64% afföll) (0,95% afföll) (1,32% afföll) (1,71% afföll) (2,06% afföll) (3,80% afföll) (4,60% afföll) (0,40% afföll) VERÐTRYGGÐ HAPPDRÆTTISLÁN RÍKISSJÓÐS Meöalávöxtun ofangreindra flokka um- fram verðtryggingu er 3,7—5%. VEÐSKULDABRÉF ÓVERÐTRYGGÐ: Sölugengi m.v. nafnvexti (HLV) 12% 14% 16% 18% 20% 40% 1 ár 66 67 2 ár 55 56 3 ár 46 48 4 ár 40 42 5 ár 35 37 68 57 50 44 39 69 59 51 46 41 71 61 53 48 43 80 74 70 67 65 B — 1973 C — 1973 D — 1974 E — 1974 F — 1974 G — 1975 H — 1976 I — 1976 J — 1977 1.fl. — 1981 Sölugengi pr. kr. 100.- 2,851,48 2.553,05 2.216,18 1.515,96 1.515,96 1.005,61 958.22 729,11 678,42 135,84 TÖKUM OFANSKRÁÐ VERÐBRÉF í UMBOOSSÖLU i Veröbréfamarkaöur Fjá rfestingarfélagsins LæKjargotu 12 101 Reykjavik lónaóarbankahusinu Simi 28566

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.