Morgunblaðið - 19.09.1982, Page 38

Morgunblaðið - 19.09.1982, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 t Móðir mín, ÓLÖF LOFTSDÓTTIR, Norðurbraut 9, Hafnarfirði, andaðist á Sólvangi 16. september. Helga Kristjánsdóttir og börn. Faöir okkar, ANTON TÓMASSON fré Hofsósi, sem lést 14. september, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 22. september kl. 10.30. Tómas Antonsson, Sigríöur Antonsdóttir, Kristinn Antonsson, Sigurlína Antonsdóttir, Þorkell Méni Antonsson, Auöur Antonsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaöir, tengdasonur og afi, BRANDURJÓNSSON, fyrrv. skólastjóri, veröur jarösunginn frá Bústaðakirkju þriöjudaginn 21. september kl. 15.00. Rósa Einarsdóttir, Anna Guðný Brandsdóttir, Lennard Olsson, Margrét Brandsdóttir, Finnur Sigurgeirsson, Guörún Brandsdóttir, Hörður Þór Hafsteinsson, Anna Sígurðardóttir og barnabörn. t Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, JULÍUS Á. JÓNSSON, fyrrverandi sórloyfishafi, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 20. september kl. 10.30. Asta Magnúsdóttir, Hans Júlíusson, Anna Hjartardóttir, Jón Gunnar Júlíusson, Þuríður Beck, Birna Júlíusdóttir, Hlöðver Oddsson, Kristín Júlíusdóttir, Guömundur Ingólfsson, barnabörn og barnabarnabörn. Móöir okkar. t JÓNA ANNA BJÖRNSDÓTTIR fré Stykkishólmi, veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 20. september kl. 3 e.h. Börnin. Maöurinn minn. t KLEMENS ÞÓRLEIFSSON, kennari, Hjallavegi 1, Reykjavík, veröur jarösunginn frá ember nk. kl. 10.30 f.h. Fyrir hönd vandamanna, Laugarneskirkju, mánudaginn 20. sept- Guöríöur Þórarinsdóttir. t Elskuleg dóttir min, móöir okkar, tengdamóöir og amma, INGVELDUR MAGNÚSDÓTTIR, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. septem- ber kl. 15. Sigrfður Jónsdóttir, Brynja Jóna Gísladóttir, Sigríöur Erna Hafsteinsdóttir, Sverrir Mér Hafsteinsson, Víkingur örn Hafsteinsson, tengdasynir og barnabörn. t Móöir okkar. tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN M. JÓNSDÓTTIR, Víkurbakka 26, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 21. september kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélag islands. Bragi Freymóðsson, Sigrföur B. Freymóösson, Árdfs J. Freymóösdóttir, Fríöa Freymóösdóttir, Helgi Felixson, barnabörn og barnabarnabörn. Klemens Þórleifsson kennari — Minning Fæddur 5. júlí 1896 Dáinn 12. september 1982 Á morgun, mánudag 20. sept- ember 1982, verður gerð frá Laug- arneskirkju í Reykjavík útför Klemens Þórleifssonar, kennara, sem andaðist 12. þ.m. Með honum er hniginn í valinn merkur skóla- maður sem skilað hefur miklu dagsverki og góðu. Klemens Þórleifsson fæddist að Kálfárdal í Austur-Húnavatns- sýslu 5. júlí 1896. Foreldrar hans voru hjónin Þórleifur Klemens (fæddur 4. júlí 1839, dáinn 11. maí 1902) Klemensson, bónda í Ból- staðarhlíð, Klemenssonar, og Þór- unn Dýrborg (fædd 26. september 1870, dáin 10. október 1942) Eyjólfsdóttir, bónda í Kálfárdal Jónassonar. Þau hjón bjuggu síð- ast á Botnastöðum í Bólstað- arhlíðarhreppi. Árið 1943, 15. maí, kvæntist Klemens Guðríði Árnýju Þórarinsdóttur, húsasmiðs í Borg- arnesi, Ólafssonar, og konu hans, Jónínu Kristínar Jónsdóttur. Guð- ríður er fædd 1. febrúar 1915 og lifir hún mann sinn. Klemens varð þriggja barna auðið. Þau eru: Ólöf Inga (fædd 22. maí 1934), hún var gift Halldóri Hafliðasyni, flug- stjóra í Reykjavík, en hann er nú látinn fyrir skömmu. Móðir Ólafar er Herdís Sigfúsdóttir, ættuð úr Bólstaðarhlíðarhreppi. Ólöf ólst upp að mestu hjá móðursystur sinni, Ingiríði Sigfúsdóttur, en hún var að nokkru uppeldissystir Klemens. Þórunn (fædd 29. janúar 1945), menntaskólakennari i Reykjavík, hagfræðingur að mennt. Hún er gift Þresti Ólafs- syni, hagfræðingi, aðstoðarmanni fjármálaráðherra. Þórarinn (fæddur 30. júní 1947), forstjóri innflutningsverslunar í Reykjavík. Hann er kvæntur Ásdísi Sigur- gestsdóttur, kennara. Þórunn og Þórarinn eru börn Guðríðar. Klemens leitaði sér menntunar á unga aldri og lauk kennaraprófi árið 1922. Ári síðar hóf hann kennaraferil sinn er hélst síðan, nær óslitinn, uns hann lét af störf- um sjötugur að aldri. Hann kenndi fyrst í Torfalækjarhreppi í Áustur-Húnavatnssýslu 1923— 1925, þá í Bólstaðarhlíðarhreppi 1925—1928 og svo í Norðurár- dalshreppi í Mýrasýslu 1929-1930. Árið 1930 gerðist Klemens skólastjóri við barna- skólann að Húsatóftum á Skeiðum og síðar að Brautarholti í sömu sveit til ársins 1943. Þá fluttist hann til Reykjavíkur og var eftir það kennari við Laugarnesskólann uns hann lét af störfum. Almennt þykja það varla um- talsverð tíðindi að aldurhniginn maður falli í valinn. En samferða- menn hans margir sakna vinar í stað og minnast þess sumir að þeir áttu manni þessum skuld að gjalda, þótt nú sé um seinan. Leiðir okkar Klemens hafa legið saman frá því hann kom til starfa við Laugarnesskólann fyrir nær- fellt fjórum tugum ára. Er skemmst frá því að segja að með okkur tókust hin bestu kynni sem héldust óslitin meðan báðir lifðu, þó að samfundir yrðu nokkuð strjálli er leiðin lá ekki lengur daglega í skólann. Það er gæfa hverjum manni að njóta samfylgdar góðra drengja. Þeirrar gæfu naut ég þar sem Klemens fór. Því er mér nú vandi á höndum að minnast hans svo að leiðarlokum sem vert væri. Klemens var maður fríður sýn- um og mikill á velli. Hann var djarfmannlegur í framgöngu og djarfmæltur við hvern sem var, gerði sér ekki mannamun. Hann var glaðvær í viðmóti og gaman- t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug vegna andláts SIGRÍÐAR GRÓU ÞORSTEINSDÓTTUR, Eyrarvegi 13, Akureyri. Tryggvi Helgason, Þorsteinn Gunnarsson, Ingunn Guöbrandsdóttir, Benedikt Gunnarsson, Ólafía Guöjónsdóttir, Styrmir Gunnarsson, Kristín Siguröardóttir, Guöný Styrmisdóttir, Asgeir Ásgeirsson, og aörir vandamenn. t Þakka innilega auðsýnda samúö, vinarhug og aöstoö vlö andlát og útför dóttur minnar, SOFFÍU DAGBJARTAR BENEDIKTSDÓTTUR, Neavegi 41. Móöir hinnar létnu, Aöalheiöur Bergþóra Líkafrónsdóttir, Hétúni 10 A, Reykjavík. t Eiginmaöur minn og faöir, ENGILBERT ÓSKARSSON, Bugöulœk 16, Reykjavík, fyrrverandi bifreiöastjóri fré Skagaströnd, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni, miövikudaginn 22. septem- ber kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er góöfúslega bent á aö láta Hjartavernd njóta þess. Sigríöur Helgadóttir, Ingibjörg Engilbertsdóttir. Faöir okkar og tengdafaðir, GUÐMUNDUR HJÖRLEIFSSON, trésmiöur, veröur jarösunglnn frá Dómkirkjunni mánudaginn 20. september kl. 15.00. Erna Guömundsdóttir, Gísli Kristjénsson, fna Guömundsdóttir, Eysteinn Leifsson, Leifur Guömundsson, Sigrún Runólfsdóttir. samur er því var að skipta, en öðr- um þræði alvörugefinn og hafði ekki alvörumál í flimtingum. Fróður var Klemens um marga hluti og víðlesinn, enda átti hann mikið safn góðra bóka. Kennslustörf fóru Klemens prýðilega úr hendi. Hann var far- sæll kennari og vandvirkur, bar hag nemenda sinna mjög fyrir brjósti, ekki síst þeirra, er minnst máttu sín. Klemens var félagslyndur og fé- lagshyggjumaður. Hann treysti á samtakamátt fjöldans, treysti því að með samstilltu átaki mætti þoka málum í átt til jafnréttis og réttlátrar skiptingar lífsins gæða. Slíkar hugmyndir munu taldar eiga nokkuð skylt við sósíalisma, enda held ég að Klemens hafi í raun verið sósíalisti í hug og hjarta. Þess má geta hér að Klem- ens bauð sig fram við alþingis- kosningar fyrir Sósíalistaflokkinn a.m.k. tveim sinnum, í Austur- Húnavatnssýslu og Norður-Þing- eyjarsýslu. Varla hefur hann búist við því að vinna þessi kjördæmi fyrir flokkinn á þeim tíma, en hann var baráttufús og þarna var óplægðan akur að erja. Félagshyggja Klemens kom ekki síst fram í starfi hans að félags- málum á ýmsum sviðum. Á ungum aldri starfaði hann í ungmenna- félögum og síðar í félagssamtök- um kennara. Auk þess er mér kunnugt um að hann tók lengi virkan þátt í störfum náttúru- lækningamanna og sat í stjórn samtaka þeirra um tíma. Mér varð það snemma ljóst að Klemens var búinn ýmsum þeim eðliskostum sem vel mega duga þeim mönnum, er veljast til for- ystu í félagsmálum. Hann var at- hugull maður og úrræðagóður, gerði sér far um að kynnast mála- vöxtum áður en hann tæki af- stöðu. Hann var prýðilega máli farinn og hélt skoðunum sínum fram af einurð og festu . Ekki lét hann þó valda vinslitum að aðrir væru öndverðrar meiningar. Best eru mér kunn störf Klem- ens í Kennarafélagi Laugarnes- skóla. Þar var hann snemma kvaddur til trúnaðarstarfa og vor- um við samtíöa í stjórn þess félags um langt árabil. Um þær mundir réðst félagið í að festa kaup á landi að Katlagili í Mosfellssveit í því skyni að reisa þar skólasel fyrir nemendur Laugarnesskól- ans. Nærri má geta að slíkt var ekki áhlaupaverk, en með sam- stilltu átaki og þrautseigju tókst að koma þar upp nothæfu húsi. Samtímis var hafist handa við skógrækt í landi selsins og vex þar nú óðum skógargróður. Þessum stað tengdist Klemens traustum böndum og hann átti sinn drjúga þátt í því hversu verkum skilaði fram. Enn höguðu atvikin því svo að við Klemens áttum samvinnu að stjórn annars félags, Byggingar- samvinnufélags barnakennara. Einnig þar reyndist hann traustur liðsmaður og tillögugóður. Nú er Klemens horfinn sjónum okkar yfir landamæri lífs og dauða, en í hugum samferða- manna hans lifir minningin um góðan dreng og traustan félaga. Þessum línum fylgja einlægar samúðarkveðjur til Guðríðar, konu hans, barna og venslafólks. Kristinn Gi.sla.son

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.