Morgunblaðið - 19.09.1982, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 19.09.1982, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 37 3. grein Fílar við skógarhöggsvinnu Unnið við að tína telauf þjóðarinnar, Tamilar, búa aðal- lega í norður- og austurhlutanum. Þeir eru flestir hindúatrúar, einn- ig búa þarna kristnir menn og slangur af múhameðstrúar- mönnum. Þó svo að Tamilar séu minnihlutahópur gegna þeir ýms- um ábyrgðarstöðum í stjórnkerfi landsins, en ekki er alltaf kyrrt með þessum hópum, að því er mér var sagt. Þá eru einnig kynblend- ingar, m.a. afkomendur Portúgala og Englendinga frá nýlendutím- unum og slangur af Malajum. Lífið er þjáning... nema þú hefjir þig yfir allar langanir Inntak Búddatrúarinnar er að maðurinn sé fæddur til að þjást, fæðingin er þjáning, lífið er þján- ing og dauðinn sömuleiðis. Búdda taldi löngunina vera meginorsök þjáningarinnar. Gæti maðurinn náð því marki að langa ekki, gæti hann sigrast á sjálfum sér og öðl- ast sanna hamingju og innri frið. Búdda er ekki tilbeðinn sem guð, heldur sem göfugmenni og vitr- ingur, sem reyndi að vísa mannin- um veginn til lífshamingjunnar. Uppruni Sri Lanka er horfinn inn í óþekkta fortíð. En elztu heimildir um eyjuna mun vera að finna í sögulegu kvæði sem heitir Ramayana og er lögð rækt við að kenna börnum. Kvæðið segir frá því hvernig Ravana, tíu höfða kon- ungur Lanka, hélt til Indlands til að hefna misgjörða sem systir hans hafði sætt. Hann hafði á brott með sér hina unaðsfögru Situ, eiginkonu Rama. Sita var flutt til Sri Lanka í dandu monara, loftskipi sem var eins og páfa- gaukur í laginu, en páfagaukurinn hefur sennilega allar götur síðan verið fugl eyjarinnar. Rama varð Slöngutemjarinn lék listir sínar hinn versti þegar eiginkona hans var nú brott numin og kom á lagg- irnar öflugum her, með hjálp apa- guðsins Hanuman. Ravana beið ósigur og Sita hvarf aftur til síns heima. Þessi atburður á að hafa gerzt fyrir þúsundum ára en ótal staðir í landinu eru nefndir eftir hinni fögru Situ og aðrir tengjast bardaganum milli Rama og Rav- ana með nafngiftum. Og hvað er þá goðsögn og hvað er svo söguleg staðreynd? Það er önnur saga. Ótal goðsagnir og ævintýra- sagnir eru tengdar eyjunni og margar þeirra æði litríkar. En í þeim gengur eins og rauður þráð- ur togstreitan milli Sinhalesa og Tamila, sem börðust um völd og áhrif svo öldum skipti. Portúgalar komu til eyjarinnar árið 1505 og óskuðu eftir því að fá að ganga á fund konungs eyjar- innar. En Sinhalesar léku á þá og þegar Portúgalar komust loks til höfuðborgarinnar, sem þá var Kandy, var hafin skothríð af skip- unum þar sem menn voru farnir að óttast um afdrif sendimann- anna. Portúgalar gerðust engu að síður aðsópsmiklir í landinu í hálfa aðra öld, en þá voru þeir hraktir frá eyjunum af Hollend- ingum. Afkomendur Hollendinga á Sri Lanka eru kallaðir Burghers en margir þeirra hafa flutt til Ástralíu á síðustu áratugum, eink- um eftir að Singhalea varð aðal- tungumál landsins. Bretar koma svo til eyjarinnar 1796 og veittu Hollendingar ekki mikla mót- spyrnu. Bretar reyndu að ná Kandy sem hafði lengst verið tákn um stjórn Sinhalesa og árið 1815 voru konungur landsins og aðrir ráðamenn myrtir á hinn sviksam- legasta hátt. Þá hafði konung- dæmi Sinhalesa staðið í 24 aldir. Eyjan lenti á áhrifasvæði Breta og það var ekki fyrr en 4. febrúar 1948, að Ceylon, eins og hét þá fékk frelsi sitt að nýju. Állmiklar róstur voru framan af í hinu unga sjálfstæða ríki, en það er svo með kosningu núverandi forseta Junius Jayewardene sem kyrrð fer að komast á að nýju og ótrúlegar framfarir hafa orðið í landinu á tiltölulega skömmum tíma. Batik, te og edalsteinar Sjálfsagt kemur te fyrst í hug- ann, þegar hugsað er til Sri Lanka, en þar er einnig eðal- steinavinnsla í grennd við Ratnap- ura og víðar í landinu hafa fundizt hinir göfugustu steinar. Batik- vinnsla á sér þar langa hefð, þess- ari iðngrein hnignaði nokkuð á tímabili, en hefur lifnað yfir henni á ný eftir að ferðamannastraumur jókst. Ég kom í eina batikverk- smiðju og var sýnd tæknin við vinnuna. Ég er ekki viss um að batik sé mikið flutt út enn frá Sri Lanka en þessi varningur er vin- sæll hjá ferðamönnum og mikið keyptur. Þá eru Lankar einnig þekktir fyrir grímugerð sem minnir reyndar á það sem er m.a. í Indónesíu. Menn sem eru snjallir grímugerðarmenn njóta mikillar virðingar og er sagt að hvergi séu þeir betri en í bænum Ambalan- goda í suðurhluta landsins. Grím- ur eru notaðar við dansa og helgiathafnir, við dansa fannst mér eftirtektarvert að þar eru karlarnir langtum skrautbúnari en konurnar sem virðast meira gegna því hlutverki að vera til uppfyllingar fyrir karldansarana. Sri Lanka er um 65 þúsund fer- kílómetrar að stærð. Hvar eyjan liggur þarna í Indlandshafinu er hún líkt og tár sem fallið hefur af hvörmum Indlands. En ég held að mér sé óhætt að segja að hvergi utan íslands hefur landslag haft jafn sterk áhrif á mig og á Sri Lanka. texti: Jóhanna Kristjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.